Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 58

Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 58
HESTAR 58 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ RANNSÓKNIR á erfðabreytileika íslenska hrossastofnsins sem fram fara á Keldum ganga vel og er búist við að fyrstu niðurstöður verði birt- ar um mitt næsta ár. Fyrirhugað er að koma upp ætternisgreiningu fyrir hrossaræktendur auk þess sem byggður verður upp gagna- grunnur og lífsýnabanki sem bygg- ist á því erfðaefni sem safnað er við rannsóknina. Tekið hefur verið blóð úr 150–200 hrossum úr tilviljunarkenndu úr- taki auk mest notuðu stóðhesta landsins. Einnig hefur verið tekið blóð úr hrossum úr einangruðum stofnum svo sem úr Kirkjubæjar- hrossunum gömlu og Árnanes- hrossunum í Hornafirði. Þá er verið að leita að hreinræktuðum hrossum af Hindisvíkurstofni. Síðastliðið vor var einnig safnað blóði úr öllum stóðhestum sem sýndir voru þá. Vilhjálmur Svansson dýralæknir vinnur að rannsókninni á Keldum ásamt þeim Viktori Mar Bonilla, en þetta er MS-verkefnið hans, Val- gerði Andrésdóttur og Eggerti Gunnarssyni. Þá koma einnig að verkefninu Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma og Ágúst Sigurðsson, hrossaræktar- ráðunautur Bændasamtakanna. Auk þess hafa þau unnið í samvinnu við Matthew Binch hjá Animal Health Trust í New Market á Eng- landi, en hann hefur verið að kort- leggja erfðamengi hestsins. Vitneskju safnað um einangraða stofna Að sögn Vilhjálms byggist rann- sóknin á því að kanna erfðabreyti- leika íslenska hestsins með því að skoða ákveðin svæði í erfðaefninu. Ætlunin er að skoða um 50 mis- munandi svæði dreifð á erfðaefnið. „Ef um lítinn erfðabreytileika er að ræða verður erfitt að skera úr um ætterni hrossa, en ef fjölbreyti- leikinn er mikill í stofninum er það mun auðveldara,“ sagði Vilhjálmur. Hann segir ljóst að forsenda ræktunarstarfsins sé að erfðafjöl- breytileiki sé mikill og mikilvægt að halda honum. Þegar fram líða stundir segir hann að mögulegt verði fyrir ræktendur að fá upplýs- ingar um hvaða stóðhestar bera í sér fjölbreytileika og hverjir ekki. Í framtíðinni gætu þeir því valið frekar stóðhest sem gæti borið erfðafjölbreytileikann áfram fram yfir þann sem ekki gæti það, þótt þetta virtust vera sambærilegir hestar. Auk þess verður mjög forvitni- legt að fá vitneskju um hvort gaml- ir skyldleikaræktaðir stofnar, eins og t.d. Árnaneshrossin, séu að ein- hverju leyti frábrugðnir fjöldanum, hvort í þeim megi finna annars kon- ar erfðaefni en í öðrum hrossum, hvort eiginleikar hafi einangrast í stofninum eða horfið úr honum. Ætternisgreining og lífsýnabanki En rannsóknin býður upp á hlið- arafurðir. Fyrst og fremst er horft til ætternisgreiningar fyrir hrossa- ræktendur, en það blóð sem safnast hefur og mun safnast í rannsókn- inni mun verða geymt og verður grundvöllur fyrir lífsýnabanka sem er efniviður fyrir hvers kyns rann- sóknir á íslenska hrossastofninum. Á rannsóknunum og erfðaefninu sem safnast er því hægt að byggja upp gagnagrunn um stofninn. Til dæmis með því að safna erfðaefni úr bestu hrossum landsins á hverj- um tíma og einnig úr tilviljana- kenndu úrtaki til að fá þversnið af stofninum hverju sinni. Fljótlega verður hægt að notast við hárrætur til að ná í erfðaefni, en Vilhjálmur segir að blóð sé mun betra efni. Rannsóknir á því hafa gengið mjög vel og úr því fæst mun meiri og betri efniviður til rann- sókna. Í hárrótum er lítið efni og þarf töluvert magn, auk þess sem það geymist mun verr en blóð. Hins vegar er mun ódýrara að taka hársýni. Á móti kemur að það hlýtur að þurfa að setja strangar reglur hverjir megi safna hársýni. Vilhjálmur sagði slík öryggisatriði ekki í höndum rannsóknarmann- anna heldur hlytu hrossaræktend- ur að verða að koma sér upp slíku kerfi. Dýralæknar eru þeir einu sem mega draga blóð úr hrossum til að senda til rannsóknar. Verður „yfirferðargenið“ úr Kolfinni einangrað? Óneitanlega vekur það upp margar spurningar um hvaða möguleikar verða fyrir hendi í framtíðinni þegar allt þetta erfða- efni liggur fyrir. Vilhjálmur var til gamans spurður að því hvort ekki yrði auðvelt að klóna hross ef slíkt yrði leyft í framtíðinni, t.d. væri hægt að framleiða annan Kolfinn frá Kjarnholtum. Vilhjálmur var fljótur að svara því og sagði að lík- lega yrði sniðugra að einangra bara „yfirferðargenið“ úr honum og koma því áleiðis í ræktuninni. Erfðarannsóknir á stofninum ganga vel Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Ellen Trætteberg frá Noregi ásamt undirbúningsnefndinni, Þorsteini Broddasyni og Ingimar Ingimarssyni frá Hestamiðstöð Íslands og Önnu K. Vilhjálmsdóttur frá Íþróttasambandi fatlaðra. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Þessi drengur hefur að sögn móður hans aldrei viljað liggja á maganum. Hann var settur á hest og lá grafkyrr á maganum og slakaði alveg á. SÝNING á hestaljósmyndum þeirra Valdimars Kristinssonar og Eiríks Jónssonar sem þekktastir eru meðal hestamanna fyrir hestaumfjöllun og hestaljósmyndir sínar á síðum Morgunblaðsins og DV var opnuð í MR-búðinni á Lynghálsi 3 í Reykja- vík í gær. Á sýningunni eru litmyndir af hestum og hestamönnum sem tekn- ar voru á þessu ári. Í kaffihorni MR-búðarinnar verð- ur komið fyrir myndum frá Heims- meistaramóti íslenskra hesta sem haldið var í Stadl Paura í Austurríki síðastliðið sumar. Sýningin verður opin á opnunartíma verslunarinnar kl. 8–18 á virkum dögum og 10–14 á laugardögum til 17. nóvember nk. Sýning á hestaljós- myndum í MR-búðinni FAGRÁÐ í hrossarækt boðar til ráð- stefnunnar „Hrossarækt 2001“ föstudaginn 16. nóvember nk. í Ársal Hótel Sögu þar sem farið verður yfir hrossaræktarárið 2001 og spennandi niðurstöður nýrra rannsókna kynnt- ar. Ráðstefnan hefst kl. 12.30 og stendur til 17 og eru allir sem láta sig íslenska hrossarækt varða, jafnt fag- fólk sem áhugamenn, hvattir til að mæta. Dagskrá ráðstefnunnar er eftir- farandi: 12.30 Fundarsetning. 12.35 Hrossaræktarárið 2001. Ágúst Sigurðsson, hrossaræktar ráðunautur Bændasamtaka Íslands, fer yfir árið og kynnir nýjasta kynbótamatið. 13.00 Gestafyrirlesarar: Sveinn Ragnarsson: Ræktun kappreiðavekringa. Pétur Halldórsson: Hrossa- fóðrun í höfuðborginni. Þorvaldur Kristjánsson: Vilji og geðslag. Eyþór Einarsson: Hverju skiluðu afkvæmaprófanirnar? Elsa Albertsdóttir: Er eitthvert vit í þýskum dómum? 15.30 Umræður 16.00 Afhending viður- kenningar skjala: Þátttakendur í gæðastjórnun. Tilnefningar til ræktunarverð launa ársins. Fundarslit fyrir kl. 17. Fagráð efnir til ráðstefn- unnar Hrossa- rækt 2001 HROSSABÓNDINN á Bergi í Reykholtsdal, Flosi Ólafsson, verður veislustjóri á árlegri uppskeruhátíð hestamanna sem Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossa- bænda efna til föstudagskvöldið 16. nóvember nk. í Broadway. Hesta- íþróttamaður ársins og ræktunar- maður ársins verða að venju út- nefndir og atriði úr Hestagaldri, sýn- ingunni sem sett var upp í tengslum við Islandica hestasýninguna í haust, flytja þeir Helgi Björnsson, Jóhann Sigurðarson og Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin BSG, sem samanstend- ur af þeim Björgvini Halldórssyni, Sigríði Beinteinsdótur og Grétari Örvarssyni, leikur fyrir dansi. Þegar er farið að panta miða og borð í Broadway en síðasti pöntunar- dagurinn er 13. nóvember. Þó er bent á að mikilvægt er að tryggja sér miða í tíma til að fá borð á góðum stað. Flosi veislu- stjóri á uppskeruhátíð hestamanna ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.