Morgunblaðið - 04.11.2001, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 4. NÓVEMBER 2001
253. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
4. nóvember 2001
Ekki aðeins
einn veruleiki
Leonard Cohen tileinkaði
henni plötuna I’m your man,
hún hefur lengi notið góðs
gengis sem ljósmyndari og
var vinkona listakonunnar
Rósku á áttunda áratugnum.
Hjálmar Sveinsson ræðir við Dominique
Issermann sem segir tískumyndir nú-
tímans gersneyddar öllum kynþokka./16
ferðalögHáir hælar í skógumbílarFurður í TókýóbörnHarry PotterbíóVerðlaun Sturlu
Sælkerar á sunnudegi
Leyndarmál vorsins
Uppskriftir La
Primavera
öðlast líf í
öðrum eldhúsum
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
Ekki verður þörf fyrir
sama starfsmannafjölda
16
Er herfræðin
gölluð?
12
Hvort er valdið foreldra
eða skólayfirvalda?
10
TIL átaka kom í fyrradag milli
slökkviliðsmanna og lögreglu-
manna í New York er þeir fyrr-
nefndu mótmæltu þeirri ákvörðun
Rudolphs Giulianis borgarstjóra að
fækka verulega þeim slökkviliðs-
mönnum, sem enn leita að líkum í
rústum World Trade Center. 347
slökkviliðsmenn fórust er bygg-
ingin hrundi eftir hryðjuverkaárás-
ina 11. september. Giuliani réttlætti
ákvörðun sína með því, að það yrði
æ hættulegra að leita í rústunum nú
þegar farið væri að nota stórvirk
vinnutæki við hreinsunina. Slökkvi-
liðsmenn segjast hins vegar telja,
að fjárhagsástæður hafi ráðið
mestu.
AP
Slökkviliðsmenn
mótmæla í rústunum
HERSVEITIR Norðurbandalags-
ins náðu í gær mikilvægu héraði fyr-
ir sunnan borgina Mazar-i-Sharif í
norðurhluta Afganistans eftir að 800
liðsmenn talibanastjórnarinnar
gengu þeim á hönd. Sögðu talsmenn
þess, að 200 talibanahermenn hefðu
verið handteknir og um 80 fallið í
hörðum bardögum.
Talsmaður Norðurbandalagsins
sagði, að héraðið Aq-Kupruk hefði
fallið því í hendur eftir harða bar-
daga en áður hefði verið búið að hafa
samband við liðsmenn talibana og
hefðu um 800 þeirra hlaupist yfir til
Norðurbandalagsins.
Talsmaður talibanastjórnarinnar í
Kabúl viðurkenndi, að barist hefði
verið á þessum slóðum en vildi ekki
tjá sig nánar um það. Hann lýsti því
hins vegar yfir, að talibanar myndu
berjast í ramadan, föstumánuði
múslíma, en George W. Bush
Bandaríkjaforseti sagði á föstudag,
að hryðjuverkamenn tækju sér ekki
frí í föstumánuðinum og svo yrði
heldur ekki um baráttuna gegn
þeim.
Fjórir slösuðust
er þyrla brotlenti
Ræðismaður talibanastjórnarinn-
ar í Peshawar í Pakistan sagði í gær,
að tekist hefði að skjóta niður tvær
bandarískar þyrlur í Ghazni-héraði,
en Bandaríkjamenn vísa því á bug.
Þeir segja hins vegar, að fjórir menn
hafi slasast er þyrla brotlenti. Hefði
þeim verið bjargað strax.
Talibanar sögðu í gær, að þeir
hefðu hengt þrjá stuðningsmenn
konungssinnans Hamid Karzais en
talið er, að hann sé í Afganistan til
að kynda undir uppreisn gegn talib-
anastjórninni.
Búist er við, að nokkur floti jap-
anskra herskipa með 700 hermenn
komi inn á Indlandshaf í næstu viku.
Eiga þeir að aðstoða Bandaríkja-
menn án þess þó að taka beinan þátt
í hernaðinum í Afganistan. Um 1.000
vopnaðir Pakistanar héldu í gær yfir
til Afganistans til liðs við talibana.
Nú hafa alls 17 manns smitast af
miltisbrandi í Bandaríkjunum og
gróanna verður vart á æ fleiri póst-
húsum. Í Pakistan hafa fundist milt-
isbrandsgró í tveimur byggingum.
Talibanar missa
mikilvægt hérað
Kabúl. AFP, AP.
Herfræðin/12
BARÁTTAN gegn fátækt og at-
vinnuleysi verður helsta verkefni
næsta forseta Mið-Ameríkuríkis-
ins Níkaragva en forsetakosning-
ar eru í landinu í dag.
Skoðanakannanir hafa sýnt, að
Enrique Bolanos, frambjóðandi
stjórnarflokksins, Frjálslynda
flokksins, og Daniel Ortega, fyrr-
verandi skæruliðaleiðtogi í flokki
Sandinista, hafa næstum sama
fylgi meðal kjósenda. Talið er, að
70% íbúanna búi við fátækt og at-
vinnuleysið er 53%. Olli fellibyl-
urinn Mitch miklum búsifjum
1998 og á þessu ári hefur orðið
uppskerubrestur vegna þurrka.
Þá hafa þúsundir manna misst at-
vinnuna vegna mikillar verðlækk-
unar á kaffi.
Forsetakosningar í Níkaragva
Fátækt og 53%
atvinnuleysi
Managva. AFP.
Reuters
Ung stúlka, sem augljóslega veit hvorn frambjóðandann hún styður.
Friðarboði/14
ÖKUMENN, sem staðnir eru að því
að brjóta umferðarreglur í Suðvest-
ur-Póllandi, geta sloppið við að
greiða sekt samþykki þeir að falla á
knén með presti og biðjast fyrir.
„Í staðinn fyrir sektarmiða læt ég
þá fá mynd af heilögum Kristófer,
verndardýrlingi ferðamanna,“ segir
séra Piotr en hann starfar með lög-
reglunni í bænum Glogow. Segist
hann láta ökumennina brotlegu
signa sig, biðjast fyrir og fara með
þessa syndajátningu: „Það er synd-
samlegt að brjóta þau lög, sem gilda
á vegum úti, og um það er ég sekur.“
Umferðin í Póllandi
Bænir í stað
sektarmiða
Varsjá. AFP.
RÚSSNESK stjórnvöld sögðu í
gær, að ABM, Gagneldflaugasátt-
málinn frá 1972, væri „leifar úr
kalda stríðinu“ og kváðust vilja
vinna með Bandaríkjastjórn að nýju
fyrirkomulagi.
„Okkur hefur verið sagt það
margsinnis að undanförnu, að
ABM-sáttmálinn sé leifar úr kalda
stríðinu, og ég er sammála því að
hluta, aðeins að hluta. Raunar eru
allir samningar okkar og Banda-
ríkjamanna að nokkru leyti leifar úr
kalda stríðinu,“ sagði Sergei Ív-
anov, varnarmálaráðherra Rúss-
lands, á fréttamannafundi í Moskvu
í gær.
Þetta er í fyrsta sinn, sem Rússar
fallast á, að ABM-sáttmálinn kunni
að vera úreltur, og kann það að
vera fyrirboði verulegra tíðinda á
fundi Vladímírs Pútíns Rússlands-
forseta og George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna, síðar í mánuðinum.
Rússar játa að
ABM sé úreltur
Moskvu. AFP.
♦ ♦ ♦