Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 8

Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Gætirðu ekki slappað af hérna heima í nokkra daga, Halldór minn? Ég hef ekki orðið undan að loka deildum vegna blankheita, góði. Ráðstefna um tungumálanám og -kennslu Tungumálanám er að þróast Rannsóknarþjónustaog Tungumálamið-stöð Háskóla Ís- lands í samvinnu við Kvasi, Alþjóðaskrifstofu háskóla- stigsins og MFA standa fyrir ráðstefnu og sýningu um tungumálanám og -kennslu sem haldin verður í Háskóla Íslands á morg- un og á laugardaginn. Ráð- stefnan ber yfirskriftina „Alternative Approaches to Language Learning and Teaching“. Eyjólfur Már Sigurðsson er deildarstjóri í Tungumálamiðstöð HÍ. – Um hvað snýst ráð- stefnan? „Eins og nafnið ber með sér er umfjöllunarefnið nýjar aðferðir í tungumála- námi og -kennslu og verð- ur „tungumálanemandinn“ í aðal- hlutverki. Meðal annars verður fjallað sérstaklega um nemenda- miðað nám en það er nám sem nemandinn stjórnar að verulegu leyti sjálfur s.s. sjálfsnám en Há- skóli Íslands hefur einmitt boðið nemendum sínum upp á sjálfsnám í tungumálum á undanförnum misserum við Tungumálamiðstöð skólans. Einnig verða ýmsar nýj- ungar í tungumálanámi kynntar á sýningu sem haldin er í tengslum við ráðstefnuna í Tæknigarði HÍ.“ – Hverjum er ráðstefnan ætluð? „Ráðstefnan og sýningin er fyrst og fremst ætluð tungumála- kennurum og þeim sem skipu- leggja nám og kennslu í erlendum tungumálum því þarna gefst tæki- færi til að kynna sér nýjungar á þessu sviði, bæði hvað varðar að- ferðir og kennsluefnisgerð.“ – Hvernig stendur tungumála- nám á Íslandi í dag? „Þetta er erfið spurning því lík- lega skortir mig yfirsýn til þess að svara þessu af einhverju viti. Ég tel þó að tungumálakennsla standi vel vegna þess að við eigum marga vel menntaða tungumálakennara, framboð á tungumálakennslu er nokkuð fjölbreytt og aðstæður eru að mörgu leyti ágætar. Hvað skólakerfið áhrærir myndi ég þó gjarnan vilja fjölga tímum í tungu- málakennslu á öllum skólastigum svo hægt væri að leggja meiri áherslu á talmál, byrja tungumála- kennslu fyrr og nýta betur upplýs- ingatækni. Í nýlegri skoðanakönn- un á tungumálakunnáttu Íslend- inga lýstu 60% aðspurðra yfir ánægju sinni með það tungumála- nám sem þeir fengu í skóla og það er góð einkunn að mínu mati. Í sömu könnun töldu 64% sig kunna góða ensku og það er mjög gott en mun færri telja sig góða í öðru tungumáli og það er auðvitað verra. Enskukunnátta er mikil- væg en góður göngumaður þarf að eiga mörg pör af skóm!“ – Eru miklar hræringar í tungumálanámi nú um stundir, t.d. nýjungar og/eða breytingar? „Ég held að tungumálanám sé að þróast í takt við þjóðfélags- breytingar í mörgum löndum þar sem ein- staklingurinn er í fyrir- rúmi. Þarfir tungu- málanema eru mjög ólíkar því þeir eru sjálf- ir mjög mismunandi. Til dæmis hefur símenntun aukist mjög á undanförnum árum og tungumála- nemendur eru nú á öllum aldri og af ólíkum uppruna. Upplýsinga- tæknin hefur líka valdið straum- hvörfum í tungumálanámi því hún auðveldar aðgang að erlendum tungumálum og menningu. Hún býður líka upp á nýja möguleika í miðlun upplýsinga og framsetn- ingu kennsluefnis. Notkun nýrra miðla auðveldar mjög sjálfsnám og fjarnám og nemendur geta nú í auknum mæli lagað tungumála- nám sitt að eigin þörfum. Það er líka aukin gróska í rannsóknum á sviði tungumálanáms og -kennslu hérlendis og má nefna til marks um það hina nýju stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Vigdís hefur sýnt tungumála- kennslu mikinn áhuga og hún tek- ur einmitt þátt í þessari ráð- stefnu.“ – Er hugsanlegt að ráðstefnan innleiði eitthvað skemmtilegt, beint eða óbeint? „Já, ég held að þegar svo margir áhugamenn um tungumálanám og -kennslu koma saman þá hljóti eitthvað skemmtilegt og fróðlegt að gerast! Mjög þekktir sérfræð- ingar bæði innlendir og erlendir munu flytja erindi og þátttakend- um gefst kostur á að vinna með þessum sérfræðingum í vinnuhóp- um sem eru tileinkaðir ákveðnum þemum. Þannig geta allir þátttak- endur skipst á skoðunum og komið sínum hugmyndum á framfæri.“ – Hvert er annars starfssvið Rannsóknarþjónustu og Tungu- málastöðvar HÍ? „Hlutverk Rannsóknarþjónust- unnar er að styrkja tengsl HÍ og atvinnulífs á sviðum rannsókna, nýsköpunar og hæfnis- uppbyggingar. Við- skiptavinir hennar eru því bæði starfsmenn og nemendur HÍ og aðilar úr íslensku atvinnu- lífi. Tungumálamiðstöð HÍ er þjónustustofnun sem býður upp á sjálfsnám í tungumálum fyrir alla þá nemendur Háskólans sem vilja viðhalda tungumálakunnáttu sinni. Tungumálastöðin hefur einnig skipulagt endur- og sí- menntunarnámskeið í tungumál- um fyrir fyrirtæki og stofnanir.“ Eyjólfur M. Sigurðsson  Eyjólfur Már Sigurðsson fæddist á Selfossi 16. maí 1967. Hann er stúdent frá Fjölbrauta- skóla Suðurlands 1986, með BA- gráðu í frönsku frá Háskóla Ís- lands 1993. Licence í almennum málvísindum og kennslufræði frönsku sem erlends máls frá Université Paris VII 1994 og Maitrise í kennslufræðum frönsku sem erlends máls frá sama skóla 1995. D.E.A. í kennslufræði tungumála frá Universitate Paris III 1996. Starfaði í Franska sendiráðinu á Íslandi 1996–98. Stundakennari í frönsku við HÍ frá 1997 og deild- arstjóri Tungumálamiðstöðvar HÍ frá 1998. Kona Eyjólfs er Elizabeth Ortega Lucion og eiga þau Matthildi Brynju. ... nýta betur upplýs- ingatækni ÍSLANDSPÓSTUR hyggst ekki grípa til sérstakra varúðarráðstaf- ana í aðdraganda jólanna vegna póstsendinga frá Bandaríkjunum. Að sögn Ingibjargar Sigrúnar Stefánsdóttur, formanns öryggis- málanefndar hjá Íslandspósti, er ekki talin ástæða til sérstakra var- úðarráðstafana miðað við núverandi ástand. „Við erum í nánu sambandi við Almannavarnir, lögregluna og sóttvarnalækni og fylgjumst mjög vel með þróun mála í heiminum. Ef eitthvað breytist í þessum efnum er- um við með ákveðin varaplön sem við munum fylgja eftir,“ segir hún. Ingibjörg segir starfsfólk Íslands- pósts ekki í hættu þar sem það opni ekki póstinn heldur sjái einungis um að dreifa honum. „Ef við fáum ein- hverjar grunsamlegar póstsending- ar eru ákveðin fyrirmæli þess efnis að starfsmenn eigi að láta bréfin í glæran plastpoka og loka vel fyrir og koma þeim fyrir á öruggum stað. Ef eitthvað grunsamlegt er á ferðinni er haft samband við yfirmenn og þá í kjölfarið lögregluna sem tekur ákvörðun um hvort þessi bréf verði opnuð og hvað verði gert við þau.“ Engar sérstakar varúðarráð- stafanir vegna jólapósts

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.