Morgunblaðið - 07.11.2001, Síða 17

Morgunblaðið - 07.11.2001, Síða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 17 Draumur kaffiunnenda! Veitum faglega ráðgjöf um val á kaffivélum. Fjölbreytt úrval í mörgum litum og gerðum. SAECO er stærsti framleiðandi expresso-kaffivéla á Ítalíu. Expresso- Cappuccino kaffivélar Verð frá kr. 14.915 stgr. Glerárkirkja, vinafundur eldri borgara Vinafundur eldri borgara verður í Glerárkirkju næstkomandi fimmtudag, 8. nóvember, klukkan 15. Samveran hefst með stuttri helgistund. Gestur fundarins verður Karólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi. Mun hún ræða um efnið sjálfsstyrkur og fjölskylduvernd. Hildur Tryggvadóttir og Þuríður Vilhjálmsdóttir, sópransöngkonur, flytja einsöngs- og tvísöngslög. Góðar veitingar. Allir eru velkomnir. LAUFEY Björg Gísladóttir opnar sýningu á blóma- og dýramyndum í Handverksmiðstöðinni Punktinum fimmtudaginn 8. nóvember kl. 14 og stendur hún út nóvember. Laufey hefur lengi haft áhuga á því að teikna og mála, aðallega blóma- og dýramyndir. Sýningin er á á sama tíma og Punkturinn, eða alla virka daga frá 13.00 -17.00. Allir eru velkomnir. Blóma- og dýramyndir FRAMTÍÐIN, sem er nefnd innan Félags eldri borgara á Akureyri, hefur fært Dvalarheimilinu Hlíð- sjúkralyftara, baðstóla og sjúkra- rúm að gjöf. Kvenfélagið Framtíð- in, sem stofnað var í janúar árið 1894 á Akureyri, var lagt niður sem kvenfélag á síðasta ári en tilgangur félagsins var að styrkja fátæka og sjúka. Eftir að kvenfélagið var lagt niður var ákveðið að reyna að gefa áfram út jólamerki og minningar- kort til stuðnings öldruðum eins og kvenfélagið hefur gert í áraráðir. Var því leitað til Félags eldri borg- ara á Akureyri um að stofna nefnd innan félagsins með útgáfu jóla- merkja og minningarkorta í huga. Í kjölfarið voru sjóðir kvenfélags- ins gerðir upp og stuðningssjóður aldraðra stofnaður sem fengið hef- ur nafnið Framtíðin. Úr þeim sjóði voru tækin greidd sem nú voru af- hent Hlíð. Jólamerkið sem Framtíðin gefur út er komið út og verður boðið til sölu á næstunni. Nefndarmenn vonast eftir góðum stuðningi bæj- arbúa við málefnið eins og ávallt áður. Framtíðin færir Hlíð tæki að gjöf LÖGREGLAN, grunnskólar og foreldrafélög grunnskóla á Ak- ureyri hafa sameinað krafta sína og standa fyrir endurskins- merkjadegi í dag, miðvikudaginn 7. nóvember. Markmiðið er að allir grunnskólanemendur í bænum verði með endurskinsmerki og tryggi þannig öryggi sitt nú í skammdeginu. Bílaleiga Akureyrar, Sjóvá- Almennar og Tryggingamiðstöðin hafa lagt til endurskinsmerki sem verður dreift til allra nemenda. Ætlast er til að endurskinsmerkin verði límd á skólatösku eða ut- anyfirfatnað. Nemendur í 10. bekk skólanna hafa útbúið skilti sem sett hafa verið upp við innkeyrslur að skól- unum. Þar er vakin athygli á nauðsyn notkunar endurskins- merkja. Norðurorka, Bún- aðarbanki Íslands, Landsbanki Ís- lands, Íslandsbanki og Sparisjóður Norðurlands hafa stutt þennan hluta átaksins. Endurskinsmerkja- dagur á Akureyri Allir verða að sjást! HANDBÓK sem kynnir kosti þess að halda ráðstefnur og hvataferðir á Norð-Austurlandi er komin út. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, AFE, stendur að útgáfunni og greiðar mesta kostnaðinn við út- gáfuna, en ferðaþjónusta, sveitar- félög og fyrirtæki gera það einnig með auglýsingum í handbókinni. Útgáfa á Ráðstefnuhandbók fyr- ir Eyjafjarðarsvæðið og Norður- land miðar að því að auka fjölda ráðstefna og hvataferða á Norður- landi. Aðstandendur bókarinnar telja að ráðstefnuhald sé ein væn- legasta leiðin til að styrkja ferða- þjónustuna á Norðurlandi utan há- anna. Bent er á að margföldunaráhrif af ráðstefnum eru mikil. Svæðið sem heild og önnur atvinnustarf- semi en ferðaþjónusta hafa þannig mikinn ávinning af því að sem flestar ráðstefnur séu haldnar þar. Bókinni verður dreift innanlands og einnig í útlöndum í samvinnu við Ráðstefnuskrifstofu Íslands sem og gegnum tengiliðanet fé- lagsins við erlendar ferðaskrifstof- ur. Ráðstefnuhandbókin er 33 síður og er upplagið 2.000 eintök bæði á íslensku og ensku. Áhersla er lögð á myndræna framsetningu, en í handbókinni er að finna ýmsar al- mennar upplýsingar um svæðið og sveitarfélög auk upplýsinga um einstök fyrirtæki. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar Ráðstefnuhandbók um Norð-Austurland AFGREIÐSLU Íslandsbanka í Hót- el Reynihlíð hefur nú verið lokað og starfsfólki sagt upp störfum. Þessi þjónusta hefur verið veitt hér síðan 1995 eða í 6 ár og opið hálfan daginn. Starfsmenn voru 2. Afgreiðslan var útibú frá bankanum á Húsavík. Örn Björnsson útibússtjóri þar sagði að örar breytingar á viðskiptavenjum fólks hefðu dregið úr þörf fyrir hefð- bundna bankaþjónustu. Endanleg ákvörðun um hvort einhver þjón- usta, t.d. hraðbanki, verður sett upp að vori hefur ekki verið tekin. Morgunblaðið/BFH Afgreiðsla Íslandsbanka var í Hótel Reynihlíð. Íslandsbanki lokar afgreiðslu Mývatnssveit ♦ ♦ ♦ STEFNT er að því að ljúka eigna- breytingum hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga um næstu áramót. KEA, sem áður var félag með fjölbreyttan at- vinnurekstur, mun skiptast í annars vegar samvinnufélag og hins vegar eignarhalds- og fjárfestingafélag. Opinn fundur um málefni KEA verður haldinn um aðra helgi, 17. nóvember næstkomandi, þar sem rætt verður um stöðu félagsins, en forsvarsmenn þess kynntu á fundi í gær þær breytingar sem gerðar hafa verið á félaginu síðustu mánuði sem og átak til að fjölga félagsmönnum. Samvinnufélagið verður byggðafestufélag Síðastliðið sumar var myndað sér- stakt eignarhalds- og fjárfestinga- félag um eignasafn KEA. Helstu eignir þess eru 66% hlutur í Norð- urmjólk, 60% í Norðlenska matborð- inu, 46% í Hagræði sem rekur Lyf og heilsu, 100% í áburðar- og fóðursöl- unni Bústólpa, 50% í Nýju kaffi- brennslunni, 49,9% í Samkaupum, 100% í fasteignafélaginu Klettum, 52,7% í fóðurverksmiðjunni Laxá, auk hluta í eignarhaldsfélaginu Kaldbaki, Sjöfn, Vatnsmýri ehf., sem á húseignir og lóð Umferðarmið- stöðvarinnar í Reykjavík, og 18% hlut í Samherja. Eignarhaldsfélagið mun halda ut- an um þessar eignir KEA og leitast við að hámarka arðsemi af þeim. Samvinnufélagið mun aftur á móti hvetja til fjárfestinga og nýsköpunar á félagssvæðinu og þá í samvinnu við önnur fjársterk félög. Skýr vilji er meðal félagsmanna KEA til að við- halda samvinnufélaginu sem byggðafestufélagi. Hlutverk samvinnufélagsins mun vera að leita hagstæðustu viðskipta- kjara fyrir félagsmenn. Eiríkur S. Jóhannsson kaupfélagsstjóri sagði að áhersla yrði nú á næstunni lögð á að fjölga félagsmönnum, þannig að félagið hefði meiri burði til að gera hagstæðari viðskiptasamninga og verða þannig að öflugu neytenda- félagi. Stefnt að því að félagsmenn verði 10 þúsund Félagsmenn eru nú um 7.500 tals- ins, en ráðgert er að fjölga þeim um 2.500 þannig að þeir verði um 10 þús- und talsins. Meðalaldur félagsmanna þykir einnig nokkuð hár og því brýnt að yngja upp í hópnum þannig að ró- ið verður á mið yngri kynslóða eða fólks undir fimmtugu. Meðal þess sem fólki býðst er Kostakort, sem er tryggðarkort sem Visa gefur út í samvinnu við KEA, en það veitir korthöfum afslátt af vörum í versl- unum Samkaupa. Stefnt er að því að efla kortið með samningum við fleiri verslunar- og þjónustufyrirtæki. Eignabreytingum verður lokið hjá KEA um næstu áramót KEA skipt upp í samvinnu- og eignar- haldsfélag Morgunblaðið/Kristján Eiríkur Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, og Jóhannes Geir Sigurgeirs- son stjórnarformaður kynntu þær breytingar sem gerðar hafa verið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.