Morgunblaðið - 07.11.2001, Side 18
SUÐURNES
18 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„VIÐ vonumst til að samheldni for-
eldra í bænum aukist og að foreldra-
hlutverkið komist meira í brenni-
punkt,“ segir Hjördís
Árnadóttir, félagsmála-
stjóri Reykjanesbæjar.
Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta bæjarins
stendur fyrir foreldra-
ráðstefnu næstkomandi
laugardag.
Að sögn Hjördísar er
tilgangur ráðstefnunn-
ar að vekja foreldra til
umhugsunar um for-
eldrahlutverkið og
ábyrgð þess. Hún vekur
athygli á því að á hverju
ári sé haldinn fjöldi ráð-
stefna fyrir afmarkaða
hópa. Auðvelt sé að
verða foreldri og oft sé
litið svo á að það sé fólki í blóð borið
að ala upp börn. Minna sé um kröfur
um að foreldrarnir standi sig og
stuðning við þá. Segir Hjördís að for-
eldrahlutverkið sé eitt stærsta hlut-
verk sem nokkur einstaklingur taki
að sér á lífsleiðinni og því sé mikil-
vægt að litið sé á foreldra sem þjóð-
félagshóp og honum gert hærra und-
ir höfði en verið hefur. Vonast hún til
að ráðstefnan geti verið liður í því.
Foreldraráðstefnan er liður í
þeirri barnaverndarstefnu sem
Reykjanesbær rekur. „Við leggum
áherslu á jákvætt barnaverndarstarf
og höfum forvarnir að leiðarljósi í
öllu okkar starfi,“ segir
Hjördís.
Hún vísar til stefnu-
breytingar sem gerð
var í barnavernd hjá
Reykjanesbæ á árinu
1997. Hún fólst í því að
í stað þess að barna-
verndaryfirvöld komi
að málum þegar allt er
komið í óefni, eins og
Hjördís segir að al-
mennt vilji verða, vilji
Fjölskyldu- og fé-
lagsmálaþjónustan
grípa snemma inn í
ferlið. Hún reyni að
koma sér skipulega á
framfæri við foreldra
sem stuðningsaðili við uppeldið á
uppbyggilegan hátt og reyni að losna
við grýluímyndina sem vilji loða við
barnaverndarstarf. Segir Hjördís að
strax á fyrsta ári hafi orðið mikil
fjölgun í málum hjá Fjölskyldu- og
félagsþjónustunni og þau hafi yfir-
leitt tekist að leysa á farsælan hátt.
„Við gerum okkur vonir um að enn
betri árangur náist í framtíðinni
vegna þess forvarnarstarfs sem felst
í þjónustu okkar,“ segir Hjördís
Árnadóttir.
Foreldraráðstefna er liður í þessu
starfi, að ná til foreldra á jákvæðan
hátt og að byggja upp góðan anda
meðal foreldra og annarra sem koma
að uppeldi barna. Hjördís leggur ríka
áherslu á að foreldrarnir séu ábyrgir
fyrir uppeldinu en leikskólar, grunn-
skólar og aðrar slíkar stofnanir séu
frekar til stuðnings við uppeldið.
Samstiga, hönd í hönd
Yfirskrift foreldraráðstefnunnar
er „Hönd í hönd“. Hjördís segir að
það vísi til fjögurra atriða. Foreldrar
eigi að vera samstiga, hönd í hönd,
við uppeldi barna sinna, hvort sem
þeir séu í sambúð eða ekki. Þeir eigi
að vera samstiga börnunum á upp-
vaxtarárum þeirra. Foreldrar og
uppeldisstofnanir eigi að vera sam-
stiga og foreldrar og bæjarfélagið
eigi að vera samstiga í því að skapa
börnunum sem best uppeldisskilyrði.
Foreldraráðstefnan verður næst-
komandi laugardag, og stendur frá
klukkan 14 til 17, í Kirkjulundi sem
er nýtt safnaðarheimili Keflavíkur-
kirkju. Fjórir foreldrar verða með
framsöguerindi en tveir þeirra eru
auk þess fagmenn í uppeldismálum.
Tækifæri gefst til umræðna eftir
hvert erindi. „Fyrirlesarar leggja
mismunandi áherslur í erindum sín-
um. Fram kemur hvað hlutverk for-
eldra er margþætt og að það er ekki
og á heldur ekki að vera auðvelt að
vera foreldri. Það er svo margt sem
getur gerst,“ segir hún.
Hjördís segir að lögð sé áhersla á
að ráðstefnan verði létt. Því verði
framsöguerindin stutt og börn verði
með skemmtiatriði á milli. Auk þess
verða kaffiveitingar í boði foreldra-
félaga grunnskóla Reykjanesbæjar.
Ýmislegt er gert til að tryggja að for-
eldrar geti mætt á ráðstefnuna, með-
al annars verður boðið upp á barna-
gæslu á staðnum.
Fjölskyldu- og félagsmálaráð heldur foreldraráðstefnuna Hönd í hönd
Vonumst eftir
aukinni sam-
heldni foreldra
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tveir ungir fiskimenn við Keflavíkurhöfn.
Hjördís
Árnadóttir
Reykjanesbær
Harður
árekstur við
Hafnaveg
Reykjanesbraut
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
HARÐUR árekstur varð á Reykja-
nesbraut við Njarðvík snemma í
gærmorgun. Þrír bílar skemmdust
en ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Áreksturinn varð rétt fyrir
klukkan átta í gærmorgun við
vegamót Reykjanesbrautar og
Hafnavegar, skammt frá aðalhliði
Keflavíkurflugvallar. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í Kefla-
vík var sendibíl sem ekið var
norður Reykjanesbraut ekið í veg
fyrir fólksbíl sem var á leið suður
eftir brautinni, í áttina til Reykja-
víkur. Eftir að bílarnir skullu sam-
an kastaðist sendibíllinn á snjó-
ruðningstæki frá varnarliðinu sem
var kyrrstætt á vegamótunum.
Fólksbíllinn og sendibíllinn
skemmdust mikið. Ökumennirnir,
sem voru einir í bílunum, sluppu
án teljandi meiðsla. Ökumaður
fólksbílsins fór þó á sjúkrahúsið í
Keflavík til skoðunar.
TÓMSTUNDA- og íþróttaráð
Reykjanesbæjar afhenti nýlega
styrki úr Afreks- og styrktarsjóði og
Tómstundasjóði, samtals að fjárhæð
liðlega 2,5 milljónir kr.
Hæstu styrkina úr Afreks- og
styrktarsjóði, 225 þúsund krónur,
fengu knattspyrnudeild Keflavíkur,
körfuknattleiksdeild UMFN og
körfuknattleiksdeild Keflavíkur, all-
ar fyrir gott barna- og unglingastarf,
og íþróttafélagið Nes fyrir öflugt
uppbyggingarstarf.
Styrk að fjárhæð 200 þúsund kr.
fengu fimleikadeild Keflavíkur, Golf-
klúbbur Suðurnesja, knattspyrnu-
deild UMFN, sunddeild Keflavíkur,
sunddeild UMFN, öll fyrir gott
barna- og unglingastarf.
Hestamannafélagið Máni fékk 150
þúsund kr. fyrir gott barna- og ung-
lingastarf. Lyftinga- og líkamsrækt-
ardeild UMFN og skotdeild Kefla-
víkur fengu 125 þúsund kr. styrk
fyrir gott uppbyggingarstarf. Loks
var badmintondeild Keflavíkur og
taekwondodeild Keflavíkur veittur
100 þúsund kr. styrkur fyrir gott
barna- og unglingastarf.
Siglingafélagið Knörr fékk 50 þús-
und kr. styrk úr Tómstundasjóði
vegna barna- og unglingastarfs.
Það sem af er árinu hefur auk þess
verið úthlutað tæplega 1,5 milljónum
kr. úr Afreks- og styrktarsjóði TÍR,
meðal annars í tilefni Íslandsmeist-
aratitla sem félögin hafa unnið,
vegna landsliðsfólks og til eflingar
kvennaknattspyrnu.
Einnig hafa verið veittir allmargir
styrkir úr Tómstundasjóði fyrr á
árinu, meðal annars til skátastarfs
og ýmissa klúbba, námskeiða og for-
varnarstarfs.
Íþróttafélögin fá
2,5 milljónir
Reykjanesbær
MENNINGARVERÐLAUN
Reykjanesbæjar, Súlan, verða afhent
á morgun, fimmtudag. Þá mun menn-
ingar- og safnaráð einnig úthluta
styrkjum til einstaklinga og samtaka.
Athöfnin fer fram í Bókasafni
Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57, og
hefst klukkan 18.
Súlan afhent
á morgun
Reykjanesbær
KJARASAMNINGAR sem launa-
nefnd sveitarfélaga hefur gert auka
rekstrargjöld Reykjanesbæjar um
220 milljónir kr. á þessu ári.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2001 voru 70 milljónir kr. lagðar
til hliðar til að mæta auknum útgjöld-
um vegna kjarasamninga. Nú hafa
stjórnendur Reykjanesbæjar farið
yfir áhrif þeirra kjarasamninga sem
launanefnd sveitarfélaga hefur gert
fyrir hönd sveitarfélaganna til að
færa útgjöldin inn á einstaka mála-
flokka í bókhaldi bæjarins. Að sögn
Ellerts Eiríkssonar, bæjarstjóra
Reykjanesbæjar, er niðurstaðan sú
að samningarnir hafi kostað 220
milljónir kr. Tekur hann fram að þá
hafi ekki verið tekið tillit til þeirra
samninga sem eftir er að gera, það er
að segja við tónlistarkennara, fé-
lagsráðgjafa, sálfræðinga og sjúkra-
liða.
Ellert segir að vissulega sé skelfi-
legt fyrir sveitarfélögin að fá á sig
þessar kostnaðarhækkanir og segir
að sum sveitarfélög eigi sjálfsagt erf-
itt með að standa undir þeim. Hann
segir að Reykjanesbær standi ekki í
stórframkvæmdum og því sé ekki um
það að ræða að hægt sé að skera mik-
ið niður. Hins vegar hafi tekjur af út-
svari og fasteignagjöldum orðið held-
ur hærri en reiknað var með. Eins
hafi komið til arður af eignarhlut
bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja sem
ákveðið var að greiða út vegna breyt-
ingar á rekstrarformi Hitaveitunnar.
38 milljóna kr. afskrift
vegna Stakksvíkur
Auk launahækkana þarf að taka
inn í útgjöld bæjarsjóðs á þessu ári
liðlega 38 milljóna kr. ábyrgðir vegna
slita útgerðarfélagsins Stakksvíkur
hf.
Stakksvík hf. var stofnuð fyrir all-
mörgum árum upp úr Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hf. og Eldey hf. Það átti
og rak frystihús í Keflavík og gerði út
togara og báta. Keflavíkurbær
ábyrgðist lán sem félagið tók.
Stakksvík hefur selt fasteignir sín-
ar og skip og hefur ekki haft neinn
rekstur með höndum í nokkur ár. Á
aðalfundi félagsins sem haldinn verð-
ur 12. nóvember næstkomandi verð-
ur lagt til að félaginu verði slitið og að
bæjarsjóður Reykjanesbæjar leysi til
sín eignir félagsins og skuldir. Hefur
bæjarráð samþykkt þessa ráðstöfun.
Ellert segir að nú sé komið að leið-
arlokum í þessum rekstri og ekkert
annað að gera en að ljúka málinu með
því að leysa til sín ábyrgðirnar.
Uppgreiðsla lána með álagi nemur
liðlega 38 milljónum kr. og verður
það gjaldfært hjá bæjarsjóði. Á móti
á félagið eignir, aðallega skuldabréf,
að fjárhæð liðlega 11 milljónir kr.
Gerðir kjarasamningar kosta
bæjarsjóð 220 milljónir króna
Reykjanesbær
SKEMMDIR urðu á loftræstikerfi
og skúr við rækjuvélaþjónustuna
Martak ehf. við Hafnargötu í
Grindavík þegar eldur kom upp í
loftræstistokki í gærmorgun.
Loftræstikerfið sogar loftið frá
rennibekkjum á verkstæði Martaks
og út í skúr sem er utan við húsið.
Eldur kom upp í einum stokknum.
Sigurður Halldórsson, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri í Grindavík, segir að
starfsmenn fyrirtækisins hafi brugð-
ist rétt við óhappinu og verið að
mestu búnir að slökkva eldinn þegar
slökkviliðsmenn komu á staðinn. Því
hafi farið betur en á horfðist.
Skúrinn brann og loftræstikerfið
er ónýtt. Litlar skemmdir urðu á
sjálfu verkstæðinu.
Eldur í loft-
ræstikerfi
Grindavík
♦ ♦ ♦