Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GJALDEYRISFORÐI Seðlabank-
ans jókst um 2,3 milljarða króna í
október og nam 40,2 milljörðum
króna í lok mánaðarins (jafnvirði
389 milljóna Bandaríkjadala á
gengi í mánaðarlok). Gengi ís-
lensku krónunnar, mælt með vísi-
tölu gengisskráningar, veiktist um
1,6% í mánuðinum.
Í frétt frá Seðlabankanum kem-
ur fram að bankinn seldi gjaldeyri
á millibankamarkaði fyrir 8,8
milljarða króna í mánuðinum.
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans
nettó nam 26,7 milljörðum króna,
styrktist um 16,5 milljarða króna í
október vegna lánahreyfinga rík-
issjóðs.
Erlend skammtímalán bankans
lækkuðu um 14,2 milljarða króna í
mánuðinum og námu 13,5 millj-
örðum króna í októberlok. Mark-
aðsskráð verðbréf í eigu bankans
námu 5,1 milljarði króna í októ-
berlok miðað við markaðsverð.
Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í
eigu bankans námu 2,1 milljarði
króna.
Kröfur Seðlabankans á innláns-
stofnanir hækkuðu um 11,5 millj-
arða króna í október og námu 54,9
milljörðum króna í lok mánaðar-
ins. Kröfur á aðrar fjármálastofn-
anir hækkuðu um 1,5 milljarða
króna í mánuðinum og voru 23,1
milljarður króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð
og ríkisstofnanir hækkuðu um 32,8
milljarða króna í október og voru
neikvæðar um 43,1 milljarð króna í
lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæð-
ur ríkissjóðs námu 43,1 milljarði.
Grunnfé bankans lækkaði í októ-
bermánuði um 3,4 milljarða króna
og nam 29 milljörðum króna í lok
mánaðarins.
Gjaldeyrisforðinn 40,2
milljarðar í lok október
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans styrktist um 16,5 milljarða króna í október vegna lánahreyfinga ríkissjóðs.
Samskipta-
reglur af
hinu góða
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir mjög
jákvætt ef stórmarkaðir og birgjar
geti náð saman um samskiptareglur.
Siðareglur Samtaka verslunar og
þjónustu hafa bætt samskipti stór-
markaða og birgja en samtök heild-
sala hafa ekki þegið boð smásöluaðila
um samstarf í þessum efnum.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hafa samkeppnisyfir-
völd í Bretlandi gefið út siðareglur
um samskipti stórmarkaða og birgja.
Valgerður segist hlynnt því að aðilar
á markaði komi sér upp samskipta-
eða siðareglum, án afskipta stjórn-
valda. Hún myndi veita slíku framtaki
stuðning. Hún segir samkeppnislögin
hins vegar í sjálfu sér vra siðareglur
og því þurfi slíkar reglur að ná til ann-
arra þátta en lögin ná yfir. „Ég mun
fylgjast með framvindu málsins og
jafnvel viðra það við Samkeppnis-
stofnun hvort hún sé tilbúin að hafa
frumkvæði að slíkri vinnu. Hins vegar
er stofnunin enn að vinna í málum
sem varða matvörumarkaðinn og
þeirri athugun er ekki enn lokið,“ seg-
ir Valgerður.
Siðareglur SVÞ hafa reynst vel
Samtök verslunar og þjónustu gáfu
út siðareglur um samskipti við birgja
til félagsmanna sinna fyrir rúmu ári
og hafa mælst til þess að aðildarfyr-
irtæki samtakanna noti þær. Reglun-
um er ætlað að stuðla að faglegum
samskiptum verslunarfyrirtækja við
birgja og að skýra skyldur innkaupa-
manna í verslunum. Reglurnar snúa
m.a. að vali á birgjum, samningagerð,
trúnaði milli samningsaðila, lausn
vandamála og almennum réttar-
reglum í lausafjárkaupum, lagerhaldi
og breytingum á pöntunum.
Emil B. Karlsson hjá SVÞ segir
reglurnar byggðar á breskum reglum
en hafi verið aðlagaðar íslenskum að-
stæðum. Hann segir að samkvæmt
könnun samtakanna séu siðareglurn-
ar hafðar til hliðsjónar í öllum stærstu
matvörukeðjum landsins með góðum
árangri. „Fregnir hafa jafnframt bor-
ist af því frá heildsölum að samskipti
þeirra við smásala hafi farið batnandi
að undanförnu og mótast hafi sam-
skiptahefðir sem báðir aðilar eru sátt-
ir við. Við höfum ekki farið sömu leið
og Bretar þar sem samningsaðilar
þurfa að skrifa undir reglurnar. Okk-
ur þykir mikilvægt að reglurnar séu
ekki lögskipaðar af yfirvöldum, held-
ur séu þær starfsreglur á milli þeirra
sem eiga viðskipti.“
NOKKRAR sveiflur urðu á gengis-
vísitölu íslensku krónunnar í gær.
Lokagildi vísitölunnar var nánast það
sama og upphafsgildið, eða 147,22
stig, samkvæmt hálffimm fréttum
Búnaðarbankans, en vísitalan var
147,10 stig í upphafi dags. Gengi
krónunnar lækkaði því um 0,08% í
gær. Veltan á gjaldeyrismarkaði nam
samtals um 5,5 milljörðum króna.
Ekki kom til inngripa Seðlabankans.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, seðla-
bankastjóri, segir augljóst að eftir-
spurn eftir gjaldeyri á markaðinum
sé meiri en framboðið.
Minni líkur á nafnvaxtalækkun
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningadeildar Búnaðar-
bankans, segir að miðað við óbreytt
gengi, um 146 vísitölustig, sé veiking
krónunnar milli ársmeðaltala 2000 og
2001 orðin rúm 20%. Krónan hafi
veikst um 6% frá síðustu verðbólgu-
spá Seðlabanka Íslands og það valdi
auknum verðbólguþrýstingi. Raun-
stýrivextir Seðlabankans muni því
lækka og þar með aðhaldsstig pen-
ingamálastefnunnar. Að hennar mati
séu líkur á nafnvaxtalækkun Seðla-
bankans því minni en ella. Þetta ger-
ist á sama tíma og vaxtamunur við út-
lönd sé að aukast.
Edda Rós segir að uppi séu sér-
stakar aðstæður vegna ólíkra innri og
ytri þátta. Gengi krónunnar sé ekkert
annað en verð krónunnar í útlöndum
og það verð sé í sögulegu lágmarki.
Vextir séu aftur á móti verð krónunn-
ar hér innanlands og það sé mjög
hátt. Þetta endurspegli mikla lausa-
fjáreftirspurn innanlands og að eft-
irspurn eftir krónum erlendis frá sé
lítil sem engin. Eina varanlega lausn-
in á þessu sé snöggur viðsnúningur á
viðskiptahallanum. Innflutningur á
erlendu áhættu- og lánsfjármagni
geti þó styrkt krónuna, tímabundið.
Bjarni Kristjánsson á gjaldeyris-
borði Landsbankans-Landsbréfa,
segir að gengi krónunnar sé lágt um
þessar mundir en erfitt sé að spá um
framhaldið. Seðlabankinn og bank-
arnir hafi létt nokkuð á krónustöðum
sínum, sem sé að hluta til skýringin á
stöðunni í dag. Framboð sé þó enn
meira en eftirspurnin. Ekkert bendi
til þess að það sé að breytast.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segist ekki vilja segja annað
um þróun á gengi krónunnar en það
sem þegar hafi komið fram. Mat sam-
takanna sé að lækkun á gengi krón-
unnar eigi sér ekki efnahagslegar for-
sendur. Hún hafi verið komin í of lága
stöðu fyrir síðustu hreyfingar.
Rannveig Sigurðardóttir, hagfræð-
ingur Alþýðusambands Íslands, segir
að sambandið hafi varað við því und-
anfarin ár að sá mikli viðskiptahalli
sem verið hafi viðvarandi í landinu
myndi á endanum veikja krónuna.
Það hafi verið að koma á daginn.
Veiking krónunnar hafi þó verið enn
meiri en ASÍ hafi búist við og meiri en
efnahagslegar forsendur gefi tilefni
til.
Vísitala krónunnar enn í sögulegu hámarki
Meiri eftirspurn eftir
gjaldeyri en framboð
SAMDRÁTTUR í íslensku efnahagslífi er stað-
reynd að mati Greiningar Íslandsbanka. Í nýút-
komnu Markaðsyfirliti Íslandsbanka fyrir nóvem-
ber segir að hagtölur sem lýsa stöðunni staðfesti
þetta og hinar sem segi til um framtíðina beri þess
merki að samdrátturinn eigi enn eftir að aukast.
„Vandséð er hvenær botninum verði náð en ljóst
er að það fer í miklu eftir hagstjórnaraðgerðum og
ekki síst aðgerðum Seðlabankans í vaxtamálum,“
segir í markaðsyfirlitinu.
Í ljósi þessa telur Greining Íslandsbanka for-
sendur fyrir vaxtalækkun af hálfu Seðlabankans
og spáir að vextir verði lækkaðir um 3 prósentu-
stig á næstu 14 mánuðum. Líkur hafi aukist á að
næsta vaxtalækkun verði á þessu ári. Í Markaðs-
yfirlitinu segir að almennt sé nú vænst minni hag-
vaxtar á heimsvísu en áður. Þetta hafi áhrif á eft-
irspurn á útflutningsmörkuðum okkar, eignastöðu
Íslendinga erlendis, vaxtagreiðslur til útlanda,
innflutta verðbólgu og ekki síst olíu- og bensín-
verð. Áhrifin á íslenskt efnahagslíf séu því fjöl-
þætt.
„Þensla undangenginna fimm ára hefur komið
íslenska hagkerfinu í mikið ójafnægi. Verðbólga
hefur færst í aukana og viðskiptahallinn vaxið.
Greining ÍSB spáir því að hagkerfið eigi að ná mun
betra jafnvægi á næstu misserum – að viðskipta-
hallinn minnki og verðbólgan hjaðni. Þetta er já-
kvætt en á móti má búast við því að atvinnuleysi
aukist.“
Spáir verulegri lækkun langtímavaxta
Greining ÍSB spáir því að langtímavextir muni
lækka verulega á næstunni og vísast í því sam-
bandi til væntinga um mikla lækkun skammtíma-
vaxta og fyrirsjáanlega minna framboð á skulda-
bréfamarkaði vegna minnkandi eftirspurnar í
efnahagslífinu á næstu misserum. Til skemmri
tíma megi áfram búast við miklum sveiflum í
ávöxtunarkröfunni einkum í tengslum við fréttir
er hafa áhrif á væntingar um breytingar á stýri-
vöxtum Seðlabankans.
Greining Íslandsbanka segir samdrátt í viðskiptalífinu staðreynd
Merki um að samdráttur
eigi enn eftir að aukast