Morgunblaðið - 07.11.2001, Qupperneq 46
46 A MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
ATVINNA ÓSKAST
Húsasmíðameistari
Get nú þegar bætt við mig verkefnum.
Upplýsingar í síma 565 6390 og 892 7121.
Jólakortasala
Sala á jólakortum til fyrirtækja
Óskum eftir sölufólki í jólakortasölu í nóvem-
ber. Kortin eru sérhönnuð útlitslega fyrir fyrir-
tæki. Einungis fullorðið fólk kemur til greina,
með einhverja reynslu í sölustörfum. Sölulaun
eru kr. 5.000 fyrir hverja sölu. Áhugasamir
sendi tölvupóst á elvabj@binet.is .
Leikskólinn í Álfatúni
Auglýsir eftirtaldar stöður:
• Staða leikskólastjóra, 100%
Umsóknarfrestur til 15. nóvember.
• Staða aðstoðarleikskólastjóra
• Stöður deildarstjóra
• Stöður leikskólakennara
Ráðningartími og starfshlutfall eftir sam-
komulagi
• Matráður 100%. Æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst
• Stöður vegna ræstinga. Æskilegt að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun samkvæmt kjarasamningum launanefndar
sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða
Starfsmannafélags Kópavogs.
Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma 570-1600.
Umsóknum má skila í afgreiðslu leikskólaskrifstofu
í Fannborg 2, 2. hæð.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur er
sjálfstætt þjónustufyrirtæki
í eigu Reykjavíkurborgar.
Orkuveitan dreifir rafmagni,
heitu vatni til húshitunar,
köldu vatni til brunavarna
og neysluvatni til notenda
í Reykjavík og nágrenni.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur
íslensku þjóðarinnar.
Fyrirtækið kappkostar að
veita viðskiptavinum sínum
bestu mögulegu þjónustu.
Orkuveita Reykjavíkur
stuðlar að nýsköpun og
aukinni eigin orkuvinnslu.
Athygli er vakin á því að
það er stefna borgaryfirvalda
að auka hlut kvenna í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
á vegum borgarinnar, stofnana
hennar og fyrirtækjum
Kerfisstjórn Orkuveitu
Stjórnstöð - rafmagn
Kerfisstjórn Orkuveitunnar óskar eftir að ráða
rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstæknifræðing
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skipulag og stjórnun aðgerða í raforkukerfi
Gagnasöfnun úr stjórnkerfi rafmagns
Úrlausn tæknilegra verkefna
Verk- eða tæknifræði af rafmagnssviði
Þekking á rafdreifikerfum æskileg
Þjónustulund og hæfni í samskiptum
Nánari upplýsingar er að hafa á skrifstofu
Mannvals ehf. Hamraborg 1 Kópavogi og
á www.mannval.is
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Þjóðræknisfélags Íslendinga
verður haldinn í Borgartúni 6 fimmtudaginn
22. nóvember nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þjóðræknisfélag Íslendinga vinnur að því að efla samskipti
við fólk af íslenskum ættum í Vesturheimi.
Stjórnin.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Íbúð óskast
Einhleypur, reyklaus verkfræðingur óskar eftir
3—4 herb. íbúð til leigu í 1—2 ár frá 1. des. nk.,
helst í vesturbænum.
Upplýsingar í síma 895 8921.
KENNSLA
Hláturs- og
sjálfstyrkingarnámskeið
Líf og leikur heldur 3ja tíma námskeið fyrir ein-
staklinga og hópa. Næsta námskeið verður
haldið 8. nóvember kl. 20.00 á Grand Hóteli.
Verð á einstakling 4.500 kr. Skráning í síma
849 6889 eða á netfangi: lifleikur@hotmail.no .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R