Morgunblaðið - 07.11.2001, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
AÐALBYGGINGU Landsbankans
við Austurstræti var lokað síðdegis í
gær en um kl. 15 barst póstsending til
bankans frá Bandaríkjunum sem
innihélt torkennilegt hvítt duft. Var
þegar í stað gripið til sérstakra ör-
yggisráðstafana. Að ráðum lögreglu-
yfirvalda var bankanum lokað og var
starfsfólk í húsakynnum bankans
beðið um að yfirgefa hann ekki á með-
an rannsókn stóð yfir eða til kl. 17.
Nokkrir starfsmenn bankans leit-
uðu til Landspítala – háskólasjúkra-
húss í gær í samræmi við sérstakar
varúðarreglur sem teknar hafa verið
upp innan bankans vegna atvika af
þessu tagi. Skoðaði smitsjúkdóma-
læknir fólkið og setti hann tíu starfs-
menn á fyrirbyggjandi lyfjameðferð
gegn miltisbrandssmiti, þar af eru sex
starfsmenn í aðalbankanum og fjórir
starfsmenn birgðastöðvar bankans á
Lynghálsi en póstsendingin barst
fyrst þangað.
Starfsfólki Landsbankans var
brugðið í gær vegna þessa atviks, að
sögn Halldórs J. Kristjánssonar,
bankastjóra Landsbankans. Hann
segir að eðlilega hafi ítrustu varúðar-
reglum verið fylgt þótt í flestum til-
vikum væri ekki um smit að ræða.
Húsnæði bankans
sótthreinsað
Slökkviliðsmenn í eiturefnabúning-
um sóttu póstsendinguna í bankann
og fluttu í sérstöku eiturefnahylki á
rannsóknarstofu þar sem rannsakað
verður hvort miltisbrandsgró geti
leynst í duftinu. Er búist við fyrstu
niðurstöðum í dag. Þá var húsnæði
bankans sótthreinsað.
Lögregla og slökkvilið hafði mikinn
viðbúnað í og við bankann meðan á
rannsókn stóð yfir og lokaði um tíma
fyrir umferð í Austurstræti.
,,Það voru settar verkreglur vegna
svona atvika í bankanum 16. október
eins og ég geri ráð fyrir að hafi verið
gert í öðrum bönkum, m.a. vegna
samræmdra aðgerða sem höfðu verið
ræddar á vettvangi samtaka banka-
manna í Evrópu og víðar í tilefni af
þeim aðstæðum sem komnar eru upp
í heimsmálunum. Það var farið ná-
kvæmlega eftir þeim í þessu tilviki,“
segir Halldór.
Verður höfuðstöðvarbygging
Landsbankans í Austurstræti lokað
að ósk yfirvalda og af varúðarástæð-
um til kl. 12 í dag. Halldór sagði að
viðskiptavinir bankans gætu fengið
alla nauðsynlega afgreiðslu í öðrum
útibúum bankans og öll starfsemi yrði
með eðlilegum hætti í útibúum og
þjónustustöðvum bankans.
Starfsmaður Landsbankans sem
opnaði bréfið var staddur afsíðis í að-
alsal bankans. Friðrik Örn Weiss-
happel, forstöðumaður öryggismála
bankans, sagði í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins í gær að um hefði
verið að ræða viðskiptabréf frá við-
skiptavini, sem var starfsmönnum
kunnur að góðu einu. Hann sagði að
duftið hafi ekki verið í miklu magni en
nægjanlegu til að fólk hafi tekið eftir
því og brugðist við eins og mælt hafi
verið fyrir um. Friðrik Örn sagði að
ekki hafi verið margir nærri þegar
bréfið var opnað og enginn viðskipta-
vinur nálægt. Fimmtán viðskiptavinir
voru staddir í bankanum þegar málið
kom upp.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn í sérstökum eiturefnabúningum sóttu póstsendinguna inn í hús Landsbankans í Austurstræti og settu hana í sérstakt eiturefnahylki.
Sprautað var vatni á búninga slökkviliðsmannanna og hylkið áður en það var flutt í lögreglubíl til athugunar á rannsóknarstofu.
Landsbankanum í Austurstræti lokað vegna torkennilegs dufts í póstsendingu
Tíu starfsmenn í lyfjameð-
ferð gegn miltisbrandi
UMTALSVERÐUR samdráttur
blasir við í byggingarstarfsemi og
gerir Gunnar Sverrisson, fjármála-
stjóri Íslenskra aðalverktaka hf. (ÍA),
ráð fyrir að um eitt þúsund færri störf
verði í byggingariðnaði á fyrstu mán-
uðum næsta árs en voru í ágúst sl.
Íslenskir aðalverktakar hafa fækk-
að starfsfólki sínu verulega það sem
af er þessu ári vegna minni verkefna,
að sögn Gunnars. Fyrirtækið hefur
annast byggingu stíflu, inntaks og
stöðvarhúss Vatnsfellsvirkjunar á sl.
tveimur árum en þeim framkvæmd-
um er nú að ljúka og verður fyrri vél
virkjunarinnar gangsett næstkom-
andi föstudag.
Að sögn Gunnars eru starfsmenn
Aðalverktaka við virkjunina nú um 50
talsins en um 200 manns störfuðu að
virkjunarframkvæmdunum á vegum
fyrirtækisins í sumar. Þá var 26 föst-
um starfsmönnum Íslenskra aðal-
verktaka sagt upp um seinustu mán-
aðamót en það er um 5% starfsmanna
hjá fyrirtækinu, að frátöldum starfs-
mönnum sem ráðnir eru tímabundið
vegna einstakra verkefna.
Hagkerfið í kaldri sturtu
Gunnar sagði að mikil þensla hefði
verið í byggingarframkvæmdum allt
frá 1996 en nú væri stærstu verkun-
um lokið eða að ljúka, s.s. við virkj-
anaframkvæmdir og í Smáralind.
Flytja þurfti inn erlent vinnuafl til að
geta annað verkefnum á árinu 2000 en
þeir starfsmenn voru allir sendir
heim á fyrri hluta þessa árs og nú er
komið að næsta kafla, að sögn Gunn-
ars. Hann kveðst þó ekki gera ráð fyr-
ir að segja þurfi upp fleiri starfs-
mönnum eins og útlitið er í dag.
Verkefnastaðan sé enn þokkaleg en
ýmsum stórum verkum sem fyrirtæk-
ið er með ljúki snemma á næsta ári og
óneitanlega sé talsverð óvissa um
framhaldið.
,,Hagkerfið hefur verið í mjög
kaldri sturtu,“ segir Gunnar. ,,Ég tel
að það sé að hægja talsvert mikið á,
jafnvel meira en liggur í augum uppi.
Við erum til dæmis að horfa á að fjár-
festing fyrirtækja hefur nánast stöðv-
ast. En þetta er bara verkefni sem
stjórnendur fyrirtækja þurfa að tak-
ast á við,“ segir hann.
Íslenskir aðalverktakar
hf. hafa sagt upp
26 starfsmönnum
Spá fækk-
un um
1.000 störf
í bygging-
ariðnaði
FJÁRÞÖRF Línu.Nets hf. er 600–
700 milljónir króna á næstu árum.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem haldinn var í gær í tilefni af því
að stjórn Línu.Nets lagði fram gögn
um fjárhagsstöðu fyrirtækisins og
framtíðaráform.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður Línu.Nets, sagði á fundinum
að borgaryfirvöld og Orkuveita
Reykjavíkur myndu styðja við bakið
á Línu.Neti þar til uppbyggingu fyr-
irtækisins væri lokið. Þá sagði hann
að samþykkt hafi verið á hluthafa-
fundi nýlega heimild til 350 milljóna
króna nafnverðsaukningar hlutafjár.
Ekki hafi verið tekin ákvörðun um
tilhögun sölu þess hlutafjár eða um
söluverð. Auk hlutafjáraukningar-
innar sagði Alfreð að nú væri verið
að kanna lánamöguleika hjá lífeyr-
issjóðum og öðrum aðilum.
Hagnaður árið 2004
Í rekstrar- og fjárhagsáætlun
Línu.Nets, sem lögð var fram á
blaðamannafundinum, kemur fram
að áætlaðar heildartekjur fyrirtæk-
isins árið 2001 nemi tæpum 384 millj-
ónum króna. Gert er ráð fyrir að
tekjurnar verði rúmar 405 milljónir
króna árið 2002 en vaxi hratt eftir
það og verði 648 milljónir króna árið
2003. Rekstrartap án fjármagnsliða
er áætlað 222 milljónir í ár og 85
milljónir á næsta ári en gert er ráð
fyrir 108 milljóna króna hagnaði fyr-
ir fjármagnsliði árið 2003.
Heildartap ársins í ár er áætlað
214 milljónir króna en reiknað er
með að fyrirtækið skili hagnaði árið
2004, um 15 milljónum króna.
Samhliða gögnum um Línu.Net,
sem lögð voru fram í borgarráði í
gær, var lögð fram tillaga meirihluta
um að fela fjárreiðustjóra Reykja-
víkurborgar að afla sambærilegra
upplýsinga frá öllum dóttur- og hlut-
deildarfélögum í eigu Reykjavíkur-
borgar, þ.m.t. sameignarfélögum og
byggðarsamlögum. Þau félög sem
hér um ræðir eru Landsvirkjun,
Sorpa, Þórsbrunnur og Strætó, að
sögn Alfreðs Þorsteinssonar.
Fjárþörf Línu.Nets er talin 600–700 milljónir króna á næstu árum
Hlutafjáraukn-
ing og lánamögu-
leikar kannaðir
Stjórn Línu.Nets/21
VETUR konungur hefur lík-
lega ýtt við þjófunum sem-
stálu negldum vetrarhjólbörð-
um úr geymslu í íbúðarhús-
næði í Breiðholti. Var lögregl-
unni í Reykjavík tilkynnt um
þjófnaðinn um klukkan hálf-
átta í gærkvöld. Auk hjól-
barðanna var fleiri „slíkum
geymsluhlutum“ stolið, að
sögn lögreglu.
Vetrar-
barðar
freistuðu
þjófanna