Morgunblaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHalldór inni í lands-
liðsmyndinni/C4
Barcelona fór frægðarför
til Liverpool/C2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
BÆKUR
SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR miðvikudagur 21.nóvember2001
Áhugaleikhús uppi við jöku
Steinunn
Sigurðardóttir
segir frá Jökla-
leikhúsinu
EITT af því sem mér hefur
fundist einkenna skáldsögur
Ólafs Jóhanns Ólafssonar er
hversu skammur vegur virðist
frá þeim yfir í hið klassíska smá-
söguform. Sögur hans snúast oft
um hvörf í lífi eins manns, orsak-
ir þeirra og afleiðingu, persónur
eru fáar og flétta einföld. Það
sem þó skilur á milli er vitaskuld
lengdin og sá háttur Ólafs að láta
sögurnar gerast á ólíkum tíma-
sviðum. Ekki svo að skilja að
þessi formrænu einkenni séu ein-
hver galli á sögunum. Þótt flestar
skáldsögur séu synfónískari í eðli
sínu og uppbyggingu hefur þessi
aðferð skilað fjölda góðra skáld-
sagna og novelletta. Kostur þessa
söguforms er tvímælalaust skýr
framsetning og aðgengileiki.
Þetta einkennir umfram allt ann-
að nýjustu bók höfundar. Í Höll
minninganna tekst Ólafi Jóhanni
að tengja á nærfærinn hátt sam-
an stórbrotið söguefni og trega-
blandna umfjöllun um tilveru
mannsins. Bókin er í senn að-
gengileg og ljós og í henni er
mikill skáldskapur.
Fáar skáldsögur hafa vakið
jafnmikla athygli hin seinni ár.
Veldur þar einkum tvennt. Höf-
undurinn er með okkar fremstu
skáldsagnahöfundum og þess ut-
an er söguefnið stórbrotið og
áhugavert. Ólafur Jóhann byggir
sögu sína á sannri sögu um Árna
Benediktsson sem hvarf að heim-
an frá konu og börnum til Banda-
ríkjanna þar sem hann starfaði
sem einkaþjónn hjá miklum
blaðabónda, William Randolph
Hearst. Hearst þessi var mjög
þekktur í Bandaríkjunum og
ýmsir halda því fram að hann
hafi verið fyrirmynd Orson Wel-
les í kvikmyndinni Citizen Kane.
Vitaskuld er hér skáldsaga á ferð
byggð á þessum stað-
reyndum. Í sögunni
nefnir Ólafur Jóhann
aðalpersónuna Krist-
ján Benediktsson.
Viðfangsefni Ólafs
Jóhanns í þessari
bók er því eiginlega
af tvennum toga.
Meginathyglinni
beinir hann að hvörf-
unum í lífi Kristjáns.
Bókin er fyrst og
fremst uppgjör hans
við þau, réttlæting og
tilraun til að öðlast
fyrirgefningu og frið.
Þetta gerir hann með
bréfum sem hann skrifar konu
sinni án þess að senda þau. Sögu-
svið þeirra er Kaupmannahöfn,
Ísland og New York í kringum
fyrri heimsstyrjöldina. Á hinn
bóginn er hann staddur í gervi-
heimi Hearst fjölmiðlabónda 1937
í tröllaukinni höll hans undir
hnjúkum Santa Lucia-fjallanna
fáeinar mílur frá ströndum
Kyrrahafsins. Þett
er mikið völundar
hús og því hefu
tengst mikill glæsi
leiki en nú halla
undan fæti. Krepp
an hefur sett mar
sitt á fjölmiðlaveld
ið og allt gengur
afturfótunum í líf
Hearst og ástkon
hans.
Þetta er hinn ytr
rammi sögunnar
En undir ólga til
finningar Kristjáns
sektarkennd han
og tómleiki. Han
lifir í reynd lífi annars mann
sem einkaþjónn hans. Hearst er
bókinni fremur ógeðfelldur mað
ur, stjórnlyndur, einsýnn og til
ætlunarsamur. Kristján lítur nið
ur á sjálfan sig í þessu starfi sem
smitar allt hans líf: ,,Mér býðu
við þjónslundinni sem ég virðis
aldrei losna við.“ Hann er oft ein
mana í höllinni,
Stórbrotið söguefni
BÆKUR
Skáldsaga
HÖLL MINNINGANNA
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Mál og menn-
ing 2001 – 324 bls.
Ólafur Jóhann Ólafsson
ÚT ER komið smásagna-
safnið Kvöldljósin eru
kveikt eftir Kristínu
Marju Baldursdóttur.
Um er að ræða 12 smá-
sögur sem allar snerta
tilveru kvenna og segir í
kynningu að í sögunum
sé velt upp marg-
víslegum hliðum á sam-
böndum mæðgna,
systra, hjóna, frænd-
fólks, vinnufélaga og sambýlinga.
Kyntákn á gulum skóm, gírugur erfingi
sem spólar í kringum glaðbeitta föð-
ursystur, karlmaður sem fær ekki sofið
nema berja konuna sína, litlar stelpur að
sulla. Stíll Kristínar Marju er sem fyrr
ísmeygilegur og launfyndinn.
Útgefandi er Mál og menning. Bókin er
100 bls., prentuð í Odda. Margrét E. Lax-
ness hannaði kápuna. Verð: 3.990 kr.
Kvöldljósin
eru kveikt
Kristín Marja
Baldursdóttir
ÚT ER komin skáldsag-
an Gæludýrin eftir
Braga Ólafsson. Bók
hans Hvíldardagar kom
út fyrir tveimur árum
og var tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverð-
launanna og Menning-
arverðlauna DV.
Í kynningu segir
m.a.: „Gæludýrin er
gerólík saga en Bragi heldur áfram að
fjalla um fólk sem þarf að taka litlar en
miklvægar ákvarðanir. Að segja já eða
nei er ekki eins auðvelt og maður
ímyndar sér oftast. Hér segir af ótíma-
bærum endurfundum tveggja ungra
manna sem eiga fátt sameiginlegt annað
en það að vera Íslendingar. Gæludýrin
er í senn kómísk, harmræn og spenn-
andi saga.“
Útgefandi er Bjartur. Bókin er 246
bls., prentuð í Odda hf. Kápugerð ann-
aðist Sigrún Pálsdóttir. Verð er 3.980
kr.
Gæludýrin
Bragi Ólafsson
Morgunblaðinu í
dag fylgir 8
síðna bókablað.
GENGI íslensku krónunnar veiktist
um 1,4% í gær og hefur veikst um
rúmlega 23% frá áramótum. Vísital-
an endaði í 149,5 stigum og hefur
hún aldrei verið hærri og krónan þar
með aldrei veikari. Veikingin hefur
verið nokkuð stöðug frá því í byrjun
ágúst og hefur krónan veikst um
nálægt 11% frá þeim tíma.
Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans, segir að bank-
inn hafi ekki skoðun á daglegum
hreyfingum krónunnar, enda geti
veiking einn daginn gengið til baka
þann næsta. Stefna Seðlabankans sé
að halda verðbólgunni niðri en
krónan ákvarðist á markaði. Þróun
gengis krónunnar geti þó haft áhrif á
verðbólguþróunina og sú lækkun á
gengi krónunnar sem hefur orðið
undanfarna mánuði hafi aukið verð-
bólguna.
Aðspurður segir Már að talið sé að
kaup Bakkavarar á matvælafram-
leiðandanum Katsouris Fresh Foods
geti hafa spilað inn í veikingu krón-
unnar í gær.
Minna fjárstreymi þarf til að
veikja krónuna en styrkja
Samkvæmt upplýsingum frá aðil-
um á gjaldeyrismarkaði hefur verið
stöðugt útstreymi gjaldeyris og
skýrir það veikingu síðustu vikna.
Útstreymi gjaldeyris er fyrir hendi
ef viðskiptajöfnuður er neikvæður
eins og hann hefur verið í ár þótt
hann hafi lagast frá fyrra ári.
Erfitt mun vera að skýra gengis-
þróun frá degi til dags vegna smæð-
ar markaðarins og þess að einstök
lítil viðskipti geta sveiflað genginu
tímabundið. Viðskipti á gjaldeyris-
markaði hafa verið talsverð síðustu
vikur en þrátt fyrir það hefur ekki
þurft að selja mikið af krónum til að
veikja gengið. Til að styrkja það þarf
hins vegar mun meiri kaup og er því
meiri tilhneiging til veikingar en
styrkingar krónunnar.
Ástæður þessa eru taldar vera
þær að markaðurinn geri ráð fyrir
áframhaldandi útstreymi gjaldeyris
og áframhaldandi veikingu krón-
unnar.
Kaup Bakkavarar á breska fyrirtækinu talin hafa veikt krónuna
Gengið í nýju lágmarki
klæðst hlýjum og hnausþykkum
vetrarfeldinum sem veitir hlíf við
frosthörkunum. Hesturinn býður
vetrinum birginn og hlær sínum
alræmda hrossahlátri.
HRÁSLAGALEGUR vetrarkuldinn
virðist ekki bíta á þetta hrausta og
stæðilega hross sem ljósmyndari
rakst á við Laugarvatn í gær. Hest-
ar landsins hafa enda löngum
Morgunblaðið/RAX
Hlegið mót vetri
RÚMLEGA tvítugur danskur karl-
maður hefur verið úrskurðaður í
viku gæsluvarðhald en hann var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli síð-
degis á sunnudag með um eitt kíló af
hassi innanklæða. Hassið hafði hann
límt á líkama sinn.
Á fimmtudag handtók tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli annan Dana. Sá
var með um tvö kíló af hassi sem
hann hafði líka límt á líkama sinn.
Kári Gunnlaugsson, deildarstjóri
hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflug-
velli, sagði að mennirnir hefðu báðir
verið stöðvaðir við venjubundið toll-
eftirlit við komuna frá Kaupmanna-
höfn. Hann telur að söluverð fíkni-
efnanna gæti numið allt að sjö
milljónum króna.
Svona hafði Daninn, sem hand-
tekinn var með tvö kíló af hassi,
komið hassplötunum fyrir á
líkama sínum.
Teknir með
hass límt á
líkamann
SJÚKRALIÐAR og viðsemjendur
þeirra funduðu hjá ríkissáttasemj-
ara í gær og stóðu fundahöld fram
eftir kvöldi. Að sögn Þóris Ein-
arssonar ríkisáttasemjara var á
fundinum í gær fjallað um stofn-
anaþátt kjarasamninga sjúkraliða
og er gert ráð fyrir áframhaldandi
fundahöldum á næstu dögum. Þórir
sagði að bjartara væri yfir í viðræð-
unum en málin væru ekki komin í
höfn ennþá.
Í dag er m.a. fyrirhugaður fund-
ur sjúkraliða með fulltrúum sjálfs-
eignarstofnana annars vegar og
launanefnd sveitarfélaga hins vegar
og á morgun er fyrirhugaður fund-
ur samninganefnda sjúkraliða og
Reykjavíkurborgar.
Ekki hefur verið boðaður fundur
í kjaradeilu tónlistarskólakennara
og viðsemjenda þeirra en tónlistar-
skólakennarar hafa verið í verkfalli
í fjórar vikur. Ríkissáttasemjari er í
sambandi við deilendur en síðasti
fundur í deilunni var á föstudaginn
var.
Þá hafa flugumferðarstjórar ver-
ið boðaðir á fund hjá ríkissátta-
semjara á morgun, fimmtudag, en
það er annar fundur aðila frá því
flugumferðarstjórar aflýstu verk-
föllum sem fyrirhuguð voru síðari
hluta þessa mánaðar.
Bjartara yfir
viðræðunum
BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja hef-
ur óskað eftir því við Byggðastofn-
un að hún geri úttekt á því hver
áhrif breyting á ýsu-, ufsa- og
steinbítsveiðiheimildum hafi á
atvinnulíf í Vestmannaeyjum verði
frumvarp sjávarútvegsráðherra
þar um samþykkt á Alþingi. Er
þarna verið að vísa til frumvarps
ráðherra um krókaaflamarksbáta.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
segir í samtali við Morgunblaðið
að verði frumvarpið samþykkt
verði töluvert af veiðiheimildum
flutt úr byggðarlaginu. Hann segir
að með samþykkt frumvarpsins
muni Vestmannaeyingar fá 6.909
tonn af ýsu í stað 7.910 tonna.
Munurinn sé um 1.001 tonn eða
um 2.000 kör af fiski. Hann segir
að bæjarráð vilji sannreyna þessar
tölur með því að fá Byggðastofnun
til að gera úttekt á þessu.
Byggðastofnun kanni
áhrif frumvarps ráðherra
NORÆNN banki er á meðal þeirra
sem nú eiga í viðræðum við HSBC-
bankann í London um að gerast kjöl-
festufjárfestir í Landsbanka Íslands,
að sögn Valgerðar Sverrisdóttur við-
skiptaráðherra. HSBC-bankinn er
ráðgjafi íslenska ríkisins varðandi
söluna á Landsbankanum.
Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar er áformað að selja a.m.k.
þriðjung hlutafjár í Landsbankanum
til kjölfestufjárfestis og er ráðgert
að salan fari fram fyrir árslok.
Norrænn
banki í við-
ræðum um
Landsbanka
♦ ♦ ♦