Morgunblaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓSKAR Guð-
jónsson, saxófón-
leikari, hefur lengi
verið í fremstu röð
íslenskra djassista.
Hann er nú búsett-
ur í Lundúnum þar
sem hann iðkar list
sína í gegnum hin
ýmsu verkefni sem
eiga það kannski
helst sammerkt
hvað þau eiga lítið
sammerkt. Málið
með Óskar er
nefnilega það að
hann er galopinn í
umleitunum sínum
hvað tónlist varðar
og er rekinn áfram
af því sem virðist
óbilandi forvitni.
Nýjasta verkefni hans ber þessa
merki en það er hljómdiskur sem
hefur að geyma túlkanir Óskars og
kumpána hans á tónlist Thorbjørns
Egners og Christian Hortman við
ævintýrið sígilda Dýrin í Hálsa-
skógi. Plötuna kalla þeir Láttekk-
einsoðúsértekkiðanna og snúa þeir
félagar, Óskar, Eðvarð Lárusson,
Matthías M.D. Hemstock og Pétur
Grétarsson, listavel út úr tónlist-
inni, toga hana og teygja á hinn
fjölbreytilegasta máta með afar
forvitnilegri niðurstöðu.
Mótun
„Fyrir nokkrum árum fór ég að
pæla í því hvaða tónlist það væri
sem hefði mótað mig sem tónlistar-
mann,“ útskýrir Óskar. „Þá fór ég
að vinna með tónlistina hans Jóns
Múla (eins og heyra má á diskunum
Söngdansar Jóns Múla Árnasonar
og Keldulandið). Ég spurði sjálfan
mig: Hvaðan er ég að koma og
hvert er ég að fara? Þessi plata er
má segja næsta skref í því. Þetta er
sú tónlist sem maður hlustaði hvað
mest á frá því að maður var fimm
ára til átta ára eða eitthvað álíka.“
Hann segir að hann, Matti og Eð-
varð hafi verið að spila saman á
Jómfrúnni og hann hafi þá stungið
upp á að þeir skyldu taka tvö, þrjú
lög úr leikritinu. Það hafi gengið
vel og þeim hafi þótt þetta óskap-
lega gaman.
„Bakgrunnurinn að þessu er ann-
ars vegar öll virðingin sem maður
ber fyrir þessari tónlist og það,
hversu frábær hún er. Og hins veg-
ar er maður að velta því fyrir sér
hversu mikil áhrif tónlist hafði á
mann þegar maður var mjög ung-
ur. Þegar maður var ekki byrjaður
að skoða tónlist sjálfur mark-
miðsbundið.“
Aðspurður af hverju hann leitist
við að snúa út úr
lögunum og finna
nýja fleti segir Ósk-
ar að til þess að
gera tónlistina
áhugaverða og
skemmtilega til
spilunar verði að
taka hana inn og
gera hana á þann
hátt sem hentar
hverjum og einum.
„En t.d. „Pip-
arkökusöngurinn“
er að mér finnst
mjög hefðbundinn
þótt hann sé
kannski í aðeins
öðruvísi takti,
hryngjafinn sé ann-
arrar ættar en upp-
runalega o.s.frv.
Ég held að við berum mikla virð-
ingu fyrir melódíunni og hún er
alltaf látin hljóma. Þessi diskur er
ekki gerður fyrir endalaus sóló –
það eru lög þarna þar sem það er
ekkert verið að snarstefja.“
Uppruni
Umbúnaður plötunnar er allur
hinn frumstæðasti enda var kýlt á
þetta verkefni með frekar litlum til-
kostnaði og fyrirhöfn. Platan var
tekin upp í kjallaranum hjá Pétri.
„… ja … ég held að ástæðan sé
bara að „prufa“. Prufa eitthvað
annað,“ svarar Óskar er hann er
inntur eftir ástæðum þessa.
„Ég hef ofsalega mikinn áhuga á
upptökutækni og var bara ofsalega
spenntur fyrir því að vinna þetta á
þennan hátt. Ég hef fylgst með tón-
list sem er gerð í heimahúsum og
tekin upp á spólur og slíkt. Mig
langaði bara til að gera þetta öðru-
vísi. Sleppa því að fara inn í hljóð-
ver þar sem klukkan tifar og pen-
ingarnir telja.“
Í stíl við ofangreint er teikningin
á umslaginu eftir Óskar sjálfan.
Hann segir að upprunalega hafi
hann ætlað að ganga alla leið og
gera allt sjálfur; þ.m.t. framleiðsl-
una á diskinum. Hugðist brenna
eintökin sjálfur.
„En maður losnar auðvitað við
rosalega mikið ómak, að einhver
(þ.e. Edda) vilji taka þetta upp á
sína arma og sé tilbúinn til að taka
áhættuna og gefa þetta út (kímir).“
Óskar og félagar, eða Dýrin í
Hálsaskógi, ætla að leika plötuna í
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í
kvöld. Tjöld verða frá dregin kl. 21
og á milli laga mun Pétur Grét-
arsson sjá til þess að fólk fylgi sögu-
þræði með leikrænum tilburðum.
Óskar Guðjónsson og félagar gefa út
Dvalið í draumahöll
arnart@mbl.is
Láttekkeinsoðúsértekkiðanna
Óskar Guðjónsson blæs
nýju lífi (bókstaflega) í
Mikka ref og félaga á
hljómdiskinum Láttekk-
einsoðúsértekkiðanna.
Morgunblaðið/Sverrir
Sýnd kl. 6. Vit 283 Sýnd kl. 3.50. Ísl. tal. Vit 271
Enga hurð
má opna fyrr
en aðrar
eru lokaðar
N I C O L E K I D M A N
HÖJ Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
B.i.14. Vit 291
RadioX
Ég spái The Others fjölda
Óskarsverðlaunatilnefning;
fyrir leik í aðal- og auka-
kvenhlutverkum, kvik-
myndatöku, leikstjórn,
handrit, svo nokkuð sé
nefnt.
SV Mbl
O S M O S I S
J O N E S1/2
Kvikmyndir.is
Hausverk.is
RadioX
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 292
Forsýning í Lúxus VIP kl. 8 og 10.10. Vit 309
Forsýning
Sýnd kl. 3.45 og 5.50. Vit 289.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 245
Sýnd kl. 8, 10.20 og
í Lúxus VIP kl. 5.30. B.i. 16. Vit nr. 296
Sýnd kl. 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 284
Sexy Beast
Það eina sem er hættulegra en að fara yfir strikið er lög-
reglan sem mun gera það
Hingað til hefur Denzel Wasington leikið hetjur og góða gæja, en
nú breytir hann hressilega til og leikur löggu með vafasamt
siðferði. Telja margir að hann eigi eftir að sópa til sín verðlaunum
með leik sínum hér
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit nr. 297
Saturday Night Live stjarn-
an Chris Kattan bregður sér
í dulargervi sem FBI
fulltrúinn „Pissant“ til að ná í
sönnunargögn sem geta
komið föður hans í tukthúsið.
Hreint óborganlega fyndin mynd
sem þú mátt ekki missa af!
HVER ER
CORKY
ROMANO?
Geðveik
grínmynd!
ÞÞ strik.is
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 269
SÁND
Kvikmyndir.is
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Stærsti salur landsins með 220 fm tjaldi.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45. B. i. 16.
Málverkasýning á verkum Sveins Björnssonar fyrir bíógesti í innri forsal
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Dramatískt listaverk!
ÓTH Rás 2
Metnaðarfull, einlæg,
vönduð! HJ-
Morgunblaðið
..fær menn til að hlæja
upphátt og sendir hroll
niður bakið á manni.
SG DV
..heldur manni í góðu
skapi frá fyrsta ramma
til þess síðasta!
EKH Fréttablaðið
Þvílíkt náttúrutalent!
SG - DV
Ugla Egilsdóttir er hreint
út sagt frábær!
HJ Morgunblaðið
HJ. MBL
ÓHT. RÚV
Bræðralag úlfsins
123 fórnarlömb.
Tveir menn.
Aðeins eitt svar.
l
i
i i
Hörkuspennandi hasar sem hlaðin er af hreint ótrúlegum mögnuðum
áhættuatriðum. Frá leikstjóra Crying Freeman. Með Vincent Cassel
(Crimson Rivers, Joan of Arc), Mark Dacascos (Crying Freeman)
og ítölsku gyðjunni, Monica Belucci (Under Suspicion, Malena).
N I C O L E K I D M A N
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i.14.
Edduverðlaun6
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson
Sýnd kl. 5.45.
MÁLARINN
SV Mbl
og sálmurinn
hans um litinn
SV Mbl
Sýnd Kl. 10.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Heftig og
begeistret
Sýnd kl. 8.
bread and tulips
Ó.T.H Rúv
SV Mbl