Morgunblaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 36
KIRKJUSTARF 36 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bústaðarkirkja: Opið hús fyrir aldraða kl. 13. Handavinna, spil, föndur og gaman- mál. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Létt- ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr- irbænum í síma 562 2755. Grensáskirkja: Foreldramorgunn kl. 10– 12. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíu- lestur, bænastund, kaffiveitingar og sam- ræður. Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17.30. Háteigskirkja: Morgunbænir kl. 11. Súpa og brauð kl. 12 í Setrinu á neðri hæð safn- aðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börn- um úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja: Morgunbænir kl. 6.45- 7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10– 15.30 fyrir börn í 1.–4.bekk. Fermingartími kl. 19.15. Öll fjölskyldan kölluð til leiks. Að helgistund lokinni munu unglingarnir sýna leikþætti úr sögum guðspjallanna og sýnd verður kvikmyndin Brot eftir Helenu Stef- ánsdóttur, sem heimsækir okkur og fylgir mynd sinni úr hlaði. Unglingakvöld Laug- arneskirkju og Þróttheima fellur inn í kvik- myndasýninguna. (Sjá síðu 650 í Texta- varpi). Langholtskirkja. Heilsuhópurinn hittist kl. 11–12 í Litla sal. Kaffispjall, heilsupistill, létt hreyfing og skökun. Kyrrðar- og fyrir- bænastund í kirkjunni kl. 12–12.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests og djákna í síma 520 1300. Kærleiksmáltíð kl. 12.30. Matarmikil súpa, brauð og álegg kr. 500. Samvera eldri borgara kl. 13–16. Kaffi og smákökur, söngstund með Jóni Stefánssyni, tekið í spil, málað á dúka og keramik í stóra sal. Upplestur sr. Tómasar Guðmundssonar (kl. 13.30–5.15) á Bör Börsson í Guðbrands- stofu í andyri kirkjunnar. Boðið er upp á akstur heiman og heim fyrir þá sem komast ekki að öðrum kosti til kirkju. Verið velkom- in að hafa samband við Svölu djákna í síma 520 1300 eða 862 9162. Neskirkja: Foreldramorgunn kl. 10. Um- sjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í 2. bekk velkomin. Skráning í síma 511 1560. Opið hús kl. 16. Spjallað yfir kaffi og meðlæti. Fræðsla um Davíðssálma kl. 17 í umsjón sr. Franks M. Halldórsson- ar. Bænamessa kl. 18. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Árbæjarkirkja: Kyrrðarstund kl. 12. Orgel- spil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöldmál- tíð. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða frá kl. 13–16. Kirkjuprakkarar kl. 17–18. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. „Kirkjuprakkarar“. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM & K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja: Fjölskyldumorgnar kl. 10. Foreldrar eru velkomnir að koma og taka þátt í samveru fram undir hádegi með börn- um sínum. Helgistund kl. 11. Unglingadeild Digraneskirkju og KFUM & K , 13–16 ára kl. 20. Grafarvogskirkja: Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára, kl. 17.30–18.30. Kirkju- krakkar í Rimaskóla fyrir börn 7–9 ára, kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag í Engjaskóla fyrir börn 8.–9. bekk, kl. 20–22. Hjallakirkja: Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT- starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir lærisvein- ar í Lindaskóla kl. 17. Kópavogskirkja: Starf með 8–9 ára börn- um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börn- um, TTT, á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnun í kirkj- unni í síma 567 0110. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl- mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er- lendur sjá um akstur á undan og eftir. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Helgistund, spil og kaffiveitingar. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága- fellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15– 14.30. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði, allir aldurshópar. Umsjón: Ástríður Helga Sigurðardóttir, cand. theol. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá 19.30-22.30. Stjórnandi: Hákon Leifsson. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu mið- vikudaginn 21. nóvember frá kl. 10.30– 11.30. Sóknarprestur. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Allir velkomnir. Kl. 18 æfing hjá Litlum lærisveinum. Kl. 20 opið hús hjá unglingum (8.–10. bekk) í KFUM & K-húsinu við Vestmannabraut. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladeflía. Fjölskyldu- samvera kl. 18 sem hefst með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19 er kennsla og þá er skipt niður í deildir. Það er krakkaklúbbur fyrir krakka 2–12 ára, unglingafræðsla fyrir 13–15 ára unglinga, fræðsla fyrir ungt fólk á aldrinum 16–20 ára. Þá er grunnfræðsla en þar eru kennd undirstöðuatriði kristinn- ar trúar. Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitnisburðarstundir. Það eru allir hjartan- lega velkomnir að koma og vera með okkur. Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið í Sandgerði, Taize-helgi- stund kl. 20.30. Boðið upp á kaffi að stund lokinni. „AÐ KUNNA að búa með sjálfri sér/sjálfum sér.“ Miðvikudaginn 21. nóvember verður fræðslu- kvöld í safnaðarsal Hallgríms- kirkju kl. 20. Efni kvöldsins: „Að kunna að búa með sjálfri sér/ sjálfum sér.“ Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir flytur erindi og svarar fyrirspurnum. Hún mun m.a. ræða um breytt- ar heimilisaðstæður við skilnað og ástvinamissi. Fræðslukvöld í Hallgrímskirkju Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ómar ✝ Herdís Kristjáns-dóttir fæddist í Minna Akragerði í Skagafirði 31. októ- ber 1914. Hún lést í Kjarnalundi 5. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Jóns- son bóndi, fæddur að Litla Bæ í Blöndu- hlíð í Skagafirði og Guðrún Jónasdóttir, fædd að Stóra Gerði í Myrkárdal í Eyja- firði. Herdís átti eina dóttir sem hún gaf frá sér. Þegar Herdís var á ferming- araldri fluttist fjölskyldan að Laugalandi í Þela- mörk við Eyjafjörð til bróður Guðrúnar. Þegar Guðrún dó fluttu feðginin að Litla Garði við Ak- ureyri og dvöldu þar allnokkur ár. Herdís var síðan í vist hér og þar og starfaði síðan við húshjálp á ýmsum heimilum á Akur- eyri. Á elliárum dvaldi Herdís á Elli- heimilinu á Skjald- arvík og síðar í Kjarnalundi. Útför Herdísar fór fram frá Höfðakapellu 13. nóvember. Enn fækkar föstum punktum úr æsku minni, en það datt mér í hug þegar ég frétti andlát Herdísar Krist- jánsdóttur eða „Dísu litlu“ eins og hún var kölluð á mínu æskuheimili. Alla tíð meðan við systkinin dvöldum í heimahúsum var sjálfsagt að Dísa litla birtist, stoppaði í tvo til þrjá daga og tæki til hendinni með móður okkar og kveddi síðan kóng og prest og héldi á næsta áfangastað með poka sína og pinkla. Hún var þessi föru- kona sem gekk milli ættingja og vina, dvaldi mislengi á hverjum stað og hélt síðan áfram. Þannig vildi hún hafa það. Fyrsta bernskuminning mín um Dísu litlu var þar sem hún sat við eld- húsborðið í „Sýsló“ eða Hafnarstræti 49 hér á Akureyri, lítil, grannholda kona með dökkt hár, alvarleg á svip reykjandi Roy-sígarettu með með svart kaffi í bolla fyrir framan sig. Þetta andlitið gat orðið eitt sólskins- bros á örskotsstundu þegar henni fannst eitthvað fyndið eða eldri systk- ini mín voru að gantast við hana. Það má segja að Dísa litla hafi verið ein af fjölskyldunni frá upphafi enda var hún viðstödd alla helstu viðburði á æskuheimili mínu. En hún kom ekki bara til að sitja heldur aðstoðaði hún móður mína í inniverkum sem voru ærin því börnin voru 9 og í mörg horn að líta þegar hvorki voru sjálfvirkar þvottavélar né önnur tæki til að létta húsverkin. Oftar en ekki var leitað til Dísu litlu þegar móðir okkar lagðist á spítala. Sá hún um eldamennsku og önnur verk. Alltaf var Dísa litla okkur góð en ákveðin var hún og komst eng- inn upp með að klára ekki matinn sinn og það var eins gott að mæta á réttum tíma í máltíðir. Hún bakaði alltaf sér- stakar smákökur handa okkur sem við borðuðum af bestu lyst og brenndi eina plötu af kökum fyrir bróður minn sem var sólginn í brenndar kökur. Já, við bárum virðingu fyrir Dísu litlu þótt hún væri ekki há í loftinu og ekki dugði neitt múður eða óþægð enda þurfti að halda uppi aga á svona stórum hóp. Þegar við systkinin fórum að spretta úr grasi tók hún alltaf eitt systkinið og hafði mikið uppáhald á því um nokkurn tíma. Laumaði hún sælgæti að þeim heppna og fannst manni mikið til koma á þeim árum. Ég man þegar ég var unglingur að koma af íþróttaæfingu, þá stalst ég til að drekka kókið hennar Dísu sem hún geymdi alltaf í ísskápnum heima. Þegar ég játaði syndir mínar tók hún því ljúflega og sagði að alltaf mætti kaupa aðra flösku. Þegar ég stóðst freistinguna og lét kókið í friði kom hún til mín og sagði: Ja, strákur, ertu ekki búinn að drekka kókið maður? Ég er kominn með aðra flösku. Þegar við systkinin flugum úr hreiðrinu hittum við Dísu reglulega er við vorum í heimsókn hjá foreldr- um okkar. Dísa hélt alla tíð tryggð við móður mína og þegar hún vistaðist á elliheimilinu í Skjaldarvík kom hún reglulega og var hjá mömmu ein- hverja daga því flökkueðlið var ekki uppurið hjá henni ennþá. Eftir að móðir mín dó rofnuðu tengslin mikið við Dísu en við hittum hana af og til þegar við áttum leið út í Skjaldarvík. Þegar ég sá hana síðast núna í vor í Kjarnalundi var hún farin að gamlast en hún mundi eftir strákunum hennar Rúnu þótt hún væri ekki með það á hreinu hver þeirra það væri enda vor- um við sjö bræðurnir. Við systkinin erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Dísu. Hún var sérstæður persónuleiki sem litaði mannlífið í þá daga. Við eigum marg- ar góðar minningar um Dísu litlu sem við geymum með okkur. Far þú í friði til betri heima. Frosti Meldal. HERDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR MINNINGAR ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Verslunarstarf Rótgróin heimilistækjaverslun óskar eftir að ráða starfsmann, karl eða konu, til sölustarfa í heimilis- og sjónvarpstækjaverslun sinni ásamt öðrum tilfallandi störfum. Um heils- dagsstarf er að ræða. Ráðningartími sem fyrst. Upplýsingar um fyrri störf, laun o.fl. óskast sendar til auglýsingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is, merktar: „Glaðværð — 11799“, fyrir laugardaginn 24. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað.Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Setbergsskóli Kennara vantar sem fyrst við Setbergs- skóla. Um er að ræða almenna kennslu í 7. bekk en allar upplýsingar um starfið gefur Loftur Magnússon, skólastjóri, í síma 565 1011. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strand- götu 31, en einnig er hægt að sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is . Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. LEIKSKÓLINN VIÐ ÁLFATÚN Leikskólinn við Álfatún auglýsir lausa stöðu matráðs. Um er að ræða 100% stöðu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningum Launa- nefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs. Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma 570-1600. Einnig eru lausar stöður leikskólakennara. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR R A Ð A U G L Ý S I N G A R NAUÐUNGARSALA Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, fimmtudaginn 29. nóvember 2001 kl. 15.00. G-8841 IV-677 OU-835 UJ-283 Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Blönduósi, 20. nóvember 2001.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.