Morgunblaðið - 21.11.2001, Side 14

Morgunblaðið - 21.11.2001, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÁTÍÐARSKYRTUR Vönduð íslensk framleiðsla Aldur 1 til 12 ára Skyrta og klútur kr. 2.750 Sendingarkostnaður innifalinn Póstsendum hvert á land sem er Skeifunni 9, 108 Reykjavík, sími 568 6966, fax 568 6945 Í s l a n d R á ð s t e f n a n h e i m Fimmtudaginn 22. nóvember nk. efnir Ráðstefnuskrifstofa Íslands, ásamt fagaðilum til kynningar á aðstöðu til ráðstefnu- og fundahalds hérlendis. Kynningin fer fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur frá kl. 16:00–18:00. Íslenskir og erlendir fagaðilar munu flytja stutt erindi um mikilvæga þætti er tengjast ráðstefnu- og fundahaldi og nauðsyn þess að hafa greiðan aðgang að fagþjónustu: • Steinn Lárusson, stjórnarformaður Ráðstefnuskrifstofu Íslands • Tuula Lindberg, forseti ICCA (International Congress and Convention Association.) • Hulda Styrmisdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og kynningarmála hjá Íslandsbanka. Við bjóðum alla væntanlega ráðstefnugestgjafa velkomna. H e f u r þ ú h u g á a ð h a l d a r á ð s t e f n u á Í s l a n d i ? NÝTT fjölbýlishúsahverfi við Breiðumýri í Bessastaðahreppi er nú í skipulagningu og býst skipu- lagsfulltrúi hreppsins við að upp- bygging þess geti hafist strax á næsta ári. Gert er ráð fyrir um 100 íbúðum í hverfinu. Að sögn Gunnars Vals Gísla- sonar, sveitarstjóra og skipulags- fulltrúa, er nú verið að ljúka við uppbyggingu tveggja íbúðarhverfa í hreppnum og býst hann við að flutt verði inn í allflest hús í þeim hverfum þegar á þessu ári. „Nú er- um við að huga að næstu byggð hjá okkur og við erum að velta fyrir okkur að byggja lítið hverfi fjöl- býlishúsa. Við verðum vör við það hér hjá okkur, eins og alls staðar á höfuðborgarsvæðinu, að þörfin fyr- ir minni íbúðir er meiri en hefur verið fram til þessa og því erum við að skoða lítið hverfi með um eitthundrað íbúðum í fjölbýlishús- um.“ Tólf fjölbýlishús og fjögur raðhús Gunnar segir þetta tengjast því að í október síðastliðnum hafi hreppurinn skrifað undir viljayfir- lýsingu með Búseta um að félagið byggi 15–20 leiguíbúðir í hreppn- um á næstu tveimur árum. „Það yrði þá í slíkum húsum og vænt- anlega í þessu hverfi,“ segir hann. Gert er ráð fyrir hverfinu við vestanverða Breiðumýri, gegnt skólahverfinu. Gunnar segir að þar séu áætluð 12 tveggja hæða fjölbýlishús með sex til átta íbúðum í hverju húsi. Að auki yrðu fjögur raðhús þar sem yrðu 12 íbúðir af þeim eitt- hundrað sem áætlað er að verði í hverfinu. Þá er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustulóð í deiliskipulaginu auk leikskólalóðar. „Við sjáum það að í fullbyggðum Bessastaðahreppi þurfum við tvo sex deilda leik- skóla. Við ætlum að halda skól- unum öllum saman hjá okkur – leikskólarnir hafa svo mikil sam- skipti við Álftanesskóla, tónlistar- skólann og íþróttahúsið að við vilj- um halda þeim báðum í framtíðinni á þessu svæði.“ Aðspurður segir Gunnar hug- myndina vera á deiliskipulagsstigi. „Ef fram fer sem horfir þá ætti deiliskipulag þessa hverfis að geta verið tilbúið einhvern tímann upp úr áramótum. Ef samkomulag næst við landeigendur um kaup á landi undir hverfið ætti uppbygg- ingin að geta hafist næsta vor.“ Verið að skipuleggja nýtt fjölbýlishúsahverfi Uppbygging gæti hafist næsta vor semjist um lóðir 47                 ) *      "  -%% !. # -1#" $2 -  3   % % Bessastaðahreppur ÁKVEÐIÐ hefur verið að úthluta börnum í Staðahverfi, sem búa lengra en 1,5 kílómetra frá Korpu- skóla, miðum í strætisvagna. Fræðslustjórinn í Reykjavík segir ekki hafa verið grundvöll fyrir skóla- akstri í hverfinu. Í Morgunblaðinu hinn 27. október sl. sagði Sigrún Magnúsdóttir, for- maður fræðsluráðs Reykjavíkur, að kæmi í ljós að vegalengdir í hverfinu væru yfir viðmiðunarmörkum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur væri sjálfgefið að hefja skólaakstur í hverfinu. Davíð Héðinsson, formaður foreldraráðs Korpuskóla, segir vega- lengdirnar sem um er að ræða feiki- miklar. „Þær eru svipaðar og ef barn, sem væri búsett við Fossvogsskóla þyrfti að labba niður í Menntaskól- ann við Sund. Þetta er nú svolítill spölur fyrir stutta fætur og það geng- ur ekkert upp að láta krakka ganga svona langar vegalengdir.“ Hann segir brýnt að finna lausn á málinu og nú sé boðið upp á stræt- isvagnamiðana. „En það er bara spurning hvort fólk telji þá lausn við- unandi,“ segir hann. Hjörtur Stefánsson, foreldri í hverfinu sem hefur látið málið til sín taka, segir lausnina með strætis- vagnamiðana skrípaleik. „Í fyrsta lagi gengur vagninn á 20 mínútna fresti og gengur ekki í nyrsta hluta hverfisins. Krakkar sem eru nyrst eru búnir að labba einn þriðja til helming af vegalengdinni og það er ekki einu sinni strætisvagnaskýli þeim megin sem Korpúlfsstaðir eru við götuna.“ Hann segir lengstu vegalengdir í hverfinu vera yfir viðmiðunarmörk- um Fræðslumiðstöðvar en auk þess sé ekki rétt að einblína á þau mörk þegar ákvörðun um skólaakstur er tekin. „Samkvæmt deiliskipulagi hverfisins á skólinn að vera á allt öðr- um stað og það er fullt af fólki sem keypti sér íbúð eða lóð vitandi að skipulagsskilmálarnir væru þeir að þarna skyldi vera skóli á ákveðnum stað. Það stóð aldrei til að hafa skóla á Korpúlfsstöðum heldur var það ekki fyrr en búið var að úthluta hverri einustu lóð í hverfinu að sú umræða kom upp innan kerfisins.“ Skólaakstur ef enn lengra er til skóla Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslu- stjóri í Reykjavík, segir að við athug- un hafi ekki verið talin þörf á að taka upp skólaakstur í Staðahverfi. „Fræðsluráð sagði að það væri sjálf- gefið að hefja skólaakstur ef göngu- leiðir væru of langar. Okkur var falið að kanna það og þá kom í ljós að þetta eru í mesta lagi 1,6 kílómetrar. Það er þannig í borginni allri að nemendur sem eiga heima lengra en 1,5 kíló- metra fá strætómiða en skólaakstur er svo ef það er enn lengra til skóla.“ Hún segir að örfá hús í Staðahverfi séu 1,6 kílómetra frá skólanum og þeim börnum sem þar búa gefist nú kostur á miðum í strætisvagna. „Þeg- ar það var ákveðið fyrir nokkrum ár- um að viðmiðið væri 1,5 kílómetrar þótti fólki í lagi að börn gengju þetta. Þetta hefur breyst og fólk er farið að keyra börn miklu meira. Sumir vilja meina að það sé börnunum hreinlega hættulegt heilsufarslega, að þau megi ekki ganga neitt.“ Gerður segist hafa kynnt sér að strætisvagn númer 14 gangi endanna á milli í Staðahverfi á tuttugu mín- útna fresti en hvort það vanti biðskýli geti hún ekki dæmt um. Hún segir það alltaf hafa verið á hreinu að Korpuskóli sé til bráða- birgða á meðan verið sé að einsetja alla skóla í Reykjavík og því ljúki á næsta ári. Ekki sé búið að forgangs- raða verkefnum eftir það en byrja eigi að undirbúa hönnun á Staðaskóla á næsta ári. Hins vegar sé líklegt að framkvæmdir hefjist ekki fyrr en í fyrsta lagi 2004–2005 þar sem und- irbúningur og hönnun taki trúlega eitt til tvö ár. Strætisvagna- miðar í stað skólaaksturs Staðahverfi OPINN borgarafundur um Staðar- dagskrá 21 verður haldinn í sal Fjöl- brautaskólans í Garðabæ annað kvöld. Staðardagskrá 21 er ætlað að vera forskrift að sjálfbærri þróun sveitarfélagsins fram á 21. öldina og lýsir því hvernig skila má komandi kynslóðum jörðinni eins og tekið var við henni. Á fundinum kynnir for- maður starfshóps um Staðardagskrá 21 stöðumat sem hópurinn hefur unnið en á eftir verður fundarmönn- um skipt í umræðuhópa sem fjalla annars vegar um mannlíf, náttúru- vernd, menningarminjar og útivist og hins vegar um atvinnustarfsemi, skipulag og mengunarvarnir. Niðurstöður umræðuhópanna verða hafðar til hliðsjónar við loka- gerð Staðardagskrár 21 fyrir Garða- bæ. Fundurinn hefst klukkan 20. Fundur um Staðardagskrá Garðabær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.