Morgunblaðið - 21.11.2001, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 37
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags Kópavogs
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs verð-
ur haldinn miðvikudaginn 28. nóvember nk.
í Hamraborg 1, 3. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr.
laga félagsins.
2. Gestur fundarins verður Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra.
3. Önnur mál.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Minnum á opið hús alla laugardaga milli kl. 10 og 12.
Framhaldsaðalfundur
Félags einstæðra foreldra
Framhaldsaðalfundur Félags einstæðra for-
eldra verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvem-
ber í Skeljahelli, sal félagsins, í Skeljanesi 6,
kl. 20.00.
Dagskrá.
1. Fundur settur, skipan fundarstjóra og ritara.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins.
3. Lagabreytingar, 2., 4., 5., 10. og 13. gr.
4. Kosning í stjórn og nefndir.
5. Fundi slitið.
Opinn ársfundur
Kennaraháskóla Íslands verður haldinn 29.
nóvember nk. kl. 15.30 í hátíðarsal Sjómanna-
skólans.
Fundurinn er haldinn skv. ákvæðum í 23. gr.
laga nr. 136/1997 um háskóla.
Dagskrá:
1. Skýrsla um störf skólans.
2. Skýrsla um rekstur skólans.
3. Framtíðarsýn skólans og starfsáætlun.
4. Önnur mál.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
2ja—3ja herb. íbúð óskast
Ungt par með eitt barn óskar eftir 2ja—3ja her-
bergja íbúð til leigu. Skilvísum greiðslum heitið.
Vinsamlega hringið í s. 564 3977 eða 697 4951.
gunnarkristinsson@yahoo.com
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hluthafafundur í X18 hf.,
The Fashion Group
Hluthafafundur verður haldinn miðvikudaginn
28. nóvember kl. 17.00 í húsnæði félagsins á
Fiskislóð 75, 101 Reykjavík.
Dagskrá:
1. Tillaga um aukningu hlutafjár.
2. Tillaga um sameiningu X18 og ISF.
3. Önnur mál.
Stjórn X18.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Höfðabraut 6,
Hvammstanga, miðvikudaginn 28. nóvember 2001 kl. 15.00.
HÖ-905 I-1726 OD-21 PT-312
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
20. nóvember 2001.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Boðaslóð 7, efri hæð, þingl. eig. Hreinn Sigurðsson, gerðarbeiðendur
Íslandsbanki-FBA hf. og Vestmannaeyjabær, fimmtudaginn 29. nóv-
ember 2001 kl. 15.00.
Hábær v/Ofanleitisveg, þingl. eig. Sigrún Harpa Grétarsdóttir og
Sigurður Örn Kristjánsson, gerðarbeiðendur Lýsing hf., sýslumaður-
inn í Kópavogi og Vestmannaeyjabær, fimmtudaginn 29. nóvember
2001 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
20. nóvember 2001.
TILKYNNINGAR
Auglýsing,
um tillögu til breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
breytingu á deiliskipulagsáætlun og tillögur að
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi tillögur að breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, tillögur að deiliskipulagáætlunum og breytingu á
deilskipulagsáætlun í Reykjavík.
Bryggjuhverfi, Naustabryggja 13-17, 21-33 (oddatölur) og 54-57 og Tangarbryggja 10-
12, breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir að breyttu fyrirkomulagi bílastæða við hús nr. 12 og 13 á uppdrætti
þ.e. Naustabryggju nr. 21-33. Tillagan gerir og ráð fyrir að lóðir nr. 14A og 14B á uppdrætti,
þ.e. Naustabryggja nr. 13-17 (oddatölur), sameinist. Í samræmi við það verði ekki lengur
gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja neðanjarðarbílageymslu á lóðinni nr. 14B en hún var
m.a. ætluð fyrir húsin nr. 54-57 við Naustabryggju.
Langholtsvegur 109-115, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi.
Annarsvegar er um að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Langholtsvegi
til vesturs, Drekavogi til norðurs, opnu grænu svæði og lóðinni nr. 6 við Drekavog til austurs
og göngustíg norðan húsanna nr. 12-16 við Sigluvog til suðurs. Hinsvegar er um að ræða
tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 varðandi lóðina nr. 115 við
Langholtsveg.
Tillögurnar gera ráð fyrir að heimilt verði að byggja inndregna hæð ofan á húsið nr. 109-111
við Langholtsveg. Lóðinni nr. 115 verði skipt upp í tvær lóðir og landnotkun hennar, skv.
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, breytt úr athafnasvæði í íbúðasvæði. Heimilt verði að
byggja viðbyggingu norðan við húsið nr. 115 við Langholtsveg (þ.e. húsið sem stendur við
Langholtsveg). Jafnframt verði heimilt að byggja tvær hæðir ofan á austara húsið sem nú
stendur á lóðinni nr. 115 og tvö þriggja hæða íbúðarhús, með 6 íbúðum í hvoru, syðst á
lóðinni þ.e. aftan við húsin nr. 12 og 14 við Sigluvog. Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir öðrum
minni breytingum í tengslum við þær sem taldar hafa verið upp hér að framan.
Kirkjutún, deiliskipulag (Sóltún, Mánatún, Borgartún, Kringlumýrarbraut).
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi svæðis sem afmarkast af Borgartúni til norðurs,
Sóltúni og Kringlumýrarbraut til austurs, Sóltúni til suðurs og lóð Sóltúns 3 og Borgartúns
26 til vesturs.
Tillagan gerir m.a. grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á skipulagi svæðisins frá
samþykkt síðasta heildarskipulags þess. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að byggja tvö
ný hús á svæðinu. Annarsvegar er um að ræða 6 hæða íbúðarhús með 24 íbúðum vestan
hússins nr. 11-13 við Sóltún auk neðanjarðarbílgeymslu fyrir 24 bíla. Hinsvegar er gert ráð
fyrir aftan við húsið nr. 28 við Borgartún rísi u.þ.b. 2300 m2 skrifstofuhúsnæði sem getur
orðið allt að 6 hæðir (6. hæðin inndregin).
Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir breytingu á fyrirhugaðri götu (Mánatúni) milli lóðanna nr. 2-
6 við Mánatún og Sóltúns nr. 3. Breytingin felur m.a. í sér nokkuð meiri skerðingu á lóðinni
nr. 3 við Sóltún en eldra skipulag gerði ráð fyrir.
Tillögurnar verða til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 21. nóvember til 19. desember 2001. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 4. janúar 2002. Þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 21. nóvember 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
ÝMISLEGT
Skólinn og sorgin
Fræðslukvöld í Fossvogskirkju fimmtudaginn
22. nóvember kl. 20—22 á vegum Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, prófastsdæmanna
í Reykjavík og Nýrrar dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð. Ólöf Helga Þór, náms-
ráðgjafi, fjallar um skólann og sorgina.
Allir velkomnir.
Stórútsala
Síðustu forvöð að gera góð
kaup! 50—90% afsláttur.
Góðar vörur — mikið úrval.
Frábær tilboð á tölvuleikjum og
DVD diskum.
Sjónvarpskringlan,
Síðumúla 37,
sími í verslun 575 2310.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Lára Halla Snæfells, Erla Alex-
andersdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir og Garðar Björg-
vinsson michael-miðill starfa
hjá félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum uppá einka-
tíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 18211218 E.t.1.
GLITNIR 6001112119 I
I.O.O.F. 7 18111217½ E.T.1
I.O.O.F. 9 18211218½ Et.1
Hamar 6001112119 III
HELGAFELL 6001112119 VI
Frl.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.30. Kjellrun Langdal
og Skúli Svavarsson tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið basar Kristniboðsfélags
kvenna í Kristniboðssalnum nk.
laugardag kl. 14. Margt fallegra
muna, kökusala, skyndihapp-
drætti.
sik.is