Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Traust persónuleg alhliða útfararþjónusta. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is ✝ Guðrún Jónsdótt-ir fæddist 4. nóv- ember 1907 í Ólafs- vík. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 22. nóvem- ber síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Jóns Þorvarðarson- ar, f. 1856 og Sólveig- ar Jakobínu Ólafs- dóttur, f. 13. október 1871. Guðrún var fimmta í röðinni af sjö systkinum. Elstur er Höskuldur, f. 23. júlí 1899, Kristján, f. 21. september 1901, Magnús, f. 6. maí 1903, Sólveig Jónína, f. 24. maí 1905, Jón Austmann, f. 9. ágúst 1910, og Kristín, f. 14. júlí 1913. Guðrún fluttist frá Ólafsvík í frumbernsku og ólst upp hjá fóst- urforeldrum á bænum Berufirði í Berufirði hjá hjónunum Guð- mundi Guðmundssyni og Gyðríði Gísladóttur. Guðrún giftist Sigurpáli Ófeigs- syni árið 1940 og bjuggu þau í Kelduskógum í Berufirði til ársins 1946. Þaðan fluttu þau að Skjöld- ólfsstöðum í Breiðdal. Árið 1949 fluttust þau að Stöð í Stöðvarfirði þar sem þau bjuggu til ársins 1957 er þau fluttu að Litlu-Hildisey í Aust- ur-Landeyjum og bjuggu þar til ársins 1959. Árið 1959 slitu þau samvistir og fluttist Guðrún það ár til Reykjavíkur. Árið 1964 fluttist hún í Kópavog þar sem hún bjó til dán- ardægurs. Eftir að Guðrún fluttist til höfuðborgarsvæðis- ins bjó hún alla tíð hjá Guðmundi elsta syni sínum. Guðrúnu og Sigurpáli varð fjögurra barna auðið og eru tvö þeirra enn á lífi. Elstur er Guðmundur, f. 17. febr- úar 1941, óskírður drengur 1943, lést við fæðingu, Óskar, f. 21. des- ember 1945, og Hermann Unn- steinn, f. 18. júlí 1947, d. 1955. Guðrún á sjö barnabörn og sjö barnabarnabörn. Guðrún var húsfreyja auk þess sem hún starfaði við búskap uns hún fluttist á höfuðborgarsvæðið. Eftir það vann hún aðallega við ræstingar og heimilisaðstoð. Útför Guðrúnar verður gerð frá Kópavogskirkju á morgun, mánudaginn 3. desember og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku mamma. Nú er komið að kveðjustundinni. Margs er að minnast á langri ævi sem erfitt getur verið að koma til skila með orðum. Mamma var hlý og góð og til hennar leituðum við bræð- urnir þegar eitthvað bjátaði á. Hún var mikil búkona og hugsaði vel um heimilið og dýrin sem voru vinir hennar. Sérstakan áhuga hafði hún á öllum gróðri en þó einkum á blómum sem þrifust mjög vel hjá henni enda talaði hún ætíð til þeirra. Þá var hún afkastamikil með prjónana sem kom sér vel á löngum köldum vetrum í bernsku minni þar sem ekki var raf- magn eða hitaveita. Eftir að hún hætti að vinna sneri hún sér aðallega að prjónaskap og margir hafa hlýjað sér í sokkum eða vettlingum frá henni. Guð geymi þig, elsku mamma. Óskar Sigurpálsson. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur en margar góðar minningar sitja eftir sem við getum hlýjað okkur við. Þú varst alltaf mér til halds og trausts og það voru góðar stundir sem við áttum saman. Alveg síðan ég man eftir mér áttir þú heima hjá okkur þar til fyrir tveimur árum er þú fórst á elliheim- ili. Það var svo hlýlegt að koma heim úr skólanum þegar þú tókst á móti mér með ilmandi matarlyktina úr eldhúsinu. Þú hjálpaðir mér eftir bestu getu með heimaverkefnin og kom þá þín mikla þolinmæði að góðum notum. Þú kenndir mér svo margt og stend- ur þá helst upp úr handavinnan sem var líf þitt og yndi. Ekki má gleyma ljóðunum sem þú hlýddir mér þol- inmóð yfir aftur og aftur enda hafðir þú svo gífurlega þekkingu á ljóðum og skáldskap. Þú vildir mér alltaf svo vel og þegar illa viðraði gafstu mér aura í strætó til þess að fara í skól- ann jafnvel þó að skólinn væri aðeins rétt hjá. Þú varst svo mikil barna- gæla og öllum börnum fannst svo notalegt að sitja í herberginu þínu og skoða dótið þitt á meðan þú sagðir þeim sögur. Það voru líka ófáir vett- lingar og sokkar sem þú prjónaðir á þessi börn. Elsku amma, ég kveð þig með þessum orðum og geymi margar góðar minningar um þig í hjarta mínu. Þitt barnabarn, Sigríður Jóna Guðmundsdóttir. Mig langar að minnast Guðrúnar Jónsdóttur með nokkrum orðum. Ég kynntist Guðrúnu er systir mín fór að vera með syni hennar Guðmundi Sigurpálssyni, er síðar varð eiginmaður hennar. Þau hófu búskap árið 1965 á Seltjarnarnesinu og flutti hún þá til þeirra og bjó hjá þeim alla tíð, þar til fyrir tveimur ár- um að hún fór á elliheimili. Ég var nú bara 9 ára er ég kynntist henni, og var hún ekki alltof hrifin af þessari uppátækjasömu stelpu. En árin liðu og við kynntumst hvor annarri betur og líkaði bara vel hvorri við aðra. Flestar eru minningarnar er maður kom í heimsókn á Kársnesbrautina og er maður kom inn í húsið, var her- bergið hennar það fyrsta sem maður fór framhjá. Þar sat hún og prjónaði og var byrjað á því að heilsa upp á hana. Svo kom hún alltaf fram og fékk sér kaffi með okkur og spjallaði og fór svo aftur inn og hélt áfram að prjóna. Henni féll varla verk úr hendi eins og oft er sagt. Ég man vel hvað hún var hneyksluð á mér ungu konunni, er ég sagði eitt sinn við hana, að mér fyndist svo leiðinlegt að prjóna vettlinga og sokka, þá vildi ég miklu heldur prjóna peysur. Þetta skildi Guðrún mín ekki. En það eru ófá sokka- og vettlingapörin sem hún prjónaði á bæði mín börn og svo auð- vitað barnabörnin sín auk lang- ömmubarnanna, að ógleymdu tepp- unum sem hún prjónaði hin síðari ár. Hún hafði mjög fastar skoðanir á málunum og hélt við sitt. En hún var víðlesin og hafði gaman af skáldskap ýmisskonar. Hún hafði unun af að fræða ungdóminn í dag um gamla tímann og að segja frá gömlum vinnubrögðum. Öll börn hændust mjög að henni og voru þau löngum inni hjá henni að skoða dótið, sem hún hafði í kassa inni hjá sér og á meðan sagði hún þeim sögur. Það held ég hafi verið notalegt fyrir syst- urbörnin mín, er þau komu heim úr skólanum, þá var amma til staðar að taka á móti þeim og gefa þeim að borða og spjalla. Það eru ekki mörg börn í dag sem kynnast þessu, hvað þá að búa með ömmu alla sína bernsku. Mínum börnum þótti mjög gaman að spjalla við hana og voru þau löngum að segja mér hvað hún hafði verið að fræða þau um. Ekki má gleyma öllum jólaboðun- um í fjölskyldunni, fyrst hjá móður minni, svo síðar hjá okkur systrum. Meðan móðir mín hafði boðin, var það fastur liður að Guðrún bjó til uppstúfinn með hangikjötinu að ógleymdu uppvaskinu. Það verður tómlegra núna um jólin þegar hana vantar. Að lokum er ekki úr vegi að minnast þess hve systir mín hún Ingibjörg hefur verið umhyggjusöm og hugsað vel um Guðrúnu hin síðari ár, eftir að heilsu hennar fór að hraka. En nú er Guðrún mín búin að fá hvíldina langþráðu og veit ég að henni líður betur. Að lokum kveð ég hana með þess- um sálmi og bið Guð að geyma hana. Aðstandendum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Ásthildur Sigurjónsdóttir. GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR                                     !"# $%# &    $   '  ! ""#" $!  #"  $   %   !   %   %"#" ""&  #" ! ! %'"" %  (  "&   %   ! !  )% #" !&   %  $*! ! "#" ! +"&   %  %    %  "%!   %  #&,",$"-                                        !   ""   #$  $%   ""  & "     $  ' "(  $% )  ""    "" *   %%)#                       !                    "! "! ##$ ! %# &'$  !  $###%# "! ##$'$ %# #  ($) #  *!  # "! ##  ! +%, $# ! -#,!  . # %#&                             ! "    #      $ %$          % &  !            $  "&     '  (            !!    !! "  #   $  $  $  $  $ %                                            !  " #       $    %&'& (                   )     !  " #  *   ++% +,$%  !"#  !"$ %&#  %$' ()   "$ %&# #  *)+ %  (# %&#  ,   # -                                      !!" #       $   %  $      !"# $% &  '"( )*  &  +  ,''  ,-    ,''   .&/ & ,  $   ,''  + % ., .,& 0 0# &%  %#110# *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.