Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ 3. desember 1991: „Líkt og búist hafði verið við, reyndist yfirgnæfandi meirihluti Úkraínumanna hlynntur því að segja skilið við Sovétríkin í þjóðaratkvæðagreiðslu þeirri er fram fór um helgina. Landsmenn hundsuðu af- dráttarlausar viðvaranir Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sov- étforseta, sem sagt hafði að stuðningur við sjálfstæðisyf- irlýsingu stjórnvalda myndi hafa hinar alvarlegustu af- leiðingar. Þessi niðurstaða er enn einn naglinn í líkkistu miðstjórnarvaldsins í Kreml og staðfesting þess að sov- éska heimsveldið er liðið und- ir lok. Valdagrunnur Gorb- atsjovs, sem aldrei var traustur, er nú veikari en nokkru sinni fyrr og tilraunir hans til að bjarga sovéska ríkjasambandinu, sem banda- lagi laustengdra fullvalda lýðvelda, hafa enn sem komið er ekki borið árangur. Þótt líklegt verði að telja að Úkr- aínumenn séu tilbúnir til að eiga samstarf á efnahagssvið- inu við fyrrum lýðveldi Sov- étríkjanna sýna yfirlýsingar stjórnvalda í Úkraínu, að þar telja menn hugmyndir Gorb- atsjovs um takmarkaða mið- stýringu Moskvuvaldsins tímaskekkju. Óvissa ríkir því um framtíð Míkhaíls Gorb- atsjovs Sovétforseta.“ . . . . . . . . . . 2. desember 1981: „Vinstri meirihlutamönnum í Reykja- vík hafa verið mjög mislagðar hendur við stjórn borg- arinnar og greinilegt er, að taugaveiklunin magnast nú í herbúðum þeirra. Sigurjón Pétursson, forseti borg- arstjórnar og forystumaður Alþýðubandalagsins, á eink- um í vök að verjast. Öllum Reykvíkingum er ljóst, að hann vill aðför að eignarrétti borgarbúa og svipta þá um- ráðarétti yfir íbúðum sínum, sem búa í „of stóru“ húsnæði. Sigurjón Pétursson ritar grein í Þjóðviljann á sunnu- daginn, sem ber yfirskriftina „vélrænt flokkseinræði íhaldsins var afnumið“. Fyr- irsögnin og greinin öll er einkar góð staðfesting á því, hve áberandi mistökin eru hjá forvígismönnum vinstri meirihlutans.“ . . . . . . . . . . 3. desember 1971: „Í gær- morgun tókst samkomulag milli samninganefnda verka- lýðsfélaganna og vinnuveit- enda um frestun hins boðaða verkfalls til nk. sunnudags til þess að frekari tími gefist til samningaviðræðna. Þessari frestun verkfallsins munu all- ir landsmenn fagna, og vænt- anlega er hún vísbending um, að deiluaðilar hafi nú nálgazt svo sjónarmið hvor annars, að verulegar líkur séu á lausn kjaradeilunnar án verkfalla. Verkföll eru alltaf slæm og öllum til tjóns, launþegum, atvinnuvegunum og þjóð- arbúinu í heild. En verkfall í desember er þó öllu verst, enda sérstaks eðlis, og er því mikið fagnaðarefni, ef tekst að forða því.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SJÓNARMIÐ STIGLITZ Það er vissulega fengur að þvífyrir okkur Íslendinga, aðSeðlabankinn hefur fengið Joseph Stiglitz Nóbelsverðlauna- hafa í hagfræði til þess að gera út- tekt á íslenzka hagkerfinu og setja fram sín sjónarmið í því sambandi. Stiglitz er heimskunnur hagfræð- ingur, sem hefur gegnt ábyrgðar- miklum störfum, sem efnahagsráð- gjafi Clintons, aðalhagfræðingur Alþjóðabankans í Washington og há- skólakennari. Hins vegar fer ekki á milli mála, að hann er jafnframt mjög umdeildur hagfræðingur eins og brottför hans frá Alþjóðabank- anum sýndi m.a. og þeir eru til, sem gefa lítið fyrir skoðanir hans. Í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá skoðunum Joseph Stiglitz á ís- lenzkum efnahagsmálum og verður ekki annað sagt en þeir sem mesta ábyrgð bera á hagstjórn okkar kom- ist nokkuð vel frá þeirri gagnrýnu umfjöllun. Þannig telur hann að upptaka verðbólgumarkmiða og af- nám vikmarka krónunnar hafi verið skynsamleg stefnubreyting. Sumar tillögur Stiglitz um aðgerð- ir til þess að draga úr viðskiptahall- anum eru ekki líklegar til að njóta fylgis hér. Hann nefnir hækkun vörugjalda á varanlegar neyzluvörur og skatta á fjármagnsflutninga. Í báðum tilvikum er um að ræða ráð- stafanir, sem mörgum mundu þykja keimlíkar hagstjórnaraðferðum fyrri ára, oggangi gegn þeim hug- myndum um frelsi í viðskiptum, sem hafa orðið grundvöllur efnahags- stefnu ríkisstjórna í rúman áratug. Meiri hljómgrunnur er áreiðan- lega fyrir öðrum hugmyndum Stig- litz eins og t.d. þeim að setja tak- mörk á hraða útlánaaukningar ein- stakra banka með ýmiskonar reglum t.d. um hærri eiginfjárkröfur, hærri innborganir í innlánstryggingar- kerfi o.s.frv. Athyglisverð er sú skýring, sem Stiglitz setur fram á viðskiptahall- anum. Hann segir: „Viðskiptahall- inn, sem Ísland býr við um þessar mundir, virðist því hvorki vera til kominn vegna fjárlagahalla né af of háu gengi krónunnar. Tveir þriðju hlutar af viðskiptahalla áranna 1997-2000 skýrast af minnkandi sparnaði einkaaðila og einn þriðji af aukinni fjárfestingu. Gríðarleg aukning útlána á þessum árum bendir til þess að aukið frelsi í fjár- magnsflutningum hafi að verulegu leyti valdið viðskiptahalla undanfar- inna ára.“ Síðan segir Joseph Stiglitz: „En er sú staðreynd að viðskiptahallinn á rætur sínar að rekja til hegðunar einkaaðila til marks um það, að ríkið þurfi ekkert að aðhafast vegna hall- ans? Nei, ekki endilega. Þegar betur er að gáð á ríkið nefnilega meiri þátt í viðskiptahallanum en virðist vera við fyrstu sýn. Að svo miklu leyti sem markaðsaðilar telja gengið vera fast líta þeir á það sem tryggingu, sem ýti undir erlendar lántökur. Bankakerfið er að hluta til í eigu ríkisins og erlendir lánardrottnar hafa tilhneigingu til þess að trúa því að ríkið muni bjarga mikilvægum bönkum ef þeir lenda í vandræðum. Stjórnvöld hafa þar að auki áhrif á væntingar einkaaðila um framtíðar- tekjur. Þar sem viðskiptahallinn er almennt talinn vera áhættuþáttur hvað fjármálakreppur varðar getur mikill viðskiptahalli aukið líkurnar á kreppu, þótt hann sé góðkynja, ein- ungis vegna þess að markaðsaðilar hafa ótta af þeirri reynslu að sam- band sé milli viðskiptahalla og fjár- málakreppu.“ Ef þessi greining Stiglitz er rétt er alla vega ljóst að hverju við eig- um að beina kröftum okkar í hag- stjórn á næstu mánuðum og miss- erum. V LADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, hefur baðað sig í sviðsljósinu með vestræn- um leiðtogum eftir árás hryðjuverkamanna á Bandaríkin 11. september og nýtt skeið virðist vera að hefjast í samskiptum Rússa við Vesturlönd. Það var ekki að sjá að það væri í vændum dagana fyrir hryðjuverkin. Þá voru fréttir af fyrirhuguðum æfingum rússneska flughersins á Norður-Atlantshafi í brennidepli. Varnarliðið hafði í hyggju að fylgjast grannt með þessum æfingum. Vakti bæði athygli að tilkynn- ing um æfingarnar barst seint og á sama tíma stóð yfir kafbátaleitaræfing Atlantshafsbanda- lagsins. Útilokaði Stanislav E. Pokrovskí, stað- gengill sendiherra Rússa á Íslandi, ekki að sam- band gæti verið milli æfinganna. Æfingar Rússana hófust hins vegar aldrei. Eftir að hryðjuverkamenn réðust á World Trade Center í New York og bandaríska varnarmála- ráðuneytið var æfingunum aflýst og Pútín hóf sókn á nýjum vettvangi. Davíð Oddsson forsætisráðherra gerði þessi mál að umtalsefni í ræðu, sem hann flutti á há- degisverðarfundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu á Hótel Sögu í dag, laug- ardag, þegar hann benti á að hryðjuverkin hefðu hvatt ríki til að sameina kraftana og skapað tækifæri til að bæta samskipti: „Þannig eru nú til umræðu í Atlantshafsbandalaginu hugmyndir um að koma á nánari tengslum þess og Rúss- lands en fyrir voru með samstarfssamningi þeirra frá árinu 1997. Mikilvægt er að nýta öll ný tækifæri til samstarfs við Rússland á tilteknum sviðum eins og varðandi varnir gegn hryðjuverk- um. Jafnframt verður auðvitað að gæta þess að bandalagið geti áfram tekið eigin ákvarðanir á eigin forsendum, enda er ekki verið að leggja til að Rússar fái neitunarvald.“ Forseti Rússlands hefur undanfarnar vikur verið á fundum með ýmsum leiðtogum Vestur- landa og að auki rætt við Robertson lávarð, framkvæmdastjóra NATO. Pútín var ekki seinn að bjóða hjálp Rússa í baráttunni við hryðju- verkamenn. Um leið komu fram hugmyndir um að auka hlut Rússa í samstarfinu við Atlants- hafsbandalagið, sem hingað til hefur byggst á samráði, en nú er verið að leita leiða til að Rúss- ar eigi þátt í að taka ákvarðanir á ákveðnum sviðum. Þar hefur sérstaklega verið talað um fernt; leitar- og björgunaraðgerðir vegna nátt- úruhamfara, baráttu gegn útbreiðslu sýkla- og efnavopna og kjarnorkuvopna, aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi og jafnvel möguleikann að líta á endurskipulagningu herja. Það vakti mikla athygli þegar haft var eftir Robertson lávarði eftir að hann hafði rætt við Pútín í Moskvu fyrir rúmri viku að Rússar myndu hugsanlega fá neit- unarvald. Kanadamaðurinn Yves Brodeur, sem tók við starfi talsmanns Atlantshafsbandalagsins af Jamie Shea, segir hins vegar í samtali við Morgunblaðið í dag, laugardag, að ekki komi til greina að veita Rússum neitunarvald: „Banda- lagsríkin eiga enn eftir að setjast niður og ákveða hvað beri að gera,“ sagði Brodeur. „Við höfum því ekki lagt fram tillögu fyrir Rússa því að við höfum ekki ákveðið hvernig halda eigi málinu áfram. Það er einnig ljóst að ákvörðun um að koma á verklagi til að taka sameiginlegar ákvarðanir mun ekki útiloka rétt NATO og að- ildarríkjanna 19 til að ákveða hvað bandalaginu sé fyrir bestu og því er allt tal um neitunarvald Rússa út í hött.“ Mun draga úr tortryggni Rússa vegna stækkunar? Talsmaðurinn sagði hins vegar að Rússar hefðu ekki í huga að nota þetta aukna sam- starf í annarlegum til- gangi, til dæmis til að draga úr krafti Atl- antshafsbandalagsins. Þá mundi NATO ekki leggja út í viðræður, sem dæmdar væru til að renna út í sandinn og því væri ekki verið að tala um neitunarvald: „Það er einfaldlega ekki raun- hæft að ætla að Rússar myndu geta komið í veg fyrir ákvarðanir aðildarríkjanna nítján til efl- ingar hagsmunum bandalagsins. Þess utan tóku Rússarnir skýrt fram í viðræðunum fyrir viku að þeir vildu ekki ræða hernaðarmál, þeir vildu ekki verða meðlimir í NATO, hvorki gegnum fram- dyrnar, né bakdyrnar, og litu ekki á þetta sem leið til að lama NATO. Þeir væru ekki að leitast eftir neitunarvaldi og þeir vissu að þeir fengju það ekki.“ Það mun skýrast í næstu viku hvernig sam- skipti NATO og Rússa munu þróast, en Brodeur gaf til kynna að fundur utanríkisráðherra Atl- antshafsbandalagsins í Reykjavík í vor gæti orð- ið sögulegur fyrir þær sakir að þar tækju Rússar í fyrsta skipti þátt í nýju hlutverki, en einnig vegna þess að grunnur yrði lagður að ákvörð- uninni um næsta skrefið í stækkun NATO. Í því sambandi sagði hann þótt ekki kæmi það fram í viðtalinu við hann í Morgunblaðinu í dag, laug- ardag, að aukið samstarf við Rússa kynni að draga úr tortryggni þeirra ef til þess kæmi að Eystrasaltsríkjunum yrði hleypt inn í Atlants- hafsbandalagið. „Það gæti greitt fyrir,“ sagði hann. „Hins veg- ar er ljóst að stækkunin mun eiga sér stað hvað sem gerist, jafnvel þótt það sé Rússum þvert um geð. Mun þeim líka það? Nei. Þeir eru ekkert að fela að þeim finnst stækkun enn óþarfi, en þeir gera sér grein fyrir því að þeir hafa ekkert neit- unarvald og öllum þjóðum heimsins er frjálst að ganga í þau bandalög, sem þær vilja. En ef til vill myndu þeir eiga auðveldara með að sætta sig við stækkun NATO með bættum samskiptum og vettvangi til að taka sameiginlegar ákvarðanir.“ Brodeur játti því einnig að ágreiningur væri meðal rússneskra stjórnvalda um það hversu langt ætti að ganga í samstarfi við NATO. „Rússarnir verða að greiða úr því,“ sagði hann. „Rússar eru í sömu stöðu og við. Við erum í könnunarferli og afstaða NATO hefur ekki ver- ið formlega ákveðin. Ríkin 19 hafa ekki tekið af- stöðu til tillagnanna, sem eru á borðinu. Sama á við um Rússana. Pútín er ekki einræðisherra og það eru mismunandi sjónarmið í landi hans. Ég held að það sé rétt að ætla að það séu ýmis öfl í rússnesku þjóðfélagi, sem munu ekki líta þetta mjög jákvæðum augum. Það hefur verið kurr í röðum hersins á þeirri forsendu að hernum væri stefnt í hættu ef það væri of mikið opnað gagn- vart vestrinu. Hann þarf að eiga við sitt fólk og komast að niðurstöðu um það hvað menn vilji og hversu langt eigi að fara.“ Timothy J. Colton, prófessor í stjórnmála- fræði við Harvard-háskóla, og Michael McFaul, aðstoðarprófessor í stjórnmálafræði við Stan- ford-háskóla, skrifa grein í nýjasta hefti tíma- ritsins Foreign Affairs þar sem þeir fjalla um samskiptin við Rússa eftir 11. september. Þeir segja að samkeppni Bandaríkjanna við Sovétrík- in hafi mótað seinni hluta síðustu aldar og hið nýja samband við Rússland muni ákvarða útlín- ur aldarinnar, sem nú er hafin. Þeir benda á að forseti Rússlands og rússneska þjóðin hafi sýnt Bandaríkjamönnum öflugan stuðning eftir hryðjuverkin og gott persónulegt samband Pút- íns og George Bush Bandaríkjaforseta hafi kom- ið í ljós þegar forseti Rússlands varð fyrstur þjóðarleiðtoga til að ræða við Bush eftir árás- irnar. Þeir benda einnig á að meðal Rússa sé mikill samhugur með Bandaríkjamönnum eftir hryðjuverkin og samkvæmt einni skoðanakönn- un líti 85 af hundraði Moskvubúa svo á að þeim hafi ekki aðeins verið beint gegn Bandaríkja- mönnum heldur öllu mannkyni. Colton og McFaul segja að Pútín hafi vissu- lega gildar ástæður fyrir því að vilja snúa bökum saman við Bandaríkjamenn. Hann sé mjög áfram um að tengja baráttu Bandaríkjamanna við hryðjuverk við baráttu Rússa við uppreisn- armenn í Tsjetsjníju. Sú tenging sé reyndar ekki án verðleika því að Osama bin Laden hafi bæði stutt hryðjuverk í Bandaríkjunum og Rússlandi. Reyndar hafa ýmsir lýst yfir áhyggjum sínum af því að Rússar nýttu sér hið nýja ástand til að fá frjálsar hendur í Tsjetsjníju, en herferð þeirra þar hefur verið sérstaklega blóðug. Yves Brod- eur sagði að slíkar áhyggjur væru ástæðulausar. Robertson lávarður hefði rætt málefni Tsjetsjn- íju við Pútín og tekið skýrt fram að NATO áttaði sig á vanda Rússa í Tsjetsjníju, en gæti ekki fall- ist á aðferðir þeirra til að kljást við hann. Þrýst á Pútín að fara í gamla farið Í greininni í Foreign Affairs, sem var skrif- uð áður en tillögurnar um aukið samstarf komust á núverandi stig, segja Colton og McFaul að hvað sem samstarfi Rússa við Vest- urlönd líði séu rússneskir hermenn og leyniþjón- ustumenn farnir að þrýsta á Pútín um að hugsa um alþjóðastjórnmál með gamla laginu. Líta eigi veru hermanna NATO í Mið-Austulöndum með tortryggni og hafa eigi meiri áhyggjur af öryggi Íraks, en Bandaríkjanna. Höfundarnir segja í greininni að það sé hins vegar misskilningur að Rússar hafi snúið baki við hugmyndum um lýðræði þrátt fyrir það ófremdarástand, sem ríkt hefur í Rússlandi eftir hrun Sovétríkjanna. Hins vegar sé Rússland síð- ur en svo búið að klára umskiptin frá alræði til lýðræðis og Bandaríkjamenn verði að gera sér grein fyrir því að snar þáttur í að tryggja að Rússar verði í hópi bandamanna þeirra sé að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.