Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 25 Allar skreytingar unnar af fagmönnum Næg bílastæði (bílastæðahúsið Bergstaðir) Ekkert gjald um helgar Að sjálfsögðu bjóðum við upp á aðventusmákökur Full búð af nýjum gjafavörum Jól 2001 PS. Frumsýningu kvikmyndarinnar um galdrastrákinn Harry Potter hefur verið beðið með eftirvæntingu víða um heim, enda spennandi til- hugsun að sjá hina skemmtilegu sögu J.K. Rowling lifna við á hvíta tjaldinu. Um leið hafa margir haft efasemdir um hversu lifandi sú mynd yrði í samanburði við bókina góðu, ekki síst með hinn Hollywood- vædda leikstjóra Chris Columbus við stjórnvölinn, en garpurinn sá hef- ur leikstýrt myndum á borð við Home Alone I og II, Mrs. Doubtfire og Stepmom. En útkoman er hin allra skemmti- legasta ævintýramynd, sem rifjar upp skemmtilegar minningar frá lestri bókarinnar fyrir þá sem það hafa gert en stendur engu að síður ein og sér sem kvikmynd. Vegur hér þungt sú ánægjulega staðreynd að aðlögun þessarar fyrstu Harry Pott- er-bókar yfir í kvikmyndahandrit hefur tekist mjög vel. Það verk var sett í góðar hendur Steves Kloves, en hann skrifaði m.a. handrit kvik- myndarinnar Wonderboys. Sögurnar um Harry Potter eru að grunninum til ákaflega sígildur æv- intýraskáldskapur, þar höfum við hetjuna og aðstoðarmenn, lærimeist- ara og hjálparkokka á bandi hins góða, en svikara, illmenni og hand- bendi hans á bandi hins illa. Þar eru hetjan og illmennið spegilmynd hvort af öðru – og fer hetjan í gegn- um mjög sígilt ferli köllunar, lær- dóms, hindrana og prófrauna áður en hún tekst á við óvininn ein og óstudd. Hér er á ferðinni frásagn- arformgerð sem hentar ákaflega vel til kvikmyndunar og löng hefð er fyr- ir á þeim vettvangi. Kloves hefur eigi að síður haft gott nef fyrir því að staldra vel við réttu atriðin úr bók- inni – og hlaupa á öðrum – og draga fram þann sjarma sem Rowling bæt- ir við hefðina í bókum sínum. Mörg atriði njóta sín virkilega vel í sjónrænu formi. Atriðin inni í Hogw- art-kastalanum eru tilkomumikil, Quidditch-leikurinn verður æsi- spennandi og atriðið þar sem vinirn- ir þrír, þau Harry, Ron og Herm- ione, leika afdrifaríka skák verður sérstaklega spennandi. Sjónrænt útlit kvikmyndarinnar er mikilvægur þáttur sem hefur tek- ist mjög vel. Tölvugrafík er notuð sparlega, og í stað þess að reyna að líkja um of eftir „veruleikanum“ er ímyndunum gefinn ævintýralegur blær. Leikarar hafa sömuleiðis verið vel valdir í hlutverk sín. Daniel Radcliffe er flottur Harry Potter, og Rupert Grint, sem leikur rauðhausinn Ron Weasley, og Emma Watson, sem leikur Hermione Granger, eru skemmtilegir leikarar. Tom Felton er þó á mörkum þess að ofleika í hlutverki Draco Malfoy. Þá hefur úr- valslið reyndra breskra leikara verið fengið í hlutverk kennara og annarra fullorðinna persóna, og fara þar Richard Harris (í hlutverki Albus Dumbledore), Maggie Smith (sem Minerva McGonagall) og síðast en ekki síst Alan Rickman (í hlutverki hins dularfulla Snape) á kostum. Það er eingöngu í örfáum atriðum sem leiðinda Hollywood-glanstónn- inn skín í gegn, og virðist Columbus t.d. hafa fengið að ráða sér sjálfur með hið sér-hollywoodíska krakka- kvikmyndaöskur í atriðinu sem vin- irnir berjast við tröllið. Sömu sögu er að segja um tónlist Johns Williams, sem er ófrumleg og oftúlkandi, en líkt og vinsældir bókanna sýna eru börn og fullorðnir vel fær um að túlka tilfinningar og stemmningar án þess að þar sé leikin undir ýmist þung eða létt tónlist til útskýringar. Þegar upp er staðið er Harry Potter sem sagt hin ánægjulegasta ævintýramynd, sem börn og full- orðnir ættu að hafa gaman af. KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó Leikstjóri: Chris Columbus. Handrit Steve Kloves, byggt á skáldsögu J.K. Rowling. Kvikmyndataka: John Seale. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emma Watson, Richard Harris, Alan Rickman, Maggie Smith. Sýningartími: 152 mín. Bandaríkin. Warner Bros., 2001. HARRY POTTER OG VISKUSTEINNINN (Harry Potter and the Sorcerer’s Stone)  Skemmtileg ævintýramynd Heiða Jóhannsdóttir GUÐ á hvíta tjaldinu – trúar- og biblíustef í kvikmyndum er greinasafn þar sem rakið er hvernig kvik- myndagerð- armenn hafa löngum unnið með trúararf mannkynsins og þá Biblíunnar sérstaklega. Um er að ræða 14 greinar eftir kvikmynda- og guðfræðinga. Ritstjórar eru Bjarni Randver Sigurvinsson, Gunnlaugur A. Jónsson og Þorkell Ágúst Ótt- arsson. Í fyrsta hlutanum er fjallað um hvernig kvikmyndin getur birst sem boðberi trúarinnar, í öðrum hlut- anum er gefið yfirlit yfir helstu Jesúmyndirnar og fjallað sér- staklega um svonefnda kristgerv- inga, þriðji hlutinn er tileinkaður biblíustefjum, fjórði hlutinn greinir frá ýmsum trúarhreyfingum í kvik- myndum og síðasti hluti bókarinnar er svo tileinkaður pólska kvik- myndagerðarmanninum Krzysztof Kieslowski og er fjallað um nokkrar af þekktustu kvikmyndunum hans. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin er 290 bls., kilja. Verð: 2.980 kr. Kvikmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.