Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 1
MIKIL gleði ríkti í Japan í gær eftir
að fréttist að Masako, krónprinsessa
Japans, hefði í fyrrinótt alið stúlku-
barn en þetta er fyrsta barn Masako
og krónprinsins Naruhito eftir átta
ára hjónaband. Kepptust íbúar Tók-
ýó við að ná sér í eintak af dag-
blöðum gærdagsins, sem höfðu að
geyma fréttir af barnsburðinum.
Bæði Masako, sem er 37 ára, og
barninu heilsast vel og vó stúlkan
3,1 kg, skv. upplýsingum lækna.
Naruhito var viðstaddur fæðinguna
en krónprinsessan ól barnið á keis-
aralegu sjúkrahúsi.
Almenningur virtist láta sér í léttu
rúmi liggja að um stúlkubarn var að
ræða en lög keisaraættarinnar gera
ekki ráð fyrir að stúlka geti tekið við
krúnunni. Vildu stjórnmálamenn
ekki viðurkenna að nú væri kominn
upp mikill stjórnlagavandi enda
gæti Masako enn átt fleiri börn.
Margir hafa þó léð máls á lagabreyt-
ingum og nýleg skoðanakönnun
sýndi að 55,2% Japana sáu ekkert
því til fyrirstöðu að kona yrði keis-
ari. Aðeins 7,9% voru því andsnúin.
Japanir í
sjöunda
himni
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ 2. DESEMBER 2001
277. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Öldungur
án ellimerkja
12
10
Endasleppt
frelsi?
Nálægðin er
nauðsynleg
24
ferðalögSteinþorpið Saint Émilion bílarMitsubishi börn Jólaálfar á fjallinu bíóPotterland
Sælkerar á sunnudegi
Gómsætur aðventudögurður
Haraldur Örn
Ólafsson
klífur hæsta
fjall Evrópu
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
BÓKAJÓL
Mikið hefur verið skrifað um börn á jólum og við
jólaundirbúning. Skapti Hallgrímsson rýndi í
nokkrar bækur og kíkti á hvernig hátíðin og und-
irbúningur hennar fara fram á síðum þeirra.
Sunnudagur
2. desember 2001
B
Tillögur um uppbyggingu
hátæknigarðs í Urriðaholti í Garðabæ
eru vel á veg komnarÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA
MIKIL tíðindi urðu í stjórnmálum í
Taívan í gær þegar Taívanar gengu
að kjörborðinu og kusu sér nýtt þing.
Leit allt út fyrir
að Kuomintang-
flokkurinn myndi
tapa meirihluta á
þingi í fyrsta
skipti en Kuom-
intang hefur verið
ráðandi afl í taív-
önskum stjórn-
málum allt frá því
að landið rauf
tengsl sín við
stjórnina í Kína árið 1949.
Þegar búið var að telja um 80% at-
kvæða hafði DPP-flokkur Chen Shui-
bian, forseta Taívans, tryggt sér 37%
atkvæða. Kuomingtang hafði 31%
fylgi og Alþýðuflokkurinn 20%. Sam-
stöðuflokkurinn hafði 9%. Höfðu full-
trúar flokks Chens þegar lýst yfir
sigri í kosningunum.
Þáttaskil urðu með forsetakjöri
Chen í fyrra enda var það í fyrsta
skipti sem Taívanar kjósa sér forseta
frá öðrum flokki en Kuomintang.
Fyrir kosningarnar í gær hafði Ku-
omintang meira en helming þingsæta
en DPP ekki nema um þriðjung.
Ljóst var hins vegar að á þessu yrði
breyting. Mun það líklega gera Chen
auðveldara fyrir að stjórna landinu en
meirihluti Kuomintang á þingi hefur
reynst honum erfiður ljár í þúfu.
Stjórnvöld í Kína fylgdust einnig
grannt með úrslitum kosninganna í
gær en þau hafa óttast að Chen tæki
frekari skref í átt að formlegu sjálf-
stæði Taívan ynni flokkur hans sigur í
þingkosningunum.
Tímamótakosn-
ingar í Taívan
Chen Shui-bian
BURHANUDDIN Rabbani, fyrr-
verandi forseti Afganistans og leið-
togi Norðurbandalagsins, sagðist í
gær geta fallist á myndun eins konar
„sérfræðingaráðs“ til að fara með
stjórn mála í Afganistan til bráða-
birgða en nú standa yfir viðræður í
Bonn í Þýskalandi um framtíð Afg-
anistans. Sagði Rabbani að hann
hefði tjáð Lakhdar Brahimi, sátta-
semjara Sameinuðu þjóðanna, að
sérfræðingaráð 12–25 manna væri
vænlegur kostur og kvaðst Rabbini
reiðubúinn til að sætta sig við að Mo-
hammed Zahir Shah, fyrrverandi
konungur Afganistans, ætti sæti í
ráðinu.
Fyrr um daginn höfðu fulltrúar
Norðurbandalagsins í Bonn látið
hafa eftir sér að þeir myndu hugs-
anlega skrifa undir samkomulag
jafnvel þó að Rabbani hefði ekki lagt
blessun sína yfir það.
Rabbani hefur í vikunni reynst
tregur til að tilnefna menn í vænt-
anlega bráðabirgðastjórn og vill að
Afganar sjálfir fái það hlutverk að
tryggja frið í landinu en ekki erlend-
ir friðargæsluliðar. Fulltrúar Vest-
urveldanna eru hins vegar mjög
áfram um að samkomulag náist um
myndun bráðabirgðastjórnar og
hringdi Brahimi í Rabbani á föstu-
dagskvöld og hvatti hann til að sýna
sveigjanleika.
Fulltrúar SÞ höfðu áður hafnað
óskum sendinefndar Norðurbanda-
lagsins um tíu daga frest svo hægt
væri að bera málin undir Rabbani og
aðra leiðtoga Norðurbandalagsins,
sem staddir eru í Kabúl.
Harðar árásir á Kandahar
Bandarískar herþotur létu í gær
sprengjum rigna yfir Kandahar í
Suður-Afganistan en borgin hefur
verið höfuðvígi talibana og er nú eitt
af þeirra síðustu vígjum í landinu.
Ennfremur voru gerðar árásir á
staði í Kandahar-héraði sem sagðir
eru meðal felustaða liðsmanna al-
Qaeda hryðjuverkasamtaka Sádí-
Arabans Osama bin Laden. Sögðust
talibanar hafa skotið niður eina af
herþotum Bandaríkjamanna yfir
Kandahar en þær fregnir voru born-
ar til baka.
Aukinn þrýstingur
á Norðurbandalagið
Kabúl, Quetta í Pakistan, Bonn. AFP, AP
Óttast að/10–11
Reuters
Afganar fylgjast með hanaati á útimarkaði í Kabúl. Hanaat var bannað í
Afganistan meðan á valdatíma talibana stóð í landinu.
FYRIRTÆKI og verslanir í
Danmörku fá óvæntan jóla-
glaðning frá stærsta banka
landsins, Den Danske Bank,
fyrir þessi jól. Hefur bankinn
tilkynnt að hann muni hér eftir
taka þjónustugjald í hvert
skipti sem fyrirtæki og versl-
anir leggi fé inn á reikninga
sína.
Frá þessu segir í Jyllands-
posten í gær. Kemur fram að
til að byrja með muni þjón-
ustugjald aðeins tekið af fyr-
irtækjum en einstaklingar
sleppa enn um sinn. Hefur
þjónustugjaldið verið ákveðið
tíu danskar krónur, eða um
120 ísl. kr., og er því ætlað að
mæta kostnaði vegna talningar
fjár. Reglurnar munu gilda
fyrir öll útibú Den Danske
Bank en jafnframt fyrir BG
Bank. Unibank er einnig sagð-
ur undirbúa samskonar gjald-
töku.
Um þrjátíu þúsund verslanir
og þúsundir veitinga- og kaffi-
húsa munu frá og með áramót-
um þurfa að greiða þetta gjald
fyrir að leggja fé inn á eigin
reikninga og reiknast mönnum
til að ef farið sé hvern virkan
dag í bankann sé um að ræða
kostnað upp á meira en 2.500
danskar krónur á ári, eða
næstum 30 þúsund ísl. kr.
Borgi fyrir
að leggja
inn fé
ENGLAND leikur í „dauðariðlinum“
– F-riðli – í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu í Suður-Kóreu og Japan
næsta sumar. Með Englendingum í
riðlinum eru Argentínumenn, sem
eru taldir sigurstranglegastir á HM,
Svíar og Nígeríumenn. Heimsmeist-
arar Frakka leika upphafsleik HM
gegn Senegal föstudaginn 31. maí.
Dregið í HM
í knattspyrnu
HM-dráttur/36
♦ ♦ ♦