Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Mána-
foss, Dettifoss og Venus
HF og út fer Freyja RE.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær fór Selfoss frá
Straumsvík og í dag er
Capricorn væntanlegt.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðju- og
fimmtudaga kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 10
vinnustofa og boccia, kl.
13 bað, vinnustofa og
myndmennt.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, handa-
vinnustofan opin, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 er
smíðastofan opin. Allar
upplýsingar í s. 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð, kl. 14 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstudög-
um kl. 11. Kóræfingar
hjá Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
á sunnudögum kl. 11.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við bað, kl. 9–
16.45 er hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9–13 er
handavinnustofan opin,
kl. 9.30 danskennsla, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 bað,
kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þorrablótið
er 24. jan. kl. 19.30 í
Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar. Rúta frá Hlein-
um, Kirkjuhvoli og
Holtsbúð. Fimmtud. 24.
jan. kl. 9 vinnuhópur –
gler, kl. 9.45 boccia, kl.
12.15 spænska, kl. 13
postulínsmálun, kl. 14
málun.
Föstud. 25. jan. kl. 9
snyrting, kl. 11 dans.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Pútt í Bæjarútgerð kl
10–11.30 og boccia kl.
13.30. Á morgun, föstu-
dag. Myndlist kl. 13 og
brids kl. 13.30. Þorra-
blót félagsins verður í
Hraunseli laugardaginn
26 jan. nk. kl. 19. Verð
2.500 kr.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Framsögn hefst
fimmtudaginn 31. jan-
úar kl. 16.15, skráning
hafin á skrifstofu FEB,
leiðbeinandi Bjarni
Ingvarsson. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
í Ásgarði söng- og gam-
anleikinn „Í lífsins ólgu-
sjó“ og leikritið „Fugl í
búri“. Frumsýning
sunnudaginn 3. febrúar.
Sýningar: sunnud. kl.
16, mið. kl. 14. og föst.
kl. 14. Miðapantanir í
síma 588-2111, 568-8092
og 551-2203. Brids fyrir
byrjendur hefst í febr-
úar. Stjórn Ólafur Lár-
usson. Silfurlínan er op-
in á mánu- og
miðvikudögum kl. 10–
12. Skrifstofan er flutt
að Faxafeni 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB kl. 10–
16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.3
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
bað, kl. 10 leikfimi, kl.
15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30, kl. 10.30 helgi-
stund, umsjón Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni
í Fella- og Hólakirkju.
Frá hádegi er spilasalur
og vinnustofur opnar.
Kl. 13.15 félagsvist í
samstarfi við Seljaskóla.
Stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon. Vegleg verð-
laun. Allir velkomnir.
Veitingar í veitingabúð.
Uppl. um starfsemina í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
9.05 leikfimi 1, kl. 9.50
leikfimi 2, kl. 9.30
klippimyndir, kl. 13
gler- og postulínsmálun
og rammavefnaður, kl.
16.20 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Uppl. í síma
554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og 10 jóga, kl.
9.15 postulínsmálun, kl.
13 brids, kl. 13–16 er
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 17 línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9 er
vinnustofa opin, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Þorrablót verður haldið
1. febrúar. Húsið opnað
kl. 17.30. Þorrahlaðborð
kl. 18. Ræðumaður Kol-
brún Bergþórsdóttir
blaðamaður. Barnakór.
Helgi Seljan flytur
gamanmál. Ólafur B.
Ólafsson heldur utan
um fjöldasöng og dans.
Veislustjóri Ellert
Borgar Þorvaldsson,
skólastjóri. Skráning í
síma 587-2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bað og bútasaumur, kl.
10 boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Hársnyrting og fótaað-
gerð.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15
leirmunanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við bað, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing,
kl. 17–20 leirmótun.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og frjálst
spil, kl. 14 leikfimi.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur kl.
17 í umsjá Benedikts
Arnkelssonar. Allar
konur velkomnar.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánud. og
fimmtud. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Tafl í
rauða sal kl. 19.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105. Kl. 13–16
prjónað fyrir hjálp-
arþurfi erlendis. Efni á
staðnum. Allir velkomn-
ir.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi fellur niður.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skemmti-
fundur verður laug-
ardaginn 26. janúar í
Húnabúð, félagsheimili
Húnvetninga í Reykja-
vík, Skeifunni 11, 3.
hæð. Munið að fund-
urinn hefst kl. 13.30,
hálfri stundu fyrr en
venjulega. Dagskrá: Fé-
lagsvist, góð verðlaun,
veislukaffi, Torfi Guð-
brandsson, fyrrv. skóla-
stjóri, les úr nýútkom-
inni bók sinni, söngur.
Takið þátt í skemmti-
legri starfsemi félags
ykkar. Stjórnin.
Kiwanisklúbburinn
Geysir. Byrjum að spila
í fimmtudaginn 24. jan.
(í kvöld) kl. 20.30 í Kiw-
anishúsinu í Mos-
fellsbæ.
Kvenfélag Kópavogs
fundur í kvöld kl. 20.30
að Hamraborg 10. Fyr-
irlesarar frá Gigt-
arfélagi Íslands, Svala
Björgvinsdóttir og Jón-
ína Guðmundsdóttir.
Í dag er fimmtudagur 24. janúar,
24. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Jesús sagði: „Til dóms er ég kominn
í þennan heim, svo að blindir sjái og
hinir sjáandi verði blindir.“
(Jóh. 9,39.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 hefja, 4 lagvopn, 7 bún-
ingur, 8 loðin stór hönd, 9
veiðarfæri, 11 nákomin,
13 grætur hátt, 14 góla,
15 haf, 17 rándýr, 20
samtenging, 22 sellulósi,
23 kjass, 24 seðja, 25 hug-
ur.
LÓÐRÉTT:
1 ósannsögul, 2 birgðir, 3
lengdareining, 4 svalt, 5
vendir, 6 áann, 10 þung,
12 ferskur, 13 mann, 15
heysætum, 16 þunguð, 18
hátíðin, 19 gabba, 20
staka, 21 beitu
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 orðljótur, 8 höfug, 9 ólmum, 10 nem, 11 forna,
13 illur, 15 blaðs, 18 strák, 21 kák, 22 logna, 23 rifur, 24
haftyrðil.
Lóðrétt: 2 rífur, 3 lygna, 4 ósómi, 5 urmul, 6 óhóf, 7
smár, 12 náð, 14 Lot, 15 bull, 16 angra, 17 skatt, 18
skrár, 19 rifti, 20 kort.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
SEM betur fer er rafræn stjórn-sýsla alltaf að batna. Á Netinu
er núna hægt að kalla upp allar
reglugerðir sem stjórnvöld hafa
gefið út og í gildi eru. Mikið hag-
ræði er að því að reglugerðir skuli
vera aðgengilegar á Netinu. Það er
líka fróðlegt að sjá umfang reglu-
gerða en í fyrra voru 1.013 reglu-
gerðir gefnar út.
Ekki eru allar reglugerðir skýrar
og stundum er hreinlega útilokað
að skilja um hvað málið snýst.
Dæmi um það er nýleg reglugerð
dómsmálaráðuneytisins sem er
breyting á reglugerð um skoðun
ökutækja, nr. 378 frá árinu 1998.
Reglugerðin er aðeins tvær greinar
og hljóðar svona:
„1. gr. 1. mgr. 33. gr., sbr. reglu-
gerð nr. 695 21. september 2000,
orðist svo: Reglugerð þessi er sett
samkvæmt 60. og 67. gr. umferð-
arlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr.
lög nr. 44 7. maí 1993, svo og með
hliðsjón af 16. a tölul. við XIII. við-
auka við EES-samninginn (tilskip-
un 96/96/EB með breytingum með
tilskipunum 1999/52/EB, 2001/9/EB
og 2001/11/EB, sbr. EES-viðbæti
við Stjórnartíðindi EB, 41. hefti
1997, bls. 1–19, 11. hefti 2001, bls.
245–248, og 47. hefti 2001, bls. 8).
2. gr. Reglugerð þessi sem sett er
samkvæmt 60. og 67. gr. umferð-
arlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr.
lög nr. 44 7. maí 1993, öðlast þegar
gildi.“
Að mati Víkverja er engu við
þetta að bæta enda vandséð hvern-
ig hægt væri að orða þetta betur.
x x x
ÞVÍ hefur oft verið haldið framað Bretar framleiði besta sjón-
varpsefni í heimi. Víkverji hefur að
undanförnu lært að meta viðtals-
þætti sem breski sjónvarpsmaður-
inn Parkinson hefur stýrt á BBC í
marga áratugi. Parkinson kann þá
list að ná því besta út úr viðmæl-
endum sínum. Viðtölin eru oft bráð-
fyndin enda virðist Parkinson vera
einkar laginn við að velja skemmti-
lega viðmælendur í þáttinn. En
hann á líka til að vera alvarlegur og
fá viðmælendur sína til að tjá sig
um persónuleg mál. Fyrir nokkrum
vikum ræddi hann við George Best
sem á glæstan feril að baki sem
knattspyrnumaður. Í viðtalinu lýsti
Best baráttu sinni við áfengissýki á
afar hreinskilinn hátt, en eins og
margir vita átti alkóhólismi stóran
þátt í að eyðileggja glæstan knatt-
spyrnuferil hans. Víkverji mælir
eindregið með því við þá sem hafa
aðgang að BBC-Prime að hlusta á
Parkinson.
x x x
MIKIL umræða hefur skapastum þá ákvörðun stjórnenda
Ríkisútvarpsins að sýna ekki frá
Heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu í Japan. Ekki fer á milli
mála að mikil óánægja er með þessa
ákvörðun hjá mörgum sem greiða í
hverjum mánuði áskriftargjald af
þessari sjónvarpsstöð. Eins og allt-
af gerist þegar eftirspurn er ekki
mætt munu þeir sem sækjast eftir
að horfa á leikina leita leiða til að
gera það. Fram hefur komið að hin-
ar norrænu ríkissjónvarpsstöðv-
arnar ætla að sýna frá keppninni en
hægt er að horfa á þessar stöðvar á
Breiðvarpinu. Líklegt er að spurn
eftir Breiðvarpinu muni þess vegna
aukast verulega og það gæti komið
niður á áhorfi á RÚV þegar fram í
sækir. Það gæti því orðið dýrt fyrir
RÚV að sýna ekki frá HM.
Hverjir mega
ekki stela?
AUMKUNARVERT var
að heyra svar fjármálaráð-
herra hér á dögunum, er
hann var að reyna að verja
nýjar álögur ríkisstjórnar-
innar nú um áramótin á
sjúka og vanheila. Frétta-
maður spurði eitthvað á þá
leið, hvort ekki væri ósam-
ræmi í því að minnka skatta
á þá sem mest mega sín í
þjoðfélaginu en auka álög-
ur á þá sem varla eiga til
hnífs og skeiðar. Fjármála-
ráðherrann brást snagg-
aralega við og spurði
fréttamanninn á móti í um-
vöndunartóni hvort hann
vildi refsa þeim sem dug-
legastir væru að ávaxta
pund sitt og raka til sín fé.
Lítið var um svör en varla
er hægt að hugsa sér aumk-
unarverðara svar. Það má
ekki hrófla við þeim sem
hafa meira en nóg og langt
umfram það, heldur
þrengja að þeim sem höll-
um fæti standa í lífsbarátt-
unni.
Þarna er nú ekki mann-
vonskunni fyrir að fara hjá
viðkomandi heldur einhver
utanaðlærð kennisetning
úr hagstjórnarkerfi skrif-
borðsvirkunnar sem ekki
hugsar um manngildið
heldur ávaxtar kröfur
græðginnar eins og heyra
mátti á flokksbróður hans,
sem úr flokknum gekk. Sá
hinn sami, sem leit út eins
og vængbrotinn karri eftir
að hafa misst sjónar á góða
gamla flokknum sínum út í
gjörningaveður manngild-
islausrar gróðahyggju. Og
nú á að betrumbæta þetta
allt saman. Tekjur kirkju
og trúfélaga á að skerða
verulega á þessu ári. Rík-
inu var trúað fyrir að inn-
heimta félagsgjöld þessara
aðila. Nú á að skerða þess-
ar tekjur upp á 100 millj-
ónir, að því er fram hefur
komið í fjölmiðlum. Þar
sem þetta er kunnugt orðið,
þá er óþarfi að tíunda þetta
frekar. En einu sinni var
spurt: Hverjir mega ekki
stela?
Sigurpáll Óskarsson,
Starengi 18, R.
Flókin
flugfargjöld
ÉG bý í Bandaríkjunum og
á von á vinum mínum frá
Íslandi í heimsókn í vor.
Vegna þeirrar heimsóknar
hef ég kynnt mér fargjöld
Flugleiða og satt best að
segja skil ég ekki verðlagn-
inguna hjá þeim.
Hvers vegna kostar það
160 dollurum meira að
fljúga frá Íslandi til Banda-
ríkjanna en að fljúga frá
Bandaríkjunum til Íslands,
á nákvæmlega sama degi?
Að fljúga frá Minneapolis 8.
maí til Íslands og til baka
29. maí kostar 652 dollara
eða 66.898 krónur.
Hinsvegar ef þú ert á Ís-
landi og ætlar að fara til
Minneapolis og til baka til
Íslands á sömu dagsetning-
um þarftu að borga 808
dollara eða 82.894 krónur.
Getur einhver hjá Flugleið-
um gefið mér skýringu á
þessu? Og ekki bara mér
heldur íslenskum við-
skiptavinum sínum.
Iris Lee,
Minnesota.
Tapað/fundið
Tóbaksdósir
í óskilum
TÓBAKSDÓSIR (merkt-
ar) fundust skammt frá
Gerðubergi í Breiðholti.
Upplýsingar í síma
557 3599.
Gleraugu
týndust
GLERAUGU týndust í
Veislusalnum, Miðleiti 7,
sunnudaginn 13. janúar.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 557 3549.
Leðurhanskar
týndust
LEÐURHANSKAR týnd-
ist sunnudaginn 13. janúar í
hlíðunum, líklega í Boga-
hlíð. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 862 7664
eða 568 9869.
Karlmannsúr
í óskilum
KARLMANNSSTÁLÚR
fannst í Fossvogi i síðustu
viku. Upplýsingar í síma
581 4377 eftir kl. 17.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell