Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Eftir kynninguna verður sýnd í fyrsta skipti á Íslandi verðlaunuð heimildarmynd um LIPA sem gerð var af nemendum í skólanum. Nánari upplýsingar gefur: Darren Murphy, International Manager, LIPA. Sími 0044 151 330 3118. Fax 0044 151 330 3131 Netfang: D.Murphy@lipa.ac.uk Heimasíða: http://www.lipa.ac.uk LIPA Liverpool Institute for Performing Arts (LIPA) var stofnuð árið 1996 með stuðningi fyrrverandi Bítils, Sir Paul McCartney. LIPA er heims- þekkt menntastofnun sem býður upp á faglegan og hagnýtan undir- búning fyrir listaskólanemendur og þá sem starfa við undirbúning og framkvæmd listviðburða. Aðstaða í skólanum er með því besta sem völ er á, námskeiðin fram- sækin og kennslan í fremstu röð í heiminum, enda laðar LIPA að sér nemendur frá meira en 30 löndum. 26. janúar kl. 15.00 heldur fulltrúi frá LIPA kynningu í Hinu Húsinu, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík. Leiklist - Acting Stjórnun listviðburða - Arts Management Félagslistir - Community Arts Dans - Dance Tónlist - Music Hönnun listviðburða - Performance Design Hljóðtækni - Sound Technology Leikhús- og sviðsetningartækni - Theatre & Performance Technology. RÚSSNESKI bassasöngvarinn Gleb Nikolskíj er gestur Sinfóníu- hljómsveitar Íslands á tónleikum í Háskólabíói í kvöld kl. 19.30. Karla- kórinn Fóstbræður fer líka með stórt hlutverk á tónleikunum, sögu- maður er Ólafur Kjartan Sigurðar- son og stjórnandi Pólverjinn Jerzy Maksymiuk, sem nú heiðrar tón- leikagesti með nærveru sinni í fimmta sinn. Verkin á efnisskrá kvöldsins eiga það sameiginlegt að túlka þær til- finningar ótta, skelfingar og óhugn- aðar sem viðburðir í síðari heims- styrjöldinni vöktu með fólki. Hið kröftuga tungutak þeirra og máttug tjáning gera það hins vegar að verk- um að þau hafa jafnframt víðari skírskotun: samkennd með öllum fórnarlömbum pólitísks ofríkis og harðstjórnar, segir í tónleikaskrá. Eftirlifandinn frá Varsjá Arnold Schönberg (1874–1951) samdi Eftirlifandann frá Varsjá í ágúst 1947, en þá hafði hann verið búsettur í Los Angeles í rúman ára- tug. Verkið var samið að beiðni Koussevitzky-stofnunarinnar, og er fyrir sögumann, karlakór og hljóm- sveit. Texta sögumannsins setti Schönberg sjálfur saman á ensku og þar er greint frá sönnum atburðum sem hann heyrði frá eftirlifendum úr Varsjárgettóinu. Hópur fanga er vakinn fyrir dögun og þeir barðir. Þeim er skipað að kasta tölu á hóp- inn svo liðþjálfinn geti gert sér ljóst hve marga á eftir að flytja í gasklef- ann. En í miðri talningu byrja þeir skyndilega að syngja gamla hebr- eska bæn. Og þar með sýna þeir, að þrátt fyrir allt eiga þeir enn til mannlega reisn og þora að standa keikir andspænis böðlum sínum. Verkið er eitt hið dramatískasta sem Schönberg samdi. Það er í frjálsu formi, byggt á tólftónaröð sem Schönberg notar á síbreytileg- an hátt, aftur á bak, speglaða, tón- flutta, og á henni er byggt bæði í hljómsveitarvefnum og í söng karla- kórsins. Harmljóð um fórnar- lömbin í Hírósíma Hitt verkið fyrir hlé, Harmljóð um fórnarlömbin í Hírósíma, er eft- ir Krzysztof Penderecki (f. 1933). Sem ungur drengur sá Penderecki hvernig gyðingunum í hverfi hans í heimabænum Debica í Póllandi var smalað saman við upphaf ferðarinn- ar í útrýmingarbúðirnar. Þessir skelfilegu atburðir segir tónskáldið að hafi sífellt verið í undirvitundinni og birtist í verkum sínum. Thren- ody eða Harmljóð um fórnarlömbin í Hírósíma var samið árið 1960 og vakti þegar heimsathygli. Bygging þess þótti afar nýstárleg. Það er samið fyrir fimmtíu og tvo strengi og í því er ekki að heyra neinar línur í hefðbundnum skilningi, enga hátt- bundna hrynjandi. Og í stað hljóma koma tónaklasar þar sem oft er að- eins kvarttónn milli hljóðfæra. Sömuleiðis er hljóðfærunum beitt með óvenjulegum hætti á köflum. Þau eru slegin, gripið harkalega í strengina, leikið eins hátt í tónsviði hvers og eins sem frekast er unnt. Þau æpa, öskra, hrína, ýlfra eins og særð dýr, hljóma eins og sírenur. „Babí Jar“ Eftir hlé verður leikin Sinfónía nr. 13 op. 113, „Babí Jar“, eftir Dmitríj Sjostakovitsj (1906–1975). Sjostakovitsj þurfti, allt frá því hann hlaut fordæmingu yfirvalda fyrir óperuna Lafði Macbeth í Mtsensk 1936, að sigla milli skers og báru í tónsmíðum sínum. Þrett- ánda sinfónían er samin 1962 og þar tónsetur Sjostakovitsj nokkur ljóða Jevgenís Jevtúshenko. Þegar við frumflutninginn mátti skynja að nokkurs óróa gætti hjá yfirvöldum. Torgið við tónlistarháskólann í Moskvu var þéttskipað lögreglu- mönnum, og þótt fullt væri út úr dyrum á tónleikunum minntist Pravda einungis á viðburðinn með einni setningu. Fyrsta ljóðið, sem sinfónían dregur heiti sitt af, fjallar um atburði í síðari heimsstyrjöld- inni. Babí Jar er dalur skammt frá Kænugarði í Úkraínu en þar myrtu nasistar rösklega hundrað þúsund manns árið 1941. Flestir þeirra voru gyðingar, en skáldið lætur að því liggja að svo hafi verið um öll fórn- arlömbin. Yfirvöld kröfuðst þess að nokkrum línum kvæðisins yrði breytt, en það kom ekki í veg fyrir að menn skynjuðu hina undirliggj- andi gagnrýni á gyðingaandúð sov- éskra stjórnvalda. Kraftmikil rödd Gleb Nikolskíj er fyrst og fremst óperusöngvari og hefur fengið framúrskarandi dóma, bæði fyrir kraftmikla og fagra rödd, en einnig fyrir áhrifamikla túlkun og leik- ræna hæfileika. Nikolskíj hefur sigrað í tónlistarkeppni víðs vegar, t.a.m. All Union-keppninni, Con- corso di Treviso sem og keppni í Sofíu og Barcelona. Nikolskíj er einn af helstu söngvurum Bolshoi- óperunnar, en kemur einnig reglu- lega fram í óperuhúsunum í Vínar- borg, Berlín og München. Þá hefur hann sungið í Finnsku þjóðaróper- unni, óperunni í Zürich og Metro- politan í New York svo eitthvað sé nefnt. Fóstbræður hafa í þrígang tekið þátt í alþjóðlegri kórakeppni og unnið til verðlauna í öll skiptin. Á liðnu ári héldu Fóstbræður upp á 85 ára afmæli sitt með tónleikaferð til Evrópu, sungu m.a. í hátíðarsal Franz Liszt-tónlistarakademíunnar í Búdapest og í Voitiv-kirkjunni í Vínarborg. Í Prag tók kórinn þátt í alþjóðlegri kórakeppni og vann til gullverðlauna. Rússneskur bassi gestur Sinfóníuhljómsveitar Íslands Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleb Nikolskíj bassasöngvari á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Karlakórnum Fóstbræðrum. Skelfingar seinni heimsstyrjaldar Verkin á efnisskrá kvöldsins hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands eiga það sameiginlegt að túlka þær tilfinningar ótta, skelfingar og óhugnaðar sem viðburðir í síðari heimsstyrjöldinni vöktu með fólki. FÁ skáld hafa verið eins iðin við að yrkja trúarleg ljóð og Ingimar Erlendur Sigurðsson. Hinar seinni bækur hans hafa verið með efnis- mestu ljóðabókum sem út eru gefn- ar, yfir 200 blaðsíður hver og með urmul kvæða. Ingimar Er- lendur hefur gott vald á því að yrkja undir hefð- bundnum bragarhátt- um og kvæði hans ein- kennast gjarnan af sams konar tákn- og myndheimi. Yfir þeim hefur gjarnan ríkt hin hvíta birta trúarinnar eða jafnvel blinda henn- ar svo að vísað sé beint til einnar af fyrri ljóða- bókum skáldsins. Hvítalogn nefnist nýjasta bók Ingimars. Þrátt fyrir heitið ríkir ekkert logn í bókinni. Mér finnst undir niðri ólga tilfinn- ingar af ýmsum toga og átök meiri en í fyrri bókum Ingimars, efi, kvíði, jafnvel beiskja við hlið trúarsann- færingar og náttúrusamlíðunar. Það er einhvern veginn dimmra yfir þessari bók enda ófá ljóðin sem víkja að dauða og gröf: Æ, þannig fóru lífsins leikar að lík ert þú til moldar borin; senn hvíla jurtir hjá þér bleikar, sem hjartans rótum varst af skorin á eftir kistu ilmur reikar. Í þessari ljóðabók snýr Ingimar Erlendur baki við mannheimum og leitar guðdómsins fyrst og fremst í grasinu sem hann telur fulltrúa guð- dómsins á jörðu. Flest ljóðin geyma einhverja skírskotun til þessa. Hann líkir sjálfum sér við einmana strá sem á griðland í öræfum: ,,Í geim- djúpi öræfa griðland ég hef, / þar græ ég af augnaráðs blinddjúpum sárum“. Honum finnst þó nóg um einangrun sína sem skálds, finnst þögn ríkja um kveðskap sinn, er óánægður með það hlutskipti sitt, kennir jafnvel um nafngreindu fólki og ræðir þar um hælbíta menning- arheimsins: Flestir skáld það fyrirlíta, sem frægð og vinsæld ei um leikur; marga hef ég hælsins bíta, en hvergi við þá er ég smeykur negrans hef ég hlutverk hvíta. Ég hygg þó að þögnin um Ingi- mar Erlend stafi fremur af því að ljóðheimur hans er hreint ekki að- gengilegur og jafn- framt fremur endur- tekningarsamur. Fjöldi kvæða byggist á táknnotkun sem er í senn almenn og sér- tæk. Víða er fjallað um grös, blóm, ilm, hjarta og fleiri almenn tákn sem vísa til trúar- reynslu. Önnur trúar- leg tákn eru aftur á móti óvenjulegri. Þannig fá skóreimar í skóm táknrænt gildi og ýmsar myndir í kvæðunum eru lang- sóttar og mótsagna- fullar þannig að úr verður sérstakur og hreint ekki auðskilinn málheimur þótt hann hafi þrátt fyrir allt sína töfra. Á mér er enginn asi eftir fallinn dóm; mín vitund er sem vasi sem vex í dáið blóm Á gengnu lífsins grasi ég gægist undir rót; í strásins stundaglasi fer stjarna upp í mót. Hér er málið orðið of gruggugt og tákngildi orðanna of hlaðið til að myndir kvæðisins gangi auðveldlega upp í huga lesandans og merking ljóðsins verður óljós. Hvað er t.a.m. átt við með því að stjarna fari upp í mót í strásins stundaglasi? Er verið að víkja að upprisunni? Þegar ofan á bætist að svipuð tákn og svipaðar líkingar eru endurtekin í kvæði eftir kvæði í 260 blaðsíðna bók hygg ég að skýring sé komin á fálæti lesenda. Vissulega eru bitastæð kvæði inn- an um í Hvítalogni. En skáldskap- urinn líður fyrir ofhlæði tákna og alltof margar atrennur við sömu við- fangsefni. Í strásins stundaglasi BÆKUR Ljóðabók eftir Ingimar Erlend Sigurðsson. Sigurjón Þorbergsson. 2001 – 260 bls. HVÍTALOGN Skafti Þ. Halldórsson Ingimar Erlendur Sigurðsson MENNINGARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.