Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ að því hafi þessi leið verið val- in. „Menn vinna áfram þaðan sem frá var horfið í kennsl- unni. Reyndar er breytilegt eftir stöðu einstaklinganna sem eru í náminu hvernig þetta er unnið og það má segja að þau sem eru lengra BÆJARSTJÓRN Mosfells- bæjar hefur ákveðið að veita afslátt á skólagjöldum Tón- listarskólans vegna fimm vikna verkfalls tónlistarskóla- kennara fyrir jól. Flest sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu fara svipaða leið við að bæta upp kennslutapið vegna verk- fallsins, að Reykjavík undan- skilinni en þar munu flestir tónlistarskólar bæta verk- fallstímann upp með aukinni kennslu. Að sögn Björns Þráins Þor- lákssonar, forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar, nemur afslátt- urinn 6.380 krónum eða um 14,5 prósentum af skólagjöld- um ársins. „Það var einfaldlega reikn- að út hvað verkfallið var langt og það er metið sem svo að þetta séu um 14,5 prósent af starfstíma skólaársins. Af- slátturinn er veittur af árs- gjaldinu en þar sem fólk er búið að greiða fyrri hlutann kemur afslátturinn allur til framkvæmda á þessari önn.“ Hann telur að foreldrar séu sáttir við þessa lendingu í málinu. „Þetta er að stórum hluta byggt á tillögum frá for- eldrum og ef eitthvað er þá veitum við meiri afslátt en gengur og gerist í sveitar- félögunum í kring um okkur þar sem afslátturinn er eitt- hvað á bilinu 10–12 prósent.“ Ekki svigrúm til aukinnar kennslu Björn segir lítið svigrúm hafa verið í kjarasamningum til að fjölga kennslutímum til að bæta upp kennslutapið og komin þurfi að fá sérstakan stuðning frá kennurum sín- um. Hins vegar er stærstur hluti nemendanna hjá okkur á fyrsta stigi og þá halda menn einfaldlega áfram þar sem frá var horfið.“ Hann bætir við að prófum verði þannig háttað að nemendurnir taki þau þegar þeir séu tilbúnir til þess. Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu Flest sveitarfélög, að und- anskilinni Reykjavík, hafa valið svipaða útfærslu við að mæta afleiðingum verkfalls- ins. Að sögn Gunnars Gunn- arssonar, skólastjóra Tónlist- arskóla Hafnarfjarðar, hefur verið samþykkt í skólanefnd Hafnarfjarðar að gefinn verði 12,5% afsláttur af gjöldum skólaársins. Flestir nemend- ur skipta greiðslum skóla- gjalda upp í átta greiðslur og þá mun ein þeirra falla niður. Árni Harðarson, skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs, segir að kennsla verði bætt upp með lengingu skólatím- ans að því marki sem kjara- samningar leyfa. Þannig verði um tveimur og hálfri viku bætt við skólaárið. Það sem upp á vanti verði bætt með af- slætti á skólagjöldum sem nemi 7,5 prósentum. Í Tónlistarskólanum í Garðabæ verða 11% af skóla- gjöldum endurgreidd vegna verkfallsins, að sögn Agnesar Löve skólastjóra. Gylfi Gunnarsson, skóla- stjóri Tónlistarskólans á Sel- tjarnarnesi, segir að þar á bæ hafi verið ákveðið að endur- greiða 10% af skólagjöldum ársins. Reyndar nemi fjarver- an rúmlega 12% af skólatím- anum en til standi að vinna það upp að einhverju leyti með kennslu. Á skrifstofu Bessastaða- hrepps fengust þær upplýs- ingar að ekki væri búið að ákveða hvaða lausn yrði farin í þessum málum. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu föstudaginn 11. janúar sl. munu flestir tónlist- arskólar í Reykjavík bæta kennslutapið vegna verkfalls- ins upp með aukinni kennslu á vorönn auk þess sem bætt var við kennslu fyrir jól. Mosfellsbær Afsláttur veittur á tónlistarskólagjöld- um vegna verkfalls Morgunblaðið/Golli Magnús Örn Thorlacius fær leiðsögn í fiðluleik hjá Elísabetu Indru Ragnarsdóttur í Tónlist- arskólanum í Mosfellsbæ. Ákveðið hefur verið að lækka skólagjöld hans og annarra nem- enda í skólanum um 14,5 prósent vegna verkfalls tónlistarskólakennara fyrir jól. ÚTLIT er fyrir að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins muni á næstu misserum missa æfing- araðstöðu sína sem það hefur haft ásamt Slysavarnaskóla sjómanna við Leirtjörn undir Úlfarsfelli. Vonir standa til að Slökkviliðið og fleiri aðilar fái nýtt æfingasvæði í Kapellu- hrauni. Björn Gíslason, sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins, segir að Slökkvi- liðið, Lögreglan í Reykjavík, Almannavarnir ríkisins og Slysavarnaskóli sjómanna hafi sótt um svæðið í Kapellu- hrauni eftir að útséð var um að Slökkviliðið og Slysavarna- skólinn myndu missa æfinga- svæði sitt innan skamms. Styrkir vel hvert annað „Í fyrra misstu Almanna- varnir ríkisins og lögreglan æfingasvæði sitt upp í Saltvík þannig að allir þessir aðilar sækja um þetta sameiginlega. Þetta styrkir mjög vel hvert annað því við getum nýtt bún- að, aðstöðu og þekkingu hver annars. Að auki er þetta ódýr- ara fyrir alla og því æskilegt að öllu leyti að vera í þessu samstarfi.“ Ekki er langt síðan Slökkvi- liðið fékk æfingasvæðið við Leirtjörn til afnota, eða tæp tvö ár en að sögn Jóns Viðars Matthíassonar aðstoðar- slökkviliðsstjóra lá þá ekki fyrir að farið yrði út í að skipuleggja íbúðabyggð undir Úlfarsfelli. Segir hann viðbúið að hafist verði handa við byggingar á svæðinu á næsta ári eða árinu á eftir. Björn segir því brýnt að fá niðurstöðu varðandi svæðið í Kapelluhrauni sem fyrst en sótt var um þrjá hektara lands. Málið sé statt hjá skipulagsyfirvöldum í Hafn- arfirði sem ekki hafi gefið ákveðin svör ennþá. Nýtt aðalskipulag bæjar- ins, sem ekki sé búið að af- greiða, geri þó ráð fyrir æf- ingasvæðinu. Þá er Slökkviliðið að fá lítið æfingasvæði á Reykjavíkur- flugvelli fyrir slökkvistöðina sem staðsett verður við suð- urenda flugvallarins. Gerir Björn ráð fyrir að það komist í gagnið í vor. Slökkviliðið, lögreglan, Almannavarnir og Slysavarnaskóli sjómanna missa æfingasvæði sín á næstu misserum Óska eftir sameiginlegu svæði í Kapelluhrauni Hafnarfjörður ÍBÚAR í Teigagerði, Steina- gerði og hluta Breiðagerðis eiga þessa dagana von á því að fá sendar tillögur að nýju deili- skipulagi þessara gatna. Til- lögurnar miða að því að leggja línurnar um þær breytingar og viðbætur sem hægt verður að gera á húsum og lóðum við göturnar. Að sögn Ólafar Örvarsdótt- ur, arkitekts hjá skipulags- og byggingasviði Reykjavíkur, er ekki um miklar breytingar að ræða frá gildandi deiliskipu- lagi. „Við fáum mikið af fyr- irspurnum í þessum eldri hverfum um breytingar sem fólk vill gera en við viljum halda í ákveðið fíngert yfir- bragð sem er þarna fyrir. Þetta er í rauninni til þess að leggja línurnar um það hvern- ig þessi hverfi geta þróast án þess að skemma útlit þeirra og sérstaklega götumyndirnar.“ Deiliskipulagstillagan er unnin af Hildigunni Haralds- dóttur á teiknistofunni Húsi og skipulagi. Ólöf segir að þessa dagana verði tillagan send í öll hús á umræddu svæði til að gefa fólki kost á að tjá sig um hana áður en hún verði auglýst. „Við viljum ekki að þetta fari fram hjá fólki heldur viljum við að allir séu meðvitaðir um það hvað sé að gerast. Þarna er tekið á því hvar má hækka þakið, hvar má setja kvista, hvar má bæta við bílskúr og svo framvegis og það er alveg farið ofan í hverja lóð fyrir sig. Svo getur verið þegar við erum búin að senda þetta út að fólk hafi ein- hverja aðra skoðun og þá er þetta einmitt tíminn til að gera athugasemdir.“ Ólöf bendir á að sambærileg vinna hafi farið fram í fleiri hverfum sem komin eru til ára sinna. Það sé því gott fyrir íbúana að kynna sér deili- skipulag hverfisins áður en vinna við breytingar eða við- bætur sé sett í gang til þess að kanna hvort fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við skipulagið. Hægt er að nálgast skipulag viðkomandi hverfa hjá skipulags- og bygg- ingarsviði Reykjavíkur að Borgartúni 3. Morgunblaðið/Kristinn Tillaga að deiliskipulagi Teigagerðis, Steinagerðis og hluta Breiðagerðis er þessa dagana í kynningu meðal íbúa. Línur lagðar um breytingar húsa Smáíbúðahverfi KÁTIR krakkar láta kulda- bola ekkert hindra sig í því að leika sér úti við þótt hann sé með kaldara móti þessa dagana. Að minnsta kosti virtust þessir gris- lingar ekki finna fyrir frostinu þar sem þeir skemmtu sér í leiktækj- unum utan við Ísaksskóla í vikunni. Enda voru þeir að mestu vel búnir, þótt búast megi við að litlir fingur hafi þurft að láta hlýja sér eftir að inn var komið. Lík- lega er vissara að muna eftir vettlingunum næstu daga því spáð er auknu frosti. Klifrað í kuldanum Háteigshverfi Morgunblaðið/Brynjar Gauti BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu leik- skólaráðs um hækkun á niðurgreiðslum til dag- mæðra. Nemur hækkun- in um 10 prósentum. Að sögn Sigríðar Mar- teinsdóttur, daggæslu- fulltrúa hjá Leikskólum Reykjavíkur þýðir þetta að niðurgreiðslur vegna barna foreldra í sambúð hækka úr 10.000 krónum í 11.000 krónur. Niður- greiðslur vegna barna einstæðra foreldra og foreldra sem báðir eru í námi hækka hins vegar úr 21.600 krónum í 23.760 krónur. Hækkunin er til kom- in vegna óska frá Barna- vistun, sem er félag dag- mæðra. Segir Sigríður það undir dagmæðrum komið hvernig niður- greiðslunni verði varið þar sem þær eru sjálf- stætt starfandi og ákveði því sjálfar upphæð dag- vistunargjalda sem þær taka. Er áætlað að hækkun- in rúmist innan fjár- hagsramma Leikskóla Reykjavíkur. Niður- greiðslur til dag- mæðra hækka Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.