Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 19
GUÐNI Páll Pálsson og Ástþór
Tryggvason voru á rúntinum í Vík í
Mýrdal á heimatilbúnu fjórhjóli um
síðustu helgi þegar fréttaritari Morg-
unblaðsins tók þessa mynd. Fjórhjól-
ið er smíðað upp úr tveimur reiðhjól-
um, stýrisendar eru úr vélsleða og er
sætið úr gamalli dráttarvél. Guðni
segir að þetta sérútbúna fjórhjól sé
mjög vinsælt hjá yngri kynslóðinni í
Vík og þar af leiðandi mikið notað og
hefur veðráttan sem af er vetri boðið
upp á ökuferðir á þessu tryllitæki.
Rúnta um á
heimatilbúnu
fjórhjóli
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Guðni Páll og Ástþór á sérút-
búnu fjórhjóli.
Fagridalur
♦ ♦ ♦
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 19
15-40%
ÞAÐ geta lengi leynst kindur í af-
réttum landsins eins og kom í ljós í
Höfðabrekkuafrétti þegar nokkrir
ferðalangar brugðu sér í sunnu-
dagsbíltúr þangað inn eftir. Veður
var einstaklega fallegt, sólskin og
logn. Lambgimbrin sem var fram-
an í Miðafrétti þegar komið var
innúr fór strax að hreyfa sig þegar
hún varð vör við ónæðið.
Eftir töluverð hlaup náðist hún
en þó ekki fyrr en komið var með
smalahunda framan úr byggð.
Gimbrin náðist innst í Þakgili þar
sem fyrirhuguð er aðstaða fyrir
ferðamenn. Það var vaskur hópur
framtíðarsmala sem tók svo á móti
lambinu þegar búið var að hand-
sama það en þeir höfðu fengið að
fljóta með þegar komið var inn úr
með hundana. Lambið, sem var í
góðum holdum, er frá Finnboga
Gunnarsyni á Suður-Fossi í Mýrdal.
Lamb fannst í
Höfðabrekku-
afrétti
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
F.v. Tómas Szklenár, Ívar Sigurðsson, Hlynur Guðmundsson, Þór Jóns-
son, Birkir Grétarsson og Fjölnir Grétarsson með lambið inni í Þakgili.
Fagridalur
STÓRBLÓT á þorra er áformað á
Selfossi 26. janúar, í íþróttahúsinu á
staðnum. Það er Kjartan Björnsson
hárskeri á Selfossi sem hefur átt
frumkvæði að því að halda þetta blót
og að hans sögn er tilgangurinn að
kanna hvort mögulegt sé að kalla Sel-
fyssinga saman á eitt stórblót og aðra
tengda þeim, brottflutta og fleiri.
Hann segir undirtektir góðar og er
bjartsýnn á að þetta náist þokkalega.
Labbi í Glóru og hljómsveitin
Karma mun sjá um að koma fólki í
dansstuð. Einnig munu Þorsteinn
Guðmundsson, Karlakór Selfoss,
Jórukórinn og Leikfélag Selfoss
skemmta fólki. Þá verður fluttur bæj-
arbragur um fólk og fénað á Selfosi en
það sér Sigurgeir Hilmar Friðþjófs-
son leikari um. Bjarni Harðarson seg-
ir frá draugum og erótík þeirra. Þá er
von á leyniatriði um miðnætti.
Séra Gunnar Björnsson mun sjá
um veislustjórn og segir Kjartan
Björnsson að menn muni keppast við
að ná upp stemmningu á blótinu því
aðalatriðið sé að skemmta sér og
höfðað sé til fólks að mæta: „Því mað-
ur er manns gaman,“ sagði Kjartan.
Stórblót
á þorra í
íþróttahúsinu
Selfoss
Útsala Útsala
Pipar & salt, Klapparstíg 44