Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 39
Tryggja þarf réttláta skiptingu vegafjár Það hefur verið sagt að tími sé peningar, mikil bið í bifreiðum kostar þjóðfélagið mikla peninga. Einnig má benda á að með betri vegum dregur úr slysahættu, sem sparar þegnum og fyrirtækjum mikla fjár- muni. Hitt verður líka að horfa á að bættar samgöngur á landsbyggðinni eru lífsnauðsynlegar til að byggðir geti þrifist. Svo má ekki gleyma því að landsmenn allir nota vegina úti á landi til ýmissa þarfa. Ekki verður um það deilt að á undanförnum ára- tugum hefur verulega hallað á höf- uðborgarsvæðið við útdeilingu vega- fjár. Finna verður lausn á þessu vandamáli, því ekki gengur lengur að það svæði sem greiðir mest til vega- mála fái minnst til baka til nauðsyn- legra samgöngumannvirkja. Vegamál Ekki verður um það deilt, segir Gunnar I. Birgisson, að á und- anförnum áratugum hefur verulega hallað á höfuðborgarsvæðið við útdeilingu vegafjár. Höfundur er alþingismaður og form. bæjarráðs Kópavogs. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 39 Í ANNAÐ sinn á rúmum mánuði hafa fulltrúar atvinnulífsins séð sig knúna til að draga ríkisstjórnina að fundarborði til að ræða viðbrögð við hinni háskalegu verðlagsþróun. Og enn á ný lofar ríkisstjórnin bót og betrun eftir að hafa nýlokið við að af- greiða bullandi þenslu-fjárlög á al- þingi fyrir árið 2002. Að vonum spyrja menn í forundr- an: Hvernig má það vera að stjórn landsins láti sem ekkert sé, á háska- faldi nýrrar verðbólguöldu? Nær- tækasta svarið er auðvitað að menn sem neita staðreyndum, og fullyrða að allt sé í stakasta lagi, eru ekki lík- legir til lífsnauðsynlegra mótað- gerða. Þeir lifa í draumaheimi góð- æris og stöðugleika, þar sem húsbóndinn málar glansmyndir á vegginn í sífellu. En fulltrúar atvinnulífsins líta raunsæjum augum á ástandið og er óskandi að aðvörunarorð þeirra beri árangur. Hvaða dæmi er augljósast um óforsjálni og sjálfsblekkingu stjórn- valda? Svarið er einfalt: Stjórnlaus hækkun á útgjaldahlið fjárlaga. Hvert er það aðal tæki, sem stjórnvöld á hverjum tíma hafa til að beita gegn þenslu í þjóðfélaginu? Svar: Fjárlög hverju sinni. Enda hafa ríkisstofnanir eins og Þjóðhags- stofnun margsinnis bent á nauðsyn þess að draga saman seglin í útgjöld- um ríkissjóðs. Það er kannski ekki von til að álit þeirrar stofnunar sé tekið gilt; stofn- unar, sem hótað var að leggja af, af því sem hún treysti sér ekki til að segja ósatt um stöðu efnahagsmála í þágu stjórnvalda, enda stangaðist álit hennar alveg á við góðæristal einvaldsins. Hinsvegar ætti öllum öðrum að vera ljós knýjandi nauðsyn þess að standa fast á öllum bremsum í fjármálum, nema þá kannski aðal- ráðgjafanum, Hannesi Hólmsteini. En, hvernig hafa stjórnvöld farið að ráði sínu við afgreiðslu fjárlaga? Mörg undanfarin ár hafa stjórn- arliðar aukið útgjöld fjárlaga langt umfram verðlagsþróun þrátt fyrir augljós þenslumerki. Tökum árið 2001 til athugunar: Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2001 hækkaði út- gjaldahlið fjárlaga um 13,5 % frá árinu 2000, eða um nærri tvöfalda verðlagsþróun. Þar við bættist að ráðherrar gengu þannig um fjár- hirzlur ríkisins, að þeir eyddu á árinu nærri 15 milljörð- um umfram heimildir fjárlaga og létu svo þjóna sína á þingi sam- þykkja óráðsíuna með fjáraukalögum. Og hækkun á útgjöldum ríkissjóðs nær 20% milli ára, sem er vitfirring. Við afgreiðslu fjár- laga fyrir yfirstandandi ár voru útgjöldin aukin töluvert umfram hækk- un verðlags, sem þó hækkaði langt umfram þanþol búskaparins. Og þetta skeður á tímum þegar nauðsyn bar til að draga úr útgjöldum eft- ir megni. Við þetta á svo eftir að bætast um- frameyðsla ráðuneyta, því engum skal til hugar koma annað en að þau vinnu- brögð verði áfram við lýði. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með hverjir eru hinir seku um verðbólguþró- unina. Þann vagn dregur ríkisstjórnin blindandi. Svo dregur auðvitað til þess í lok ársins að stoppa þurfi í göt á fjárlögum fyrir næsta ár. Það þarf heldur ekkert að vefj- ast fyrir neinum til hvaða ráðs þá verður gripið. Það verður þjarmað áfram að sjúkum og öldr- uðum. Skólagjöld verða hækkuð. Lagt enn meira hald á fjármuni safn- aða og kirkna. Gjöld hækkuð á öllum nema auðmönnum og fyrirtækjum þeirra. Mikið sagt, en menn hafa ekki á öðru að byggja en reynslunni af þeim ráðamönnum, sem með völdin fara. Sögulegar staðreyndir eru það eina, sem til viðmiðunar getur verið, þeg- ar rýnt er til framtíðar. Eina haldreipi þeirra, sem vita að nauðsyn ber til að gerbreyta um stefnu, er að samtökum vinnumark- aðarins takist að hrinda ríkisstjórn- inni út af þeim glötunarvegi, sem hún hefir fetað allar götur frá því að halla tók á ógæfuhlið í efnahagsmál- um fyrir einum fjórum árum. Það mun þó reynast skammgóður vermir ef að líkum lætur. Hinir seku Sverrir Hermannsson Verðbólga Það þarf ekkert að fara í grafgötur með hverjir eru hinir seku um verð- bólguþróunina, segir Sverrir Hermannsson. Þann vagn dregur ríkis- stjórnin blindandi. Höfundur er alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.