Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI 17.
janúar var fjárhagsáætlun Stykkis-
hólmsbæjar og undirfyrirtækja af-
greidd með sjö samhljóða atkvæðum.
Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætl-
aðar 316 milljónir króna. Fjárfest-
ingar eru áætlaðar fyrir um 50 m. kr
og skuldir greiddar niður um 24 m.
kr. Rekstrargjöld eru áætluð 247 m.
kr. eftir að 74 m.kr. tekjur mála-
flokka hafa verið dregnar frá.
Rekstrargjöld eru því áætluð 78% af
skatttekjum og fjármagnskostnaður
um 5,5%.
Tekjur undirfyrirtæjka eru áætl-
aðar 144 m.kr. og rekstrargjöld og
heildarfjárfestingar þeirra 32 m.kr.
Í þessari fjárhagsáætlun er stigið
annað skrefið til lækkunar skulda
eftir þá miklu uppbyggingu sem ver-
ið hefur á síðustu árum við hitaveitu-
og sundlaugarframkvæmdir í
Stykkishólmi. Reiknað er með að
greiða niður um 10% af skuldum bæj-
arsjóðs. Þessi niðurstaða er nokkru
betri en áætlað var við afgreiðslu
þriggja ára áætlunar 2002–2004 sem
afgreidd var í fyrra.
Aukin uppbygging þjónustumann-
virkja kallar einnig á aukinn
rekstrarkostnað, þannig að bæjar-
stjórn þykir ánægjulegt að geta hald-
ið rekstrarútgjöldum undir 80%.
Langstærsti útgjaldaliðurinn er
fræðslumál með 126 m.kr útgjöld,
sem eru 47,5% áætlaðra útgjalda
bæjarsjóðs. Aðrir helstu málaflokkar
eru félagsþjónustan með 31 m.kr. og
æskulýðs- og íþróttamál með 27 m.
kr.
Mestu framkvæmdir ársins eru við
unglingalandsmót UMFÍ og við
höfnina í Súgandisey.
Helstu fjárfestingar eru fram-
kvæmdir tengdar undirbúningi
vegna unglingalandsmóts UMFÍ í
Stykkishólmi sem haldið verður um
næstu verslunarmannahelgi. Til þess
verkefnis er varið 20 m.kr., en þar af
koma 10 m.kr. á fjárlögum 2002.
Einnig er gert ráð fyrir 8 m.kr. fjár-
festingum í gatnagerð og 7 m.kr. í
húsbyggingum.
Aðrar umtalsverðar framkvæmdir
sem verða í gangi á þessu ári á veg-
um stofnana eða fyrirtækja Stykkis-
hólmsbæjar eru framkvæmdir við
Stykkishólmshöfn fyrir 22 m.kr. og
bygging eða kaup á leiguíbúð fyrir
allt að 10 m.kr. Framkvæmdin við
höfnina felst í að lengja stálþil í Súg-
andisey.
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar samþykkt
Bæjarfélagið greiðir
niður skuldir um 24
milljónir króna
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti samhljóða síðustu fjárhagsáætl-
unina á kjörtímabilinu. Dagný Þórisdóttir, Erling Garðar Jónasson,
Guðrún Gunnarsdóttir og í aftari röð Davíð Sveinsson, Óli Jón Gunn-
arsson bæjarstjóri, Rúnar Gíslason, forseti bæjarstjórnar, Eyþór Bene-
diktsson og Hilmar Hallvarðsson.
Stykkishólmur
Í ÞVERÁRVIRKJUN við Stein-
grímsfjörð er nú verið að taka í
notkun 2.300 kW vatnsaflsvél en
við það aukast afköst stöðvarinnar
um nær helming.
Endurnýjun á virkjuninni hófst á
síðasta ári með gerð nýrrar stíflu.
Sá varnargarður var um 560 m
langur og vatnsborð Þiðriksvallar-
vatns hækkaði við það um 6 metra.
„Með þessari nýju vél hefur
rúmmál vatns sem við getum notað
til að framleiða úr aukist úr 11 Gl í
25 Gl og yfirborð vatnsins stækkað
um 0,6 ferkílómetra,“ segir Þor-
steinn Sigfússon, svæðisstjóri
Orkubús Vestfjarða á Hólmavík.
Svæðið nær frá Þambárvöllum í
Bitrufirði norður í Árneshrepp og
við þetta eykst afhendingaröryggi
notenda til muna.
Það var Ístak sem sá um fram-
kvæmd verksins en verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen sá um hönn-
un og hafði eftirlit með fram-
kvæmdum.
Við stækkun stöðvarhúss voru
byggingaverktakar Eiríkur og Ein-
ar Valur frá Ísafirði. Undirverk-
taki hjá þeim vegna jarðvegsvinnu
var Fylling ehf. á Hólmavík.
Um raflagnir sá fyrirtækið Raf-
skaut á Ísafirði.
Vélbúnaður er frá þýska fyrir-
tækinu VATECH og sendu þeir
mann sem sá um úttektir og still-
ingar. Starfsmenn Orkubús Vest-
fjarða á staðnum sáu um uppsetn-
ingu vélbúnaðar og endurnýjun á
afrennslisstokk sem er um 1.400
mm í þvermál.
Gert er ráð fyrir að heildar-
kostnaður við verkið verði um 250
milljónir króna.
Að sögn Þorsteins er gert ráð
fyrir að vélin verði keyrð með full-
um afköstum fram í júní en við
hana er tengd fjargæsla sem er á
Hólmavík.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Þorsteinn Sigfússon, svæðisstjóri Orkubúsins, við vatnsaflsvélina.
Starfsmenn Orkubús Vestfjarða á Hólmavík. F.v. Eysteinn Gunnarsson,
Bjarki Guðlaugsson, Júlíus F. Jónsson, Ingimundur Jóhannsson, Kári
Þorsteinsson, Ingimundur Pálsson og Þorsteinn Sigfússon svæðisstjóri
gangsetja nýju vatnsaflsvélina.
Þverár-
virkjun
endurbætt
Strandir
OPNUÐ hafa verið tilboð í endur- og
nýlagningu Vestfjarðavegar á um
19,24 km kafla frá Múla í Kollafirði
inn og fyrir fjörðinn yfir Klettsháls,
fyrir Skálmarfjörð og út á Vattarnes.
Verktakafyrirtækið Fylling ehf. á
Hólmavík átti lægsta tilboðið í fram-
kvæmdina rúmar 393 milljónir króna
sem er 93,7% af kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar.
Þrjú önnur verktakafyrirtæki
voru með fullgild tilboð en verk-
samningur hefur verið gerður við
Fyllingu. Um er að ræða tæplega
þriggja ára framkvæmd sem skal
vera lokið 1. nóvember 2004.
„Þetta skiptir mjög miklu máli
fyrir okkur að fá verk til svona langs
tíma. Hingað til höfum við haft verk
að sumri til en engin örugg verkefni
lengra fram í tímann,“ sagði Karl
Björnsson, framkvæmdastjóri Fyll-
ingar.
Samkvæmt verkáætlun á að hefja
verkið í apríl ef veður leyfir og að-
spurður sagðist Karl ekki vita
hversu margt fólk þeir þyrftu við
vegaframkvæmdirnar en það kæmi
fljótlega í ljós. „Við erum með ákveð-
inn kjarna en í heild verða starfs-
menn líklega fimmtán til tuttugu
sem við ráðum bæði héðan úr
Strandasýslu og úr nágrenninu í
Barðastrandarsýslum.“
Morgunblaðið/Arnheiður
Starfsmenn Fyllingar ehf. á Hólmavík í vegaframkvæmdum í Kollafirði
á Ströndum en þeir hafa nú fengið tæplega þriggja ára verksamning um
vegagerð í Kollafirði í Barðastrandarsýslu.
Lægsta tilboð í
vegaframkvæmdir
í Kollafirði
Hólmavík
Fylling ehf. á Hólmavík
Rangárvöllum í átaki sem Velunn-
arar æskunnar í Reykjavík
hrundu af stað í haust til eflingar
lestrarnámi grunnskólabarna og
voru kvenfélagskonurnar að skila
framlaginu fyrir hönd félaganna
tveggja. Það voru nemendur 1.
bekkjar skólans ásamt kennara
sínum, Pálínu Jónsdóttur, og
skólastjóranum, Sigurgeiri Guð-
mundssyni, sem tóku á móti þess-
ari góðu gjöf.
ÞÆR komu færandi hendi kven-
félagskonurnar Jóhanna Friðriks-
dóttir og Ragnheiður Skúladóttir
í Grunnskólann á Hellu á dög-
unum. Meðferðis höfðu þær verk-
efnabækurnar Geitunginn eftir
Árna Árnason, kennara og Hall-
dór Baldursson, teiknara.
Um er að ræða þátttöku kven-
félaga Oddakirkju og Unnar á
Bókagjöf til nemenda
í Grunnskólanum
Hella
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Kvenfélagskonurnar Jóhanna Friðriksdóttir og Ragnheiður Skúladótt-
ir afhentu nemendum 1. bekkjar verkefnabækur. Viðstödd voru Sig-
urgeir Guðmundsson skólastjóri og Pálína Jónsdóttir kennari.