Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 52

Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ                            BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LÆKNAMISTÖK verða sífellt al- gengari úti í hinum stóra heimi, en við þurfum ekki að leita langt til að finna læknamistök. Nýjasta dæmið er án efa hin svokölluðu inntökupróf læknadeildar. Það er nú allt gott og blessað sem almenningur fær að vita um þau. Nú geta læknanemar loks- ins tekið próf að vori og beðið svo milli vonar og ótta hvort þeir komist inn eður ei. Ef þeir komast svo ekki inn geta þeir snúið sér að einhverju öðru. Svona lítur þetta út fyrir al- menningi, en þeir sem ætla að þreyta þetta próf mæta annarri og kulda- legri hlið. Í fyrsta lagi er stjórn Læknadeild- ar ekki búin að ákveða hvaða efni verður til prófs. Þannig að fyrir nem- anda sem ætlar að þreyta prófin og ætlar nú aldeilis að læra fyrir prófið situr uppi með eitt stórt spurning- armerki. Þegar nemendur leita upp- lýsinga um prófið er ekki enn búið að ákveða ýmsa smáhluti sem virðast smávægilegir en skipta miklu máli þegar á hólminn er komið, t.d. í sam- bandi við tölvur og formúlublað. Það hefur lengi verið talið að besti undirbúningurinn fyrir læknanám væri að fara á náttúrufræðibraut. Það gengur ekki lengur því nú þarftu að taka kjarnáfanga úr öllum braut- um til að vera vel undirbúinn fyrir þetta próf. En nú eru ekki allir skól- ar með áfangakerfi heldur bekkja- kerfi. Þar er hægara sagt en gert að fá að taka einhverja áfanga af ann- arri braut. Hvernig væri að læknadeildin hætti að láta eins og uppdekraður unglingur og komi til móts við nem- endur. Þeir verða bara að viður- kenna að þetta þarfnast meiri tíma. Með allri þessari óvissu hefur marg- ur frambærilegur nemandinn hætt við læknisfræði því óvissan er helsti óvinur nemandans. Gerir það meiri skaða að hafa úrtökupróf í tvö ár í viðbót þannig að framhaldskólanem- endur geti sniðið sér stakk eftir vexti og dregið þar með úr allri þessari óvissu? Stjórn læknadeildar verður að gera sér grein fyrir því að þessi undirbúningur fyrir inntökuprófin er einfaldlega of skammt á veg kom- in. GEIR HIRLEKAR, nemandi í HÍ. Læknamistök Frá Geir Hirlekar: ÞAÐ fór eins og vænta mátti og um var rætt, að boðaðar skattalækkan- ir forsætisráðherra á fyrirtæki og hátekjumenn yrðu til þess að auka skatta og álögur á almenning og helst þá, sem síst skyldi og höllum fæti standa – sjúka, krama og aldr- aða. Svo rammt er farið að kveða að þessum gerræðisfullu aðgerðum, að frammámenn úr hans eigin flokki eru farnir að flýja af hólmi og segja sig úr flokknum vegna ofríkis, yf- irgangs og ofsókna á hendur þeim, sem að einhverju leyti eru ósam- mála slíku framferði eins og fram hefur komið á opinberum vettvangi. Vandræðalegur var heilbrigðis- ráðherra á að líta er hann á síðast- liðnu sumri var að kynna lands- mönnum ýmsar nýjar álögur í heilbrigðiskerfinu. En þar sem ráð- herrann er ekki þekktur fyrir að þrengja að þeim, sem minna mega sín, þá héldu menn helst, að þetta væri fortíðarvandi frá eldri tíma og landsföðurnum. En að láta hafa sig í það tæpu misseri síðar að höggva aftur í sama knérunn var einum um of og átakanlegra en tárum taki. En slök og aðgerðarsnauð efnahags- stjórn með 9,4% verðbólgu og margt fleira neikvætt, heimtaði að- gerðir, svo að allt færi ekki úr bönd- unum og þá er ekki við öllu séð. Ég hafði reynt að bægja frá þeirri hugsun, að menntamálaráð- herra væri vax í höndum forsætis- ráðherra en sú viðleitni rann brátt út í sandinn eftir að hann stóð að því að hrekja sóknarprestinn úr Þing- vallabænum, alveg að ástæðulausu – að hluta til er bærinn byggður af fé úr kirkjujarðarsjóði – bara til þess eins að húsráðandinn í hinum hlutanum gæti haldið þar gleðiteiti sín óáreittur með útsýni yfir kirkju- garðinn og kirkjuna til hliðsjónar. Seinheppinn gjörningur til að þókn- ast lítilmótlegu ofríki þess er ráða vildi. Við þökkum þér Davíð hið daglega brauð. Drottinn, hann sér í leyni. Þú ávaxtar vel þinn Thatcher-auð og sinnir ei þurfamanns kveini. SIGURPÁLL ÓSKARSSON, Starengi 18, Reykjavík. Vandræðaástand Frá Sigurpáli Óskarssyni: stretch- gallabuxur Kringlunni, sími 588 1680 v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun 3 skálmalengdir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.