Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 59
Sýnd kl. 8.
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
Sýnd kl.10.
Sýnd kl. 8.
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.
HJ MBL ÓHT Rás 2DV
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Somet-
hing About Mary“
og „Me myself &
Irene“ kemur
Feitasta gaman-
mynd allra tíma
Sýnd kl. 8 og 10.10.
„Besta mynd ársins“SV Mbl
Ævintýrið lifnar við
„Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl
Sýnd kl. 5.45 og 9. Sýnd kl. 8 og 10. Vit 333. B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd 6. Ísl tal Vit 320
Frá leikstjóra Sea of
Love kemur fyrsta
spennumynd ársins.
Með töffaranum,
John Travolta, Teri
Polo Vince Vaughn
og Steve Buscemi.
MAGNAÐ
BÍÓ
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Empire
SV Mbl
DV
Rás 2
Kvikmyndir.com
Aftur í stóran sal. Sýnd kl. 5.30 8 og 10.30.
MOULIN
ROUGE!
3 Golden Globes
verðlaun fyrir
bestu mynd,
bestu leikkonu
og bestu tónlist.
Missið ekki af þessari.
1/2
Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Aftur í bíó!
Vegna fjölda áskorana
í nokkra daga
Sýnd kl. 5.30
8 og 10.30.
ÞAÐ sópaði að Tinu Brown þegar hún hóf inn-
rás sína frá Bretlandi í bandarískan blaða-
heim fyrir rúmlega einum og hálfum áratug.
Hún sat við stjórnvölinn á tveimur af þekktari
tímaritum, sem gefin eru út í Bandaríkjunum,
og stofnaði síðan þriðja tímaritið, sem nú er
að leggja upp laupana. Hin breska Brown
eignaðist marga óvini á skömmum tíma og nú
hlakkar í þeim, sem sagt hafa að hún hafi
aldrei verið annað en aðskotahlutur í banda-
rískri fjölmiðlaflóru. Hún er hins vegar hvergi
bangin og segir í viðtali við dagblaðið New
York Times í vikunni að það væri „enginn
leiðinlegri en sá, sem aldrei hefur beðið ósig-
ur“.
Útgáfuteiti með Kissinger,
Madonnu og Rushdie
Tímaritið Talk kom fyrst út fyrir tveimur
árum og var hleypt af stokkunum með mikl-
um látum og írafári. Það var prentað á glans-
pappír og átti að fjalla um þá, sem allir væru
að tala um. Útgefendur voru kvikmyndafram-
leiðandinn Miramax og útgáfufyrirtækið
Hearst, sem gefur út fjölda tímarita. Haldið
var útgáfuteiti þar sem Madonna, Henry Kiss-
inger, Demi Moore og Salman Rushdie voru
meðal gesta. Blaðið vakti þegar athygli, ekki
síst vegna umtalaðrar úttektar á Hillary Rod-
ham Clinton, þáverandi forsetafrú. Það hefur
hins vegar ekki þótt vekja það umtal, sem
heiti þess gefur til kynna og í New York hefur
verið haft á orði að eina umtalið um Talk hafi
verið hvað lítið hafi verið til að tala um í
blaðinu.
Blaðið hefur þótt seljast nokkuð vel og var
útbreiðsla þess 651.000 eintök á liðnu ári auk
þess sem auglýsingasíðum í blaðinu fjölgaði
um sex af hundraði. Blaðið var hins vegar
ekki enn farið að skila hagnaði og töldu útgef-
endurnir að þeir hefðu ekki úthald til að bíða.
Frá Bretlandi til Bandaríkjanna
Tina Brown átti skjótan frama í blaða-
mennsku. 26 ára var hún orðin ritstjóri breska
tímaritsins Tatler. Þótti tímaritið ganga í end-
urnýjun lífdaga undir handleiðslu hennar. Ár-
ið 1984 var henni boðið til New York til að
blása nýju lífi í tímaritið Vanity Fair, sem er
með blöndu af efni um fræga og fína fólkið og
fréttaskýringum. Henni þótti takast svo vel
upp þar að útgefandinn, S.I. Newhouse, gerði
hana að ritstjóra hins virta vikublaðs New
Yorker. Það blað á sér langa sögu og voru
margir þeirrar hyggju að blaðið myndi
setja niður. Það tók vissulega breytingum,
sem ekki síst sáust í auglýsingum frá tísku-
húsum og ilmvatnsframleiðendum, og
greinar urðu ef til vill styttri og léttari, en
engu að síður var haldið í hinn alvarlega
stíl, sem hafði einkennt blaðið.
Sögð hafa kynt undir dýrkun
á fræga fólkinu
Næsta verkefni var Talk. Allt frá því það
blað hóf göngu sína hefur Brown verið
vænd um að hygla öllu því, sem frá Mira-
max kemur.
Í grein um Brown, sem nú er 48 ára, í The
New York Times segir að hún hafi átt snar-
an þátt í því að kynda undir skurðgoðadýrk-
un Bandaríkjamanna á fræga fólkinu og
síðan tekið sér stöðu gyðju á einum hæsta
stallinum. Nú hlakki hins vegar í ýmsum
minni goðum því að allt bendi til þess að
Brown verði að hverfa brott af Ólympstindi.
Tina Brown segist aftur á móti ekki vera
af baki dottin þótt hún hafi ekki gefið til
kynna hvað nú taki við.
Tímaritið Talk lýkur göngu sinni
Innrás
Tinu Brown
hrundið
Reuters
Brown gerði ýmislegt til að draga athygli
að nýja tímaritinu. Fékk hún m.a. Gwyn-
eth Paltrow til að klæðast gervi Barbar-
ellu, sem Jane Fonda gerði fræga í sam-
nefndri mynd Rogers Vadims frá 1968.
Tina Brown hélt mikið teiti þegar tímarit-
inu Talk var hleypt af stokkunum í ágúst
1999 og var þar margt fyrirmennið. Brown
ræðir við Demi Moore í samkvæminu.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6.
Forsýnd kl. 8. B. i. 16.
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
i ir.
Sýnd kl. 4.45 og 8. B.i 12 ára
HJ. MBL.
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Some-
thing About
Mary“ og „Me
myself & Irene“
kemur Feitasta
gamanmynd
allra tíma
´
i
l I
i
ll í
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
Þann 3. október 1993 var úrvalslið bandarískra hermanna sent á vettvang inn í
höfuðborg Sómalíu, Mogadishu, til að ræna tveimur hershöfðingjum. Aðgerðin átti bara
að taka um eina klukkustund en öflug mótspyrna sómalíska hersins sá til þess að svo
varð ekki og útkoman var lengsti landbardagi Bandaríkjahers frá því í Víetnam.
FORSÝNING
Leikstjóri
Ridley Scott
(Gladiator)
Framleiðandi
Jerry Bruckheimer
(The Rock)
Svakalegasta
stríðsmynd
seinni ára sem
fór beint átoppinn í
Bandaríkjunum
um síðustu helgi
ÞAÐ ætlar ekki af Mel B greyinu að ganga. Nýverið lét plötufyrirtæki
hennar hana róa og nú hefur sjónvarpsframi hennar einnig runnið út í
sandinn.
Hræðslu-kryddið hafði tekið fyrri höfnuninni með reisn vegna þess að
þá hafði hún hvort eð er þegar ákveðið að reyna fyrir sér sem sjónvarps-
kona. Áformin voru stór en hún ætlaði að fara af stað með þátt sem átti
að bera heitið Mel B og Brasilía. En nú hafa þau áform snarlega verið
blásin af vegna þess að sjónvarpsstöðvarnar bresku höfðu nákvæmlega
engan áhuga á því að kaupa hann. Hugmyndin að þættinum var lögð fyr-
ir fjölda stöðva, bæði almennu stöðvarnar fimm sem allir ná sem og
gervihnattastöðvar en allir gáfu sömu svörin, að Mel B væri komin yfir
síðasta söludag, að aðdráttarafl hennar væri á bak og burt.
Það kann að hafa ráðið mestu um ákvörðun stöðvanna að síðasta til-
raun Mel B til að hasla sér völl í sjónvarpi þótti mislukkuð en það var
heimildarmynd sem hún kom fram í um iðkun vúdútrúarinnar í Afríku.
Annað sem réð heilmiklu um áhugaleysið er að Mel hefur farið fram á
miklu hærri laun en aðrir sjónvarpsþáttastjórar, að eigin sögn á þeim
forsendum að hún sé alls enginn venjulegur sjónvarpsþáttastjórnandi
heldur poppstjarna.
Stúlkan hefur ekki viljað tjá sig um nýjustu höfnunina.
Enginn hefur áhuga á Mel B