Morgunblaðið - 03.02.2002, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#$!
% !
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
BERGUR Felixson, framkvæmda-
stjóri Leikskóla Reykjavíkur, og
Kristín Blöndal, formaður Leikskóla-
ráðs Reykjavíkur, voru gestir í Kast-
ljósi Sjónvarpsins sl. miðvikudags-
kvöld, enda hafa sjónir fólks beinst
nokkuð að daggæslu í heimahúsum
upp á síðkastið vegna harmleiks sem
ekki verður farið nánar út í hér.
Spurt var um eftirlit með daggæslu í
heimahúsum og því haldið fram í
svari að farið væri í heimsóknir til
dagmæðra, án fyrirvara, ef ábending-
ar bærust um að ekki væri allt með
felldu. Jafnframt var ýtt undir það
sjónarmið að foreldrar væru sjálfir
best til þess fallnir að fylgjast með
starfsemi dagmæðra. Af því tilefni
skal tekið fram að undirrituð hefur
persónulega reynslu af þjónustu
Leikskóla Reykjavíkur sem er í engu
samræmi við þessar fullyrðingar
Bergs Felixsonar og Kristínar Blön-
dal. Dóttir mín var í daggæslu í
heimahúsi í þrjá mánuði haustið 2000
(frá 10–13 mánaða), hjá dagmóður
með tilskilin leyfi frá Leikskólum
Reykjavíkur. Plássinu var sagt upp
þar sem umönnun var hvorki í sam-
ræmi við starfsreglur þær sem Leik-
skólar Reykjavíkur miða við (tíund-
aðar í bæklingi sem dagmæður
afhenda foreldrum og liggja frammi
hjá stofnuninni), né skilgreiningu
sæmilega meðvitaðra foreldra á boð-
legri eða öruggri gæslu fyrir börn.
Undirrituð kvartaði tvisvar símleiðis
við daggæsluráðgjafa vegna þátta
sem ekki voru í lagi hjá dagmóður-
inni. (Dæmi um vanrækslu: barnið
var látið sofa í vagni á úti svölum án
þess að vera fest í beisli þrátt fyrir
ítrekuð mótmæli.) Er öryggi kannski
spurning um „sérvisku“ eða
„smekk“?
Eftir að vistun lauk sendi undirrit-
uð vélritaðar athugasemdir á nokkr-
um A4 blöðum um fleiri óviðunandi
þætti starfseminnar, sem bæði voru
rökstuddar með vísunum í fyrr-
greindar reglur stofnunarinnar um
framkvæmd daggæslu í heimahús-
um, sem og fjölmörgum dæmum um
það sem miður fór við aðbúnað og
umönnun barnsins (og annarra). Í
fyrsta lagi lét daggæsluráðgjafi sem
umsjón hefur með starfsemi um-
ræddrar dagmóður hana sjálfa vita
að von væri á kvörtunum áður en at-
hugasemdirnar voru sendar til stofn-
unarinnar. Í öðru lagi var dagmóðirin
ekki heimsótt án fyrirvara til þess að
kanna hvort allt væri með felldu, líkt
og lýst var yfir í sjónvarpinu í gær.
Auk þess sem fullyrðingum um að
viðkomandi hefði fleiri börn í gæslu í
einu en leyfilegt er var vísað á bug,
meðal annars á þeirri forsendu að
daggæsluráðgjafinn hefði ekki orðið
þess var í reglubundnum heimsókn-
um til dagmóðurinnar! Kunna for-
eldrar kannski ekki að telja?
Reynsla mín af eftirliti Leikskóla
Reykjavíkur með dagmæðrum á
þeirra vegum er því í algeru ósam-
ræmi við fullyrðingar framkvæmda-
stjóra Leikskóla Reykjavíkur og for-
manns Leikskólaráðs Reykjavíkur í
Kastljósinu í gær. Þess má einnig
geta að undirrituð heimsótti skrif-
stofur Leikskóla Reykjavíkur nokkr-
um sinnum á meðan á þessu stóð og
ræddi við fleiri daggæsluráðgjafa.
Var sú skoðun látin í ljósi að minnsta
kosti einu sinni að daggæsluráðgjafar
stæðu nánast vanmáttugir frammi
fyrir dagmæðrum sem ekki sinna
starfi sínu sem skyldi þar sem
„vinnuréttur þeirra væri svo sterkur“
(eins og tekið var til orða), auk þess
sem haft var á orði að til væru staðir
sem þess væri óskandi að hægt væri
að loka „með slagbrandi fyrir dyrum“
(önnur bein tilvitnun).
Að framansögðu má því vera ljóst
að eftirlit með daggæslu í heimahús-
um er ekki með þeim hætti sem fyrr-
greindir fulltrúar lýstu í Sjónvarpinu
í gær. Það verður bara að segjast eins
og er að nefnd móðir prísar sig sæla
yfir því að hafa ekki þurft að reiða sig
á eftirlitsþátt þjónustu stofnunarinn-
ar aftur, enda var eina úrræðið að
segja plássinu fyrirvaralaust upp.
Þar að auki var viðmótið þannig hjá
starfsfólki Leikskóla Reykjavíkur að
svo virðist sem meiri áhersla sé lögð á
að tryggja hagsmuni dagmæðra en
skjólstæðinga þeirra hjá stofnuninni,
með vísan í fyrrgreind ummæli um
„vinnurétt dagmæðra“ sem viðhöfð
voru oftar en einu sinni.
Þess skal getið að síðustu að barnið
fékk pláss hjá annarri dagmóður á
vegum Leikskóla Reykjavíkur
skömmu síðar, mikilli sómakonu, sem
rækir starf sitt bæði af alúð og um-
hyggju. Á viðunandi umönnun ein-
vörðungu að vera spurning um
heppni?
HELGA KRISTÍN
EINARSDÓTTIR,
blaðamaður.
Misbrestur á eftir-
liti með dagmóður
Frá Helgu Kristínu Einarsdóttur:
C vítamín 500 mg
Eflir varnir.
Allt vítamínið í töflunni
nýtist þér. C vítamín forði í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum