Morgunblaðið - 03.02.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
AFTAKAVEÐUR var um vestan- og norðanvert
landið í gærdag og höfðu björgunarsveitarmenn í
nógu að snúast við að aðstoða fólk og bjarga verð-
mætum. Veðurstofan lýsti yfir viðbúnaðarstigi
vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vest-
fjörðum og norðanverðum Tröllaskaga.
Einna verst var veðrið á vestur- og norðanverðu
landinu þar sem vindhraði fór upp í 50 til 60 metra
á sekúndu í mestu hviðunum. Víða var rafmagns-
laust og þegar Morgunblaðið fór í prentun var
óvíst hvenær rafmagn kæmist á alls staðar.
Á höfuðborgarsvæðinu var veður slæmt og um
50 björgunarsveitarmenn að störfum þegar mest
var. Sinntu þeir aðallega beiðnum vegna foks en
mikið var um að þakplötur og lausamunir fykju.
Vörubifreið fauk út af vegi í Kollafirði og maður
slasaðist og var fluttur til Reykjavíkur eftir að bif-
reið hans fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli.
Á Ísafirði var hvasst og snjóþungt eins og sést á
meðfylgjandi mynd og átti fólk í erfiðleikum með
að komast leiðar sinnar. Sömu sögu er að segja af
færð víðar af landinu.
Morgunblaðið/Sigurjón Sigurðsson
Víða erfiðleikar í aftakaveðri
Rafmagnstruflanir/2
HIÐ nýja og glæsilega hafrannsókna-
skip, Árni Friðriksson RE, verður að
öllum líkindum bundið við bryggju í
hálfan annan mánuð þar sem ekki er
til nægilegt fé til að halda skipinu úti.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunarinnar, segist von-
góður um að hægt verði að auka út-
hald skipsins á næstu árum.
Árni Friðriksson RE var smíðaður
fyrir Hafrannsóknastofnunina í Chile
og kom til landsins í maí árið 2000.
Það er eitt best búna skip sinnar teg-
undar í heiminum og hefur gerbylt
aðstöðu til mælinga og rannsókna í
hafinu umhverfis Ísland. Skipinu hef-
ur ekki verið haldið til sjós frá því að
loðnurannsóknaleiðangri Hafrann-
sóknastofnunarinnar lauk hinn 16.
janúar sl. sem reyndar tókst að ljúka
verulega á undan áætlun, en útlit er
fyrir að það muni liggja óhreyft við
bryggju fram í marsmánuð. Jóhann
segir oftast lægð í starfsemi skipanna
í desember og janúar, enda veður
óhagstæð. Hugsanlegt sé að skipið
taki þátt í tilraunum með neðansjáv-
armerkingarbúnað síðar í þessum
mánuði en þær gætu þó dregist fram í
aprílmánuð, þar sem samstarfsaðilar
í verkefninu hafi óskað þess.
Jóhann segir að gert sé ráð fyrir
nokkrum samdrætti á starfsemi
stofnunarinnar á þessu ári, líkt og al-
mennt í ríkisbúskapnum. Þar að auki
hafi stuðningi við ýmis verkefni stofn-
unarinnar lokið á síðasta fjárlagaári.
„Við getum því ekki sinnt eins mörg-
um verkefnum og við gjarnan vildum.
Auðvitað myndum við vilja sjá betri
nýtingu á skipinu og verkefnin eru
óþrjótandi. Það kostar hins vegar
mikið fé að halda úti skipinu og það er
einfaldlega ekki til ráðstöfunar.“
Jóhann segir að þótt rekstrarfé
stofnunarinnar hafi aukist nokkuð
með tilkomu nýja skipsins vegi það
ekki upp gríðarlega kostnaðarsamt út-
hald hins stóra skips. „Þegar tekin var
ákvörðun um smíði skipsins var ekki
gert ráð fyrir miklu meira úthaldi haf-
rannsóknaskipanna en þá var. Þrátt
fyrir að rekstur Árna Friðrikssonar sé
dýrari en rekstur eldri skipanna var
það talið geta sinnt okkar verkefnum á
skemmri tíma með skilvirkari mæling-
um. Það sannaðist til dæmis í loðnu-
rannsóknaleiðangrinum.“
Óhreyft við bryggju í
hálfan annan mánuð
Fjárskortur hamlar starfsemi nýja hafrannsóknaskipsins
BJÖRN Bjarnason, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í komandi borgar-
stjórnarkosningum, segist tilbúinn
til að skoða til hlítar hvort skil-
greina eigi rétt allra barna frá t.d.
1½ árs eða 2 ára aldri til leikskóla-
vistar. Samkvæmt grunnskólalögum
er sveitarfélögum nú skylt að halda
skóla fyrir öll börn og unglinga á
aldrinum 6-16 ára.
„Ég tel, að þetta eigi að skoða af
alvöru og til hlítar,“ segir Björn.
„Álitamálin eru spennandi og snerta
að sjálfsögðu fleiri þætti en lúta
beint að sveitarstjórnarmálum, en
nauðsynlegt er að frumkvæði komi
frá þeim, sem reka leikskólana,
sveitarstjórnunum.“
Leikskólamálin
kosningamál
Björn segist hafa beitt sér fyrir
margvíslegum breytingum í skóla-
málum á grundvelli víðtæks sam-
ráðs við alla, sem hlut eigi að máli,
og honum þyki verðugt viðfangsefni
að nálgast málefni leikskólans út frá
þeim forsendum að réttur barna til
leikskólavistar verði skilgreindur á
þennan hátt.
Björn segir að leikskólamálin
verði kosningamál. „Já, þau verða
það. Ástæðulaust er að þrátta um
tilvist biðlistanna, þeir blasa við öll-
um, og eins hitt, að R-listinn hefur
svikið kosningaloforð sín vegna leik-
skólanna. Ég vil, að í kosningabar-
áttunni ræði menn meginsjónarmið
um gildi og markmið leikskóla-
starfsins og aukna þjónustu á þessu
skólastigi. Reykvíkingar geta mikið
lært af öðrum í þessu efni og í borg-
inni hafa menn verið ótrúlega seinir
að nýta sér þau tækifæri, sem gef-
ast, eins og til dæmis sést af því,
hve Leikskólar Reykjavíkur hafa
verið seinir að laga starfsemi sína
að breytingum á reglugerð, sem ég
gerði 9. maí á síðasta ári og heim-
ilar, að fleiri börn nýti rými í leik-
skólum en áður.
Breytingin auðveldaði til dæmis
bæjaryfirvöldum á Akureyri að
bjóða öllum tveggja til sex ára börn-
um leikskólarými síðasta haust, en
þar hafa sjálfstæðismenn haft for-
ystu um að eyða biðlistum leikskóla-
barna á þremur árum, en á átta ár-
um R-listans í Reykjavík hafa
biðlistarnir lengst.“
Borgarstjóraefni sjálfstæðismanna
Athugandi hvort
skilgreina á rétt
barna til leikskóla
Stöðnun í Reykjavík/10
MARKAÐS- og sölustarf hjá Flug-
leiðahótelum hf. vegna endurnýjaðs
og stærra Hótels Esju í Reykjavík,
sem tekið verður í notkun vorið 2003,
hófst fyrir nokkru. Hafa þegar verið
bókaðar 10 til 15 alþjóðlegar ráð-
stefnur, en alls er stækkunin fjár-
festing uppá yfir 1.800 milljónir
króna. Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, tjáði Morgunblaðinu að
þrátt fyrir nokkra erfiðleika í rekstri
félagsins á síðasta ári hefði verið
ákveðið að slaka í engu á markaðs-
og sölustarfsemi fyrirtækisins og að
halda hótelbyggingunni áfram af
fullum krafti en að henni stendur
Þyrping ásamt Flugleiðum.
„Við höfum fulla trú á því að hægt
sé að laða hingað fleiri ferðamenn að
vetri til enda hefur þeim fjölgað
mjög á síðustu árum sem koma hing-
að utan háannatímans. Það er ekki
síst í þágu annarrar ferðaþjónustu í
landinu en flugsins og það hefur sýnt
sig að í Reykjavík er skortur á hót-
elherbergjum og aðstöðu fyrir stórar
ráðstefnur. Þess vegna höldum við
óhikað áfram með Hótel Esju.“
Sigurður segir einnig að útlitið sé
gott með bókanir til Íslands á næsta
sumri. Þær séu um 10% meiri en á
sama tíma í fyrra frá Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, en einnig sé
nokkur aukning frá Bretlandi og
meginlandinu. „Það er ekki síst að
þakka miklu markaðsstarfi okkar og
við auglýstum til dæmis núna í fyrsta
sinn í sjónvarpi á Norðurlöndum,“
segir forstjórinn.
Þegar bók-
aðar 10–15
stórar ráð-
stefnur
Auknar bókanir/6
Ný Hótel Esja 2003