Morgunblaðið - 23.02.2002, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HUGMYND að virkjun lindár í
Norður-Þingeyjarsýslu hlaut
fyrstu verðlaun þegar hvatningar-
verðlaun Búnaðarbanka Íslands í
samvinnu við Hollvinafélag við-
skipta- og hagfræðideildar Háskóla
Íslands voru veitt í gær. Verðlaun-
in voru veitt fyrir bestu viðskipta-
hugmyndirnar er fram komu í
námskeiðinu, Viðskiptahugmyndir,
sem haldið var haustið 2001 í við-
skipta- og hagfræðideild HÍ.
Árni Tómasson, bankastjóri
Búnaðarbankans, veitti þremur
hugmyndum hvatningarverðlaunin
við athöfn í Odda í gær. Hugmynd-
in „Víðinesárvirkjun“ hlaut fyrstu
verðlaun, 125 þúsund krónur. Hug-
myndin gengur út á að virkja lindá
í Norður-Þingeyjarsýslu og fram-
leiða 1 MW af rafmagni og selja
alla umframorku. „Hugmyndin er
vel útfærð og hefur mikið gildi í
þeirri umræðu sem nú er varðandi
virkjanir á Austurlandi og vænt-
anlega aukna eftirspurn eftir vist-
vænni orku til stóriðju,“ segir í um-
sögn. Vinningshafar eru Erla
Kristín Bjarnadóttir, Hulda Stein-
grímsdóttir, Nicholas O’Keffe,
Starkaður Örn Arnarson og Svan-
hildur Rósa Friðriksdóttir.
Önnur verðlaun, 50 þúsund krón-
ur, hlaut hugmyndin „Vatnagarð-
urinn“. Hugmyndin gengur út á
uppbyggingu á vatnsleikjagarði í
tengslum við sundlaugina í Laug-
ardalnum. Vinningshafar eru Arn-
heiður Ingjaldsdóttir, Guðrún Ein-
arsdóttir, Ingilín Kristmannsdóttir
og Íris Ösp Björnsdóttir.
Þriðju verðlaun, 25 þúsund krón-
ur, hlaut hugmyndin „Video.is“.
Hugmyndin gengur út á að setja
upp vef þar sem hægt er að finna
allar helstu myndbandaleigur
landsins á einum stað og notandinn
getur valið þá leigu sem honum
hentar. Vinningshafar eru Sandra
Fairbairn og Magnús Guðmann
Jónsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Árni Tómasson bankastjóri ásamt verðlaunahöfum þegar hvatningarverðlaun Búnaðarbankans voru veitt í gær.
Virkjun, video.is og vatnagarð-
ur hlutu hvatningarverðlaun
AUGLÝSINGASTOFAN Hvíta hús-
ið fékk flest verðlaun á Íslenska
markaðsdeginum, sem Ímark hélt í
gær, er veitt voru verðlaun fyrir
athyglisverðustu auglýsingar síð-
asta árs. Veitt voru verðlaun í 12
flokkum. Hvíta húsið fékk fern
verðlaun og auglýsingastofurnar
Fíton og Birtingur fengu tvenn
verðlaun hvor.
Auglýsing Blóðbankans og Dan-
ól, „10 dropa?“ sem Hvíta húsið
framleiddi, þótti athyglisverðasta
auglýsingin í flokki tímaritaaug-
lýsinga. „Fiðildi“, markpóstur sem
Hvíta húsið vann fyrir Delta, fékk
verðlaun í þeim flokki. Þá voru
Hvíta húsið og Mjólkursamsalan
verðlaunuð fyrir veggspjaldið
„Laxness – Íslenska er okkar
mál“. Fjórðu verðlaun Hvíta húss-
ins voru fyrir athyglisverðustu
kvikmynduðu auglýsinguna, „Göt-
óttur“, sem unnin var í samvinnu
við Hugsjón fyrir Osta- og smjör-
söluna.
Athyglisverðasta auglýsinga-
herferðin þótti vera „TALfrelsi-
Gúrú“ sem Fíton framleiddi fyrir
Tal. Þá fékk Fíton verðlaun fyrir
óvenjulegustu auglýsinguna,
„Ungfrú Gateway,“ sem stofan
vann í samstarfi við Inntak al-
mannatengsl fyrir Aco.
Auglýsingin „Þetta er ég ...“
sigraði í flokki útvarpsauglýsinga
en það voru auglýsingastofan Birt-
ingur og Útvarpssvið Norðurljósa
sem framleiddu hana fyrir Barna-
heill, save the children Íslandi.
Birtingur fékk einnig verðlaun
fyrir athyglisverðasta vef fyr-
irtækis, sem var vefur auglýs-
ingastofunnar sjálfrar.
AUK auglýsingastofa og tóbaks-
varnanefnd fengu verðlaun í flokki
dagblaðaauglýsinga fyrir auglýs-
inguna „All you need is love“.
Athyglisverðasta kynning-
arefnið, annað en markpóstur,
þótti vera „Jólapappír“ sem Gott
fólk McCann-Ericson framleiddi
fyrir Smáralind.
Auglýsingastofan Næst var
verðlaunuð fyrir athyglisverðustu
umhverfisgrafíkina, „gamalt-nýtt,
súrt-sætt, þungt-létt, heitt-kalt“
sem stofan vann fyrir Leikfélag
Reykjavíkur-Borgarleikhúsið.
Athyglisverðasta vöru og firma-
merkið var valið merki Linda-
skóla, en það var auglýsingastofan
Nonni og Manni sem framleiddi
auglýsinguna fyrir skólann.
Athyglisverðustu auglýsingarnar
Ljósmynd/Geir
Friðrik Erlingsson, hugmyndamaður hjá AUK, tók við verðlaunum í flokki
dagblaðaauglýsinga úr hendi Margrétar Kr. Sigurðardóttur, markaðs-
stjóra Morgunblaðsins, en auglýsingin var unnin fyrir Tóbaksvarnarnefnd.
Hvíta húsið fékk
flest verðlaun
BYGGÐARÁÐ Skagafjarðar hefur
samþykkt að óska eftir fundi með
ráðandi hluthöfum í Steinullarverk-
smiðjunni hf. í þeim tilgangi að
ræða sölu á hlutabréfum í verk-
smiðjunni. Þrír stærstu hluthafar
verksmiðjunnar eru ríkið sem á
30,1% hlut, fyrirtækið Paroc, sem
nú er í eigu sænskra fjárfesta en
var áður finnskt,sem á 27,7% og
sveitarfélagið Skagafjörður sem er
með 24,0%. Allir þessir hluthafar
hafa áhuga á að selja hlut sinn.
GLD heildverslun, sem er í jafnri
eigu Byko og Húsasmiðjunnar, á
12,4% í Steinullarverksmiðjunni og
Kaupfélag Skagafjarðar á 4,9%.
Samtals eiga þessir aðilar því rúm
99%, en afgangurinn skiptist á 291
hluthafa.
Að sögn Boga Þórs Sigurodds-
sonar forstjóra Húsasmiðjunnar
hafa GLD og Kaupfélag Skagafjarð-
ar lagt fram tilboð um að kaupa
hluti þriggja stærstu eigendanna,
hugsanlega í félagi við starfsmenn
og aðra fjárfesta, og segir hann að
nú sé beðið svars við því tilboði.
Eignir Steinullarverksmiðjunnar
um síðustu áramót voru 852 millj-
ónir króna og eiginfjárhlutfallið var
72,4% en var 66,0% ári fyrr. Verk-
smiðjan hefur verið rekin með
hagnaði mörg undanfarin ár og arð-
semi eigin fjár hefur verið á bilinu
15%–30%.
Rætt um sölu á meirihluta
í Steinullarverksmiðjunni
HAGNAÐUR Sæplasts hf. á árinu
2001 nam 23 milljónum króna fyrir
skatta en um 7 milljónum að teknu
tilliti til tekju- og eignaskatta. Árið
áður var hagnaðurinn eftir skatta 3
milljónir. Rekstarhagnaður fyrir af-
skriftir og fjármunaliði (EBITDA)
var 284 milljónir króna eða um 11,5%
af tekjum.
Í tilkynningu frá Sæplasti segir að
helsta orsök þess að hagnaðurinn í
fyrra hafi ekki verið meiri en raun
ber vitni sé sú að tekjur félagsins
urðu mun minni en búist var við,
einkum í Ameríku þar sem sam-
dráttur tekna milli ára varð um 10%.
Síðustu mánuði ársins hafi sam-
drátturinn þó verið mun meiri. Þá
kemur fram í tilkynningunni að ráð-
iðst hafi verið í umfangsmiklar
skipulagsbreytingar á árinu 2001 og
allur kostnaður við þær hafi verið
gjaldfærður en hann nam um 40
milljónum króna.
Eigið fé Sæplasts í árslok var 756
milljónir króna og hækkaði um 75
milljónir á árinu. Nettóskuldir, þ.e.
heildarskuldir að frádregnum veltu-
fjármunum, lækkuðu á árinu úr 609
milljónum í 576 milljónir. Veltufjár-
hlutfall í árslok var 1,52.
Betri afkoma í ár
Í tilkynningu félagsins segir að
ljóst sé að þær áætlanir sem gerðar
voru í upphafi árs 2001 hafi verið of
bjartsýnar. Salan hafi orðið um 10%
minni en upphafleg áætlun gerði ráð
fyrir og stafi það einkum af mun
verra efnahagsástandi í Ameríku en
ráð var fyrir gert.
Í ágúst 2001 voru áætlanir Sæ-
plasts endurmetnar og var þá gert
ráð fyrir að tekjur félagins yrðu
2.515 milljónir króna en þær urðu
2.467 milljónir og stafar munurinn
einungis af lítilli sölu í Ameríku.
Í áætlunum Sæplasts fyrir árið
2002 er gert ráð fyrir að afkoman
verði töluvert betri en á síðasta ári.
Segir í tilkynningunni að sala í Evr-
ópu og víðar hafi farið vel af stað en
enn sé ekki séð fyrir endann á sam-
drætti vestanhafs. Hagræðing sem
gripið hafi verið til í rekstrinum á
síðasta ári eigi að skila sér á þessu
ári.
Aðalfundur Sæplasts hf. verður
haldinn 11. mars næstkomandi.
Hagnaður Sæplasts hf.
7 milljónir eftir skatta
!
!"#$%"#&'( %!%
"
!"#$%"
! "
# "
!
!
"
"
#$
$%&'(
(%)$&
)*+
(*)
,-
+(
)
$
(
(%*)$
,)(
$(&
-&.(/
+,.+/
+,.,/
+-.+/
0.)/
)+.*/
1+.+/
+22.2/
+--.-/
3.*/
4.*/
++.2/
3.*/
1*.)/
$%
%&5 %"5
%&5 %"5
%&5 %"5
$%
$% FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu átti í gær fund með
TDC vegna einkavæðingar Lands-
síma Íslands og lagði nefndin þar
fram tölur um afkomu Símans á síð-
astliðnu ári auk áætlana.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
starfsmaður einkavæðingarnefndar,
sagði fundinn hafa verið afar gagn-
legan og ákveðið hefði verið að að-
ilarnir hefðu samband aftur í næstu
viku.
Einkavæðing
Landssímans
Gagnlegur fund-
ur með TDC
VERÐBRÉFAÞING Íslands (VÞÍ)
hefur áminnt Hlutabréfamarkaðinn
hf. fyrir brot gegn ákvæðum reglna
þingsins í tengslum við hækkun
hlutafjár í desember og sölu hluta-
fjár án þess að útboðs- og skráning-
arlýsing lægi fyrir. Yfirlýsing VÞÍ
vegna þessa var birt opinberlega á
þinginu í vikunni.
Forsaga þessa máls er sú að á
hluthafafundi Hlutabréfamarkaðar-
ins 17. desember 2001 var samþykkt
lækkun á hlutafé félagsins úr 144
milljónum króna í 86 milljónir. Á
sama fundi fékk stjórn félagsins
heimild til ársloka 2004 til að auka
hlutafé félagsins um allt að 500 millj-
ónir. VÞÍ var tilkynnt um framan-
greinda lækkun á hlutafé.
Í samræmi við umrædda heimild
ákvað stjórn Hlutabréfamarkaðar-
ins 21. desember 2001 að hækka
hlutafé félagsins um 40 milljónir
króna. Um þessa ákvörðun láðist að
tilkynna VÞÍ. Jafnframt láðist að
gera útboðs- og skráningarlýsingu
vegna hækkunarinnar.
Í yfirlýsingunni frá VÞÍ segir að
samkvæmt upplýsingum frá Hluta-
bréfamarkaðinum hafi ný hlutabréf
félagsins verið seld á tímabilinu 27.-
31. desember 2001. Segir í yfirlýs-
ingunni að með þessu hafi félagið
brotið gegn ákvæðum 13. og 29. gr.
reglna Verðbréfaþings nr. 2 um
skráningu verðbréfa á VÞÍ og 17. gr.
reglna nr. 3 um upplýsingaskyldu út-
gefenda verðbréfa.
Hjá VÞÍ fengust þær upplýsingar
að það væri alvarlegt þegar reglur
þingsins væru brotnar. Í þessu til-
viki hafi þótt ástæða til að áminna fé-
lagið og greina jafnframt frá því með
opinberri yfirlýsingu. Af hálfu þings-
ins sé þessu máli þar með lokið.
VÞÍ áminnir Hluta-
bréfamarkaðinn hf.
♦ ♦ ♦