Morgunblaðið - 05.03.2002, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.03.2002, Qupperneq 36
HESTAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI                      !    !   " #$   !  %  $ & $    '   $    $   "                     ÞÓTT landsmót í Reykjavík árið 2000 eigi eftir að skipan veglegan sess í minningarsarpi hestamanna fyrir góðan hestakost, spennandi keppni og gott veður er ekki hægt að horfa fram hjá því að æði margt í framkvæmd mótsins fór úrskeiðis og í sumu tókst hrapallega til. Þetta er fyrsta mótið sem haldið er þegar að- eins tvö ár eru liðin frá síðasta móti og spurning hvort það sé að færa mönnum einhverjar vísbendingar. Í skýrslu framkvæmdastjórans Fann- ars Jónassonar er imprað á þessum þætti en ekki tekin nein afstaða til þess. Eins og lengi hefur legið ljóst fyrir er tap á landsmótinu og það eitt út af fyrir sig mikið reiðarslag fyrir íslenskan hestaheim að ekki skuli hægt að reka landsmót réttum meg- in hryggjar. Landsmótin hafa hingað til þótt vera eftirsótt gullnáma og baráttan um aðgang að þessari námu verið hatrömm innan samtaka hesta- manna og nánast klofið þau um tíma. Þótt mótin hafi ekki verið að skila verulegum hagnaði síðustu árin hafa þau skilað mikilli uppbyggingu og góðum mótssvæðum. Að vísu fer tvennum sögum af- komu landsmótsins 1998 á Melgerð- ismelum þar sem mótshaldarar segja mótið sjálft hafa skilað hagnaði ef ekki er tekinn með kostnaður við framkvæmdir og ýmiskonar upp- byggingu á Melgerðismelum þar sem mótið var haldið. Þá vekur það vissulega upp spurn- ingar um hvort það sé tilviljun að nú þegar í annað skipti sé haldið glæsi- legt stórmót í Reykjavík sé aftur um verulegt tap á mótinu að ræða. Árið 1985 var haldið fjórðungsmót í Reykjavík sem skilaði slæmum skelli sem varð þungur baggi fyrir þau fé- lög sem að mótinu stóðu. Í báðum til- vikum virðist sem aðsókn að mótun- um hafi brugðist og megi rekja ástæður taps til þess. Í skýrslu Fannars segir að tilraunir til að laða að hinn almenna borgara höfuðborg- arsvæðisins hafi misheppnast. Að- eins hinn harði kjarni hestamanna hafi mætt á svæðið og greitt að- gangseyri. Þá nefnir hann einnig til sögunnar fjölmarga viðburði á veg- um Menningarborgar 2000 sem og Kristnitökuhátíðina sem haldin var helgina fyrir landsmótið. Rafn Jónsson, hestamaður á höf- uðborgarsvæðinu, hefur gagnrýnt ýmislegt í framkvæmd landsmótsins og þar á meðal formann stjórnar fé- lagsins, Harald Haraldsson. Sagði Rafn á aðalfundinum að það hefði verið annað upplitið á stjórnarfor- manninum þegar hann hefði kynnt hugmyndirnar þegar unnið var að stofnun félagsins um landsmótshald- ið. Þá hefði Haraldur kynnt glað- hlakkalega að tugir þúsunda myndu streyma á landsmót í Reykjavík og að velta mótsins yrði í kringum 80 milljónir króna. Staðreyndin virðist sú að heildarfjöldi þeirra sem sóttu mótið hefur verið vel innan við tíu þúsund manns og veltan innan við fjörutíu milljónir. Mikið hefur verið gagnrýnt bæði manna á milli og eins á sjálfum aðal- fundinum að aðalfundurinn skuli fyrst haldinn einu og hálfu ári eftir að landsmótinu lauk. Benti Rafn Jónsson á að bæði væru brotnar samþykktir hlutafélagsins og sömu- leiðis landslög um hlutafélög og boð- un aðalfundar og stjórnarkjör. Baðst Haraldur afsökunar á þessum töfum. Fram kom á fundinum að aðalfundur fyrir 2001 yrði haldinn í apríllok. Ef það gengur eftir gæti svo farið að Landsmót 2000 ehf. héldi þrjá aðal- fundi á þessu ári. Í skýrslu Fannars kemur fram að ekki hafi verið staðið nægilega vel að söfnun auglýsinga af þeim sökum tapast verulegar tekjur. Þá þóttu það miklir blóðpeningar sem greiddir voru fyrir tölvukerfi mótsins en það brást á margan hátt og náði hámarki með röngum út- reikningi í tveimur greinum sem voru leiðréttar og má segja að þar hafi verið bjargað því sem bjargað varð. Sömuleiðis þótti mörgum tæplega fjögur hundruð þúsunda króna tap á galakvöldi á Hótel Sögu að loknu móti alger óþarfi og bjartsýni að ætla að stemning væri hjá fólki fyrir slíkri skemmtun eftir sex daga skemmtun. Það verður fróðlegt að sjá hvernig nýju hlutafélagi, Landsmóti ehf., sem standa mun að landsmótinu sem haldið verður í sumar gangi að reka það mót. Spurningin snýst mikið um það hvort landsmótsnáman sé end- anlega uppurin eða hvort nýjum að- ilum tekst að finna nýjar æðar hlaðn- ar góðmálmum og skila landsmóti með góðum hagnaði. Er lands- mótsnáman uppurin? Morgunblaðið/Valdimar Landsmótið í Reykjavík árið 2000 var að mörgu leyti glæsileg og vel heppnuð samkoma þótt ýmislegt hafi farið úrskeiðis og verst þykir mönnum að það skuli ekki hafa skilað hagnaði. Langþráður aðalfundur Landsmóts 2000 ehf. fyrir árið 2000 var haldinn nýlega þar sem lagðir voru fram reikningar félagsins sem er fyrsta opinbera vísbendingin um afkomu lands- mótsins sem haldið var í Reykjavík árið 2000. Valdimar Kristinsson rýndi í bæði reikninga félagsins sem og ársskýrslu. ERFIÐLEGA hefur gengið að finna dagsetningu fyrir Íslandsmót yngri flokka sem upphaflega stóð til að halda í byrjun júní. Er málið nú komið til stjórnar Landssambands hestamannafélaga og er mótið nú sett á sömu dagsetningu og mót fullorðinna 24. til 28. júlí. Sagði Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður samtakanna, að líklega yrði það þrautalendingin að halda bæði mót- in sömu helgina eða þá að mót hinna yngri yrði haldið helgina 20. til 21. júlí. Þá helgi eru Sleipnir og Smári með mót á Murneyri, Snæfellingur með félagsmót á Kaldármelum og Norðlendingar halda bikarmót fyr- ir norðan. Það vakna því spurningar um það hvort þessi vandræði með dagsetn- ingu yngri flokka mótsins verði til þess að horfið verði frá að hafa Ís- landsmótin tvískipt. Skiptingin í fyrra þótti takast með miklum ágætum og flestum þeim sem voru á báðum mótunum þótti ekki spurn- ing um að aðskilnaður væri mun vænlegri kostur. Af annarri uppfærslu á móta- skránni má nefna að Léttir á Ak- ureyri er nú kominn inn með sín mót og þar á meðal Fákaflug sem haldið verður á Melgerðismelum nú þegar mótið er haldið í annað skipti. Þá láta þeir Léttismenn það ekki duga þann mánuðinn því í skrána er einnig komið meistaramót í hesta- íþróttum sem þeir kalla og halda á einnig að Melgerðismelum. Ekki er tekið fram hvort hér er um að ræða lokað félagsmót þeirra Léttismanna eða eitthvað annað og meira. Gæð- ingakeppni sína verða þeir með 25. til 26. maí en úrtöku fyrir landsmót hinn 16. júní. Íslandsmótin líklega saman í eina sæng? ÚTLIT fyrir starfsemi á Sæðing- arstöðinni í Gunnarsholti er gott, að sögn Páls Stefánssonar dýralæknis, en hann og félagi hans Lars Hansen brugðu sér fyrir skömmu til Þýska- lands til að kynna sér frekar fryst- ingu á sæði og meðferð þess. Rekstur stöðvarinnar hefur verið frekar erfiður undanfarin ár og starfsemin staðið og fallið með stóð- hestinum Orra frá Þúfu. Ekki hafa enn náðst samningar milli Orra- félagsins sem er eigandi hestsins og Sæðingastöðvarinnar en aðalfundur félagsins verður haldinn fljótlega og sagði Páll að eftir þann fund yrði væntanlega gengið til samninga um sæðingar úr Orra. Kvaðst hann vera vongóður um að samningar næðust. En hvað sem samningum við Orra- félaginu liði þá væri altént ljóst að tekið yrði sæði úr einhverjum stóð- hestum til frystingar en eins og fram hefur komið hér á hestasíðunni hlaut Sæðingarstöðin framlag úr Stofnverndarsjóði vegna tilrauna með frystingu á sæði. Þá sagði Páll að ekkert væri farið að þreifa fyrir sér um sæðistöku úr öðrum hestum til fersksæðinga í vor. Hvað ferð þeirra félaga viðkæmi sagði Páll hana hafa verið mjög fróðlega. Þeir hefðu sannfærst um að sú aðferð sem þeir hefðu beitt við frystingu sæðis í Gunnarsholti væri alveg í takt við það sem tíðkaðist er- lendis og því ljóst að ekki væri ástæðuna fyrir lélegum árangri við frystingu þar að finna. Sagði hann að árangurinn snerist fyrst og fremst um sæðisgæði einstakra hesta en erlendir dýralæknar full- yrtu að aðeins 2⁄3 stóðhesta væru með nógu gott sæði í frystingu. Þá sagði Páll að mikið myrkur og óstöðugt hitastig hefði neikvæð áhrif á sæðisgæði og að þessum þáttum yrði að huga að varðandi sæðistökuna. Hafði hann í hyggju að tryggja að sextán tíma lýsing yrði hjá þeim stóðhestum sem notaðir verða í tilraunina og jafnframt að hitastig verði sem jafnast. Þá sagði Páll að sæði væri hent fyrstu fjórar til sex vikurnar eftir að byrjað væri að taka úr hestum í Þýskalandi þeg- ar um frystingu væri að ræða. Þá kynntu þeir sér nýja aðferð við sjálfa sæðinguna sem leyfði mun meiri blöndun sæðisins sem þýddi að hver skammtur úr hesti annaði fleiri hryssum. Aðferðin felst í því að notað er speglunartæki við sæð- inguna sem gerir kleift að koma sæðinu fyrir í opi sem liggur inn í eggjaleiðara. Speglunartækið gerir það kleift að setja sæðið á nákvæm- lega réttan stað. Starfsemi á Sæðingarstöðinni í Gunnarsholti hefst í vor Birta og hitastig áhrifa- valdar á sæðisgæði FRAM hafa komið hugmyndir um breytingar á skipan í fagráð í hrossa- rækt. Félag tamningamanna hefur óskað eftir því við stjórn Félags hrossabænda að fá einn fulltrúa í fagráðinu og hefur erindið fengið já- kvæð viðbrögð í stjórn FH. Þá hafa komið fram hugmyndir um að fagaðil- ar sem hafa átt sæti í ráðinu víki en verði þess í stað boðaðir á fundi eftir því sem við á samkvæmt efni fundanna. Er þá hugsað að þeir veiti faglega ráðgjöf um sérfræðileg efni. Þeir aðilar sem um ræðir eru skól- arnir á Hvanneyri og Hólum, yfir- dýralæknisembættið, Landgræðsla ríkisins og Landssamband hesta- mannafélaga. Samkvæmt núgildandi fyrirkomu- lagi sitja sjö fulltrúar í fagráði í hrossarækt þar sem FH skipar fjóra fulltrúa, Bændasamtökin tvo fulltrúa og skólarnir einn fulltrúa. Ef FT fær aðild að ráðinu yrði það í gegnum FH en þá gerði fyrrnefnda félagið tillögu um fulltrúa sem síðarnefnda félagið skipaði í ráðið. Er það sami háttur og hafður var á á sínum tíma þegar LH hafði einn fulltrúa í ráðinu. Hug- myndir þessar gera ráð fyrir að að- eins verði fimm fulltrúar í ráðinu. Bændasamtök Íslands myndu til- nefna tvo fulltrúa og FH þrjá fulltrúa og þar ef yrði einn þeirra frá FT. Kristinn Guðnason, formaður FH og fagráðs, sagði að hér væru á ferð- inni hugmyndir sem hefðu verið til umræðu og verða sjálfsagt eitthvað áfram. Ef breytingarnar ná fram að ganga verður skipað í nýtt ráð með þessum hætti að loknum aðalfundi FH sem verður væntanlega haldinn í apríl. Hann upplýsti einnig að yfir- dýralæknisembættið hefði sótt um fulla aðild að ráðinu. Breytingar á fagráði í hrossarækt í vændum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.