Morgunblaðið - 09.03.2002, Side 1
57. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. MARS 2002
ÍSRAELAR felldu að minnsta kosti
40 Palestínumenn í árásum á palest-
ínsk þorp og flóttamannabúðir í gær,
og Palestínumenn felldu sex Ísraela.
Eru þetta mestu blóðsúthellingar er
orðið hafa í Mið-Austurlöndum á
einum sólarhring í hálft annað ár,
eða síðan nýjasta lota uppreisnar
Palestínumanna gegn hersetu Ísr-
aela hófst í september 2000. Í þess-
ari viku hafa 112 Palestínumenn og
36 Ísraelar fallið.
Átök geisuðu á Gaza-svæðinu og í
flóttamannabúðum á Vesturbakkan-
um klukkutímum saman í gær.
Beitti Ísraelsher skriðdrekum og
þyrlum til árása á Palestínumenn.
„Það rigndi byssukúlum af himnum
úr öllum áttum,“ sagði bóndinn Hat-
em Abu Teir þegar hann lýsti árás
Ísraela á þorpið Khouza á Gaza, þar
sem 16 Palestínumenn féllu.
Í Atzmona, landnemabyggð gyð-
inga, skaut palestínskur byssumað-
ur fimm ísraelska táninga til bana
þegar hann gekk berserksgang í um
stundarfjórðung um miðnættið í
fyrrinótt. Fjórir táninganna féllu
þar sem þeir voru að lesa trúarrit.
Ísraelskir hermenn felldu palest-
ínska byssumanninn.
Bandaríkjastjórn krafðist þess í
gær að Ísraelar hættu tafarlaust
árásum sínum. Talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins sagði
að umfram allt skyldi óbreyttum
borgurum hlíft og nefndi að í gær
hefðu Ísraelar m.a. ráðist á palest-
ínska sjúkraflutningamenn.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hringdi í Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels, og
Yasser Arafat, forseta heimastjórn-
ar Palestínumanna, í gær. Sharon
gaf í skyn að hann hefði fallið frá
þeirri kröfu, sem hann hefur löngum
staðið fastur á, að friðarviðræður
yrðu ekki hafnar nema að vika liði án
átaka. „Viðræður um vopnahlé
munu fara fram í kúlnahríð,“ sagði
hann í viðtali við ísraelska sjónvarp-
ið.
Arafat bað Powell þess lengstra
orða að skerast í leikinn. „Arafat
sagði við [Powell] að Bandaríkja-
menn yrðu tafarlaust að hlutast til
um að Ísraelar létu af hertum árás-
um,“ sagði palestínski þingmaðurinn
Saeb Erekat. Bardagar héldu áfram
í gærkvöldi og telja má víst að tala
þeirra sem féllu í gær eigi eftir að
hækka. Sjónvarpsstöðin CNN sagði
í gærkvöldi að 50 Palestínumenn
hefðu fallið í gær.
Anthony Zinni, sendifulltrúi
Bandaríkjastjórnar, heldur til Mið-
Austurlanda í næstu viku til þess að
reyna að koma á friðarumleitunum.
Ísraelska ríkisstjórnin kemur saman
á morgun til þess að samþykkja
formlega tvær tillögur Bandaríkja-
manna að grundvelli fyrir vopnahlé
og friðarviðræður. Tillögurnar voru
samdar í fyrra, önnur af yfirmanni
bandarísku leyniþjónustunnar,
George Tenet, og hin af alþjóðlegri
nefnd undir forystu Bandaríkja-
mannsins George Mitchells.
Á annað hundrað hefur fallið í átökum í Mið-Austurlöndum undanfarna viku
Mesta mannfall á einum
sólarhring í hálft annað ár
Jerúsalem. AP, AFP.
Bush reynir/26
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að engu
teknetíni, sem er mjög geislavirkt
efni, verði sleppt frá kjarnorkuend-
urvinnslustöðinni í Sellafield á sumri
komanda. Verður það gert í tilrauna-
skyni en að því er fram kemur í
norska blaðinu Aftenposten er ekki
ólíklegt, að þar með verði alveg hætt
að skola efninu út í sjóinn.
Per Strand, deildarstjóri í Geisla-
vörnum norska ríkisins, segir í við-
tali við Bergens Tidende, að þetta sé
mikið fagnaðarefni, þótt breska
stjórnin eigi raunar enn eftir að
leggja blessun sína yfir tilraunina.
Er Strand í nefnd norskra geislasér-
fræðinga og embættismanna, sem að
undanförnu hefur átt viðræður við
stjórnendur Sellafield-stöðvarinnar
og bresk umhverfis- og heilbrigðis-
yfirvöld.
Nú er teknetíninu skolað út í Írska
hafið og þaðan berst það með haf-
straumum norður á bóginn, til Nor-
egs og annarra landa við norðanvert
Atlantshaf. Breska stjórnin og Brit-
ish Nuclear Fuels, sem á og rekur
Sellafield-stöðina, hafa hingað til
haldið því fram, að ekki sé önnur leið
til að losna við efnið.
Børge Brende, umhverfisráðherra
Noregs, segir, að með ákvörðun
Sellafield-stöðvarinnar standi nú öll
spjót á bresku stjórninni. Segir
hann, að það yrði henni til skammar
ef hún samþykkti ekki tilraunina. Á
hinn bóginn sé við öllu að búast af
henni þegar Sellafield er annars veg-
ar.
Ekkert
teknetín
frá Sella-
field?
SORIA Parkla, sem er einn af leið-
togum afganskra kvenna í barátt-
unni fyrir auknum mannréttindum,
veifar til vinar síns og faðmar aðra
konu í ráðuneyti málefna kvenna í
Kabúl í gær. Alþjóðlegur baráttu-
dagur kvenna var haldinn hátíðleg-
ur víða um heim í gær og í fyrsta
sinn í 11 ár í Afganistan.
AP
Konur fagna
BANDARÍSKIR hermenn sitja við
Chinook-herþyrlur alþjóðaliðsins á
flugvellinum í Bagram, skammt
norður af Kabúl í Afganistan í gær.
Liðinu, sem berst gegn harð-
skeyttum eftirhreytum al-Qaeda-
liðsins í fjallahéruðum Austur-
Afganistan, berst nú liðsauki þar
sem eru afganskir hermenn og
vopn. Alls eiga um þúsund afgansk-
ir hermenn að bætast í hópinn, en
af þeim eru sex hundruð þegar
komnir á bardagasvæðin. Óhag-
stætt veður mun hafa að mestu
komið í veg fyrir loftárásir í gær.
Bandarískir embættismenn segja
að fimm til sex hundruð al-Qaeda-
liðar hafi verið felldir síðan aðgerð-
in Anaconda hófst í síðustu viku. Er
sú tala mun hærri en Bandaríkja-
menn höfðu áætlað heildarfjölda
þeirra al-Qaeda-manna sem enn
væru undir vopnum í Afganistan.
Þörfin fyrir liðsaukann varð brýn
þegar í ljós kom hversu miklu fjöl-
mennari andstæðingarnir voru en
búist hafði verið við. Staðfest tala
fallinna hermanna í alþjóðaliðinu
var enn átta í gær.
Haft var eftir bandarískum sveit-
arforingjum, að hart hefði verið
barist í gær, en alþjóðaliðið mætti
ekki lengur fjölmennum hópum al-
Qaeda-liða, heldur einungis fá-
mennum flokkum, sem væru þó
harðir í horn að taka. Mannfall í
röðum al-Qaeda hefði verið mikið
síðasta sólarhringinn, en sveit-
arforingjarnir bandarísku nefndu
engar tölur um það. Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í Washington að
hann vænti þess að draga myndi úr
bardögum á næstunni.
AP
Fá liðsauka
MÖRGUM til nokkurra von-
brigða hefur komið í ljós, að al-
heimurinn er ekki fölgrænn eins
og haldið var fram fyrir
skömmu, heldur bara hvers-
dagslega ljósbrúnn. Misskiln-
ingurinn stafar af villu í hugbún-
aði tölvunnar, sem notuð var til
að litgreina ljósadýrðina.
Tveir stjarnfræðingar við
Johns Hopkins-háskólann til-
kynntu í janúar, að þeir hefðu
fundið litarsamnefnara ljóssins
frá 200.000 vetrarbrautum og
ályktuðu út frá því, að væri hann
greinanlegur mannlegu auga
myndi alheimurinn birtast í föl-
grænum lit.
Þeir félagarnir, Karl Glaze-
brook og Ivan Baldry, segja nú,
að þetta sé ekki alveg rétt. Það
megi rekja til þess, að vegna
villu í hugbúnaði tölvunnar var
ekki notast við hinn eina, sanna
hvíta lit, heldur afbrigði af hon-
um. Þegar því var blandað sam-
an við önnur litbrigði kom út föl-
græni liturinn.
Engir stjórnmálamenn
„Þetta er dálítið leiðinlegt en
svona eru vísindin,“ sagði Glaze-
brook. „Við erum hins vegar
engir stjórnmálamenn, heldur
vísindamenn og viðurkennum
mistökin. Alheimurinn virðist
ljósbrúnn, þótt ég sé ekki alveg
viss um hvað eigi að kalla það.“
Þeir Glazebrook og Baldry
segja, að litgreiningin þjóni í
sjálfri sér engum vísindalegum
tilgangi og aðallega til gamans
gerð. Hins vegar hefði fréttin
vakið mikla athygli og margir
litasérfræðingar eða litaverk-
fræðingar haft samband við þá
og beðið um eintak af hugbún-
aðinum. Það voru síðan þeir,
sem komu auga á villuna.
Alheim-
urinn er
ljósbrúnn
Washington. AP.
RÚSSNESKI skákmaðurinn Garrí
Kasparov og Úkraínumaðurinn
Ruslan Ponomariov, heimsmeistari
FIDE í skák, eru efstir og jafnir á
skákmótinu í Linares á Spáni, og
mætast í næstsíðustu umferð móts-
ins í dag.
Ponomariov bar sigurorð af Spán-
verjanum Francisco Vallejo í 12. um-
ferð, sem fór fram í gær, og Kasp-
arov gerði jafntefli við Englend-
inginn Michael Adams. Kasparov
mun stýra hvítu mönnunum í skák-
inni í dag. Skák hans við Ponomariov
í sjöttu umferð mótsins lauk með
jafntefli.
Kasparov
og Ponom-
ariov jafnir
Linares. AP.