Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ SELLÓLEIKUR hefur átt hug og hjarta Sæunnar Þorsteinsdóttur allar götur síðan hún var fimm ára gömul og stundaði nám í Suzuki- skólanum í Reykjavík. Undanfarin tíu ár hefur hún búið í bænum Bet- tendorf í Iowa-fylki í Bandaríkj- unum og í dag, 17 ára að aldri, hef- ur hún náð þeim árangri að fá að spila sem einleikari með virtri sin- fóníuhljómsveit. En til þess vann hún með því að sigra í tónlist- arkeppninni Des Moines Young Artist Competition á dögunum. Þá mun hún einnig í dag koma fram í útvarpsþættinum From the Top á útvarpsstöðinni National Public Radio. Þar ætlar hún að flytja eitt af eftirlætis verkum sín- um, Álfadans eða Dance of the Elv- es, eftir David Popper, auk þess sem tekið verður viðtal við hana í þættinum. Fyrsta sinn sem nemandi úr yngri deild fær að spila með Keppnin fór fram í Des Moines í Iowa og þar keppti Sæunn á móti öðrum strengjaleikurum. Sigur Sæ- unnar og tilboð um einleik með sin- fóníunni í kjölfarið hefur vakið at- hygli fjölmiðla og hafa á undanförnum dögum birst blaða- greinar vestra þar sem fjallað er m.a. um þann heiður sem þessi ungi sellóleikari hefur orðið aðnjótandi. Í keppninni eru tvær deildir, yngri og eldri deild og keppti Sæ- unn í yngri deildinni. „Svo vann ég líka þetta einstaka tækifæri að spila með Des Moines-sinfóníunni,“ segir Sæunn og tilhlökkunin er greinileg í röddinni. „Þetta er víst í fyrsta sinn sem þátttakandi í yngri deild keppninnar fær þetta tækifæri, þannig að þetta er mjög skemmti- legt,“ útskýrir Sæunn hlæjandi. Hún segir ekki mikið fara fyrir taugatitringi, tilhlökkunin sé öðr- um tilfinningum yfirsterkari. Sæ- unn ætlar að spila Shostakovich, sellókonsert nr. 1 með sinfón- íuhljómsveitinni. „Þetta er auðvitað í fyrsta skipti sem ég spila einleik með „alvöru“ sinfóníuhljómsveit,“ segir Sæunn en áður hafði hún spil- að með sinfóníu sem skipuð var unglingum. Sæunn játar því að það sé draumur hennar að spila með svona stórri sinfóníuhljómsveit. „Já, ef ég kæmist inn í hljómsveit væri það fínt og ef ég kæmist í kvartett eða eitthvað slíkt væri það líka æðislegt.“ En hvernig er hægt að keppa í tónlist? Sæunn hlær og líkir keppninni við inntökupróf í tónlistarskóla. „Það er metið hversu góður maður er á sellóið, hversu hreint og skýrt maður spilar og svo líka sú tilfinn- ing fyrir tónlistinni sem maður hef- ur.“ Mestu máli skiptir að fá tækifæri til að spila Sæunn segir umfjöllun um sig- urinn í keppninni og sinfóníutón- leikana nú um helgina í fjölmiðlum jákvæða en að mestu máli skipti að fá tækifæri til að leika á sellóið. „Það sem skiptir mestu er að fá að koma fram og spila með öðrum. Í þessu felst mikil æfing fyrir mig.“ Áður en Sæunn flutti ásamt for- eldrum sínum til Iowa, þeim Ólöfu Jónsdóttir fiðlukennara og Þor- steini Skúlasyni lækni, var hún í Tónlistarskólanum á Akureyri og þar áður í Suzuki-skólanum í Reykjavík. Nú stundar hún hins vegar tónlistarnám undir leiðsögn Tanyu Carey ásamt því að stunda almennt nám í menntaskóla í heimabænum. „Það er rosalega erf- itt að vera bæði í venjulegum skóla og þurfa svo að æfa sig heilmikið og fara út um allt og spila.“ En af hverju selló? „Það syngur svo rosalega og er svo æðislegt hljóðfæri sem auðvelt er að spila á í hópi með öðrum,“ en sellóið hennar Sæunnar er smíðað af íslenska fiðlusmiðnum Hans Jóhannssyni. Íslendingar hafa lítið fengið að heyra Sæunni leika á sellóið sitt síð- an hún flutti til Bandaríkjanna en senn gæti orðið breyting þar á. „Ég ætla að reyna að koma í sumar og spila á Íslandi,“ segir Sæunn og spennings gætir í röddinni. „Ég kann sæmilega við mig í Betten- dorf, en mig langar að flytja heim eða til austurstrandarinnar.“ Íslensk stúlka leikur einleik með Des Moines-sinfóníunni í dag og á morgun Með syngjandi selló í Vesturheimi Þessi grein um Sæunni birtist á fimmtudag í Bettendorf News. Sæunn Þorsteinsdóttir með sellóið sitt. SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að þróunaraðstoð sem beint væri sérstaklega að konum skilaði meiri árangri en hefðbundin þróun- araðstoð. Siv sat í gær, á alþjóðleg- um baráttudegi kvenna, fund í Finn- landi með 20 kvenumhverfisráð- herrum sem komu alls staðar að úr heiminum. Að fundinum stóðu finnska umhverfisráðuneytið, Al- þjóðlegu náttúruverndarsamtökin og Heimssamtök kvenleiðtoga. Vig- dís Finnbogadóttir er fyrsti formað- ur ofangreindra samtaka og sat hún einnig fundinn. Þetta var í fyrsta skipti sem kven- umhverfisráðherrar í heiminum, sem eru samtals 38 nú um stundir, koma saman til fundar. Siv sagði að tilgangur fundarins hefði verið að ræða annars vegar um það mikil- væga hlutverk sem konur gegna í umhverfismálum og hins vegar um leiðtogafund um sjálfbæra þróun sem haldinn verður í S-Afríku í haust. „Það kom fram á fundinum að þróunaraðstoð til kvenna skilar meiri árangri en þessi hefðbundna þróunaraðstoð. Konur gegna lykil- hlutverki í lífsgæðum fólks. Í Afríku framleiða konur 80% af þeim mat- vælum sem framleidd eru í álfunni. Reynslan hefur sýnt að þróunarað- stoð sem snýr beint að þeim, eins og aðstoð við að kaupa þreskivélar og gera þeim auðveldara að ná í gott vatn, hefur skilað sér mjög vel. Þró- unaraðstoð sem snýr að menntun kvenna skilar sér einnig mun betur til næstu kynslóðar á eftir en mennt- un sem beinst hefur að körlum,“ sagði Siv. Mikilvægt að konur komi að ákvarðanatöku Siv sagði að á fundinum hefði mik- ið verið rætt um að lönd sem hafa bætt aðbúnað, réttindi og stöðu kvenna hefðu náð að byggja upp efnahagslegan styrk hraðar, stæðu betur að umhverfismálum og þar ríkti minni spilling en í löndum þar sem konur hefðu ekki haslað sér völl. „Til að stuðla að sjálfbærri þróun, en hún snertir umhverfismál, efna- hagsmál og félagsmálum, er mjög mikilvægt að konur fái aukin áhrif og að þær taki meiri þátt í ákvarð- anatöku heldur en nú er, bæði í stjórnmálum og í atvinnulífi.“ Siv sagði að einnig hefði mikið verið rætt um þann mikla vanda sem skapaðist vegna flutnings fólks úr dreifbýli í borgir. Nefnt hefði verið á fundinum að daglega flyttu 180 þús- und manns í heiminum í borgir. „Þetta er alþjóðlegur vandi sem veldur miklum umhverfisskaða. Mengun stóreykst í þessum borgum og þar skapast heilsufarsvandamál. Þessi þróun stuðlar að hærri glæpa- tíðni o.s.frv.“ Siv sagði að Íslendingar hefðu í auknum mæli verið að beina þróun- araðstoð sinni til kvenna. Ísland væri aðalbakhjarl Unifem í Kosovo. Fyrir tilstuðlan Íslands væru starf- andi jafnréttisráðgjafar í Mosambik, Malaví og Úganda. Siv sagði að á fundinum hefði komið fram mikill áhuga á að fram- hald yrði á samstarfi kvenumhverf- isráðherranna. Siv Friðleifsdóttir á fundi kvenumhverfisráðherra Árangursríkt að beina aðstoð að konum Satu Hassi, umhverfisráðherra Finnlands, Vigdís Finnbogadóttir, fyrsti formaður Heimssamtaka kvenleiðtoga, og Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra sátu fundinn í Finnlandi „Kvenleiðtogar og umhverfismál.“ UPPSTILLINGARNEFND stjórn- málaflokkanna sem standa að Reykjavíkurlistanum hefur komist að niðurstöðu varðandi skipan í 7. og 12. sæti framboðslistans við borgar- stjórnarkosningarnar í maí. Dagur B. Eggertsson læknir skipar 7. sætið og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir mið- borgarprestur skipar það 12. Flokkarnir þrír þurfa ekki að samþykkja val nefndarinnar Nefndina skipuðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Guð- jón Ólafur Jónsson fyrir Framsókn- arflokkinn, Guðrún Ögmundsdóttir fyrir Samfylkinguna og Steinar Harðarson fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Þau kynntu nið- urstöðu sína á blaðamannafundi í gær og sögðu hana einróma. Eftir að flokkarnir hefðu komist að niður- stöðu um röðun á listann hefði upp- stillingarnefnd verið falið að finna frambjóðendur sem ekki tengdust flokkunum til að skipa áðurnefnd tvö sæti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði nefndina hafa ákveðið að leita til fólks úti í samfélaginu sem hefði reynslu og þekkingu sem væri eft- irsóknarverð fyrir borgarstjórn Reykjavíkur. Sagði hún nöfn þeirra Dags B. Eggertssonar og Jónu Hrannar Bolladóttur hafa komið fyrst upp hjá nefndinni og einhugur væri um þau hjá henni. Flokkarnir þrír þurfa ekki að sam- þykkja val uppstillingarnefndarinn- ar sérstaklega en á fundi þeirra 14. mars næstkomandi verður fram- boðslistinn í heild sinni borinn upp til samþykktar hjá þeim. Morgunblaðið/Ásdís Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kynnir niðurstöðu uppstillingarnefndar Reykjavíkurlistans. Dagur B. Eggertsson er henni á vinstri hönd, Jóna Hrönn Bolladóttir hægra megin og loks Guðjón Ólafur Jónsson. Uppstillingarnefnd Reykjavíkur- listans hefur lokið störfum Dagur B. Eggertsson og Jóna Hrönn Bolla- dóttir í 7. og 12. sæti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.