Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 23
Antikhúsgögn
og listmunir
Antik Kuriosa
Grensásvegi 14
símar 588 9595
og 660 3509
Opið
mán-fös. frá kl. 12-18
Lau. frá kl 12-17
OLÍUFÉLAGIÐ hf., Tryggingamið-
stöðin hf. og samstarfsaðilar hafa selt
Vísi hf. í Grindavík 45% eignarhlut í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf. Skrif-
að var undir samninga þess efnis í
Reykjavík í gær. Seljendur hlutabréf-
anna eignast í staðinn hlut í Vísi hf.
Vísir hf. er öflugt sjávarútvegsfyr-
irtæki og verður nú með starfsemi í
öllum landsfjórðungum: þ.e. í Grinda-
vík, á Þingeyri (Fiskvinnslan Fjölnir),
á Djúpavogi (Búlandstindur) og á
Húsavík (Fiskiðjusamlag Húsavíkur).
Vísir á og gerir út 7 línu- og netaskip
og er stærsta línuútgerðarfyrirtæki
landsins. Megináhersla er lögð á báta-
útgerð og landvinnslu. Gert er ráð
fyrir að með kvóta allra fjögurra fyr-
irtækjanna verði hægt að afla sem
nemur 14–16 þúsund tonnum, sem er
nálægt hráefnisþörf fiskvinnsluhús-
anna fjögurra í samstæðunni.
Markmiðið með kaupum hluts í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf. er að
efla útgerðarþátt samstæðunnar og
breikka framleiðslulínuna í landi.
Stefnt er að aukinni framleiðslu í
landi á öllum stöðum þar sem Vísir hf.
er með starfsemi.
Vísir hf.
Vísir hf. í Grindavík var stofnað
1965 af Páli H. Pálssyni og fjölskyldu
hans, sem eiga það og reka. Velta Vís-
is árið 2001 var 3,5 milljarðar króna.
Veiðiheimildir eru 9.500 þorskígildis-
tonn.
Á síðasta ári voru framleidd 4.000
tonn af blautverkuðum fiski, 1.500
tonn af frystri síld og 30 þús. tunnur
af saltaðri síld. Mest af framleiðslunni
fer á markað á Spáni, Ítalíu og í
Grikklandi.
Vísir hf. rekur fiskvinnslu á þremur
stöðum, í Grindavík er saltfiskverkun.
Vísir hf. keypti meirihluta í Búlands-
tindi hf. á Djúpavogi árið 1999 og á nú
um 90% í fyrirtækinu. Rekstrinum
var breytt verulega og áhersla lögð á
bolfisk- og síldarvinnslu.
Vísir hf. tók þátt í að stofna Fisk-
vinnsluna Fjölni á Þingeyri í ágúst
1999, með atbeina Byggðastofnunar.
Vísir á tæplega helming fyrirtækisins
og annast rekstur þess.
Starfsmenn eru alls um 200 og tel-
ur skipaflotinn: 7 línuskip, 200–300
brúttótonn að stærð: Hrungnir
GK-50, Sighvatur GK-57, Freyr
GK-157, Fjölnir ÍS-7, Sævík GK-257,
Sunnutindur SU-59 og Páll Jónsson
GK-7.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur leggur
megináherslu á bolfisk- og rækju-
vinnslu. Fyrirtækið er ekki með eigin
útgerð en er í veiðisamstarfi við Sam-
herja hf. Fyrirtækið var stofnað árið
1947 og er því meðal elstu sjávarút-
vegsfyrirtækja landsins. Velta FH ár-
ið 2001 var um 2 milljarðar króna og
varð hagnaður af rekstri um 130 millj-
ónir króna.
Veiðiheimildir eru um 2.000 þorsk-
ígildistonn. Á síðasta ári var unnið úr
3.000 tonnum af bolfiski og 8.000
tonnum af rækju. Framleidd voru
1.700 tonn af frosnum bolfiskafurðum
og 2.000 tonn af pillaðri rækju. Starfs-
menn eru alls um 120. Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf. er skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands.
Vísir í Grinda-
vík eignast 45%
í Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur
Morgunblaðið/Kristinn
Páll H. Pálsson og Margrét Sighvatsdóttir, eigendur Vísis hf., ásamt Geir Magnússyni, forstjóra eignarhaldsfélags
Olíufélagsins hf., við undirritun samnings um kaup Vísis á eignarhlut í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
FISKMARKAÐUR Íslands hf. hef-
ur keypt 2⁄3 hlutafjár í Fiskmarkaði
Suðurlands ehf. Fiskmarkaður Ís-
lands er með starfstöðvar í 7 höfn-
um, þ.e. Reykjavík, Akranesi, Arn-
arstapa, Rif, Ólafsvík, Grundarfirði
og Stykkishólmi. Fiskmarkaður
Suðurlands er með eina starfstöð í
Þorlákshöfn, um er að ræða sams-
konar starfsemi hjá báðum félögum
þ.e. rekstur uppboðsmarkaðar fyrir
fisk.
Á árinu 2001 seldi Fiskmarkaður
Íslands hf. 36.765 tonn, Fiskmark-
aður Suðurlands seldi 6.924 tonn.
Kaupverðið er að fullu greitt með
peningum og hefur Fiskmarkaður
Íslands hf. ekki tekið lán fyrir kaup-
unum. Tilgangur Fiskmarkaðs Ís-
lands hf. er að auka rekstrarhagræði
þessara tveggja eininga. Ákvörðun
um samruna félaganna liggur ekki
fyrir á þessari stundu.
Kaupa í
fiskmarkaði