Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 57
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 57 ÞAÐ verður mikið um að vera í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði á morgun sunnudaginn 10. mars. Hinn síungi karlakór okkar Hafnfirðinga, Þrest- ir, mun koma fram við guðsþjónustu og syngja fyrir kirkjugesti auk þess að leiða almennan safnaðarsöng. Kórinn heldur á þessu ári upp á 90 ára afmæli og hélt af því tilefni tón- leika fyrir skömmu sem vöktu mikla athygli. Það verður því gaman að fá að hlýða á þeirra fallega söng í Frí- kirkjunni á morgun. Stjórnandi kórsins er Jón Kristinn Cortes. Prestar kirkjunnar, þau Einar og Sigríður Kristín, flytja sam- talspredikun sem ber heitið Á ég að gæta bróður míns. Guðsþjónustan hefst kl.13 og er vakin athygli á breyttum messutíma í vetur. Að lok- inni guðsþjónustu hefst svo hinn skemmtilegi basar Kvenfélagsins í safnaðarheimilinu og örugglega hægt að gera þar góð kaup til styrktar málefnum kirkjunnar. Það eru allir hjartanlega vel- komnir. Starfsólk Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði. Kirkjudagur Safnaðarfélags Ásprestakalls ÁRLEGUR kirkjudagur Safn- aðarfélags Ásprestakalls er á morg- un, sunnudaginn 10. mars. Um morguninn verður barnaguðsþjón- usta í Áskirkju kl. 11 og síðan guðs- þjónusta kl. 14. Sóknarprestur pré- dikar og Kirkjukór Áskirkju syngur undir stjórn Kára Þormar organista. Meðal annars mun kórinn flytja tón- list eftir Grieg. Eftir guðsþjónustuna og fram eft- ir degi verður kaffisala í Safn- aðarheimili Áskirkju. Allur ágóði af kaffisölu kirkjudagsins rennur til starfa félagsins í þágu barna- og unglingastarfs Áskirkju, og starfa í þágu aldraðra, en kirkjudagurinn hefur lengi verið einn helsti fjáröfl- unardagur Safnaðarfélagsins. Eins og jafnan á kirkjudeginum verða glæsilegar veitingar á boð- stólum og vona ég að sem flest sókn- arbörn og velunnarar Áskirkju leggi leið sína til hennar á sunnudaginn og styðji starf Safnaðarfélagsins. Bifreið mun flytja íbúa dval- arheimila og annarra stærstu bygg- inga sóknarinnar að og frá kirkju. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Fjölskylduguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju EINS og verið hefur í vetur annan sunnudag hvers mánaðar erum við í Árbæjarkirkju með fjölskylduguðs- þjónustu kl.11. Núna á sunnudaginn fáum við skemmtilega gesti í heim- sókn til okkar. Stoppleikhópurinn kemur og sýnir barnaleikritið „Æv- intýri Kuggs og Málfríðar“. Leik- gerðin er byggð á hinum vinsælu barnabókum Sigrúnar Eldjárn um Kugg og Málfríði sem mörg börn kannast við af lestri bókanna. „Þetta er hlý og falleg saga um vináttuna og hvernig megi brúa kynslóðabilið þar sem ímyndunaraflið finnur sér sameiginlegan leikvöll.“ Viljum við í Árbæjarkirkju hvetja börn til að fá pabba og mömmu, afa og ömmu til að koma og eiga góða stund í kirkjunni. Þessar stundir okkar hafa mælst vel fyrir hjá safn- aðarfólki og hjá mörgum orðnar fastur punktur í tilverunni að koma í fjölskylduguðsþjónustu annan sunnudag hvers mánaðar. Enda er viðleitnin sú að bjóða upp á fjöl- breytt form guðsþjónustuhalds í við- bót við allt annað starf sem unnið er af krafti í kirkjunni. Á eftir er boðið upp á léttar veitingar. Grafarvogsbúar sækja Vestmannaeyjar heim DAGANA 8.–10. mars munu Graf- arvogsbúar sækja Vestmannaeyjar heim. Kór Grafarvogskirkju og Barna- og unglingakór kirkjunnar munu halda tónleika ásamt Kirkju- kór og Barna-og unglingakór Landakirkju. Tónleikarnir verða kl.18:00 í Landakirkju. Stjórnendur og kórstjórar eru þau Guðrún Helga Bjarnadóttir, Guðmundur H. Guðjónsson organisti í Vestmannaeyjum, Oddný J. Þor- steinsdóttir og Hörður Bragason organisti í Grafarvogskirkju. Allir eru velkomnir. Hátíðarguðsþjónusta á sunnudag kl.11:00 Sunnudaginn 10. mars kl. 11:00 verður hátíðarguðsþjónusta í Landakirkju. Þar munu prestarnir í Vestmanneyjum þau séra Kristján Björnsson og séra Bára Friðriks- dóttir þjóna fyrir altari ásamt prest- um Grafarvogskirkju þeim séra Vig- fúsi Þór Árnasyni, séra Önnu Sigríði Pálsdóttur og séra Bjarna Þór Bjarnasyni sem mun prédika. Séra Bjarni Þór þjónaði í afleysingum prestanna í Vestmanneyjum á ár- unum 1991–1997. Allir kórar kirkjunnar munu syngja í messunni. Einsöng flytur Anna Cawalinska Kvöldmessa í Laugarneskirkju NÚ er komið að kvöldmessu mars- mánaðar í Laugarneskirkju á morg- un, sunnudag. Sem fyrr er það djass- inn sem dunar á frá kl. 20:00. Gunnar Gunnarsson leikur á píanó, Sigurður Flosason á saxófón, Matthísas M.D.Hemstock leikur á trommur og Tómas R Einarsson á kontrabassa. Kl. 20:30 hefst messan. Þar syngur kór Laugarneskirkju ásamt Þorvaldi Halldórssyni, en auk þess mun söngkonan Anna Pálína Árnadóttur frumflytja lag með texta eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Prestshjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson þjóna ásamt Eygló Bjarnadóttur meðhjálpara. Að messu lokinni verður boðið til fyrirbæna á kórlofti kirkjunnar í umsjá Margrétar Scheving sál- gæsluþjóns og hennar samstarfs- fólks. Messukaffið bíður svo okkar allra yfir í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Allt fólk er velkomið. Tólf sporin – Andlegt ferðalag HÓPUR fólks sem hefur unnið sam- kvæmt bókinni Tólf sporin andlegt ferðalag hefur tekið sig saman um að verða samferða lengra áleiðis. Komið er saman annan mánudag hvers mánaðar kl.18:00 í safn- aðarheimili Laugarneskirkju, og því verður fundað mánudaginn 11. mars. Þau sem þekkja sporin tólf og annað áhugasamt fólk er velkomið. Vinir í bata. Kaffisala í Óháða söfnuðinum FJÖLSKYLDUMESSA verður í Óháða söfnuðinum sunnudaginn 10. mars kl. 14. Að henni lokinni verður kaffisala Kvenfélagsins til styrktar Bjargarsjóði, líknarsjóði Óháða safnaðarins. Björg Ólafsdóttir, al- nafna Bjargar, sem stofnaði Bjarg- arsjóðinn og sjóðurinn er kenndur við, prédikar og 3 aðrar Bjargir lesa ritningarlestra. Allir eru meira en hjartanlega vel- komnir þar sem nóg verður af margs konar meðlæti hjá kven- félagskonum. Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta í Grafarvogskirkju BARNA- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Grafarvogskirkju kl. 11:00 og barnamessa í Engjaskóla kl. 13:00. Brúðuleikhúsið kemur í heim- sókn. Umsjón: Ása, Bryndís, Hlín og Jóhanna Ýr. Organisti: Guðlaugur Viktorsson. Rætt um trú í nútímaþjóðfélagi í Hallgrímskirkju Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms- kirkju á morgun kl. 10:00 mun séra Halldór Reynisson verkefnisstjóri á Biskupsstofu flytja erindi um efnið: Trú í nútímaþjóðfélagi. Tilefni þessa fyrirlesturs er umræða með for- eldrum fernmingarbarna síðastliðið haust, þar sem þess var sérstaklega óskað að þetta efni væri tekið til um- ræðu. Efni þetta má ræða frá mörg- um sjónarhornum. Er trúin að verða úrelt í nútíma upplýstum sam- félögum? Er kirkjan að verða við- skila við fólkið í landinu vegna staðnaðra forma og úreltra trúar- kenninga? Hvernig birtist trú fólks nú til dags, ef það hefur þá einhverja trú? Séra Halldór mun án efa skyggnast um víðan völl í erindi sínu og svara síðan fyrirspurnum. Að er- indinu loknu hefst guðsþjónusta með þátttöku fermingarbarna, í umsjá séra Jóns Dalbú Hróbjarts- sonar og barnastarf í umsjá Magneu Sverrisdóttur. Kristniboðsvikan 2002 – Hressing fyrir alla SAMKOMA í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg sunnudag kl. 17:00. Jón Þór og félagar taka lagið, viðtal, myndbandsbútur og Bjarni Gíslason talar. Barnasamkoma f. 6 ára og eldri og gæsla fyrir yngri. Matur seldur á vægu verði eftir samkomuna. Kvik- myndavaka um kvöldið kl. 20:00 í umsjá Gunnars J. Gunnarssonar. Samkomurnar halda áfram þriðjudag, miðvikudag og fimmtu- dag í Kristniboðssalnum, Háaleit- isbraut 58–60, 3.h., norðurenda, með dagskrá er hefst 20:15. Fylgist með á www.sik.is Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomurnar! Kyrrðarstundir í Möðruvallakirkju SÚ nýbreytni hefur verið nú á föst- unni að boðið hefur verið til kyrrð- arstunda í hádeginu á þriðjudögum í Möðruvallakirkju í Hörgárdal. Þetta form sem hefur rutt sér víða til rúms í þéttbýlinu virðist henta til sveita einnig. Litið er á þetta sem tilraun á föstunni, en fastan er einmitt tími íhugunar og undirbúnings undir gleði páskanna. Form kyrrðarstundanna er með þeim hætti að frá kl. 12 á hádegi leikur sr. Gylfi Jónsson á orgel í um 10 mínútur, þá er sunginn sálmur, lesið úr ritningunni og boðið til alt- aris. Þá er fyrirbænastund þar sem beðið er fyrir þeim bænarefnum sem berast annaðhvort áður en stundin hefst eða á stundinni sjálfri. Þau sem ekki sjá sér fært að mæta geta hringt til sóknarprestsins sr. Sol- veigar Láru Guðmundsdóttur í síma 462 1963 og beðið fyrir fyr- irbænaefni. Eftir stundina, sem lýk- ur um kl. 12:30 er boðið upp á súpu og brauð á prestssetrinu. Gospeltónlist í Hafnarfjarðarkirkju VIÐ tónlistarmessu í Hafnarfjarð- arkirkju sunnudaginn 10. mars kl.17.00 mun Kór kirkjunnar undir stjórn Natalíu Chow flytja gosp- eltónlist með léttri sveiflu. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Gospeltónlist er mjög grípandi enda tjáir hún von- ir þjáðra um lausn úr hlekkjum kúg- unar og misréttis og hefur verið aflavaki félagslegra umbóta. Hún samræmist því vel boðskap föst- unnar um baráttu frelsarans við eyðileggingaröfl og syndafjötra og þeirri trú um sigur hans, sem pásk- arnir vekja. Um morguninn kl. 11.00 fer fram árdegisguðsþjónusta. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Sameiginlegar kristniboðssamkomur á Akureyri SAMEIGINLEGAR kristniboðs- samkomur á vegum KFUM og K, Sjónarhæðar og Hjálpræðishersins verða haldnar í sal KFUM og K í Sunnuhlíð, laugardagskvöldið 9. mars og sunnudagskvöldið 10. mars kl. 20.30. Ræðumaður er Estiphanos Berrisha frá Eþíópíu. Mál hans verð- ur túlkað á íslensku.. Hann hefur m.a. þýtt Nýja testamentið á Kons- ómál og starfað sem útbreiðslustjóri kirkjunnar og kennt í einum af bibl- íuskólum hennar. Þrastasöngur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði Fríkirkjan í Hafnarfirði. Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14. Farið verður í heimsókn í Ömmukaffi, Aust- urstræti. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir kynnir miðborgarstarfið. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa- vogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lof- gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Létt hressing eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel- komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Akureyrarkirkja. Hádegistónleikar í Akur- eyrarkirkju kl. 12. Björn Steinar Sólbergs- son, organisti, leikur á orgel kirkjunnar. Lesari er sr. Svavar A. Jónsson. Hádeg- ishressing til sölu í Safnaðarheimili eftir tónleika. Málþing um manngildi og mann- réttindi á viðsjárverðum tímum í Safnaðar- heimili kl. 13.30. Frummælendur: Dr. Björn Björnsson, prófessor við guðfræði- deild Háskóla Íslands, dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, forseti kennaradeild- ar Háskólans á Akureyri, og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslands- deildar Amnesty International. Þingstjóri: Birgir Guðmundsson, fréttastjóri DV. Safnaðarstarf FRÉTTIR RÍKISKAUP hafa ákveðið að ganga til samstarfs við ANZA um hýsingu og rekstur á nýju landskerfi bóka- safna. Samningurinn er til fjögurra ára. Markmið Landskerfis bókasafna er að tryggja landsmönnum aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast til náms, í starfi og í leik. Áætlað er að kerfið þjóni öllum landsmönnum, hýsi allt að 2 milljónir bókfræðifærslna, 5 milljónir eintaka og ráði við allt að 5 milljónir útlána á ári. Allir helstu aðilar á sviði kerf- isveitu og hýsingar gerðu tilboð í þessa þjónustu. Flestöll bókasöfn landsins verða í landskerfi bókasafna. Þau nota bókasafnshugbúnaðinn ALEPH, sem er einn algengasti hugbúnaður heims á þessu sviði. Með landskerfi bókasafna verður hægt að nálgast upplýsingar um bækur og skjöl í öll- um söfnunum í gegnum tölvur sem tengdar eru við Netið. Bókasöfnin verða í gagnsambandi við ANZA í gegnum Netið. Hugbúnaðarkerfið og gagnagrunnurinn fyrir landskerf- ið er einnig hýstur hjá ANZA, segir í fréttatilkynningu. Ríkiskaup semja við ANZA um landskerfi bókasafna ML ÚTSKRIFTARHRINGARNIR komnir aftur. Á árum áður var það hefð að útskriftarnemar Mennta- skólans að Laug- arvatni létu smíða fyrir sig hringa með merki skól- ans, svo kallaða útskriftarhringa. Af einhverjum ástæðum féll sú hefð í gleymsk- unnar dá og hefur ekki verið við lýði s.l. tuttugu ár eða svo. Nú hefur útskriftarhópur ML vorsins 2002 ákveðið að hefja upp þessa forn- frægu hefð og það sem meira er að bjóða útskrifuðum ML-ingum uppá að eignast slíkan kostagrip. Nú geta þeir ML-ingar sem misstu af hefðinni eða hafa viljað endurnýja gripinn tekið gleði sína á ný. Þeir sem vilja eignast gripinn er bent á heimasíðu ML, www.ml.is í tilkynn- ingar. ML útskrift- arhringarnir komnir aftur ♦ ♦ ♦ NÝLEGA hóf göngu sína nýr vefur á vegum Ríkisútvarpsins sem gengur undir nafninu Lærðar greinar, www.ruv.is/greinar. „Þetta verður vettvangur fyrir innsendar greinar um fjölmiðla- og markaðsfræði sem hlotið hafa fræði- lega umfjöllun ritstjórnar. Einnig er þetta vettvangur fyrir endursagðar greinar á íslensku sem hlotið hafa al- menna viðurkenningu á sínu sviði. Markmið Lærðra greina er að örva karla og konur til skrifa á sviði fjölmiðla- og markaðsfræðinnar,“ segir í fréttatilkynningu. Ritstjórn skipa: Elías Héðinsson, Friðrik Eysteinsson og Þorsteinn Þorsteinsson. Innsendar greinar þurfa að berast á netfangið: thorthor@ruv.is. Nýr vefur um markaðsmál ♦ ♦ ♦ RANGLEGA var sagt í frétt blaðs- ins á föstudag að dómur fyrir vopna- lagabrot hefði verið kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Hið rétta er að dómurinn var kveð- inn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. LEIÐRÉTT ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.