Morgunblaðið - 09.03.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 59
DAGBÓK
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 10. mars
Hið árlega spilakvöld Varðar verð-
ur haldið í Súlnasal Hótels Sögu
sunnudaginn 10. mars
kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars: Utanlandsferðir, bæk-
ur, matarkörfur o.fl.
Gestur kvöldsins er
Björn Bjarnason efsti maður á
framboðslista sjálfstæðisflokksins.
Aðgangseyrir kr. 700.
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Allir velkomnir
RISA ÚTSALA
á ANTIK er hafin
Húsgögn, silfur og postulín
20-50% afsláttur
Laugavegi 101, sími 552 8222.
Opið alla daga
frá kl. 11-18 og
sunnud. 13-17.
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439
Líföndun
Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið
í líföndun helgina 16. og 17. mars.
Djúp öndun hreinsar líkama og sál, eykur bjartsýni og lífsorku og
blæs burtu kvíða og kvillum. Gefur þú þér tíma til að lifa?
„Tíminn er líf og lífið býr í hjartanu“
EINKATÍMAR: HÓMÓPATÍA - NUDD - LÍFÖNDUN
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 9.
mars er sextug Kristín Jó-
hannesdóttir, Gröf á Vatns-
nesi, V-Hún. Hún og eigin-
maður hennar, Tryggvi
Eggertsson, taka á móti
gestum í félagsheimilinu
Víðihlíð á afmælisdaginn kl.
20:00.
40 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 9.
mars, er fertug Elísabet J.
Sverrisdóttir, ritari á fast-
eignasölunni Hraunhamri,
Móabarði 8, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar er Guð-
jón Oddsson, verkstjóri hjá
Íslenskum matvælum í
Hafnarfirði. Eyða þau af-
mælisdeginum heima með
fjölskyldunni.
FRAKKAR unnu kvenna-
flokkinn á sýningarleikun-
um í Salt Lake City eftir
öruggan sigur á banda-
ríska liðinu í úrslitaleik.
Hollendingar urðu í þriðja
sæti. Í frönsku sigursveit-
inni spiluðu Bessis, Cron-
ier, D’Ovidio og Willard, en
þessar fjórar hafa staðið
sig frábærlega vel á undan-
förnum árum. Bandaríska
liðið var einnig skipað
þekktum stórstjörnum:
Breed, Kearse, Meyers,
Osberg, Quinn, Sanborn og
Meltzer.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 108
♥ K984
♦ Á432
♣G32
Vestur Austur
♠ KD96432 ♠ G75
♥ -- ♥ 6
♦ 87 ♦ KD965
♣10865 ♣ÁK97
Suður
♠ Á
♥ ÁDG107532
♦ G10
♣D4
Spilið að ofan kom upp í
byrjun mótsins í leik
Bandaríkjanna og Kanada.
Kanadísku konurnar Gart-
aganis og Silverman voru í
NS, en Kearse og Osberg í
AV.
Vestur Norður Austur Suður
Kearse Gartaganis Osberg Silverman
-- -- -- 1 hjarta
2 spaðar 3 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Fimm spaðar vinnast í
AV (jafnvel með laufi út),
en eftir máttlaust stökk
vesturs í tvo spaða í upp-
hafi er erfitt fyrir austur að
sjá möguleika á ellefu slög-
um. Tveggja spaða sögnin
reynist líka afdrifarík í
vörninni gegn fimm hjört-
um. Kearse kom út með
spaðakóng, sem suður átti
heima. Silverman fór inn á
blindan á tromp og spilaði
litlu laufi að drottningunni.
Osberg stakk upp kóng og
spilaði spaðagosa, enda
bjóst hún við sexlit í spaða
hjá makker. En Silverman
trompaði og fríaði laufgos-
ann. Vörnin fékk því engan
slag á tígul.
Vissulega er Osborn vor-
kunn að spila spaðanum, en
hún gat þó að skaðlausu
prófað tígulkónginn fyrst
og leitað eftir talningu í
litnum hjá makker. Kearse
fékk líka tækifæri til að
beina vörninni í réttan far-
veg með því að henda
spaðadrottningu í hjarta
sagnhafa í öðrum slag! Það
væri ótvíræð ábending um
að ekkert væri að hafa í
litnum. Ekki er það þó
beinlínis augljós vörn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6.
He1 b5 7. Bb3 O-O 8. a4
Bb7 9. d3 He8 10. Ra3
Bxa3 11. bxa3 d5 12. exd5
Rxd5 13. Bb2 Rf4 14. Bc1
Staðan kom upp á ofur-
mótinu í Linares sem lýk-
ur á morgun, 10. mars.
Michael Adams (2742)
hafði svart og stóð frammi
fyrir þeirri spurningu
hvort hyggilegt væri að
drepa á g2 gegn Vassily
Ivansjúk (2717). 14. Rxg2
15. Rg5! Rxe1 16. Dh5
Dd7 17. Bxf7+ Kf8
18. Be3 Rd4 19. Hxe1
Rf3+ 20. Kf1 Rxg5
21. Bc5+ He7 22.
Hxe5 Rxf7 23. Hxe7
Dxe7 24. Bxe7+ Kxe7
Línur hafa nú skýrst
og hefur svartur hrók
og tvö létta menn fyr-
ir drottningu. Venju-
lega er það mjög hag-
stætt en í þessari
stöðu vinna menn
svarts illa saman.
25. Dc5+ Kd7 26. Dd4+
Ke7 27. Dxg7 bxa4 28.
Dc3 Kd7 29. Dd4+ Rd6 30.
Dxa4+ Ke6 31. Dg4+ Rf5
32. Dc4+ Bd5 33. Dxc7 h5
34. c4 Bh1 35. f4 Hf8 36.
Db6+ Kf7 37. Da7+ Re7
38. Dxa6 Hb8 39. d4 Hb1+
40. Ke2 Hb2+ 41. Kd3
Hb3+ 42. Kd2 Hh3 43. d5
Hxh2+ 44. Kd3 Rxd5 45.
cxd5 Bxd5 46. f5 Ha2 47.
Da7+ Kf6 48. Dd4+ Kg5
49. Dxd5 Hxa3+ 50. Ke4
og svartur gafst upp. 3.
umferð Reykjavíkurmóts-
ins hefst kl. 17.00 í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Áhorf-
endur eru velkomnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þeir sem fæddir eru á þess-
um degi þroskast mest með
sjálfum sér, hræðast ekki
einveru. Eru draum-
óramenn. Taka almennt
málstað þeirra sem minna
mega sín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samræður við vini verða
spennandi og uppörvandi í
dag. Snilldarlegar hugmyndir
verða á lofti og krydda samtal
þitt við aðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Frelsisþráin er það sterk í dag
að þú munt skirrast við öllum
tilraunum frá öðrum til að
setja á þig höft. Þú vilt ráða
ferðinni í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert skarphuga í dag og öðl-
ast nýja sín á fjölmörg mál. Þú
uppgötvar nýja hugsun og
nálgun þín gagnvart lífinu og
tilverunni breytist.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur verið ábyrgðarfull
(ur) og trú(r) einhverjum en í
dag grípur þig löngun til að
rísa upp og labba burt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Skemmtileg þróun á sér stað
gagnvart nánum samstarfsað-
ilum í dag. Þú kynnist hliðum
á fólki sem þú hélst að það
ætti ekki til.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nýjar og óhefðbundnar leiðir
til að bæta heilsuna eru áleitn-
ar. Þú ert þó í óviss um hvort
þetta er plat eða skynsamleg
ráðstöfun.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Óvænt rómantískt daður við
einhvern leiðir þig í vandræði.
Einu gildir hvernig þú bregst
við út á við, innra með þér
gleðstu yfir því að einhverjum
finnist þú vera aðlaðandi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gestur eða eitthvert óvænt at-
vik brýtur upp rútínuna
heima fyrir. Varpaðu allri
formfestu fyrir róða og láttu
berast með straumnum í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bróðir eða systir er upp-
spretta óvæntra tíðinda í dag.
Dæmdu menn ekki of fljótt,
sýndu heldur umburðarlyndi
eða reyndu að skilja afstöðu
hans eða hennar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hvatvís innkaup í dag gætu
leitt til þess að þú kaupir
óvenjulega listmuni eða
tæknibúnað, hugsanlega eitt-
hvað tengt tölvum. Hvað sem
það er muntu gleðjast yfir
kaupunum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Brjóst þín belgjast í dag af
bjartsýni eða von um þína eig-
in framtíð. Þér sýnist allt
standa þér til reiðu, spurning-
in er bara hvað þú vilt?
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Athygli annarra gleður þig í
dag. Þeir laðast að þér og líður
vel í návist þinni vegna sköp-
unargáfu þinnar og innsæis.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
LJÓÐABROT
STÖKUR
Bandið landa úfið er,
andar handan gjóla,
standið vandast, bylgjan ber
blandin gandinn hjóla.
Júlíana Jónsdóttir
Báran hnitar blævakin,
borða titrar kjóinn.
Sólin glitar gullroðin
guðdómsrit á sjóinn.
Gjallar-þak úr hafi há
hjalla sakar forðann,
fjalla-baki er hann á
allur rakinn norðan.
Kristján Benjamínsson
Árnað heilla
Rólegur Gunnar.
Þetta er ekki bréf-
beranum að kenna.
Þú getur gefið þig fram
núna, Jónas, við erum
búnir að finna þig.
Bridsfélag Suðurnesja
Síðasta mánudag lauk aðalsveita-
keppni félagsins. Sveit Sparisjóðsins
í Keflavík varð meistari eins og und-
anfarin ár, en fékk þó meiri keppni
en oft áður. Sveitina skipuðu: Jó-
hannes Sigurðsson, Gísli Torfason,
Guðjón Svavar Jensen, Karl G.
Karlsson og Arnór G. Ragnarsson.
Lokastaðan:
Sveit Sparisjóðsins í Keflavík 146
Sveit Óla Þórs Kjartanssonar 131
Sveit Kristjáns Kristjánssonar 119
Sveit Grethe Íversen 118
Mánudaginn 11. mars hefst síðan
tveggja kvölda Butler-tvímenningur.
Gullsmárabrids
4. mars var spilað á 9 borðum í
Gullsmára 13. Meðalskor 216.
Hæsta skor N-S:
Leó Guðbrandss., - Aðalst. Guðbrandss.
245
Halldór Jónss. - Valdimar Hjartars. 2 38
Sveinn Jenss. - Jóna Kristinsd. 226
A-V:
Þórhallur Árnas. - Sigurj. Sigurjónss. 269
Karl Gunnarss. - Ernst Backman 267
Einar Markúss. - Sverrir Gunnarass. 234
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson