Morgunblaðið - 09.03.2002, Síða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Beauvois er 35 ára gamall, búsettur
í París, og eftir hann sem leikstjóra
liggja fjórar kvikmyndir í fullri
lengd.
Hefnd Mathieusar er fjórða
mynd Beauvois og fjallar að hans
sögn, um átök og ástir. Söguþráð-
urinn er á þá leið að fjölskyldufaðir
er rekinn úr starfi sínu fyrir að
reykja í vinnutíma. Þegar sonur
hans hefur reynt að fá stjórn fyr-
irtækisins til að ráða hann aftur
deyr faðirinn í hörmulegu slysi.
Sonur hans heldur því fram að faðir
sinn hafi ekki séð neina aðra leið en
að stytta sér aldur og ákveður að
hefna hans með því að refsa for-
stjóranum og tæla konu hans og lít-
illækka hann.
Myndin keppti um Gullljónið í
Feneyjum árið 2000 og hefur hlotið
mjög góðar viðtökur í heimaland-
inu.
Sjálfmenntaður
Beauvois er sjálfmenntaður kvik-
myndagerðamaður og hlaut hann
styrk 1991 frá franska ríkinu til
þess að gera sína fyrstu kvikmynd,
Nord. Áður hafði hann starfað sem
aðstoðarmaður við ýmsar myndir.
Hann hefur jafnframt leikið í þrem-
ur af þeim myndum sem hann hef-
ur leikstýrt og á að baki leik í sex
öðrum kvikmyndum. Í kvikmynd
sinni, Le Vent de la Nuit, lék hann
t.a.m. á móti Catherine Deneuve.
Beauvois kveðst vera að koma til
Íslands í fyrsta sinn og þekkir hann
lítið til íslenskra kvikmynda. Hann
segir að þetta hafi því verið gott
tækifæri til að heimsækja landið.
Xavier Beauvois er heiðursgestur Franskra bíódaga í Regnboganum
Bannað að
reykja í
vinnutíma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikstjórinn Xavier Beauvois verður viðstadd-
ur opnun frönsku bíódaganna.
% %&'(
,1
2!
+)
3 )! *! + , + 4 - & 5 -. )! *! + $( 6
7 $8
,9 :8
,9 $8
:
<8 =
$8
,9 <8 =
$8
$8
:8 $( 6
7 ,9 ,9 :8 <8 =
$( 6
7
$( 6
7 $8
$( 6
7 :8 ,9 <8 =
81
26
+8> 2
XAVIER Beauvois er gestur Franskra bíódaga sem hefjast í
dag í Regnboganum og lýkur 16. mars nk. Hann er höfundur
opnunarmyndar hátíðarinnar Hefnd Mathieusar og verður
viðstaddur sýningu myndar sinnar í dag.
JOHNNY Cash á eftir að verða áber-
andi það sem eftir er árs. Cash varð
sjötugur 26. febrúar og tveimur dög-
um síðar fékk hann Grammy-verð-
laun fyrir framlag sitt á plötunni
Timeless, sem gefin var út til heiðurs
Hank Williams og var valin besta
sveitatónlistarplatan. Holskeflan er
reyndar farin af stað því í lok liðins
árs kom út endurútgáfa á plötu hans
„Ragged Old Flag“, sem kom fyrst út
1974. Á kápunni stendur Cash ákveð-
inn á svip, andlitið eins og höggvið í
stein, og bendir á bandarískan fána,
sem er rifinn og tættur, en blaktir þó.
Í titillaginu segir Cash að fáninn og
þjóðin hafi mátt þola eld áður, en
hann telji að hún þoli sínu meira.
Bandarísk táknmynd
Í grein í dagblaðinu The New York
Times í tilefni af afmælinu segir að á
plötunni hafi Cash verið að vísa í
helstu umhleypingar bandarískrar
sögu, allt frá frelsisstríðinu til Víet-
nam-stríðsins og Watergate-hneyksl-
isins. En þegar platan var endurút-
gefin 11. desember, þremur
mánuðum eftir hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum, hafi hún fengið nýja merk-
ingu. Fáninn framan á plötunni minni
á fánann, sem fannst í rústum World
Trade Center og var sýndur á vetr-
arólympíuleikunum í Salt Lake City,
og beri vitni þjóð, sem sé ákveðin í að
standa af sér áfallið.
Cash er haldinn alvarlegum tauga-
sjúkdómi. Hann er hættur að koma
fram opinberlega vegna sjúkdómsins,
en hefur verið iðinn í hljóðverinu.
„11. september opnaði sár í hjarta
mínu,“ sagði Cash, sem um þessar
mundir dvelur á Jamaica, sem verið
hefur hans annað heimili fyrir utan
Nashville, í samtali við The New
York Times. „Ég horfði á þetta í sjón-
varpi og get sagt að mig langaði til að
drepa einhvern sjálfur. Ég elska
þetta land og þarna sá ég einhvern
koma á okkur góðu höggi. Það var
vegið að baráttuanda okkar. En ég
hef náð mér af því og ég held að land-
ið sé sömuleiðis að ná sér. Ég held að
þetta land verði ofan á.“
Fylgdi sannfæringu
sinni frá upphafi
Í febrúar kom út tveggja geisla-
diska safn með tónlist, sem Cash tók
upp fyrir Sun-útgáfuna, og 19. mars
koma út fimm plötur, sem hann tók
upp á vegum Columbia milli 1958 og
1993 og hafa verið ófáanlegar lengi,
og fimm til viðbótar í júlí. Þessar plöt-
ur hafa verið endurhljóðblandaðar og
bætt við efni. Plöturnar, sem koma út
í mars, þykja sýna að hann hafi þegar
í upphafi fylgt þeirri sannfæringu
sinni að láta aðeins stjórnast af sínu
tónlistarlega leiðarljósi.
Cash hefur til dæm-
is aldrei leynt dálæti
sínu á Bob Dylan, þótt
tónlist hans hafi farið í
taugarnar á íhalds-
sömum áhangendum
sveitatónlistar á árum
áður. Nú segir Cash
um Dylan að hann hafi
aldrei verið betri og
síðasta platan hans sé
sú besta, sem hann
hafi sent frá sér hing-
að til.
Gjöfult samstarf
Cash hætti hjá Col-
umbia árið 1993. Síðan
hefur hann tekið upp
þrjár plötur með Ro-
bert Rubin við stjórn-
völinn á upptökutækj-
unum. Þessar plötur
eru taldar með því
besta, sem frá honum
hefur komið, og hefur
sérstaklega verið til
þess tekið að ekki sé
ofhleðslunni fyrir að
fara heldur sé þvert á
móti sparlega farið
með hljóðfæri til að
undirstrika vigtina í
söngrödd Cash og
einnig þykir dirfsku gæta í lagavali. Á
plötunum hafa verið lög eftir Beck,
Glenn Danzig, Neil Diamond, Nick
Cave og U2. Nú er hann að hljóðrita
lagið „Hurt“ með hljómsveitinni Nine
Inch Nails, sem er með söngvarann
Trent Reznor í broddi fylkingar:
„Þegar ég heyrði þetta lag hugsaði ég
með mér að það hljómaði eins og eitt-
hvað, sem ég hefði getað samið á sjö-
unda áratugnum. Það er meira
hjarta, sál og þjáning í þessu lagi en
ég hef heyrt lengi. Ég elska þetta
lag.“
Lagið „Hurt“ verður á fjórðu plöt-
unni, sem Cash og Rubin vinna að
saman, og er gert ráð fyrir að hún
komi út síðar á árinu.
Johnny Cash hefur
ekki misst tóninn
Reuters
Johnny Cash lætur ekki deigan síga þrátt fyrir
að vera haldinn alvarlegum taugasjúkdómi og
er von á nýrri plötu frá honum síðar á árinu.