Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 19
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skeifunni 4, Reykjavík s: 568 7878
Snorrabraut 56, Reykjavík s: 561 6132
Stórhöfða 44, Reykjavík s: 567 4400
Austursíðu 2, Akureyri s: 464 9012
Hafnargötu 90, Keflavík s: 421 4790
Bæjarlind 6, Kópavogi s: 544 4411
Harpa Sjöfn málningarverslanir
20-40% afsláttur
af allri innimálningu
Fagleg ráðgjöf og þjónusta
fyrir einstaklinga.
á innimálningu
TILBOÐ
PÁSKA
VEL heppnaðir stórtónleikar fóru
fram í Fjölbrautaskólanum á Sel-
fossi fyrir skömmu á vegum
Skálafélagsins sem vinnur að end-
urbyggingu Tryggvaskála á Sel-
fossi. Á tónleikunum komu fram
söngvararnir Kristinn Sigmunds-
son og Gunnar Guðbjörnsson.
Þeir sungu við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar og var fagnað
lengi og innilega í þéttsetnum
samkomusalnum í skólanum.
Þeir félagar fluttu söngva úr
fimm óperum, Töfraflautunni,
Ástardrykknum, Seldu brúðinni,
Faust og Perluköfurunum. Í lokin
sungu þeir síðan lag Jónasar
Ingimundarsonar við ljóðið Vetr-
ardagur eftir Stefán Hörð Gríms-
son og var því mjög vel tekið
enda ákaflega fallegt. Af sinni al-
kunnu hógværð útskýrði Jónas
hvers vegna hann væri að fikta
við að semja lög: „Ég geri þetta
stundum í staðinn fyrir að ráða
krossgátur.“
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Gunnari, Kristni og Jónasi var vel fagnað á tónleikunum á Selfossi.
Stórsöngvurum
vel fagnað
Selfoss
SÍMINN hefur verið að end-
urnýja búnað við símastreng-
inn sem liggur um Norður-
Hérað svo nú er kleift að
flytja ISDN-samband um
strenginn.
Nú eiga allir bæir á Norð-
ur-Héraði kost á að fá ISDN-
tengingu nema Aðalból í
Hrafnkelsdal, þangað var tal-
ið of langt til að það réttlætti
þann kostnað sem hlotist
hefði af því að koma þangað
þessari tengingu.
Þetta er mikil bót fyrir
símnotendur á svæðinu, áður
var símasambandið svo slæmt
að allskonar aukahljóð voru á
línunni sem slitu tölvuteng-
inguna og illa heyrðist í sím-
anum, auk þess sem sím-
númerabirtar virkuðu ekki á
stórum svæðum í sveitarfé-
laginu. Gamla tengingin var
svo slöpp að fólk á svæðinu
sem var tölvuvætt og með
netið hafði ekki hálft gagn af
tölvutengingum sínum, teng-
ingin var seinvirk, erfitt
reyndist oft að ná sambandi
og síðan slitnaði sífellt.
Þeir sem þegar hafa nýtt
sér þennan nýja kost í þjón-
ustu Símans eru mjög ánægð-
ir með breytinguna, nú heyr-
ist mun betur í símanum á
svæðinu og tölvutengingin er
mun hraðvirkari en áður var.
Að sögn Jóhanns Elísers-
sonar hjá Símanum á Egils-
stöðum tóku nær 20 símnot-
endur á Norður-Héraði strax
inn ISDN-tengingu þegar
hún stóð til boða og fleiri eru
að hugsa sinn gang varðandi
þennan nýja valkost. Stefnt
er að því að klára ISDN-væð-
inguna á öllu Fljótsdalshéraði
á þessu ári.
ISDN-væðingin er langt
komin á Vopnafirði og henni
er lokið í Breiðdal. Segja má
að þessari tengingu muni
ljúka að mestu leyti á Austur-
landi á árinu auk þess sem
fólk á helstu þéttbýlisstöðum
á Austurlandi á kost á ADSL-
tengingu.
ISDN-
teng-
ing á
Norður-
Héraði
Norður-Hérað
BÖRN á aldrinum þriggja til fimm
hafa notið þess í febrúar að fá
íþróttaþjálfun einu sinni í viku í
Íþróttamiðstöðinni. Hugmyndin
hefur verið í deiglunni undanfarin
tvö ár en það var Magnús Þor-
grímsson sálfræðingur sem kom
henni í framkvæmd. Hann talaði við
forsvarsmenn íþróttamála í Borg-
arbyggð og fékk íþróttasalinn leigð-
an. Þarnæst fékk hann foreldra-
félag leikskólans í lið með sér og
boðað var til fundar í lok janúar.
Um þrjátíu manns mættu á fundinn
þannig að greinilegt var að áhugi
var mikill. Skipuð var stjórn for-
eldra til að standa fyrir þessu en í
stjórninni eru m.a. iðjuþjálfi,
þroskaþjálfi og leikskólakennari.
Málið virtist ætla að stranda á því
að fá íþróttakennara en svo fékkst
Sigurður Örn Sigurðsson nemi í
íþróttakennaraháskólanum til þess
að vera í fjögur skipti. Magnús seg-
ir að bærinn hafi veitt þeim braut-
argengi og útvegað þeim salinn
frítt. Framhaldið ræðst síðan af því
hvernig gengur og hvort íþrótta-
kennari fæst áfram til þess að
þjálfa börnin.
Íþróttir
fyrir alla
– líka litlu
krakkana
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Á VORDÖGUM verður
nýtt fjölnotahús í Þykkva-
bæ tekið í notkun en smíði
þess hófst fyrir rúmu ári.
Burðarvirki hússins, styrk-
ingar og tilheyrandi upp-
setningar var keypt úr öðru
Tívolíhúsanna sem áður
stóðu í Hveragerði. Húsið
sem hannað er af Vífli
Magnússyni er rúmlega
1.300 fermetrar að flatar-
máli á tveimur hæðum, þar
af er neðri hæð um 1.000
fermetrar með 546 fermetra
íþróttasal, búningsaðstöðu, áhalda-
geymslu og rými fyrir mötuneyti
grunnskóla hreppsins auk kennslu-
aðstöðu í heimilisfræðum. Þá er
ótalið rými í húsinu fyrir skrifstofu
hreppsins, aðstöðu fyrir góðgerð-
arsamtök eins og kvenfélagið og
ungmennafélagið og hugsanlega
bókasafn hreppsbúa. Húsið kemur
til með að leysa margvíslegan hús-
næðisvanda hreppsbúa og mun nýt-
ast til margs konar afþreyingar og
menningar. Að sögn Heimis Haf-
steinssonar oddvita Djúpárhrepps
hefur ástandið í húsnæðismálum
hreppsins verið afar slæmt eftir
jarðskjálftana sumarið 2000, en þá
eyðilagðist gamla samkomuhúsið
og var í kjölfarið tekið úr notkun.
Nýtt íþróttahús
senn tilbúið
Þykkvibær
Morgunblaðið/Aðalheiður
Heimir Hafsteinsson, oddviti Djúpár-
hrepps, virðir fyrir sér framkvæmdir í
nýja íþróttahúsinu í Þykkvabæ.