Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 25

Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 25 ÍGOR Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, krafðist í gær skýringa á fréttum í bandarískum fjölmiðlum um leynilegar áætlanir þar sem rædd væri hugsanleg beiting kjarn- orkuvopna gegn nokkrum ríkjum, þ.á m. Rússlandi. The Los Angeles Times skýrði á laugardag frá 56 blaðsíðna skýrslu um málið sem gerð hefði verið fyrir Pentagon. Hin ríkin eru Kína, Íran, Írak, Norður-Kórea, Líbýa og Sýrland. „Reynist þetta vera rétt ber að harma það og málið getur valdið áhyggjum,“ sagði Ívanov. Talsmaður ráðuneytis Ívanovs, Alexander Jak- ovenko, sagði að kanna yrði hvort um áreiðanlega frétt væri að ræða. „Ef hún er það hvernig er þá hægt að koma henni heim og saman við yf- irlýsingar um að Bandaríkin líti ekki lengur á Rússland sem óvin?“ spurði Jakovenko. Viðbrögð manna hafa verið með ýmsu móti, Kínverjar neituðu að tjá sig en í Íran voru Bandaríkjamenn fordæmdir og sagðir reyna að kúga aðrar þjóðir með hótunum. Að sögn The Los Angeles Times er í skýrsl- unni velt upp þrenns konar aðstæð- um þar sem til greina kæmi að nota kjarnavopn. Í fyrsta lagi að gera þyrfti árás á skotmörk sem hefð- bundin vopn dygðu ekki gegn, í öðru lagi að svara þyrfti árás sem gerð hefði verið með kjarnavopnum, efna- vopnum eða sýklavopnum og í þriðja lagi að „óvæntar “ aðstæður kæmu upp. Í skýrslunni er tekið fram að þótt Rússar séu ekki lengur taldir meðal óvina hljóti það að valda áhyggjum að þeir ráði yfir um 6.000 stórum kjarnorkuvopnum og um það bil 10.000 minni kjarnavopnum, svo- nefndum vígvallarvopnum. Breska blaðið The Mirror birti frétt á forsíðu um málið og var fyr- irsögnin „Reiði vegna „brjálæðis“- hótunar forseta gegn heiminum“. The Times sagði á hinn bóginn að um væri að ræða hefðbundnar fræðileg- ar bollaleggingar um aðstæður þar sem til greina kæmi að nota kjarna- vopn. Risaveldi hlyti óhjákvæmilega að velta fyrir sér hvort aðstæður af því tagi gætu komið upp. Í sama streng tók varnarmálaráðherra Ítal- íu. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag að í skýrslunni væri um að ræða „skyn- samlega“ áætlanagerð á sviði varn- armála en ekki árásaráætlun. Kjarnavopnum Bandaríkjamanna væri núna ekki beint gegn nokkurri þjóð en íhuga yrði hvað forsetinn gæti gert ef þjóðir sem réðu yfir ger- eyðingarvopnum af einhverju tagi létu til skarar skríða. Condoleezza Rice, öryggismála- ráðgjafi George W. Bush forseta, sagði að stjórnin vildi senda skýr skilaboð til þeirra sem veltu því fyrir sér að nota gereyðingarvopn gegn Bandaríkjunum. „Eina leiðin til að halda aftur af þeim er að segja með skýrum hætti að svarið yrði eyðing andstæðings- ins,“ sagði Rice. Gagnrýna áætlanir um beitingu kjarnavopna Moskvu, Washington. Washington Post, AP, AFP. Powell segir ein- göngu um „skyn- samlega“ áætl- anagerð að ræða TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði í gær engar ákvarðanir hafa verið teknar um að grípa til hernaðaraðgerða gegn stjórn Sadd- ams Husseins Íraksforseta. Sagði Blair að enginn þyrfti að vísu að efast um að heimsbyggðinni stæði ógn af Saddam og þeim gereyðing- arvopnum sem hann hefði komist yf- ir, en sem stæði væru menn einungis að íhuga málin og ræða sín á milli hvernig best mætti bregðast við vánni. Blair lét þessi orð falla á frétta- mannafundi með Dick Cheney, vara- forseta Bandaríkjanna, í London í gær. Höfðu þeir Cheney áður snætt saman hádegisverð en Cheney heim- sækir á næstu dögum ýmis ríki í Miðausturlöndum í því skyni að ræða um málefni Ísraels og Palest- ínu, sem og næstu skref í hinni al- þjóðlegu baráttu gegn hryðjuverk- um. Cheney tók fram að hvað málefni Íraks varðaði, sem og mál annarra ríkja sem komið hefðu sér upp ger- eyðingarvopnum, væri sú stund ekki runnin upp að Bandaríkjamenn til- kynntu það hvað þeir hygðust fyrir. Talsmenn Blairs höfðu hins vegar fyrir fund þeirra Cheneys í gær bor- ið til baka fregnir breska blaðsins The Observer sem á sunnudag hélt því fram að Bandaríkjamenn væru að leggja lokahönd á áætlanir um hernaðaraðgerðir í Írak og að Bretar hefðu verið beðnir um að leggja til 25 þúsund manna herlið til verksins. Sögðu talsmenn Blairs að málin væru engan veginn gengin þetta langt fram. Ráðgjafi Bush gagnrýnir leiðtoga Evrópuríkjanna Hugsanlegar aðgerðir gegn Írak hafa verið harðlega gagnrýndar í Bretlandi, m.a. af þingmönnum Verkamannaflokksins. Þá hefur gætt óánægju með framgöngu Bandaríkjamanna í öðrum ríkjum Evrópu og áætlanir um aðgerðir í Írak verið gagnrýndar. Richard Perle, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta í varnar- málum, fór hörðum orðum um þessa afstöðu leiðtoga Evrópuríkjanna í gær og sagði hann það mikil von- brigði að Evrópumenn virtust fyrst og fremst hugsa um eigið öryggi en skeyta lítt um öryggi íbúa Banda- ríkjanna. Perle sagði að á sínum tíma hefði Atlantshafsbandalagið tryggt frið í Evrópu á meðan mikil ógn stóð af Sovétríkjunum og að þar hefðu Bandaríkjamenn leikið lykilhlut- verk. „Nú er okkur ógnað og svo ég orði það bara hreint út: okkur finnst að Evrópubúar ættu að launa okkur stuðninginn,“ sagði Perle í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Vöktu ummæli Perle hörð við- brögð þingmanns breska Verka- mannaflokksins, Tom Dalyell, sem sagði að Bandaríkjamenn yrðu að sýna bandamönnum sínum fram á að sannanir lægju fyrir um aðild Íraka að hryðjuverkunum á Bandaríkin 11. september sl. áður en þeir gætu farið fram á stuðning þeirra. Tony Blair og Dick Cheney ræddu hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn Saddam Hussein Íraksforseta Engar ákvarðanir enn verið teknar London. AFP. DONALD Rumsfeld, varn- armálaráðherra Bandaríkj- anna, kvaðst í gær vonast til þess að hersveitum Bandaríkjamanna tækist í þessari viku að vinna fullan sigur á al-Qaeda-liðum og talibönum sem haldið hafa uppi vörnum í Arma-fjöll- um í Austur-Afganistan. Fullyrtu talsmenn Banda- ríkjahers að þeir hefðu mætt mjög lítilli mótspyrnu í fjöllunum um helgina og sögðu þeir líklegt að ekki væru nema á milli eitt og tvö hundruð al-Qaeda-liðar þar eftir. Fáir al- Qaeda- liðar eftir Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.