Morgunblaðið - 24.03.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 24.03.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN17/3 –23/3 ERLENT INNLENT  TVEIR menn slösuðust þegar þeir lentu í snjó- flóði í Esjunni um síðustu helgi. Annar þeirra missti 4,5 lítra af blóði og hlaut innvortis blæðingar. Hinn mjaðmagrindarbrotnaði í flóðinu. Tveir menn fór- ust á sama stað árið 1978.  Í NÝRRI þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að hag- vöxtur fari aftur af stað á næsta ári og gott jafn- vægi verði komið á í þjóð- arbúskapnum í heild. Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist í ár, áttunda árið í röð.  Útgáfufyrirtækið Col- umbia hyggst á næstunni gefa út hljómdisk með upptöku af tónleikum Quarashi og Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, sem haldnir voru í Há- skólabíói 25. október sl., Columbia gefur jafnframt út fyrstu breiðskífu Quar- ashi sem kemur út á er- lendri grund.  LANDSBANKINN til- kynnti á fimmtudag að hann myndi lækka vexti á óverðtryggðum skamm- tímalánum um 0,25% og víxilvexti um 0,4%. Ís- landsbanki og Bún- aðarbanki fylgdu í kjöl- farið og tilkynntu vaxtalækkanir.  SAMNINGAR hafa tek- ist milli sjálfstætt starf- andi sjúkraþjálfara og samninganefndar heil- brigðisráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að samningurinn gildi frá 1. apríl til ársloka 2004. Flugatvikið á Gard- ermoen alvarlegt FLUGMENN Flugleiðaþotunnar sem lenti í vandræðum við Gardermoen- flugvöll í janúar létu viðhaldsstjórn fé- lagsins vita eftir að vélin lenti að trufl- anir hefðu komið fram í aðflugsbúnaði sem ollu því að þeir þurftu að fljúga hringflug yfir flugvöllinn og reyna lend- ingu á ný. Þeir gáfu á hinn bóginn ekk- ert til kynna sem benti til þess að vélin hefði tekið þær miklu dýfur sem raun ber vitni og að hún hefði aðeins verið um 100 metrum fyrir ofan jörðu þegar hún fór lægst. Aðflugsbúnaður, annað- hvort á jörðu niðri eða í flugvélinni, brást í aðfluginu og ákvað flugstjórinn því að hætta við lendingu og hóf sjálf- virkt fráflug. Í framhaldi af því tók vélin tvær krappar dýfur. Flugmennirnir hefðu því átt að tilkynna um atvikið til norsku flugslysanefndarinnar þegar við lendingu í Gardermoen. Leita má nýrra sam- starfsaðila NORSK Hydro hefur tilkynnt sam- starfsaðilum sínum að fyrirtækið sé ekki í aðstöðu til þess að taka endan- lega ákvörðun varðandi áframhald Noral-verkefnisins um byggingu álvers á Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjunar fyrir 1. september 2002 eins og gert er ráð fyrir í sameiginlegri tilkynningu. Í yfirlýsingu frá iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu segir að aðilar að yfirlýs- ingunni muni halda áfram að starfa að verkefninu með það að markmiði að ákvarða endurnýjaða tímaáætlun. „Þátttakendur í Reyðaráli eru sammála um að það væri ákjósanlegt að fá nýjan aðila að Reyðaráli og minnka þannig eignarhlut íslenskra fjárfesta. Í þeirri vinnu sem er framundan verður því einnig skoðuð afkoma fleiri aðila,“ segir í yfirlýsingunni. Valgerður Sverrisdótt- ir iðnaðarráðherra segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með Norsk Hydro. Sjálfsmorðsárásum haldið áfram ANTHONY Zinni, sérlegur sendi- fulltrúi Bandaríkjanna í deilum Ísraela og Palestínumanna, hélt áfram tilraun- um sínum í vikunni til að koma á vopna- hléi. Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, lauk í vikunni ferð sinni um Miðausturlönd og hitti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, að máli í Jerúsalem á þriðjudag. Cheney mun á hinn bóginn hafa hafnað að ræða við Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna, sem Bandaríkjamenn og Ísr- aelar saka um að beita sér ekki gegn aðgerðum hermdarverkamanna. Ísraelar fluttu á mánudag herlið sitt á brott frá Betlehem og Beit Jala á Vesturbakkanum í samræmi við kröfur Palestínumanna en eftir sem áður var sjálfsmorðsárásum á ísraelska borgara haldið áfram. Á miðvikudag féllu sjö manns auk sprengjumannsins í tilræði í strætisvagni nálægt bæ arabískra Ísraela, Umm El Fahem. Tugir manna særðust. Á fimmtudag biðu þrír Ísrael- ar bana í sjálfsmorðsárás í miðborg Jerúsalem og um 40 særðust, á föstu- dag sprengdi enn einn tilræðismaður- inn sig en ekki munu aðrir en hann hafa fallið. Þrátt fyrir tilræðin ákvað stjórn Sharons að halda áfram viðræðum við fulltrúa Palestínumanna um vopnahlé. Samtökin al-Aqsa, sem tengd eru Fatah-samtökum Arafats Palestínu- leiðtoga, lýstu á hendur sér ábyrgð á tilræðinu á fimmtudag og settu stjórn- völd í Bandaríkjunum á fimmtudag al- Aqsa á lista yfir alþjóðleg hryðjuverka- samtök. Sjálfur fordæmdi Arafat árás- ina. Hét hann í símasamtali við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, að gera allt sem hægt væri til að stöðva hryðjuverkaárásirnar. Ísraelar sögðu að palestínsk stjórnvöld hefðu handtekið sprengjumanninn fyrr í vik- unni og fangelsað hann með vitund Ísr- aela. Hefði maðurinn því átt að vera í fangelsi í borginni Ramallah ef allt hefði verið með felldu.  MARCO Biagi, ráðgjafi atvinnumálaráðherra Ítal- íu, var myrtur við heimili sitt í Bologna á þriðju- dagskvöld. Maður sem sagðist vera talsmaður hryðjuverkasamtakanna Rauðu herdeildanna sagði þær hafa staðið fyrir morðinu. Samtökin stóðu fyrir mörgum ódæð- isverkum á áttunda ára- tugnum. Biagi var meðal höfunda umdeildra til- lagna er miða að því að auka vald fyrirtækja til að ráða og reka starfs- menn.  ÞINGKOSNINGAR voru í Portúgal sl. sunnu- dag og fór svo að ríkis- stjórn sósíalista var velt úr sessi. Flokkur sósíal- demókrata, sem er hægri- flokkur, vann verulega á og hlaut liðlega 40% at- kvæða en sósíalistar tæp 38%.  ZIMBABWE var á þriðjudag rekið úr öllum ráðum breska samveld- isins í eitt ár vegna margvíslegs misferlis og ofbeldis í forsetakosning- unum fyrr í mánuðinum. Stjórn Roberts Mugabe forseta hefur árum sam- an ofsótt pólitíska and- stæðinga og hvíta bændur í landinu og efnahagur þess er í rúst.  TVEGGJA daga leið- togafundur um þróun- araðstoð var haldinn í Mexíkó í vikulokin. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti til þess að auðug ríki tvöfölduðu framlög til þróunaraðstoðar. ÞAÐ fer ekki mikið fyrir skútu sem liggur bundin við festar í Stykk- ishólmshöfn. En þegar betur er að gáð er mikið um að vera þar um borð. Þar hefur búið í vetur fjög- urra manna fjölskylda sem kom siglandi frá Frakklandi til Íslands síðastliðið sumar í þeim tilgangi að dvelja veturlangt á norðurhjara og kynnast íslenskum vetri. Forvitni ýtti undir fréttaritara að fara í heimsókn og heilsa upp á gestina sem hér hafa dvalið í skút- unni í allan vetur. Það fyrsta sem vakti undrun þegar um borð var komið var hve þröngt var og lítið svæði sem fjölskyldan lætur sér nægja. Gólfflöturinn er ekki margir fermetrar, en á þessu litla svæðið er allt til alls, eldhús, salerni, svefn- aðstaða og þetta sættir þessi sam- heldna fjölskylda sig við. Skútan er 10 metrar á lengd og 3,30 metrar á breidd. Gólfflöturinn um 6–7 fer- metar. Fjölskyldan er frönsk og er frá 2.000 manna þorpi skammt fyrir ut- an Royan, sem er hafnarborg við vesturströnd Frakklands. Hjónin Boris og Isabelle Germes eru með börnin sín tvö stúlkuna Manon 5 ára og drenginn Símon 2 ára. Annað sem kom á óvart var hvað þau eru búin að ná góðu valdi á íslenskunni svo að enginn vandi er að tala sam- an á íslensku. Þegar þau voru spurð um ástæð- una fyrir því að þau sigldu alla leið til Stykkishólms til að hafa vet- ursetu var svarið að ævintýraþráin hafi sigrað að lokum. Þessi draum- ur hafi blundað með þeim í nokkur ár. Þau eignuðust skútuna fyrir 7 árum. Ári síðar sigldu þau til Ís- lands og dvöldu hér á landi í rúman mánuð. Þau urðu mjög hrifin af landi og þjóð og þá vaknaði áhugi á að heimsækja landið aftur og þá að vetri til og upplifa vetur á Íslandi. Þau Boris og Isabelle eru bæði kennarar. Boris er íþróttakennari og Isabelle grunnskólakennari. Hugmyndin um vetursetu á Ís- landi sótti alltaf fastar og fastar á huga þeirra. Þau sáu fram á það að eftir að börnin væru komin á grunnskólaaldur væri erfiðara að taka sig upp að vetri til. Því var um að gera að slá til og láta drauminn verða að veruleika. Þau sóttu um ársleyfi frá sínum skólum og fengu leyfið. Í byrjun júlí lagði skútan frá bryggju í Royan. Stefnan var tekin á Skotland. Um borð með Boris voru tveir vinir þeirra. Ferðin til Skotlands tók 10 daga. Þangað kom Isabelle með börn og vinirnir óku bíl þeirra hjóna til baka. Þá tók við sigling til Færeyja – aðeins um 30 klukkustundir. Þar dvaldi fjöl- skyldan í 2 vikur og síðan var stefna tekin til Íslands. Eftir þriggja daga siglingu var komið til Vestmannaeyja. Þau komu við á nokkrum höfnum á leiðinni til Stykkishólms, en þar var lagst að bryggju 25. ágúst og hér hafa þau verið síðan. Krakkarnir í leikskóla Þegar þau voru spurð hvernig búskapurinn hefði gengið þessa 8 mánuði í Stykkishólmshöfn var svarið að þeim hefði liðið mjög vel í Hólminum og þau hefðu notið dval- innar og fjölskyldan átt mjög góða daga hér. Manon byrjaði strax í leikskólanum og eftir áramótin fór Simon líka í leikskólann með systur sinni. Þau segja að Hólmarar hafi tekið þeim mjög vel. Þau hafa reynt að kynnast bæjarbúum og það hafi tekist vel. „Hér er gott að vera og góð aðstaða í ekki stærra þorpi,“ segja þau. Þau sækja mikið bóka- safnið, íþróttahúsið og sundlaug- ina. Boris spilar badminton með heimamönnum og Isabelle æfir blak. Á þennan hátt hafa þau kynnst íbúunum betur og hafa eign- ast hér góða vini. Isabelle byrjaði að læra á píanó eftir áramót við Tónlistarskólann. Sá áhugi hefur lengi verið til staðar, en nú var í fyrsta skipti tími til þess að byrja. Boris er mikill útivistarmaður og hefur í vetur gengið á mörg fjöll á Snæfellsnesfjallgarðinum Hjónin segjast lesa mikið. Þau hafa lesið mikið um Ísland og jarð- fræði landsins. Eins hafa þau lesið nokkrar Íslendingasögur á frönsku og eru nú að lesa Eyrbyggju. Bókin Parlons Islandais er á borðinu og greinilega mikið lesin. Hér er um að ræða kennslubók í íslensku. Þau hafa áhuga á tungumálum og meðal annars var tilgangur ferðinnar að læra íslensku. Þau fara tvisvar í viku í íslenskutíma hjá Ingveldi Sig- urðardóttur og hefur henni tekist að kenna þeim þá íslensku sem þau kunna í dag. Þau voru spurð um muninn á að upplifa vetur á Íslandi og vetur í Frakklandi. Þau sögðu að myrkrið hefði komið þeim mesta á óvart. Í desember var dimmt allan sólar- hringinn. Þeim var það léttir þegar sólin fór að hækka á lofti. Veðr- áttan er ekki svo ólík og heima í Frakklandi. Boris hefur mikinn áhuga á veð- urfræði. Þá hefur Boris gaman af því að elda mat. Nýjasta verkefnið hjá honum er að bjóða upp á franskan mat á veitingahúsinu Fimm fiskum. Síðustu tvær helgar hefur hann í samvinnu við Sum- arliða Ásgeirsson, eiganda Fimm fiska í Stykkishólmi, eldað mat að frönskum hætti og galdrað fram dýrindis rétti sem bæjarbúar og aðrir gestir veitingahússins hafa gætt sér á. Með samvinnu við Sum- arliða hefur Boris enn tengst bæj- arbúum betri böndum. Nú er farið að líða á dvölina í Stykkishólmi. Hjónin þurfa að vera komin heim á skútunni í lok ágúst því kennsla hefst í byrjun sept- ember. Þau eru mjög þakklát fyrir góðar móttökur og hjálpsemi sem þau hafa fengið í Hólminum. Minn- ingar um sérstakan vetur við sér- stakar aðstæður munu ylja. Frönsk fjölskylda hefur vetursetu í Stykkishólmshöfn Ævintýraþráin sigraði að lokum Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Boris og Sumarliði kokkur við pottana á veitingastaðnum Fimm fiskum. Boris hefur eldað fyrir bæjarbúa á franska vísu og smakkast mjög vel. Frönsku hjónin Boris og Isabelle Germes með börnin sín tvö, stúlkuna Manon, fimm ára, og drenginn Símon, tveggja ára, við skútuna sína sem hefur verið heimili þeirra í Stykkishólmshöfn frá því í haust. Þröngt mega sáttir sitja. Franska fjölskyldan er nægjusöm. Þarna er Vignir Sveinsson að heimsækja kunningja sína um borð í skútunni. Stykkishólmi. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.