Morgunblaðið - 24.03.2002, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 29
GERIÐ GÓÐ KAUP!
TOY.IS LAUGAVEGI 82 FLYTUR!
Úlpur - buxur - peysur - húfur -
kjólar - spariföt
Ný sending af sumarfötum
Leikföng og páskavörur í úrvali
Allt á að seljast
BERGLIND María Tómasdóttir
flautuleikari og Sophie Marie
Schoonjans hörpuleikari halda
tónleika í Listasafni Einars Jóns-
sonar kl. 17 í dag, sunnudag.
Á efnisskrá eru verk eftir Nino
Rota, Sónata fyrir flautu og
hörpu,
Erik Satie/Toru Takemitsu, Le
fils des étoiles, fyrir flautu og
hörpu og Ravi Shankar, L’aube
enchantée.
Tónleikarnir eru um 35 mín-
útur að lengd og eru án hlés.
Berglind María stundaði fram-
haldsnám við Konunglega tónlist-
arháskólann í Kaupmannahöfn.
Hún hefur haldið fjölda tónleika
á Íslandi, Skandinavíu og Frakk-
landi.
Sophie Marie lærði hörpuleik
við Konunglega tónlistarháskól-
ann í Brussel og útskrifaðist það-
an 1984 og ári síðar með próf í
kammermúsík. Hún hefur leikið
með ýmsum hljómsveitum á ferli
sínum m.a. Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Hong Kong, Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, Orchestre du
Festival de Bruxelles og verið
virkur flytjandi kammertónlistar
hér á landi og erlendis.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sophie Marie Schoonjans hörpuleikari og Berglind María Tómasdóttir flautuleikari á æfingu.
Flautu- og hörputón-
ar í skjóli höggmynda
FYRIR nokkrum árum varð ég
þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá heim-
ildarmyndina When We Were Kings
sem fjallar um Muhammad Ali. Þessi
vel unna mynd dró upp mjög nána og
góða mynd af sérlega skemmtilegum
og forvitnilegum manni, sem ég hafði
auðvitað heyrt um en lítið séð af.
Heimsmeistari í hnefaleikum í
þungavikt, svartur Bandaríkjamað-
ur sem notaði áhrif sín til að leiða
fólkið áfram í því að standa á rétti
sínum og berjast á móti yfirvaldinu
án þess að skammast sín. Ótrúlega
heillandi og orðheppinn kjaftaskur
sem naut lífsins til hins ýtrasta og
alls sem það hafði upp á að bjóða.
Sannur meistari fólksins.
Það er alls ekki hinn sami Ali og ég
sá í þessari mynd. Mig grunar að
Mann hafi einmitt viljað grafa undan
þeirri ímynd sem hinn venjulegi
Bandaríkjamaður hefur af Ali, og
sýna eitthvað meira og dýpra en það
tekst ekki. Tökuvélin gerir tilraun til
þess með mörgum nærmyndum af
kappanum í þungum þönkum. En
það fer ekki lengra. Með vel valinni
tónlist er reynt að segja okkur
hvernig manninum líður þá stund-
ina, en það virkar ekki. Mestalla
myndina er Ali áhorfendum hulin
ráðgáta.
Uppbygging frásagnarinnar er
einnig mjög furðuleg. Það vantar alla
fléttu lengi framan af. Það er tæpt á
hinu og þessu, á meðan það er farið
allt of náið út í aðra jafnvel ómerkari
sálma. Þannig eru bardagaatriðin
mörg og löng og mikið sýnt af Mal-
colm X og sambandi þeirra án þess
að maður skilji af hverju er verið að
sýna manni þetta, enda leiðir það
ekki til neins. Á meðan kynnist mað-
ur Muhammad Ali lítið í einkalífinu,
þar sem einmitt gefast tækifæri til
að gefa raunsæja mynd af þessum
manni sem var einn frægasti maður
heim í þessi tíu á sem myndin gerist
á, 1964–1974, og það ekki fyrir ekki
neitt. Mann veltir upp ýmsu um
stöðu Mohammads Alis innan músl-
imasamtakanna sem hann tilheyrði,
og hvernig þau notfærðu sér heims-
meistarann. Einnig sannleikanum á
bakvið það þegar hann neitaði að
gegn herþjónustu og missti nánast
allt við það. En einhvern veginn virð-
ist það til lítils að vera að reyna að
henda fram einhverju nýju, ef maður
veit ekki hvað maður vill segja,
kemst ekki að niðurstöðu í neinu. Ég
spurði Bandaríkjamann nokkurn
hvort hann hefði lært eitthvað nýtt
um meistarann með því að sjá þessa
mynd. „Nei...jú annars. Ég vissi ekki
að hann hefði verið giftur fimm sinn-
um.“ Það kemur fram í skriflegum
eftirmála myndarinnar.
Persónur myndarinnar eru einnig
flestar á huldu, enda hefur Mann
ekki tíma til að draga upp skýra
mynd af aukapersónunum frekar en
Ali sjálfum. Og þar fær ágætis leikur
í hvívetna litlu áorkað. Will Smith
virðist ná talanda og yfirbragði Alis
ansi vel, auk þess að hafa greinilega
bætt á sig helling af kílóum til að
reyna að líkjast honum í útliti. Grín-
arinn Jamie Foxx á það þó til að stela
senunni sem aðstoðarmaður hans
Bundini, enda frábær í hlutverkinu.
Jon Voigt leikur íþróttafréttaritar-
ann Cosell, og er ásamt Will Smith
tilnefndur til Óskarsins fyrir eins og
flestir líklega vita.
Eins og ég hafði gaman af mynd-
inni The Man on the Moon þar sem
Jim Carrey lék Andy Kaufman af
stakri snilld, þá vöknuðu upp fleiri
spurningar um þann merkismann en
var svarað. Þetta er enn verra í Ali-
myndinni, þar sem maður fer hrein-
lega svekktur og vonsvikinn út. Eins
og það hefði nú verið gaman að fá
eina mynd um Ali af sömu gæðum og
Raging Bull eða The Hurricane.
Meistari fólksins á það líka skilið.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó og Sambíóin
Leikstjóri: Michael Mann. Handrit: Greg-
ory Allen, Christopher Wilkinson, Eric
Roth og M. Mann. Kvikmyndataka: Emm-
anuel Lubezki. Aðalhlutverk: Will Smith,
Jamie Foxx, Mario van Peebles, Jada
Pinkett Smith, Nora M. Gaye, Giancarlo
Esposito, Barry Shabaka Henley og Jon
Voight. 156 mín. USA. Columbia 2001.
ALI Meistari fólksins
Hildur Loftsdóttir
ÍSLENSKA söguþingið verður hald-
ið í lok maí í húsakynnum Háskóla
Íslands og stendur nú yfir skráning á
þingið. Þetta er í annað sinn sem
söguþing er haldið en fyrsta íslenska
söguþingið var haldið árið 1997. Til-
gangur söguþings nú eins og þá er að
leiða saman sagnfræðinga og áhuga-
menn um íslenska sögu til að fjalla
um nýjar rannsóknir og það sem efst
er á baugi innan sagnfræðinnar. Um
það bil 100 manns verða með framlag
á þinginu og auk þess er þrem er-
lendum gestum boðið sérstaklega til
að taka þátt í störfum þess. Þeir eru
Jürgen Kocka, forseti Alþjóðasam-
taka sagnfræðinga (Comité Inter-
national des Sciences Historiques),
Sue Bennett, formaður Evrópusam-
taka sögukennara (EUROCLIO), og
Knut Kjeldstadli, prófessor í sagn-
fræði við Oslóarháskóla.
Auk fræðilegrar dagskrár verður
boðið upp á ýmislegt annað í
tengslum við þingið. Á veggspjöldum
verða kynntar rannsóknir og starf-
semi einstaklinga og félaga og bóka-
forlög munu kynna bækur sínar.
Skemmtanir verða haldnar með
sögutengdu efni og í lokin er þing-
veisla.
Skráningareyðublöð og allar al-
mennar upplýsingar um þingið og
dagskrá þess er að finna hjá fram-
kvæmdastjóra þingsins, Sverri Jak-
obssyni, og á slóðinni http://www.-
hi.is/soguthing2002.
Að þinginu standa Sagnfræði-
stofnun Háskóla Íslands, Sagnfræð-
ingafélag Íslands og Sögufélag.
Íslenska söguþingið
haldið í annað sinn
Fiðluleikur
á nemenda-
tónleikum
AÐRIR tónleikar í vortónleika-
röð Listaháskóla Íslands verða
á mánudagskvöld kl. 20 í Nem-
endaleikhúsinu, Sölvhólsgötu
13. Þrír fiðluleikarar koma
fram, Ingrid Karlsdóttir, Helga
Þóra Björgvinsdóttir og Elfa
Rún Kristinsdóttir, en þær
stunda allar nám á diplóma-
braut tónlistardeildar Listahá-
skólans. Á efnisskrá verða verk
eftir J.S. Bach, N. Paganini, J.
Brahms, J. Sibelius, E. Lalo, S.
Prokofieff og G. Fauré.