Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 53
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hreinn og beinn og átt
auðvelt með að sýna tilfinn-
ingar þínar. Ef þú leggur hart
að þér á þessu ári muntu njóta
viðurkenningar á árinu 2003.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert að velta fyrir þér flutn-
ingum eða breytingum í
vinnu. Komandi vor og sumar
henta þér vel í fasteignavið-
skiptum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þrátt fyrir að þú sért að velta
því fyrir þér hvernig þú getir
aukið tekjur þínar ertu í raun
að fást við þá grundvallar-
spurningu hvað það er sem
skiptir þig máli.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Aðstæður þínar hafa breyst
og þú sérð að þú þarft að
breyta klæðaburði þínum.
Gerðu það sem til þarf.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur tilhneigingu til að
halda í hlutina af því að þú
færð ekki af þér að losa þig
við þá. Sýndu ákveðni og
gefðu eða hentu fimm hlutum
í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Líttu í kringum þig og leitaðu
leiða til að sinna einhverju
sem er þér æðra. Þú þarft á
því að halda til að auka sjálfs-
virðingu þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur öðlast margt sem þú
hefur látið þig dreyma um ár-
um saman. Gefðu þér tíma til
að meta það sem þú hefur
eignast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Íhugaðu hvaða takmörkum
þú vilt ná á næstu tveimur ár-
um. Hlutirnir gætu verið inn-
an seilingar ef þú bara veist
hvað þú vilt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Atvinnuleysi maka þíns eða
vinnuskipti geta leitt til þess
að þú hafir minna á milli
handanna. Í raun styrkir
þetta þig í því að byggja upp
þinn eigin starfsframa.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Náinn vinur eða maki reynir
á þolinmæði þína í dag. Við-
komandi býr enn yfir öllum
þeim kostum sem drógu þig
að honum. Reyndu að rifja þá
upp.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur alltaf talið að þú
þyrftir að leggja þig fram til
að ná árangri og því ertu
tilbúinn að leggja hart að þér.
Þú veist að þú munt uppskera
árangur erfiðis þíns.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aukin ábyrgð á börnum gætu
valdið þér hugarangri í dag.
Minntu þig á að samskipti við
börn eru tækifæri en ekki
byrði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að huga að viðgerð-
um á heimili þínu eða á ein-
hverju á heimilinu. Þú þarft
að finna til öryggis heima hjá
þér því þar er þitt persónu-
lega athvarf í heiminum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. b3 a6 4.
Bb2 Rc6 5. Be2 d5 6. exd5
exd5 7. d4 Rf6 8. O-O Be7 9.
dxc5 Bxc5 10. Rd4 O-O 11.
Rxc6 bxc6 12. Rc3 He8 13.
Ra4 Ba7 14. Bf3 Re4 15.
Bd4 c5 16.
Bb2 Bb7 17.
c4 d4 18. Ba3
Dc7 19. Dd3
Had8 20. Hfe1
f5 21. g3 He6
22. Bg2 Hde8
23. Bc1 Df7
24. Bd2 Bb8
25. f3 Rxd2
26. Dxd2 Bd6
27. f4
Staðan kom
upp á Reykja-
víkurmótinu
sem lauk fyrir
skömmu.
Þýski stór-
meistarinn,
Eric Lobron (2517), hafði
svart gegn Ingvari Ás-
mundssyni (2347). 27...
Bxf4! 28. Dxf4 28. gxf4 var
einnig slæmt vegna
28...Hg6. Í framhaldinu tap-
ar hvítur skiptamun. 28...
Hxe1+ 29. Hxe1 Hxe1+ 30.
Kf2 He8 31. Rxc5 Bxg2 32.
Kxg2 He2+ 33. Kf1 h6 34.
Dxd4 Dh5 35. h4 Kh7 36.
Df4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 53
DAGBÓK
Kringlunni, sími 588 1680.
V/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Ný sending frá
Buxur
Pils
Peysur
Bolir
Margar stærðir og gerðir
Fáið senda bæklinga
Leitið tilboða
Sumarhús frá Norður-Noregi
LJÓÐABROT
ÍSLENDINGAR
Þér Íslendingar! Orkuríka þjóð,
sem unnuð frelsi heitast jarðar gæða
og þreyttuð flug til andans hæstu hæða, –
í hugum brann hin skæra listaglóð, –
þér byggið töfraeyju yzt í sænum
með eld í hjarta, jökulheiða brá.
Af guðum vígð í himinhreina blænum
rís hún í glæstum ljóma yfir sjá.
Og brimið dunar, blik á vogi ljómar,
og blærinn andar, dynur stormahríð,
og fuglaraust frá heiðum himni ómar,
og heljar eldgos blossa yfir lýð
í samhljóm’ einum: Sundurbrjótið helsi
og sigrið vanda, byggið yðar land!
Og lausnarorðið hljómi: Frelsi, frelsi!
af fjallatindum nið’r á ægisand.
Þorsteinn Halldórsson
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 25. mars, verður fimm-
tug Guðbjörg Þórisdóttir,
skólastjóri, Leifsgötu 15. Á
afmælisdaginn tekur hún á
móti gestum kl. 19 á Hótel
Borg, gengið inn á Skugga-
bar.
60 ÁRA afmæli. Hinn20. mars sl. varð sex-
tugur Ómar Steindórsson,
flugvirki og flugvélstjóri,
Baugholti 9, Keflavík. Eig-
inkona hans er Guðlaug Jó-
hannsdóttir, hárgreiðslu-
meistari.
HVERNIG er best að vinna
úr lauflitnum? Í hnotskurn
er það vandi suðurs í fimm
tíglum:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 742
♥ Á98
♦ K93
♣Á1054
Suður
♠ Á108
♥ --
♦ ÁD108762
♣D32
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 1 tígull
1 hjarta 2 grönd 3 hjörtu 4 tíglar
Pass 5 tíglar Allir pass
Vestur kemur út með
hjartadrottningu. Hvernig
er best að spila? (Trompið er
2-1 og austur á einspil.)
Útspilið er upplýsandi. Í
fyrsta lagi er augljóst að
austur á hjartakóng. Hitt er
ekki eins augljóst, en þó lík-
legt, að austur sé með kóng
eða drottningu í spaða úr því
að vestur kom þar ekki út.
Af þessu tvennu virðist
mega draga þá ályktun að
vestur sé mun líklegri en
austur til að halda á lauf-
kóng – eitthvað á hann fyrir
innákomunni.
Ef lesandinn samþykkir
þessi rök er laufíferðin
nokkuð mörkuð. Sagnhafi
trompar hjartaútspilið og
tekur tromp tvisvar. Spilar
svo laufi á tíuna í þeirri von
að vestur eigi gosann með
kóngnum. En svo er ekki:
Norður
♠ 742
♥ Á98
♦ K93
♣Á1054
Vestur Austur
♠ K96 ♠ DG53
♥ DG10742 ♥ K653
♦ G5 ♦ 4
♣K6 ♣G987
Suður
♠ Á108
♥ --
♦ ÁD108762
♣D32
Austur tekur á gosann og
spilar spaða. Sagnhafi tekur
með ás og spilar laufi á ás-
inn. Í þessari legu kemur
kóngurinn sjálfviljugur og
þar með lýkur spilinu, en ef
ekki, er enn einn vinnings-
möguleiki eftir – laufið 3-3.
Þá er laufdrottningu hent í
hjartaás og lauf trompað.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Með morgunkaffinu
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Jú, við auglýstum eftir sölumanni, en ...
Gullsmárabrids
Mánudaginn 18. mars var spilað á
átta borðum 7 umferðir.
Besta skor N-S:
Sigurður Björnsson – Auðunn Bergsv. 147
Hermann Finnbogas. – Helga Ámundad. 139
Jónas Jónsson – Unnur Jónsdóttir 135
Einar Markússon – Sverrir Gunnarss. 135
A-V:
Leó Guðbrandsson – Ernst Backman 165
Guðmundur Pálsson – Kristinn Guðm. 151
Viðar Jónsson – Sigurþór Halldórss. 143
Meðalskor 126
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Nýlokið er fjögurra kvölda tví-
menningi. Spilað var á tólf borðum. Í
efstu sætum urðu eftirtaldir:
NS:
Bjarni Jóhannss. – Stefán Stefánss. 950
Ólafur Oddsson – Meyvant Meyvantss. 921
Karl Pétursson – Ingólf Ágústsson 915
AV:
Þórarinn Beck – Jón Úlfljótsson 958
Eyjólfur Jónsson – Sveinn Sigurjónss. 949
Karl Karlsson – Sigurður R. Steingr. 934
Frábærir
fótskemlar
Verð kr. 34.000
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is