Morgunblaðið - 24.03.2002, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
LAMBAKJÖT, sem flutt hefur verið
frá Íslandi til þriggja landa Evrópu-
bandalagsins, hefur ekki verið nægi-
lega vel merkt og því eytt áður en það
hefur komist á markað erlendis.
Fimm íslenskir aðilar hafa leyfi til að
flytja út til ESB og hjá fjórum þeirra
hefur þessu verið ábótavant. Ekki
hefur verið sett út á gæði vörunnar.
Dýralæknayfirvöld í Hollandi, Dan-
mörku og Englandi hafa tilkynnt um
málið til höfuðstöðva ESB í Brussel.
„Við lítum það mjög alvarlegum
augum að þetta skuli hafa komið fyrir
og við höfum áhyggjur af því að þetta
mál hafi verið tilkynnt til Evrópusam-
bandsins í Brussel,“ segir Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir. „Við höf-
um áhyggjur af því að staða Íslands
varðandi útflutning hafi beðið hnekki.
Þetta sýnir að menn verða að gæta
sín mjög vel hvað varðar allan útflutn-
ing, þetta er kröfuharður markaður.“
Merkingar, umbúðir og papp-
írsvinna stóðust ekki kröfur
Gísli Sverrir Halldórsson, dýra-
læknir útflutnings og innflutnings hjá
embætti yfirdýralæknis, segir að veru-
legur misbrestur hafi verið á frágangi
á vörunni, sérstaklega hvað varðar
merkingar, umbúðir og pappírsvinnu
vegna útflutningsins. „Þetta tengist
útflutningi á lambaslögum til Færeyja
og Englands,“ útskýrir Gísli. Fimm
aðilar, Sláturfélag Suðurlands (SS),
Norðlenska á Húsavík, Kaupfélag
Austur-Húnvetninga á Hvamms-
tanga, Sölufélag Vestur-Húnvetninga
á Blönduósi og Sölufélagið Búbót á
Höfn í Hornafirði, hafa útflutnings-
leyfi til landa ESB. Að sögn Gísla hafa
borist athugasemdir erlendis frá, einu
sinni eða oftar, vegna sendinga frá
þeim öllum, að SS undanskildu þar
sem öllum kröfum er að þessu lúta hef-
ur verið fullnægt. Gísli segir að at-
hugasemdir hafi tekið að berast fyrir
jól vegna sendingar til Danmerkur.
„Síðan gerðist þetta með sendingar til
Danmerkur, Englands og Hollands.
Þetta varð til þess að vörunni var eytt,
henni er ekki hleypt áfram ef þessir
hlutir eru ekki í lagi.“
Merkingar sem krafist er í ESB
eru þess eðlis að hægt er að rekja af-
urðirnar til viðkomandi lands og slát-
urhúss. „Evrópubandalagið er kröfu-
harðasti markaður heims og ef þetta
er ekki allt saman í lagi þá einfaldlega
fer varan ekki áfram. Með þessu eru
menn því í raun að tefla markaðsað-
gangi í hættu.“
Allir hafa bætt sig
„Við sáum því í raun ekki annan
kost en að fara til Danmerkur í byrj-
un mars til þess að vinna traust yf-
irvaldanna þar aftur, því segja má að
þeir hafi verið komnir með rauða
spjaldið á loft gagnvart innflutningi
frá Íslandi. Síðan þá hafa menn gert
verulegt átak í að bæta sig og allir
þessir aðilar hafa sent sendingar sem
hafa staðist ítrustu kröfur. Undan-
farnar vikur höfum við farið og skoðað
í gámana og pakkningarnar áður en
þær hafa farið úr landi. Það er þó ekki
lengra síðan en í síðustu viku að við
urðum að stoppa gám í Hafnarfirði.
Ef sú sending hefði farið hefði útflutn-
ingur til ESB væntanlega heyrt sög-
unni til en við eigum rétt á að flytja
1.959 tonn af lambakjöti til ESB og
Noregs árlega. Nú ríður á að allar
sendingar séu óaðfinnanlegar.“
LENGI hafa verið til heimildir
fyrir því að ýmsar kynjaverur og
tröll byggi fjöll þessa lands.
Margir hafa jafnframt borið að
hafa komist í kast við fjallbúana
og sloppið við illan leik. Heldur
hefur þessum frásögnum fækkað
í seinni tíð og er skýringin efa-
laust sú að landsmenn þeysa nú
frekar um á blikkbeljum en að
þramma vegleysur á fjöllum.
Ýmsir hafa þó orðið til að efast
um tilvist trölla en þegar myndir
nást af steinrunnum andlitum
bergrisanna þarf varla frekari
sannana við. Eða hvað? Ætli ljós
og skuggar hafi blekkt linsu ljós-
myndarans sem var á ferð um
Snæfellsnes á dögunum?
Sönnun
fyrir til-
vist trölla?
Morgunblaðið/RAX
Á AÐALFUNDUM KFUM og
KFUK, Kristlegra félaga ungra
manna og kvenna í Reykjavík, sem
haldnir voru í síðustu viku, var
ákveðið að sameina félögin. Félög-
in hafa starfað í 103 ár. Samein-
ingin hefur átt sér langan aðdrag-
anda og undirbúning. Einnig voru
samþykkt ný lög fyrir sameinað fé-
lag. Með sameiningunni næst
margs konar hagræðing og ein-
földun í rekstri og stjórnun félag-
anna. „Tímarnir breytast og félög-
in verða að laga sig að breyttum
aðstæðum, sameiningin er liður í
því,“ segir Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri KFUM og KFUK.
Kjartan segir að ýmsir þættir fé-
laganna hafi verið sameinaðir fyrr,
stjórnir félaganna hafa haldið sam-
eiginlega stjórnarfundi, reksturinn
hefur verið sameiginlegur svo og
húsnæði og eignir. „Þessi samein-
ing breytir því að nú verður form-
lega ein stjórn og verður hún kosin
á framhaldsaðalfundi 8. apríl næst-
komandi. Það verður einn formað-
ur og sjóðir renna saman.“ Kjartan
segir að í samþykktum lögum sam-
eiginlegs félags sé tryggt að sé
kona kjörin formaður verði karl
varaformaður og svo öfugt.
Fjölbreytt starfsemi
félaganna
Kjartan sagði að í framtíðinni
gæti verið að reksturinn myndi
breytast enn frekar. „Það er geng-
ið út frá því að hver starfsemi fái að
halda sínum séreinkennum. En
það má hugsa sér að með tímanum
verði strákaflokkar í sumarbúðun-
um Vindáshlíð og stelpuflokkar í
Vatnaskógi, það er aldrei að vita.“
Séra Friðrik Friðriksson stofn-
aði félögin árið 1899. Þau hafa stað-
ið fyrir öflugu barna- og unglinga-
starfi víðs vegar um borgina síðan.
Á þeirra vegum er rekið starf fyrir
stúlkur og pilta á um 27 stöðum,
auk sumarbúðanna í Vatnaskógi og
Vindáshlíð, en þar er verið að
byggja nýjan svefnskála. Ein
yngsta grein starfsins er miðborg-
arstarf félaganna í Austurstræti 20
fyrir ungt fólk sem hefur það að
markmiði að hafa mannbætandi
áhrif á æskuna í miðborginni.
Vímuefnalaust kaffihús var tekið
þar í notkun í október á síðasta ári.
Þá verður nýtt húsnæði leikskóla
félaganna tekið í notkun í næsta
mánuði.
KFUM og KFUK í
Reykjavík í eina sæng
Kjötsendingum eytt
í þremur löndum ESB
Merkingum var ábótavant hjá
fjórum útflytjendum af fimm
LÖGREGLAN stöðvaði í fyrrinótt
för tveggja manna sem höfðu gert
tilraun til að brjótast inn í bílasölu í
Njarðvík. Í bíl þeirra fundust m.a.
veiðihnífar, lítil hafnaboltakylfa, töfl-
ur, ónotaðar sprautur og nálar og
bakpoki með vasaljósi. Skömmu áð-
ur en lögregla hafði hendur í hári
þeirra hentu þeir lítilli handexi út úr
bílnum.
Mennirnir, sem eru 22 og 18 ára
gamlir, höfðu brotið rúðu í bílasöl-
unni en flúðu af hólmi þegar þeir
urðu varir við starfsmann bílasöl-
unnar innandyra. Hann gat gefið
lögreglunni í Keflavík lýsingu á bif-
reið þeirra og var lögreglan í Hafn-
arfirði fengin til að stöðva þá á
Reykjanesbrautinni. Þeim var síðan
ekið á lögreglustöðina í Keflavík þar
sem þeir voru yfirheyrðir um inn-
brotið og það sem fannst í bílnum.
Annasamt á næturvaktinni
Lögreglan í Keflavík hafði í nógu
að snúast á næturvaktinni. Meðal
verkefna var að stöðva slagsmál við
Ránarvelli í Keflavík og Hafurbjörn-
inn í Grindavík og síðar um nóttina
var bifreið ekið út af við Grindavík
en ökumaður er grunaður um ölvun
við akstur.
Þjófar stöðv-
aðir á Reykja-
nesbraut