Morgunblaðið - 07.04.2002, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í MEIRA en ár hefur GeorgeW. Bush, forseti Bandaríkj-anna, reynt að koma sér hjáafskiptum af deilunum í Mið-Austurlöndum og kannski í
þeirri von, að þær myndu þá
hverfa eða leysast af sjálfum sér.
Það gerðu þær ekki, þvert á móti.
Þær hörðnuðu stöðugt og voru
farnar að ógna verulega tilraunum
Bush til að efla og treysta barátt-
una gegn hryðjuverkum. Í ræðu
sinni á fimmtudag venti Bush sínu
kvæði í kross. Þá skoraði hann á
Ísraela að hætta hernaðinum gegn
Palestínumönnum og sagði, að her-
námi þeirra yrði að ljúka. Öryggi
Ísraela yrði að tryggja innan lög-
legra landamæra ríkisins.
Megináherslurnar í ræðu Bush
eru í sjálfu sér ekki nýjar af nál-
inni. Bandarísk stjórnvöld hafa
stutt stofnun sjálfstæðs, palest-
ínsks ríkis síðastliðin tvö ár og þá
ekki síður öryggi Ísraels allt frá
stofnun þess árið 1948. Það, sem er
nýtt, er sú ákvörðun Bush að beita
sér í þessum málum og setja um
leið sjálfan sig og stjórn sína að
nokkru leyti að veði fyrir árangr-
inum.
„Það mikilvægasta við ræðu
Bush er, að hann hefur ákveðið að
beita sér af alefli við að finna lausn
á deilumálunum í Mið-Austurlönd-
um,“ segir Edward S. Walker,
fyrrverandi sendiherra Bandaríkj-
anna í Ísrael og Egyptalandi.
„Hann ætlar að senda þangað Col-
in Powell utanríkisráðherra í sínu
eigin nafni en það þýðir, að hann
mun ekki fara þangað tómhentur,
aldrei þessu vant.“
Betra að veifa
röngu tré en öngu
Bjartsýnismenn eins og Walker
trúa því, að afdráttarlaus afstaða
Bush muni neyða Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, til að
hætta herförinni gegn Palestínu-
mönnum og gefa um leið hófsömum
leiðtogum Palestínmumanna tæki-
færi til að beita sér og vinna gegn
hryðjuverkum á borð við sjálfs-
morðsárásirnar.
Svartsýnismennirnir, til dæmis
Walter Cutler, fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna í Sádi-Arab-
íu, eru ekki trúaðir á mikinn ár-
angur en viðurkenna þó, að það sé
betra að veifa röngu tré en öngu.
Haft er eftir háttsettum en ónefn-
um embættismönnum í Banda-
ríkjastjórn, að auðvelt sé að taka
undir hvort tveggja. Forsetinn hafi
hins vegar ekki átt annan kost en
taka af skarið þar sem átökin hafi
verið farin að stefna í tvísýnu öll-
um áhrifum Bandaríkjamanna í
Mið-Austurlöndum.
Einn embættismaðurinn sagði,
að fulltrúi Abdullah, krónprins í
Sádi-Arabíu, hefði varað Banda-
ríkjastjórn við og sagt, að stöðvaði
hún ekki hernaðinn á Vesturbakk-
anum, myndi hún „aldrei fá afnot
af herbækistöðvum í Sádi-Arabíu
vegna hugsanlegra árása á Írak“.
Bandaríkjamenn höfðu líka
áhyggjur af því, að mótmælin gegn
þeim og Ísraelum myndu grafa
undan vinveittum ríkisstjórnum í
Egyptalandi og Jórdaníu og leiða
að lokum til enn alvarlegra
ástands.
„Staða okkar gagnvart almenn-
ingsálitinu í arabaríkjunum er afar
viðkvæm um þessar mundir,“ sagði
embættismaðurinn. „Við viljum
eiga samvinnu við arabaríkin í bar-
áttunni gegn hryðjuverkamönnum
en ekki hrekja þau í fangið á
þeim.“
Kom Ísraelum í opna skjöldu
Áður en Bush flutti ræðuna
höfðu Ísraelar lýst yfir, að herferð-
in gegn Palestínumönnum gæti
staðið í aðrar fimm vikur. Nú telja
margir, að þeir hljóti að draga úr
henni áður en Powell kemur til Ísr-
aels nú í vikunni. Viðbrögð Palest-
ínumanna og Ísraela við ræðunni
eru raunar mjög eftirtektarverð.
Þeir fyrrnefndu fagna henni þrátt
fyrir harða gagnrýni Bush á Yass-
er Arafat, leiðtoga þeirra, en þeir
síðarnefndu þegja þunnu hljóði.
AP
Reuters
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er hann flutti ræðuna á fimmtudag með
Colin Powell utanríkisráðherra sér við hlið.
’ Það er einfaldlegakenning Bush sjálfs
og eftir henni höfum
við farið ‘
Sharon sett-
ir úrslita-
kostir
Palestínska heimastjórnin hefur fagnað ræðunni,
sem Bush Bandaríkjaforseti flutti á fimmtudag,
þrátt fyrir harða gagnrýni á Arafat en Ísraelar
þegja enn þunnu hljóði. Þeir átta sig á, að nú eiga
þeir aðeins tveggja kosta völ. Að treysta öryggi sitt
innan eigin landamæra eða ögra öllum umheim-
inum og þar með Bandaríkjunum, öflugasta og
raunar eina bandamanni sínum.
Mikil mótmæli gegn Ísrael og Bandaríkjunum einnig hafa verið í flestum borga arabaríkjanna. Þessi voru í Kaíró í Egypta-
landi. Á spjaldinu stendur, að barátta gegn hernámi sé ekki hryðjuverk.
FYRIR hana Yu Weiqun reyndust
hjónabandsárin hennar átta vera
daglangt strit á hveitiakri fjölskyld-
unnar, eldamennska þegar heim var
komið, þrif og önnur störf. Maðurinn
hennar, sem oft var atvinnulaus, var
samt ekki ánægður og fannst sem
hún gæti gert betur. Í október síðast-
liðnum gafst Yu upp. Þá komst hún
að því, að maðurinn hennar hafði
tekið lán, sem jafngilti þrennum árs-
launum, án þess að láta hana vita.
Hún svaraði fyrir sig með þeim eina
hætti, sem hún gat; með því að
drekka banvænt skordýraeitur.
„Ég bara gafst upp og hugsaði
með sjálfri mér: Það er best, að ég
deyi, þá kemur í ljós hvað hann get-
ur,“ sagði Yu. Það tókst að bjarga lífi
hennar. Starfsmenn heilsugæslunnar
í þorpinu pumpuðu upp eitrinu.
157.000 á einu ári
Sjálfsvíg eru óvíða algengari en í
Kína, um 300.000 á ári, og ólíkt því,
sem er í öðrum löndum, þá eru konur,
alveg sérstaklega á landsbyggðinni,
meirihluti þeirra, sem stytta sér ald-
ur.
Í nýlegri grein í breska læknatíma-
ritinu The Lancet segir frá viðamestu
könnun, sem gerð hefur verið á þess-
um málum hingað til. Er hún meðal
annars byggð á opinberum tölum fyr-
ir árin 1995 til 1999 og samkvæmt
þeim binda 157.000 kínverskar konur
enda á líf sitt á hverju ári. Raunar eru
sjálfsvíg helsta banamein Kínverja
undir 35 ára aldri.
Opinberar tölur yfir sjálfsvíg í Kína
eru 21 á hverja 100.000 íbúa. Í Japan
er talan 18,8 eða næstum tvöfalt það,
sem er í Bandaríkjunum. Langhæst
er hún í Litháen samkvæmt upplýs-
ingum frá WHO, Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni, eða 41,9.
Ji Jianlin, sem vinnur að rannsókn-
um við Læknaháskólann í Shanghai,
segir hins vegar, að meðal kínverskra
kvenna, sem eru 40 ára eða yngri og
búa á landsbyggðinni, sé sjálfsvígs-
talan 67 fyrir hver 100.000. Konur
Binda enda á illa ævi með skordýraeitri
Hlutfall sjálfsvíga er hvergi hærra
í heiminum en meðal kínverskra
kvenna á landsbyggðinni
AP
Erfitt líf á landsbyggðinni í Kína bitnar einkum á konunum.
Suxiao. AP.