Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 57
ÞAÐ er erfitt að koma aftur eftir
fimm ára fjarveru í listinni, kannski
sérstaklega ef þú naust vinsælda og
aðdáunar milljóna manna. Ný plata
Celine Dion er sniðin með því mark-
miði að treysta
hana aftur í sessi. Í
því skyni er öllum
klóm skotið út.
Fjölbreytni laga er
því meiri en góðu
hófi gegnir, sumir
stílarnir henta, aðrir miður. Setur
þetta nokkra dæld í heildarmynd
plötunnar. Mammon er jafnan harður
húsbóndi, enda lítt gefinn fyrir list-
rænt gildi, svo fremi sem peningarnir
rúlli inn. Tónlist Celine Dion hefur
alltaf verið markaðsvæn og er það
gott og vel í sjálfu sér. Hér fer jafn-
vægið einfaldlega aðeins úr skorðum.
Til að mynda er platan alltof löng (17
lög og 72 mínútur) og offorsið í að
krækja í sem flesta kúnna einfaldlega
of mikið. Aðal Dion er melódrama-
tískar ballöður hvar sterk röddin nýt-
ur sín og sem betur fer er nóg af þeim
hér. Í taktkeyrðum, dansvænum
popplögum á hún það hins vegar til að
vera svolítið út úr kú. Og tilraun Dion
til að gera R og B („Super Love“) er
einfaldlega hræðileg.
Það sem bjargar þó öllu er röddin.
Hörðustu pönkhundar geta ekki neit-
að því að konan kann heldur betur að
syngja og smekkvísin er algjör. Rödd-
in ótrúlega sterk og örugg en á það til
að vera ofurfalleg og blíð ef því er að
skipta. Þetta breiðir yfir veikleika í
lagasmíðunum og gerir úrhrakið góðu
heilli þolanlegra.
Aðdáendurnir eiga síst eftir að
verða sviknir af plötunni. Sem slík er
hún að vísu brotakennd en ef við lítum
á þetta sem sautján laga safn, skreytt
skotheldri röddu Celine Dion, geta
allir verið sáttir. Tónlist
Dagur
með Dion
Celine Dion
A New Day Has Come
Columbia
Fyrsta hljóðversplata Celine Dion í fimm
ár. Fer víða ... aðeins of víða reyndar.
Arnar Eggert Thoroddsen