Morgunblaðið - 07.04.2002, Síða 58

Morgunblaðið - 07.04.2002, Síða 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG, 7. apríl 2002, er nákvæm- lega eitt ár í að Astro Boy vakni til síns vélræna lífs samkvæmt sam- nefndri myndasögu Osamu Tezuka og því ekki úr vegi að fagna þessum tímamótum fyrir fram. Reyndar hóf myndasagan um Astro Boy göngu sína fyrir rúmlega 50 árum en þar sem um vísindaskáldskap var að ræða lét höfundurinn söguna gerast í mjög svo fjarlægri framtíð (...árið er tvöþúsund og þrjú. Oohhh). Tíma- setningar í vísindaskáldskap hafa þann vana að verða að raunveruleika með tímanum, samanber 1984 eftir Orwell og standa þá sjaldnast undir þeim væntingum sem höfundarnir gerðu með framtíðarglígju í augun- um. Í Astro Boy fjallar Tezuka um vél- menni sem skapað er í mynd nýlátins sonar uppfinningamannsins. Andi Gosa svífur yfir vötnum. Astro er mörgum hæfileikum gæddur. Hann er margra manna maki að styrk (100.000 hestöfl), getur flogið, heyrt og séð í gegn um fjöll og firnindi og síðast en ekki síst hefur hann hríð- skotariffla í afturendanum (undarleg staðsetning). Hann hefur mannlegar tilfinningar og situr á skólabekk með jafnöldrum sínum. Sögurnar um Astro Boy eru með þeim vinsælustu og lífseigustu sem japanskar myndasögur hafa gefið af sér. Með hugarfóstri sínu skapaði Tezuka hefð fyrir vélmennasögum sem í dag eru orðnar svo vinsælar að þær hafa hlotið eigið nafn; „Mecha“ og eru Battle Angel Alita og Ev- angelion dæmi um nýlegri „manga“- sögur af þessum meiði. Þá má geta þess að teiknimyndir sem voru gerð- ar um Astro Boy voru fyrsu jap- önsku teiknimyndirnar sem sýndar voru í bandarísku sjónvarpi. Þær nutu gríðarlega vinsælda og ruddu brautina fyrir vinsældir „manga“ á vesturlöndum. Samt sem áður hafa upprunalegu myndasögurnar um Astro Boy aldrei verið gefnar út á ensku fyrr en nú og ber því vel í veiði. Astro Boy er á yfirborðinu frekar einfeldningsleg saga um hina sífelldu baráttu góðs og ills en þegar nánar er að gáð kemur margt fleira í ljós. Tezuka setur einhvers konar húm- aníska vísindahyggju á oddinn. Vís- indaleg framþróun er í eðli sínu já- kvæð en getur hins vegar snúist upp í andhverfu sína hjá illa innrættum einstaklingum. Hann er nokkuð ónæmur fyrir öllum þeim siðferðis- legu vangaveltum sem fylgja því að maður skapi mann utan þess nátt- úrulega ramma sem við notum okkur til fjölgunar. Með því sýnir hann framtíðartrú sem gerir ráð fyrir að siðferðislegar spurningar finni sér svör í nýjustu tækni og vísindum, enda er Astro Boy góður í eðli sínu þrátt fyrir vélmennsku sína. Há- loftabardagar og sprengingar eru eins og í öðrum hasarblöðum meg- inaðdráttarafl bókarinnar en þess fyrir utan sýnir Tezuka mikla hug- myndaauðgi í sögufléttum sem gert hafa þessa sögu sígilda. Spaugið er sjaldnast langt undan þótt það sé ansi japanskt og komi því okkur vestrænum nokkuð spánskt fyrir sjónir, eða þannig. Bókin er gefin út í mjög smáu broti sem getur reynst nokkuð knappt en teikningarnar eru bless- unarlega einfaldar og skýrar þannig að það kemur ekki mikið að sök. Þetta er fyrsta heftið af rúmlega 30 sem verða gefin út mánaðarlega héð- an í frá. Það er því af nógu að taka og ekki seinna vænna að kynnast Astro Boy, hetju framtíðarinnar, áður en hans framtíð verður okkar fortíð. MYNDASAGA VIKUNNAR Á sjöunda degi skapaði hann vélmenni Myndasaga vikunnar er Astro Boy, númer 1 eftir Osamu Tezuka. Dark Horse Com- ics gefur út, 2002. Bókin fæst í mynda- söguversluninni Nexus. Heimir Snorrason heimirs@mbl.is Vélmennatæknifræði 101. ÓKIND, sem leikur for-vitnilega nýbylgju meðhúmorískum og skemmti-legum textum, skipa þeir Ólafur Freyr Frímannsson trommu- leikari, Birgir Örn Árnason bassa- leikari, Steingrímur Karl Teague söngvari og hljómborðsleikari og Ingi Einar Jóhannesson gítarleikari. Ókindarfélagar byrjuðu að spila saman í tíunda bekk og þá sem skemmtiatriði, en söngtextar voru setningar sem klippar voru saman upp úr ensku-, þýsku- og dönskubók- um; dæmigerður skólahúmor. Skemmtunin var 1. desember 1998. Sveitin hét ß og var skipuð þeim Ólafi Frey sem lék á trommur, Inga Ein- ari á gítar, Steingrími Karli á hljóm- borð og ónefndum söngvara sem hvarf fljótlega af braut. Að skemmt- uninni lokinni ákváðu þeir þremenn- ingar að halda áfram að æfa, fengu aðstöðu í skólanum, enda átti að æfa fyrir árshátíð skólans. Birgir Örn kom inn sem söngvari og þannig skipuð tróð sveitin síðan upp á árshá- tíðinni. Inn í hesthús Það sumar færðu þeir sig inn í bíl- skúr heima hjá Ólafi Frey og héldu æfingum áfram með hléum. Birgir Örn fékk sér bassa um haustið og eft- ir það sá Steingrímur Karl um söng- inn einn síns liðs. Sumarið 2000 færðu þeir sig um set, fengu aðstöðu í hesthúsi, og voru þar til jóla. Þeir segja að aðstaðan þar hafi verið frá- bær en illt við að eiga hversu langt var að fara á æfingar, enda hesthúsið uppi við Heimsenda, og allir hafi þeir lyktað heldur illa eftir æfingar og reyndar meira og minna allt sumarið. Vendipunktur í sögu Ókindar var aft- ur á móti þegar þeir sáu auglýsingu um æfingarhúsnæði hjá Danna Pollock í febrúar 2000 og vegna þess að þeir voru fljótir til fengu þeir þar inni. Aðstaðan breytti miklu Þeir segja að aðstaðan hjá Danna hafi breytt miklu, allt hafi komist í fastari skorður, þeir fóru að æfa skipulegar og lengur, tóku sér al- mennilegt nafn, Ókind, og byrjuðu meira og minna upp á nýtt, héldu bara tveimur eða þremur lögum af þeim sem þeir höfðu verið að fást við fram að þessu; byrjuðu að semja ný lög af kappi. Sem stendur eru þeir með á tíu til tólf lög undir, en átta sem þeir segja plötuhæf. „Lagið Hæna er lag sem við vorum til dæmis nánast búnir að sparka en það hélst inni bara vegna þess að það var svo gaman sð spila það. Þegar við spil- uðum svo á Fimmtudagsforleik í Hinu húsinu viku áður en við tókum þátt í Músíktilraununum sagði Bibbi að þetta væri besta lagið okkar og lagði svo hart að okkur að taka það að við létum það vaða. Við sitjum því uppi með þetta lag,“ segja þeir og hlæja, „en það er líka gaman að spila eitthvað sem fólk þekkir, við fundum það á úrslitakvöldinu.“ Eins og þeir félagar segja frá því kom meiri metnaður í þá þegar þeir komu í húsnæðið hjá Danna, enda fannst þeim þeir vera komnir í alvöru hljómsveitaaðstöðu. „Að komast hingað þjappaði okkur betur saman og við áttuðum okkur betur á því að við gætum unnið úr því sem við vor- um með í höndunum,“ segir Ingi og heldur áfram: „Við vorum búnir að vera stefnulausir en náðum að spila okkur saman þegar við komum hing- að, fundum stefnu sem við kunnum allir vel við þótt við séum enn að mót- ast.“ Það gekk þó ekki þrautalaust að koma sér fyrir á nýja staðnum, því Ólafur Freyr segir að misklíð hafi komið upp í sveitinni og svo fór að Ingi Einar hætti um hríð. Hinir reyndu fyrir sér með aðra gítarleik- ara, en þeir sem spreyttu sig féllu ekki inn í sveitina, komust ekki í samband við stemmninguna sem þeir voru búnir að mynda sem félagar frá því í barnaskóla. Ingi Einar sneri því aftur og í dag segja þeir að skiln- aðarpakkinn sé búinn, það verði ekk- ert til að slíta þá í sundur héðan af. Þeir segjast hlusta á flestar gerðir tónlistar, allt nema rapp og FM- tónlist, en hafi mjög ólíkan smekk þótt þeir sameinist í einni gerð tón- listar, Ókindartónlist. Allir eru þeir lærðir í tónlist nema Birgir Örn, sem fékk reyndar verðlaun sem besti bassaleikarinn á Tilraununum. Þeir segja að það sé mjög þægilegt að hafa lært. Það flýti fyrir þegar verið sé að pæla í músíkinni, en mestu skipti að hafa Steingrím Karl, hann sé yfirgagnrýnandi sveitarinnar, eyra hennar. Músíktilraunirnar markmið Músíktilraunir gefa mönnum ákveðið markmið og reynist mörgum sveitum vel til að taka af skarið, verða að alvöru hljómsveitum en ekki bara æfingavinum. Þeir Ókind- armenn segjast hafa velt því fyrir sér að taka þátt á síðasta ári, en ákveðið að geyma það um sinn og stefna svo af krafti á tilraunirnar 2002, þar sem þeir komust í úrslit og síðan á verð- launapall eins og áður er getið. Þeir segja að það sé ekkert spennufall þó tilraununum sé lokið, næst á dagskrá sé að koma frá sér lögum, taka upp plötu, svo hægt sé að einhenda sér í að semja meira. „Við erum ákveðnir í að koma frá okkur plötu í haust, næst á dagskrá er að taka upp almennileg demó og síðan að undirbúa að taka upp plötu í sumar og koma henni út í október, ekki í jólaplötuflóðið,“ segja þeir og bæta við að tímarnir í Grjót- námu eigi eftir að duga í einhvern hluta plötuvinnunnar. Þeir segjast ekkert farnir að spá í hvernig verði með útgáfuna, hvort þeir gefi skífuna sjálfir út eða leiti til fyrirtækis, það komi bara í ljós, platan komi út hvernig sem fer. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Forvitnileg nýbylgja Í nýliðnum Músíktilraunum Tónabæjar vöktu ýmsar sveitir athygli og fáar meiri en Ókind sem hreppti annað sætið. Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.