Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8. B.i.12. Vit 353 Sýnd kl. 4 og 6. Vit 349.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
Sýnd kl. 10.15. Mán 8 og 10.15. B.i.12. Vit nr. 356
Sun. kl. 2. Íslenskt. tal. Vit 338
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Mán kl. 5.30, 8 og 10.30.Vit nr. 363
Forsýnd kl. 2 og 4. Forsýnd kl. 8. Vit 367
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 358.
½SG DV
kvikmyndir.com
½kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
½HJ Mbl
Sýnd í Lúxus VIP kl. 2, 5.30, 8 og 10.40. B.i. 16. Vit 335.
Mán í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 357
Mán kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Þú ert boðin í hreint ótrúlega fjölskyldusamkomu!
Stórstjörnurnar Danny Glover, Gene Hackman, Anjelica Huston, Bill Murray,
Gwyneth Paltrow, Ben Stiller, Luke Wilson og Owen Wilson í magnaðri
gamanmynd sem var tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna og vann Gene
Hackman Golden Globe verðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki.
Golden Globe verðlaun: BESTI LEIKARINN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 337
Mán kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
Eitt magnaðasta ævintýri
samtímans eftir sögu H G Wells
DV
1/2
Kvikmyndir.is
R íkey s ýn i r v e r k s í n í a nddy r i b í ó s i n s
Sýnd kl. 4, 7 og 10. Mán 7 og 10. B. i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B. i. 16.
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
kvikmyndir.com
DV
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
tilnefningar til Óskarsverðlauna5
Sýnd kl. 5.45 og 10. Síðustu sýningar.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
SG. DV
Sýnd kl. 10. Mán kl. 10.30.
Sun. kl. 2 og 4.
DV
1/2
Kvikmyndir.is
Sun. kl. 2 og 4.
SIDEWALKS
OF NEW YORK
Frumsýning
SG DV
Frá framleiðanda Snatch og Lock, Stock
And Two Smoking Barrels kemur ný
kvikmynd sem hittir beint í mark. Með hinum
gallharða Vinnie Jones (Snatch, Swordfish).
Sunnudag kl. 2. Lokasýning
Sýnd kl. 6 og 8. Miðaverð kr. 800.
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 5. Ísl. tal.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 4.30, 7 og 9.30. B.i. 12.
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
EVA Truffaut er dóttir þekktasta
kvikmyndagerðarmanns Frakka
fyrr og síðar, leikstjórans François
Truffaut. Hún er komin hingað til
lands til að vera viðstödd opnun
kvikmyndahátíðar og málþings um
föður sinn heitinn, en það hefst í
dag kl. 15 í Þjóðmenningarhúsinu.
Hátíð í anda François
„Ég fer ekki mjög oft út í heim að
kynna myndir François, einsog aðr-
ir í fjölskyldunni. Mér fannst bara
þessi hátíð skemmtilega skipulögð,
og meira í anda þess sem François
hefði sjálfum líkað,“ segir Eva sem
vinnur nú við kvikmyndir eftir að
hafa verið fatahönnuður og ljós-
myndari til margra ára.
Á hátíðinni verða sýndar fimm
myndir eftir Truffaut í bíó en sex í
Sjónvarpinu. Finnst Evu þessar
myndir gefa góða mynd af föður
sínum sem leikstjóra og því sem
hann hafði fram að færa?
„Já, mér finnst valið gott, nema
ég sakna þess að sjá ekki eina af
myndum hans sem fjalla um óham-
ingjusama ást. Það finnst mér vera
ekta faðir minn. Það hefði verið fínt
að sjá Les deux Anglaises et le
continent, því það er sú mynd sem
minnir mig mest á föður minn og
sýnir best hvernig hann sá sambönd
fólks, ástina og kvölina sem felst í
því að lifa. Myndin L’Homme qui
aimait les femmes (Maðurinn sem
elskaði konur) verður sýnd á hátíð-
inni, og hún er ein af uppáhalds-
myndunum mínum. Hún er ekki fal-
legasta myndin hans, en einna best
skrifuð.“
Með þroskaða lífsmynd
Einungis ein búningamynd verð-
ur sýnd, Le dernier Métro (Síðasta
lestin) sem gerist í heimsstyrjöld-
inni síðari.
„Faðir minn elskaði búninga-
myndir og þær sem voru byggðar á
stórum og dramatískum bók-
menntaverkum, með meðfylgjandi
ástríðum fólks fyrr á öldum. Hann
hreinlega elskaði bækur og mynd-
irnar Jules et Jim og Tirez sur le pi-
aniste (Skjótið píanóleikarann) eru
báðar byggðar á skáldsögum. Jules
og Jim er reyndar búningamynd því
hún gerst í fyrri heimstyrjöldinni.
En þar sem um ástarþríhyrning er
að ræða, finnst manni hún ósjálfrátt
samtímamynd.“
Með þroskaða lífsmynd
– Sumir segja „Jules et Jim“
bestu mynd föður þíns.
„Já, en ég get ekki verið sammála
því, og ég veit að hann hefði ekki
heldur verið það. Ég held að fólki
hafi bara fundist ótrúlegt að svo
ungur náungi hefði svo þroskaða
lífsmynd. Föður mínum fannst eftir
á að hyggja að Jeanne Moreau hafi í
rauninni ekki valdið hlutverkinu.
Eins og henni finnist hún aðal-
stjarnan, og þannig skyggði hún á
mennina sem hún lék á móti. Hann
sá svolítið eftir því.“
– Hvaða mynd finnst þér best?
„L’Enfant sauvage (Villibarnið)
er annars uppáhaldsmyndin mín, af
þeim sem faðir minn gerði. Öll
myndræn vinnsla þeirrar myndar
finnst mér stórkostleg.“
Að samsama sig kvenhetjum
– En hver var uppáhaldsmynd
François?
„Það var misjafnt eftir tímabilum.
Hann skipti líka alltaf um stíl eftir
hverja mynd. En sú mynd sem hann
þoldi ekki var L’Amour en fuite, og
þar hafði hann rétt fyrir sér!
Honum fannst þær myndir bestar
þar sem hann gat samsamað sig
sterkum kvenhetjum, einsog í La
femme d’à côté (Konan við hliðina)
þar sem líður yfir hana og hún er
við það að deyja úr ást. Það var
mjög líkt föður mínum sem var mik-
ill ástríðumaður,“ segir Eva að lok-
um brosandi, og vonast til að sjá
sem flesta í bíó og í Þjóðmenning-
arhúsinu um helgina.
Mikill ástríðumaður
Morgunblaðið/Ásdís
Evu Truffaut langar að sjá sem flest á Íslandi, og ekki bara bíó.
hilo@mbl.is
Truffaut-kvikmyndahátíðin komin á fullt
Í ÁRDAGA þess sem hef-
ur verið kallað „speed-
metal“ eða „thrash-
metal“ var ávallt talað
um hina „stóru fjóra“.
Þ.e. Metallica, Slayer,
Anthrax og Megadeth.
Þetta var í kringum 1983
og þrjár fyrstnefndu
sveitirnar eru enn í fullu
bárujárnsfjöri. En þá
síðasttöldu hefur nú, eft-
ir 20 ára starf, þrotið
örendi. Leiðtogi hennar
Dave Mustaine, sem hefur um ára-
bil átt við vímuefnavanda að etja,
tilkynnti á miðvikudaginn að hann
hefði lagt sveitina niður og hygð-
ist snúa sér að öðrum sviðum inn-
an tónlistarbransans.
Megadeath steindauð