Morgunblaðið - 07.04.2002, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 61
Hin léttleikandi Britney Spears í sinni
fyrstu bíómynd sem kemur öllum í gott
skap. Hin frábæru lög „I’m Not A Girl, Not
Yet A Woman“, „Over protected“ ofl. eru
m.a. í myndinni.
HL. MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit . 351Sýnd kl. 2 og 4. Mán 4. Ísl tal. Vit 338
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 357.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i.12. Vit 353.
Sýnd kl. 2. Vit 349.
Flottir bílar,
stórar byssur
og harður nagli
í skotapilsi.
Samuel L.Jackson og Robert
Carlyle eru frábærir í mynd
þar sem hasar ogkolsvartur
húmor í anda Snatch ræður
ríkjum.
Frumsýning
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Íslenskt tal. Vit nr. 358.
1/2
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 9. B.i.12. Vit nr. 353
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Vit 335.
4 ÓSKARSVERÐLAUN...
M.A Besta mynd, besti leikstjóri (Ron Howard), besta aukahlutverk kvenna
(Jennifer Connelly) og besta handrit (Akiva Goldman)
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
B.i.16. Vit 366.
Hverfisgötu 551 9000
Kvikmyndir.com
DV
SG DV
½ RadíóX
Kvikmyndir.is
EIN AF BESTU MYNDUM ÁRSINS!
Til eru þeir sem er ætlað að deyja, þeir sem er ætlað að
hata og þeir sem kjósa að lifa. Margverðlaunuð gæðamynd
þar sem Billy Bob Thornton og Halle Berry sýna stórleik.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i 16.
HK. DV
SV. MBL
2 Óskarsverðlaun
Halle Berry fékk Óskarinn
sem besta leikkona í aðalhlutverki.
Halle Berry fék Ós ri
sem besta leik ona í l tverki.
1/2Kvikmyndir.com
RadioX
Yfir 20.000 áhorfendur
Missið ekki af fyndnustu mynd ársins
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
www.regnboginn.is
MBL
Sýnd kl. 5.30 B.i 16.
Sýnd kl. 8 og 10.
Le Dernier Métro - Síðasta lestin
Sýnd kl. 3.40
L´homme qui aimait les -
Maðurinn sem elskaði konur
Sýnd kl. 5.50
Les 400 Coups - Æskubrek
Sýnd kl. 8
L´argent de poche - Vasapeningar
Sýnd kl. 10.10
No Man´s
Land
Óskarsverðlaun sem
besta erlenda myndin
Sýnd kl. 3.45. Síðustu sýn.
1/2HK DV
EF Seattle er eða var höfuðborg
gruggsins þá er Chicago höfuðborg
síðrokksins. Hér áður fyrr skýldi
borgin í meiri mæli „sicko-rokk“
böndum eins og Big Black og Jesus
Lizard en nú er þetta eitt helsta at-
hvarf tilraunakenndrar tónlistar að
hætti Tortoise og skyldra sveita.
Kannski er það þess vegna sem 90
day men ákváðu að nefna eitt laga
sinna „Þetta er Chicago að kenna“
(e. „We blame Chicago“) en það er
að finna á nýjasta hljómdiski þeirra,
To Everybody?
Þó vissulega megi rekja hljóm
sveitarinnar til rokk-tilraunastofa í
Chicago þurfa meðlimir þó síður en
svo að vera með einhverjar afsak-
anir. Ný plata sveitarinnar er þvert
á móti vel útfært, framþróað verk
sem eltir ekki ólar við einn né neinn.
Metnaðarfull plata sem nær þeim
árangri að vera einstök, þ.e. með
sinn hljóm og brag. Eitthvað sem
getur verið sorglega sjaldgæft í síð-
rokkinu, því miður.
En nóg um það. Við skulum sjá
hvað Brian hefur að segja.
Jæja, hvað segir hann þá?
„Allt fínt bara...“
Segðu mér nú aðeins af hljóm-
sveitinni þinni?
„Humm...ég og trommarinn höfð-
um verið að spila saman í fimm ár
þar til að bandið tók loks á sig end-
anlega mynd árið 2000.“
Og nú eruð þið á leiðinni til Ís-
lands...
„Já. Þetta verða fyrstu tónleik-
arnir í Evróputúr sem við erum að
fara í. Við hlökkum mikið til að
koma.“
„Túrið“ þið mikið?
„Já, svona frekar. Þetta er annar
Evróputúrinn okkar en við höfum
farið í tónleikaferðalög um Banda-
ríkin sex eða sjö sinnum.“
Hvernig myndir þú lýsa tónlist-
inni ykkar?
„Ja...ég veit það ekki. Við erum
með píanó, trommur, gítar og bassa.
Við semjum bara tónlist sem okkur
finnst skemmtileg. Ég myndi segja
að hún væri dálítið flókin og við
spinnum svolítið. Hljómurinn okkar
er nokkuð myrkur að mínu mati.“
Hvað finnst þér um þessa síð-
rokkssenu í Chicago?
„Umm...það sem er gott við borg-
ina er að það er mjög virkt og skap-
andi tónlistarlíf í borginni. Þetta er
stór borg en tónlistarsenan heldur
fast saman. Allir hjálpast að og slíkt.
Í sumum af þessum stóru borgum er
fólk meira að keppa hvað við annað í
stað þess að hjálpast að.“
Myndir þú segja að það væri mik-
ill munur á nýju plötunni og þeirri
síðustu ((It(Is) It) Critical Band,
2000.)?
„Ó já. Miklar breytingar. Þegar
Andy (píanóleikari) bættist í hópinn,
rétt fyrir fyrstu plötuna, þá samdi
hann sína parta ofan á það sem við
vorum þegar búnir að semja. En á
þessari nýju sömdum við lögin í
sameiningu, allir fjórir. Ég myndi
segja að það væri reginmunur á
þessari plötu og þeirri síðustu.“
Náið þið að lifa af þessu?
„Nei (hlær). Ekki ennþá alltént.“
Tónleikarnir fara fram eins og áð-
ur segir á morgun, mánudag, á Gauk
á Stöng. Fidel hita upp og er að-
gangseyrir 1.000 kr.
90 day men með tónleika á Gauknum á morgun
„Spinn-
um svo-
lítið“
Sönnun á því að 90 day men eru grallaraspóar inni við beinið.
arnart@mbl.is
90 day men er hörku ný-
bylgjuband frá Chicago.
Arnar Eggert Thor-
oddsen ræddi við Brian
Case vegna tónleika
þeirra á Gauknum á
morgun.
AÐALLEIKKONAN úr
Beðmálum í borginni
Sarah Jessica Parker á
von á sínu fyrsta barni í
haust með eiginmanni
sínum, leikaranum
Matthew Broderick.
Parker, 36 ára, ku
kvíða þess mjög að
verða móðir. Það er þó
ekki sársaukafull fæð-
ing sem vekur ótta leik-
konunnar heldur hugs-
anleg áhrif barn-
eignarinnar á frama
hennar.
Þrátt fyrir að Parker
þrái að eiga barn, óttast hún að
með því að verja tíma sínum í
barnauppeldi muni hún missa af
góðum tækifærum í Hollywood.
„Tækifærunum fækkar stöðugt
og það er erfitt að taka ákvörðun
um að verja ári í barneignir og fjöl-
skyldulíf og láta kylfu ráða kasti
þegar ég sný aftur,“ sagði Parker
nýverið í viðtali við tímaritið Harp-
ers & Queen.
Parker og Broderick, sem er
frægur fyrir hlutverk
sín í myndunum Ferris
Buler Day Off, Glory
og The Freshman, hafa
verið gift í fimm ár en
sögusagnir höfðu verið
á kreiki um allnokkurt
skeið um tíð rifrildi
þeirra hjóna og að það
hilli undir endalokin.
Sögusagnirnar fóru
fyrst af stað þegar
Parker mætti á Golden
Globe-verðlaunahátíð-
ina fyrr á árinu með
mótleikara sinn úr
þáttunum John Corbett
sér við hlið og lét síðan ógert að
þakka eiginmanni sínum er hún tók
við verðlaunum sínum sem besta
gamanleikkonan í aðalhlutverki.
Baksviðs sagði Parker: „Ég er
miður mín, ég gleymdi að þakka
einum í ræðunni minni. Maður sem
hefur hjálpað mér á svo margan
hátt og hefur ætíð verið til staðar
fyrir mig ...“ Síðan þakkaði hún
manninum sem sér um kynning-
armálin hennar.
Barneignir í borginni
„Hmm, hverjum er
ég að gleyma?“
Reuters