Morgunblaðið - 07.04.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
ÞAU eru mörg útiverkin sem unnin
eru í höfuðborginni þessa dagana í
vorblíðunni og skyldi enginn kvarta
yfir óhagstæðu veðurfari. Fisk-
verkendurnir sem ljósmyndari
rakst á við Ægisíðuna hengdu upp
grásleppuna, að hluta til huldir bak
við sjávarfangið.
Morgunblaðið/RAX
Grásleppan
hengd upp
VÍKINGASKIPIÐ Íslending-
ur var sett á uppboð á netmark-
aðinum ebay.com á föstudag og
verður boðið þar til sölu í tíu
daga. Að sögn Gunnars Marels
Eggertssonar, skipstjóra og
eiganda skipsins, leitar hann nú
allra ráða til að selja skipið eftir
siglinguna frá Íslandi sem vakti
mikla athygli á sínum tíma.
„Málið er ekki búið fyrr en ég
er búinn að selja Íslending. Ég
hef ekki önnur ráð í bili en setja
það á uppboð, þó tvö fyrirtæki
úti hafi verið að spá í að kaupa.
Það eru hins vegar einhver
langtímamarkið hjá þeim sem
ég hef ekki tíma til að bíða eft-
ir.“ Gunnar segir engan áhuga
hér á landi á að kaupa skipið.
Engin viðbrögð hafa ennþá
borist vegna uppboðsins á
ebay.com, að sögn Gunnars.
Hann segist hafa sett um 60
milljóna króna lágmarksverð á
skipið, sem er 75 fet á lengd en
Bandaríkjamenn miða aðallega
við lengd á skipum við verð-
lagningu. Gunnar segir að á
uppboðinu sé einnig nýtísku 70
feta skúta, sem sett er á 93
milljónir króna. „Miðað við það
finnst mér ekki mikið að byrja á
60 milljónum fyrir Íslending.
Ef hann væri í eigu Banda-
ríkjamanns myndi hann ekki
setja skipið á undir 200 millj-
ónir á ebay.“
Víkingaskipið Íslendingur er
nú í geymslu í Westbrook, 80
mílur frá New York, en þar hef-
ur skipið verið síðan haustið
2000.
Íslending-
ur boðinn
upp á
Netinu
FYRIR helgina kvað Héraðsdómur
Reykjavíkur upp dóm í máli manns
gegn Tollstjóraembættinu og ís-
lenska ríkinu en málið sætti flýtimeð-
ferð.
Í dómsorði er viðurkennt að sú
ákvörðun Tollstjóraembættisins, að
krefja vinnuveitanda mannsins um
afdrátt af launum hans til greiðslu
skattakrafna sænskra yfirvalda á
hendur honum, hafi verið ólögmæt og
er stefndu gert að endurgreiða upp-
hæðina með dráttarvöxtum auk alls
málskostnaðar. Héraðsdómur vísaði
hins vegar frá kröfu stefnda um að
réttur hans til skaðabóta yrði viður-
kenndur.
Málavextir voru þeir að Tollstjóra-
embættið fékk til innheimtu skatt-
kröfu frá sænskum yfirvöldum á
hendur manninum og var reynt að
heimta kröfuna en án árangurs. Toll-
stjóraembættið krafðist þess þá að
vinnuveitandi héldi eftir af launum
mannsins til greiðslu kröfunnar. Fór
svo að vinnuveitandinn taldi sér ekki
annað fært og hélt eftir um 135 þús-
und krónum í febrúarmánuði síðast-
liðnum sem síðan voru greiddar til
Tollstjóraembættisins. Lögmaður
mannsins taldi kröfu Tollstjóraemb-
ættisins, þar sem vísað var til samn-
ings milli Norðurlandanna um aðstoð
í skattamálum, lögleysu enda gildi
ekki almennur forgangsréttur inn-
heimtumanna ríkissjóðs um erlendar
skattakröfur auk þess sem með þessu
væri meðalhófsreglan brotin.
Í dóminum er viðurkennt að
ákvörðun Tollstjóraembættisins um
afdrátt hafi verið ólögmæt og hún
skuli því vera ógild. Stefnda er því
gert að greiða manninum umræddar
135 þúsund krónur með dráttarvöxt-
um auk 350 þúsund króna í máls-
kostnað. Viðar Lúðvíksson flutti mál-
ið fyrir hönd mannsins en Óskar
Thorarensen var til varna fyrir Toll-
stjóraembættið og íslenska ríkið.
Dóminn kvað upp Arngrímur Ísberg
héraðsdómari.
Ólögmætt að draga
af launum vegna er-
lendra skattakrafna
MIKIL aukning hefur orðið á eft-
irspurn eftir matvælaaðstoð og ráð-
gjöf hjá innanlandsaðstoð Hjálpar-
starfs kirkjunnar. Í ár hafa borist
rúmlega 200 fleiri umsóknir en á
sama tíma í fyrra. Umsóknirnar voru
1.231 hinn 1. apríl í fyrra en 1.454
hinn 1. apríl sl.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi
Hjálparstarfsins, segir að á bakvið
þessar 200 aukaumsóknir standi 5–
700 manns. Hún segir að aukningin
hafi verið mest meðal einstæðra
mæðra, umsóknum frá þeim hafi
fjölgað úr 223 í 484. Einnig hafi um-
sóknum frá fólki sem er á framfæri
hjá félagsmálastofnunum sveitarfé-
laga höfuðborgarsvæðisins fjölgað.
Dæmi eru um að fólk lifi á hafra-
graut mánuðum saman og geti ekki
leyft sér að kaupa ferskt grænmeti
eða ávexti. Þá eru dæmi þess að for-
eldrar steli úr verslunum til að börn-
in þeirra fái að borða:
„Ég get ekki horft upp á börnin
mín svelta. Frekar fer ég út í búð og
stel til þess að þau fái að borða og
það hef ég neyðst til að gera margoft
þegar allar aðrar leiðir hafa verið
lokaðar,“ segir faðir í Reykjavík,
sem býr við fátækt, í samtali við
Morgunblaðið.
Fleiri sækja um mat-
araðstoð og ráðgjöf
Í fjötrum/B1
ÞRÍR starfsmenn álversins í
Straumsvík fóru á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi með grun um
reykeitrun eftir óhapp í álverinu í
gærmorgun. Samkvæmt upplýsing-
um frá sjúkrahúsinu var ekki um al-
varleg tilfelli að ræða.
Tildrög voru þau að verið var að
hella bræddu áli úr ofni, með því að
halla honum, en ókunn bilun olli því
að ekki var unnt að færa ofninn í
upprunalega stöðu. Um 15 tonn af áli
láku því úr ofninum, sem tekur 75
tonn, og storknuðu á gólfinu. Að
sögn Hrannars Péturssonar, upplýs-
ingafulltrúa ÍSAL, óskaði fyrirtækið
eftir því að mennirnir færu í skoðun
á sjúkrahúsi og fengu þeir að fara
heim að henni lokinni. Hrannar sagði
að um smávægilegt tjón væri að
ræða. Umræddur ofn hefur nýlega
verið tekinn í notkun.
Þrír taldir með
reykeitrun
Fimmtán tonn af bræddu áli láku úr
nýjum ofni álversins í Straumsvík
LÖGREGLAN á Blönduósi hef-
ur til rannsóknar innbrot í tvö
sveitabýli í Vestur-Húnavatns-
sýslu og telur að tengsl séu á
milli innbrotanna. Innbrotin
voru framin 31. mars að því er
talið er, annarsvegar á býlinu
Urðarbaki og hins vegar á Galt-
arnesi í Víðidal. Úr fyrrnefnda
innbrotinu var stolið nokkrum
skotvopnum, þar á meðal
skammbyssum og miklu magni
af skotfærum og biður lögreglan
þá, sem geta veitt upplýsingar
um innbrotin, að hafa samband.
Skamm-
byssum og
öðrum vopn-
um stolið