Morgunblaðið - 18.04.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þú kemur alveg mátulega, elskan, ég var að ljúka við skítverkin.
FYRRVERANDI stjórnarformaður
og starfandi framkvæmdastjóri inn-
heimtu- og lögfræðistofu hefur verið
ákærður fyrir fjárdrátt og skjala-
fals. Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjaness á þriðjudag og ját-
aði ákærði allar sakirnar.
Í ákæru sem efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra gefur út er hann
sakaður um að hafa dregið sér og
notað í rekstur fyrirtækisins sam-
tals um 9,5 milljónir króna sem var
hluti af greiðslum sem innheimtar
voru af fyrirtækinu fyrir viðskipta-
vini.
Hinn meinti fjárdráttur fór fram
á árunum 1995 til 2000. Dró hann
sér fé af greiðslum frá 95 skuld-
urum en þær voru innheimtar fyrir
43 kröfuhafa. Fjárdráttur gagnvart
einstökum kröfuhafa nam mest um
1,4 milljónum króna. Þá er honum
gefinn að sök fjárdráttur með því að
hafa ítrekað falsað nafn föður síns,
ýmist sem ábekings eða útgefanda
víxla sem hann notaði til að greiða
skuldir við banka og leigusala.
Skjalafalsið átti sér stað á árunum
1999 til 2001.
Ákærður fyrir
fjárdrátt og skjalafals
Stakk
innheimtu-
kröfum
undan
MAÐURINN sem hryggbrotnaði
þegar bifreið hans fór út af veginum
um Kambana á þriðjudag fyrir viku
er á batavegi á gjörgæsludeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi.
Maðurinn hefur gengist undir að-
gerðir á spítalanum og var tengdur
við öndunarvél á gjörgæsludeildinni
en losnaði úr henni á mánudag.
Bifreið hans valt margar veltur
áður en hún stöðvaðist um 40 metra
fyrir ofan veginn. Maðurinn var einn
í bifreið sinni og virðist ekki hafa
verið í bílbelti því hann kastaðist út
úr bifreiðinni og kom lögregla að
honum 15–20 metrum fyrir ofan
hana.
Þá er drengurinn sem slasaðist al-
varlega á höfði þegar hann stökk á
skíðum á skíðasvæði Ísfirðinga í
Tungudal um miðjan marsmánuð
kominn til meðvitundar. Hann var
útskrifaður af gjörgæsludeild um
helgina og er nú á batavegi á legu-
deild.
Bílslysið í Kömbunum
Maðurinn á batavegi
LÖGREGLAN á Blönduósi vinnur
að því að upplýsa stórfelldan þjófnað
á skotvopnum af býlinu Urðarbaki í
Vestur-Húnavatnssýslu, en talið er
að vopnunum hafi verið stolið í inn-
broti 31. mars. Stolið var tveimur
rifflum, fjórum haglabyssum og
þremur skammbyssum og miklu af
skotfærum. Vopnin voru öll í löglegri
eign og brúkleg.
Lögreglan biður alla þá sem geta
upplýst um mannaferðir við Urðar-
bak í kringum 31. mars, svo og við
býlið Galtarnes í Víðidal, þar sem
brotist var inn, að hafa samband.
Byssuþjófnaður
óupplýstur
♦ ♦ ♦
Fyrirlestur um sorg
Óhjákvæmileg
lífsreynsla
GUÐFINNA Eydalsálfræðingur held-ur fyrirlestur um
ýmsa þætti sorgar í Há-
teigskirkju í kvöld og hefst
hann klukkan 20.
– Segðu okkur aðeins
frá fyrirlestrinum...
„Allir geta staðið
frammi fyrir því að takast
á við sorg. Þó að sorgin sé
óhjákvæmileg eru flestir
algjörlega óundirbúnir
fyrir þær sterku og miklu
tilfinningar sem fylgja
sorginni. Fólk er líka
óundirbúið fyrir þær hugs-
anir sem koma í kjölfar
sorgar, sem eru óreiðu-
kenndar og torskildar.
Flestir sem verða fyrir
sorg eru einnig óöruggir
um hvernig á að halda líf-
inu áfram. Það sem var er búið,
hinn þægilegi raunveruleiki er
ekki lengur fyrir hendi. Sorg
breytir lífi manna. Það sem trúað
var á í gær er ekki endilega trúað
á í dag. Sorgin minnir á hve lífið er
viðkvæmt og brothætt.
Í fyrirlestrinum er sérstaklega
fjallað um hvernig konur og karl-
ar geta brugðist ólíkt við sorg og
hvernig birting sorgarinnar er
háð tilfinningalífi og ólíku þroska-
ferli kynjanna. Varpað er ljósi á
hvað getur sameinað kynin í sorg-
inni og hvað getur sundrað þeim.
Bæði sýna reynsla og rannsóknir
að fjölskylda sem lendir í sorg á
frekar á hættu að rofna en ella.
Skilnaður og sálrænt álag af ýms-
um toga er mun algengara eftir al-
varlegt sorgarferli en ef slíkt
hendir ekki. Því er oftast nauð-
synlegt að takast á við ólík við-
brögð fjölskyldumeðlima til að
hægt sé að lifa með sorginni.
Allir sem lenda í áfalli syrgja.
Engir tveir finna fyrir sorg á ná-
kvæmlega sama hátt. Sorg er allt-
af að einhverju leyti einstaklings-
bundin upplifun. Sorgarferlið er
sérstakt fyrir hvern og einn. Það
er hins vegar hægt að lýsa sorg-
arferli sem nokkurn veginn stig-
skiptri þróun, sem lýtur vissum
lögmálum. Það þekkja allir sem
hafa orðið fyrir sorg. Það er líka
hægt að benda á hvaða verkefni sá
sem syrgir þarf að takast á við í
sorgarferlinu og er komi að þeim
atriðum í bókinni Sálfræði einka-
lífsins. Þar er einnig bent á þá
staðreynd sem margir átta sig
ekki oft á: Það er hve langan tíma
það getur tekið að syrgja.
Í fyrirlestrinum er fjallað um að
samband maka fyrir áfall hefur
áhrif á hvernig kynin tvö eru hæf
til að mæta erfiðri lífsreynslu. Það
hvernig áður hefur verið tekist á
við álag og andstreymi í fjölskyld-
unni ræður líka miklu hér um.
Sambandi maka er að sjálfsögðu
síður ógnað af erfiðleikum ef sam-
staða og skilningur hefur áður
verið fyrir hendi. En þó svo að
slíkt hafi verið tilfellið getur áfall
engu að síður ógnað hjónabandi.
Áfall kallar gjarnan fram við-
brögð þar sem fyrri
lífsreynsla mannsins
nægir honum ekki til
að skilja né ráða and-
lega við aðstæður.
Áhersla er einnig lögð
á að sorginni er aldrei í raun hægt
að leiða hjá sér né afneita. Ef
reynt er að bæla niður sorgarvið-
brögð, leitar sorgin sjálf eftir sín-
um leiðum til að minna á sig. Það
getur komið fram í líkamlegri og
andlegri vanlíðan eða í ýmiss kon-
ar neikvæðri hegðan.“
– Byggir þú fyrirlesturinn á
bókvitinu einu, eða bókviti og eig-
in reynslu?
„Í fyrirlestrinum er stuðst við
fræðilega úttekt á efninu og rann-
sóknir, en einnig við reynslu úr
starfi. Mikið hefur verið skrifað og
rannsakað um þessi mál, þannig
að mikil þekking er fyrir hendi í
dag, þótt alltaf sé verið að varpa
nýju ljósi á þau. Eftir áratuga
starf tel ég mig hafa talsvert
innsæi í hvernig fólk tekst á við
sorg sem tengist áföllum, svo sem
missi, skilnaði og alvarlegum slys-
um.“
– Það er komið inn á mismun-
andi viðbrögð karla og kvenna,
hver er þessi munur og hvor „leið-
in“ er betri?
„Konur eiga yfirleitt auðveld-
ara en karlmenn með að tjá til-
finningar sínar og lýsa líðan sinni.
Þetta hjálpar þeim við sorgarúr-
vinnslu. Konur eru líka meira fyr-
ir samskipti og leggja áherslu á
tengsl. Því vilja þær deila sorg
sinni með öðrum. Þær leita eftir
stuðningi vina og vandamanna og
leita oft faglegrar hjálpar. Karl-
menn eiga oft erfitt með að tala
um sorg sína og eru einir með sín
mál. Þeim veitist erfitt að tala um
innstu tilfinningar við konur og
leita ekki endilega stuðnings hjá
vinum. Karlmenn eiga oft ekki að-
gang að orðum til að lýsa tilfinn-
ingum sínum og finna sjálfir að
það getur hindrað þá í að takast á
við andstreymi. Þeir finna aðrar
leiðir til að fást við sorgina, verða
uppteknir af vinnu sinni og verk-
efnum og verða virkir. Þeir leita
lausna í umheiminum á meðan
konur leita inn á við og verða al-
teknar af sálarlífi sínu. Konur
geta átt erfitt með að
skilja að leið karla snú-
ist um vinnu og virkni
þegar sorgin hefur bar-
ið að dyrum og geta
jafnvel ásakað þá fyrir
að syrgja ekki nóg. Karlmönnum
finnst konur vera um of alteknar
af líðan sinni og að ef talað er um
tilfinningar geti það fest þær
meira í vanlíðaninni. Í slíkum erf-
iðleikum geta kynin sakað hvort
annað um að bregðast óæskilega
við sorginni og þau ná ekki að
deila henni nægilega hvort með
öðru. Bæði eru einmana í sorg-
inni.“
Guðfinna Eydal
Guðfinna Eydal er fædd á Ak-
ureyri 27. febrúar 1946. Stúdent
frá MA 1966. Lauk embættis-
prófi frá Hafnarháskóla 1975.
Sérfræðingur í klínískri sálfræði
frá 1992. Stofnaði Sálfræðistöð-
ina ásamt Álfheiði Steindórs-
dóttur 1983. Skrifaði Tvíbura-
bókina 2001 og Sálfræði
einkalífsins ásamt Álfheiði 2001.
Maki er Egill Egilsson eðlisfræð-
ingur. Þau eiga Hildi Björgu og
tvíburana Ara og Bessa.
Allir sem
lenda í áfalli
syrgja