Morgunblaðið - 18.04.2002, Síða 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NEMENDUR Myllubakkaskóla
hafa að undanförnu sýnt leikritið
Bugsy Malone á sal skólans við
góðar undirtektir og metaðsókn.
Leikritið var upphaflega æft fyrir
árshátíð skólans, sem haldin var í
síðastliðnum mánuði, en atriðið sló
í gegn og því var ákveðið að prófa
að sýna það sem sjálfstæða leik-
sýningu. Sýningarnr áttu upp-
haflega að vera tvær en vegna
mikillar aðsóknar var þeim fjölgað
og í síðustu viku voru 6. og 7. sýn-
ingar og eru það síðustu sýningar
verksins.
Það var mikill stemmning í sal
skólans þegar Morgunblaðið leit
þar við sl. þriðjudagskvöld og leik-
ararnir búnir að stilla sér upp fyrir
upphafsatriðið. Leikritið er fjörugt
og líflegt, enda gerist það í næt-
urklúbbi þar sem mikið er dansað
og sungið. Það kom blaðamanni
ekki á óvart að leikritið hafi verið
svo vinsælt sem raun ber vitni því
krakkarnir stóðu sig mjög vel og
fóru vel bæði með leik og söng.
40 nemendur tóku þátt
Rúmlega 40 nemendur í elstu
bekkjum skólans koma að sýning-
unni og um uppsetningu og um
skipulag sáu fjórir kennarar við
skólann, þær Lilja K. Stein-
arsdóttir, Díana Ívarsdóttir, Íris
Dröfn Halldórsdóttir og Gunn-
heiður Kjartansdóttir.
Að sögn Lilju hefur aðsóknin
farið fram úr björtustu vonum.
„Það liggur mikil vinna að baki
þessari uppfærslu og fljótlega kom
upp sú hugmynd að sýna hana sem
sjálfstæða leiksýningu að árshátíð
lokinni, kannski einu sinni eða
tvisvar. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa, síminn hringdi látlaust frá
klukkan 10 á morgnana því bæði
foreldrar, nemendur skólans og
aðrir sem höfðu heyrt af sýning-
unni höfðu áhuga á að sjá hana.
Þetta vatt því heldur betur upp á
sig og nú hafa um 1.200 manns séð
sýninguna. Þetta er búið að vera
mjög ánægjulegur tími og krakk-
arnir standa sig alveg frábær-
lega,“ sagði Lilja.
Aðstandendur sýningarinnar
létu hins vegar ekki staðar numið
við leiksýningarnar heldur fóru í
Stúdíó Geimstein og tóku upp öll
lögin í sýningunni, en þau eru út-
sett af Jóni Ólafssyni tónlistar-
mannni. Geisladiskurinn var seldur
í skólanum meðan á sýningum stóð
og sjálfsagt geta áhugasamir enn
nálgast hann hjá skólastjórn-
endum.
Atriði á árshátíð Myllubakkaskóla
varð að sjálfstæðri leiksýningu
Keflavík
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Bugsy Malone á tali við Blowsy Brown í klúbbnum og þjónninn orðinn leiður á biðinni. Davíð Örn Óskarsson, 10.
bekk, Marína Ósk Þórólfsdóttir, 9. bekk og Jóhanna María Kristinsdóttir, 6. bekk.
FULLTRÚR meirihluta og minni-
hluta í bæjarstjórn Reykjanesbæj-
ar eru ósammála um það hvaða að-
ferð er réttlátust við álagningu
gjalds vegna fráveituframkvæmda.
Fram hefur komið álit umboðs-
manns Alþingis að Reykjanesbæ
hafi ekki verið heimilt að krefja
gjaldið með þeim hætti sem ákveð-
ið var.
Álit umboðsmanns Alþingis í
máli gjaldanda í Reykjanesbæ
gegn úrskurðarnefnd um holræsa-
framkvæmdir var kynnt á fundi
bæjarstjórnar í fyrradag. Af því
tilefni rifjuðu fulltrúar Samfylk-
ingarinnar upp afstöðu sína þegar
álagningin var ákveðin.
Þeir lögðu til að gjaldið yrði inn-
heimt með því að hækka álagning-
arprósentu holræsagjalda en
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks ákvað að inn-
heimta árlega 6.000 króna gjald á
hverja fasteigna.
Jóhann Geirdal, oddviti minni-
hlutans, segir að hækkun holræsa-
gjaldanna hefði verið mun réttlát-
ari í þessu tilviki og vekur athygli
á því að sú aðferð hafi verið við-
höfð í Reykjavík. Innheimta
gjaldsins færi þá eftir verðmæti
fasteigna og lóða. Nefnir hann sem
dæmi að fátækt fólk í litlum íbúð-
um greiði nú sama gjald og til
dæmis Hitaveita Suðurnesja greið-
ir af skrifstofuhúsi sínu.
Í bókun sinni á bæjarstjórnar-
fundi í gær segja bæjarfulltrúar
Samfylkingarinnar að þetta mál sé
enn eitt dæmið þar sem fram kem-
ur að gagnrýni og aðhald minni-
hlutans hafi átt við rök að styðjast,
en hroki meirihlutans valdið bæj-
arbúum vanda.
Hefði þurft
að greiða meira
Ellert Eiríksson bæjarstjóri vís-
ar því á bug að meirihlutinn hafi
sýnt af sér hroka í málinu. Hann
segir að ef tillaga minnihlutans
hefði verið samþykkt hefði fólk
þurft að greiða mun hærri hol-
ræsagjöld en ella því fasteignamat
hafi hækkað verulega frá því það
var lagt á í upphafi. Þá segist hann
telja að sú aðferð að leggja
ákveðna fjárhæð á hverja fasteign
sé mun réttlátari. Ekki sé sam-
hengi milli fasteignaverðs fast-
eigna og hvað frá þeim kemur út í
holræsin.
Þá segir hann engin rök fyrir
því að leggja hátt gjald á fólk sem
býr eitt í stórum íbúðum, til dæm-
is eldra fólk, og snarlækka síðan
gjaldið þegar það flytur í minni
íbúðir því notkun þess breytist
ekki við það.
Réttmæti gjaldtökunnar skýrist
ekki fyrr en úrskurðarnefnd um
holræsamál fellir nýjan úrskurð en
nefndin taldi að Reykjanesbæ væri
heimilt að innheimta holræsagjald-
ið með þeim hætti sem gert er.
Reykjanesbær hefur innheimt um
25–30 milljónir á ári í umrædd frá-
veitugjöld frá árinu 1997.
Álit umboðsmanns Alþingis á innheimtu
fráveitugjalds kynnt í bæjarstjórn
Deilt um hvor að-
ferðin sé réttlátari
Reykjanesbær
GJORBY Internet í Keflavík hefur
fært út kvíarnar, til höfuðborgar-
svæðisins með því að sameinast
Firmaneti ehf. í Reykjavík. Hið sam-
einaða fyrirtæki mun veita heildar-
þjónustu á sviði nettenginga og
tæknilausna.
Firmanet sérhæfir sig í svokölluð-
um Linux lausnum sem mikið eru
notaðar við nettengingar og hefur
fyrirtækið séð um tæknibúnað
Gjorby Internet frá stofnun fyrir-
tækisins. Georg Brynjarsson, fram-
kvæmdastjóri hins sameinaða fyrir-
tækis sem fengið hefur nafnið
Netsamskipti ehf., segir að Gjorby
Internet hafi gengið vel á síðasta ári
og áhugi hafi verið á að færa út kví-
arnar. Möguleikarnir lægju helst í
því að sameinast eða kaupa fyrirtæki
á höfuðborgarsvæðinu og niðurstað-
an hefði orðið sú að sameinast Firm-
aneti enda hefðu fyrirtækin unnið
mikið saman.
Heildarþjónusta á
sviði Netsins
Gjorby Internet sérhæfir sig í net-
tengingum en með sameiningu við
Firmanet hefur það bætt tæknihlut-
anum við og segir Georg að fyrirtæk-
ið veiti nú heildarþjónustu á sviði
Netsins.
„Það er áhugavert fyrir okkur sem
Suðurnesjafyrirtæki að koma okkur
upp aðstöðu í Reykjavík. Með þessu
erum við að sækja inn á höfuðborg-
armarkaðinn en við höfum meira átt
því að venjast að sjá fyrirtæki úr
Reykjavík sækja hingað. Sameining-
in opnar okkur dyr að nýjum mark-
aði auk þess sem reksturinn styrkist
með stækkun rekstrareiningar,“
segir Georg.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Georg Brynjarsson framkvæmdastjóri hins sameinaða fyrirtækis.
Opnar dyr að
nýjum markaði
Keflavík
Firmanet ehf. sameinast Gjorby Internet
BÆJARSTJÓRN Reykjanes-
bæjar hefur samþykkt að
veita körfuknattleiksdeildum
Keflavíkur og Njarðvíkur 1,5
milljóna kr. styrk til að gera
upp skuldir sem eftir standa
vegna þátttöku þeirra í Ko-
rac-bikarkeppninni fyrir
þremur árum.
Reykjanesbær styrkti á
sínum tíma körfuknattleiks-
deildir Keflavíkur og Njarð-
víkur þegar þær sendu sam-
eiginlegt lið í Korac-keppn-
ina. Tekjur urðu hins vegar
minni en áætlað var og varð
tap á þátttökunni.
Bæjarfulltúar Samfylking-
arinnar fluttu á síðasta bæj-
arstjórnarfundi tillögu um að
veita aukaframlag til að leysa
þetta mál. Í greinargerð með
tillögunni rifja fulltrúarnir
það upp að meirihlutinn hafi
áður fellt tillögu þessa efnis
en að nú sé treyst á stuðning
þeirra til að fagna þeim frá-
bæra árangri körfuknattleiks-
liðanna í Reykjanesbæ að
leika til úrslita um Íslands-
meistaratitilinn.
Allir bæjarfulltrúar
greiddu tillögunni atkvæði,
áður en þeir fóru í íþrótta-
húsið við Sunnubraut í Kefla-
vík til að fylgjast með þriðja
úrslitaleik Keflvíkinga og
Njarðvíkinga.
Greiða
skuldir
vegna Kor-
ac-keppn-
innar
Reykjanesbær