Morgunblaðið - 18.04.2002, Side 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HUGEFLI
Gerðuberg
20 apr. kl. 13:00
og 23 apr. kl. 19:30
• Opnað aðgang að öflugustu hlutum
undirmeðvitundarinnar.
• Aukið sjálfsöryggi, ákveðni og
viljastyrk.
• Fyrirbyggt streitu, kvíða og áhyggjur.
• Aukið velgengni og árangur í starfi.
• Losnað við prófskrekk og bætt
námsárangur.
• Auðveldað ákvarðanatöku og
úrlausn vandamála.
Með sjálfsdáleiðslu getur þú m.a.:
Á námskeiðinu lærir þú hvernig þú
virkjar óbeislaða orku hugans til þess
að ná markmiðum þínum. Námið
byggist upp af fyrirlestrum,
könnunum, æfingum og raunhæfum
verkefnum. Ítarleg námsgögn og
geisladiskur fylgja. Leiðb. er Garðar
Garðarsson NLP pract. Skráning og
nánari upplýsingar:
Námskeiðið byggir á NLP og
nýjustu rannsóknum í djúpslökun,
tónlistarlækningum, dáleiðslu og
beitingu ímyndunaraflsins.
Sími 898 3199
eða 899 7716 á kvöldin
www.gardar.com
NÝ NÁMSKEIÐ Í SJÁLFSDÁLEIÐSLU
TVEIR japanskir ferðamenn, Yuji
Nakano og Mina Takashi, tylltu sér
á Madbasseh-torginu í Betlehem í
gær þar sem þau höfðu ætlað að
skoða Fæðingarkirkjuna. Þau hafa
verið lengi á ferðalagi og var
ókunnugt um átökin sem geisað
hafa í Betlehem og öðrum bæjum
og borgum Palestínumanna á Vest-
urbakkanum að undanförnu.
Um 250 manns halda enn kyrru
fyrir í kirkjunni, og sitja ísraelskir
hermenn um hana. Flestir innan-
dyra eru óbreyttir palestínskir
borgarar og nunnur og munkar, en
Ísraelar segja að þar séu einnig
„um 30 manns“ sem séu hryðju-
verkamenn og beri að framselja til
ísraelskra yfirvalda. Í gær skaut
ísraelsk skytta og særði einn þeirra
sem eru inni í kirkjunni, að sögn
sjónarvotta, en viðræður um lausn
umsátursástandsins munu vera að
hefjast.
Reuters
Ferðamenn í Betlehem
STJÓRN George W. Bush Banda-
ríkjaforseti hefur komist að þeirri
niðurstöðu að Osama bin Laden
hafi verið í fjallavirkinu í Tora Bora
þegar Bandaríkjamenn gerðu loft-
árásir á það og telur líklegast að
hann hafi sloppið það-
an. Bandarískir emb-
ættismenn telja það
nú mikil mistök að
stjórnin skyldi ekki
hafa sent hersveitir að
fjallavirkinu til að
leita að bin Laden og
látið nægja að gera
loftárásir.
Bandarískir leyni-
þjónustumenn segjast
hafa safnað gögnum
sem bendi eindregið
til þess að bin Laden
hafi verið í Tora Bora í
Austur-Afganistan
þegar árásirnar hóf-
ust. Þeir telja litlar
sem engar líkur á því
að hann hafi beðið bana þar og eru
sannfærðir um að hann hafi komist
undan fyrstu tíu dagana í desem-
ber.
Misstu af besta tækifærinu
til að ná bin Laden
Embættismennirnir lýsa þessu
sem miklum ósigri fyrir Bandarík-
in. Heimildarmenn The Wash-
ington Post segja að hershöfðinginn
Tommy Franks, sem stjórnaði
hernaði Bandaríkjamanna í Afgan-
istan, hafi lagt rangt mat á hags-
muni afganskra herforingja, sem
börðust með Bandaríkjamönnum,
og misst af besta tækifærinu til að
handtaka eða vega bin Laden.
Afgönsku herforingjarnir stóðu
ekki við loforð sín um að loka öllum
flóttaleiðum frá fjallavirkinu og
nokkrir þeirra eru sagðir hafa
hjálpað liðsmönnum al-Qaeda, sam-
taka bin Ladens, að flýja. Embætt-
ismennirnir segja að Franks hafi
ekki áttað sig á þessu nógu snemma
vegna þess að hann stjórnaði að-
gerðunum frá Bandaríkjunum og
enginn hershöfðingi var á vígvell-
inum. Fyrstu Bandaríkjamennirnir
komu ekki á staðinn fyrr en átökin
höfðu staðið í þrjá daga.
„Við klúðruðum þessu með því að
senda ekki hermenn fyrr til Tora
Bora og láta Afganana gera allt fyr-
ir okkur,“ sagði einn heimildar-
mannanna.
Flutti ávarp í Tora Bora
Stjórn Bush hefur aldrei viður-
kennt opinberlega að bin Laden
hafi sloppið í gegnum
varðhringinn umhverf-
is Tora Bora eftir að
loftárásir Bandaríkja-
hers hófust 30. nóvem-
ber. Þar til nú hefur
ekki verið skýrt frá því
opinberlega hvort bin
Laden hafi verið í Tora
Bora.
Innan Bandaríkja-
stjórnar eru nú lang-
flestir þeirrar skoðun-
ar að hryðjuverka-
foringinn hafi verið í
fjallavirkinu. Margir
liðsmenn al-Qaeda,
sem teknir hafa verið
til fanga, hafa til að
mynda sagt við yfir-
heyrslur að bin Laden hafi flutt
ræðu meðal félaga sinna í Tora
Bora í byrjun desember. Frásagnir
fanganna þykja trúverðugar og
ýmsar aðrar upplýsingar banda-
rísku leyniþjónustunnar benda til
þess að bin Laden hafi verið í fjalla-
virkinu.
„Ég tel að aldrei verði hægt að
segja það með fullri vissu en við
komumst að þeirri niðurstöðu að
hann hafi verið þarna og hún hefur
styrkst með tímanum,“ sagði einn
heimildarmannanna. „Við teljum
yfirgnæfandi líkur á því að hann
hafi verið þarna en líkurnar á að
hann hafi komist undan eru ekki
eins miklar.“
Bin Laden enn á lífi?
Talsmaður Franks viðurkenndi
að þetta væri ríkjandi viðhorf innan
Bandaríkjastjórnar en sagði að
hershöfðinginn hefði ekki sann-
færst um að bin Laden hefði verið í
Tora Bora.
Þorri embættismannanna telur
að bin Laden sé enn á lífi en aðrir
segjast ekki geta útilokað að hann
hafi beðið bana í árásunum á Tora
Bora eða síðar. Nokkrir embættis-
mannanna telja að bin Laden sé al-
varlega veikur og í umsjá næstráð-
anda síns, Ayman Zawahiri, sem er
egypskur læknir.
Talið að bin Lad-
en hafi sloppið
frá Tora Bora
Bandaríkjastjórn sér nú eftir því að
hafa ekki sent hersveitir að virkinu
The Washington Post.
Osama
bin Laden
Begga fína
FRANSKIR öryggismálafulltrúar
höfðu í gær til yfirheyrslu fimm
menn sem handteknir voru í París í
tengslum við rannsóknina á máli
skósprengjumannsins svonefnda,
Richards Reids, að því er franska
sjónvarpsstöðin LCI greindi frá.
Fulltrúar frá frönsku innanríkisör-
yggisþjónustunni (DST) handtóku
hina grunuðu í fyrradag, að því er
sagði í frétt LCI.
Reid, sem er breskur ríkisborg-
ari, er í varðhaldi í Bandaríkjunum
en honum er gefið að sök að hafa
reynt að kveikja í sprengiefni er
hann hafði í skósólum sínum um
borð í flugvél á leið frá París til
Miami 22. desember sl. Flugliðar
og aðrir farþegar yfirbuguðu hann
og flugvélinni var snúið til Boston. Í
ákærunni gegn honum er því haldið
fram, að hann hafi notið þjálfunar
hjá al-Qaeda-hryðjuverkasamtökun-
um í Afganistan.
Handtökur í París
París. AP.
Golfkúlur 3 stk. í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is